Morgunblaðið - 20.05.1966, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.05.1966, Blaðsíða 10
10 MORCUNBLAÐIÐ t I Föstudagur 20. maí 1966 BORGIINilMI BORGIIMIMI BORGIIMIMI GIIMIMf 558 þúsund gestir á sund- stöðum Reykjavíkur s.l. ár Fáir munu gera sér grein fyrir því hve margir Reykvíkingar iðka sund. Sundstaðina þrjá í Reykjavík sóttu á s-1. ári 558.645 manns. Það er næstmesta aðsókn sem orðið hefur. 1964 komu 10 þúsund fleiri, en það ár var algjör metaðsókn að sundstöð'un- um. Samkvaemt þessari tölu verður meðalaðsókn að sundstöðunum þremur daglega alla daga ársins sem opið er, 1619 manns. Flestir komu í Sundhö>llina 1965 eða rúmlega 200 þús. manns. Rúmlega 190 þús. komu í Sund- laugarnar gömlu, og um 160 þús. komu í Vesturbæjarlaugina og sækir hún stöðugt á, þótt þar skorti mjög tilfinnanlega betri búningsklefaaðstöðu. í áðurnefndum tölum eru skóla börn meðtalin nema þeir, sem læra í Austurbæjarskólanum og Breiðagerðisskólanum, en þeir hafa sér sundlaugar. Reykjavíkurborg greiðir mik- inn halla af rekstri sundstað- anna. 1962 var sá halli 2 millj. 296 þús. kr. Árið 1963, 3 millj. 267 þús. Árið 1964, 3 millj. 12 þús. Hallinn 1965 verður mun meiri, þar sem kostnaður hækkaði mik- ið en aðgangseyrir var óbreytt- ur frá 1964. Reiknað hefur verið út að kostnaður við hverja baðferð Reykvíkings árið 1964 var kr. 13,65. Að jafnaði borguðu Reyk- víkingar í aðgangseyri að sund- stöðunum kr. 5,33 fyrir hvert bað svo Reykjavíkurborg greiðir rúm ar 8 kr. með hverri baðferð. Árið 1968 verður hafizt handa um byggingu nýrra bað- og bún- ingsklefa við Sundlaug Vestur- bæjar og því verki lokið á árinu 1968. Er það mjög nauðsynlegt, því að á góðviðrisdögum annar laugin hvegi nærri þeirri að- sókn sem að henni er og mynd- ast langar biðraðir. Hins vegar er það mjög á- nægjulegt að þeim fer stöðugt fjölgandi, sem gert hafa »ér að venju að byrja daginn með baði og sundspretti í einhverri hinna þriggja sundlauga okkar. Það er góður vani, menn koma hressir og glaði til vinnu og betur undir starfið búnir. íþróttamannvirkin, sem byggð hafa verið í Rvík, sæmdu stdrþjóðum íþróttaleikvangurinn í Laugardal • Borgin styrkir og byggingastarf félaga • Stefnt er að samvinnu skóla og félaga • Mikilsverður stuðningur við rekstur félagssvœða A SÍÐUSTU árum hefur meira fé verið varið til bygg- ingar íþróttamannvirkja í Reykjavík, til styrktar íþrótta félögunum í Reykjavík og til útivistarsvæða en nokkru sinni fyrr. Gerð hefur verið áætlun um byggingu nýrra íþróttamannvirkja á næstu fjórum árum og á að verja til þeirra um 60 millj.kr., auk þess fjár sem borgin leggur til íþróttamannvirkjaskóla. Til að fræðast um hvað efst er á baugi í íþróttamálum höfuð staðarins snerum við okkur til Stefáns Kristjánssonar, sem í nóvember s. 1. var skipaður íþróttaful'ltrúi Reykjavíkurborg- ar. Stefán er fyrsti íþrótta- fulltrúi Reykjavíkur, en áður höfðu starfað sem íþróttaráðu- nautar Reykjavíkur þeir Bene- dikt Jakobsson Og Benedikt Waage. Stefán er kunnur íþróttamað- ur, var um árabil einn bezti skíða maður landsins og er nú, auk starfs síns, formaður Skíðasam- bands íslands. Skipulag iþróttamálanna. Við spurðum Stefán fyrst um skipulagningu íþróttamála hjá Reykjavíkurborg, og Stefán svar- aði: — íþróttaráð Reykjavíkur fer f umboði borgarstjórnar með stjórn íþróttamála í Reykjavík. íþróttaráðið er skipað 5 mönn- uim, 3 kosnum af borgarstjórn og 2 tilnefndum af Í.B.R. Núverandi formaður íþróttaráðs er Gísli Halldórsson arkitekt. Hlutverk ráðsins er að vinna að eflingu iþróttastarfs í Reykjavík og hafa .samvinnu við al'la aðila, sem um slík mál fjalla. Ráðið á að vera borgaryfirvöldunum til ráðuneyt is, eftir því sem þau óska, varð- andi íþróttamál, t.d. fjárveitingu til íþróttamála, staðsetningu nýrra íþróttamannvirkja, hafa umsjón með íþróttamannvirkjum er borgin á eða hefur styrkt (und anþegin þar eru íþróttamann- fulltrúa Reykjavíkurborgar. — Hvert er höfuðverkefni íþróttaráðs nú? — Nú höfum við verið að vinna að framkvæmdaáætlun fyrir byggingar ílþróttamann- virkja fyrir næstu 4 ár. Hefur hún verið tekin inn í heildar- hluta þess fjármagns, sem veitt hefur verið til íþróttamála á undanförnum árum. Þó í engu hafi verið kvikað frá þeirri reglu að Reykjavíkurborg styrkti upp- byggingarstarf og mannvirkja- gerð hinna einstöku íþróttafélaga um 30% af kostnaði, þá hefur komið í ljós að félögin rísa ekki lengur undir uppbyggingarstarfi með þá styrkupphæð. .Yfirvöld- um íþróttamála í Reykjavík er því ljóst að í þessum efnum verð ur að fara inn á nýjar brautir, og auka stuðninginn við félögin, sem Hinn nýi og glæsilegi salur í Réttarholtsskóla. virki skóla), gera tillögur til borgarráðs um starfsreglur hinna ýmsu mannvirkja, standa fyrir íþróttanámskeiðum fyrir ófélags- bundna æsku o.fl. Fræðslustjórinn í Reykjavík er framkvæmdastjóri Iþróttaráðs, en sér við hlið hefur hann íþrótta framkvæmdaáætlun borgarinnar fyrir þessi ár. Samkvæmt áætlun inni á að ljúka við sýninga- og íþróttahúsið svo og að fullgera 1. áfanga við sundlaugina í Laug ardal í ár. Er áætlað að þetta kosti 13 millj. kr. Mikið og stórt átak. Þessi mannvirki í Laugardal, ásamt leikvanginum eru gífur- legt átak. Þættu þau raunar stór verkefni hjá stærri þjóðum, hvað þá hjá einu litlu bæjarfélagi. Þau hafa að vonum „gleypt“ mestan standa í stórátökum í uppbygg- ingarstarfinu. Er mér óhætt að fullyrða segir Stefán, að átak verður gert í þessu máli, þegar hinum stóru og nauðsynlegu framkvæmdum, sem nú standa yfir í Laugardal er lokið. Stúkubygging á Laugardalsvell Á árunum 1967 og 1968 verðu meginverkefnið að ljúka vi stúkubyggingiu á Laugardalsvel] inum. Áformað er að hafizt verf handa síðla sumars 1967, þ.e. ei ir að öl'lum aðalleikjum er lok Stefán Kristjánsson ið á vellinum, en ljúka hennl snemma árs 1968 áður en leik- timabilið hefst. Verður á þennan hátt hægt að sameina tveggja ára fjárveitingu, samtals 13 miilj. kr., vinna verkið óslitið og trufla ekki aðsókn að kappleikjum á vellinum. Á þessum árum er áætlað að verja 3 millj. til ann- arra framkvæmda í Laugardal, auk þess sem gert er ráð fyrir að veita 3 mil'lj. kr. til bygging- ar malarvallar í Laugardal árið 1969. Þegar þarna er komið er hinni dýrari mannvirkjagerð í Laugardal langt komið í bili og það ár því áætlað að veita 4 millj. kr. til nýrra iþróttcisvæða á öðrum stöðum í bænum, og verða þá samkv. áætliuninni alls veittar 7 millj. kr. til nýrra íþróttasvæða á þessum 4 árum. Samvinna íþróttafélaga og skóla. — Er ekki hafið samstarf Iþróttafélaga og skó'la um íþrótta mannvirki? — Jú, við höfum undirbúið og erum komnir áleiðis með að stofna til samvinnu milli íþrótta- félaga og skóla um notkun í- þróttamannvirkja. Og persónu- lega vil ég leggja áherzlu á, að það sé rétt stefna. Hún er hag- stæð fyrir bæjarfélagið, og kem- ur skólum og félögum að fullum notum. Á síðari árum hefur ætíð verið gert ráð fyrir því í skipu- lagi að íþróttavöllurinn í hverf-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.