Morgunblaðið - 20.05.1966, Side 19

Morgunblaðið - 20.05.1966, Side 19
Föstudagur 20. maf 1966 MORGU NBLAÐIÐ 19 sérstök áhugamál fyrir utan heimilið? k | — Jú, íþróttir hafa alltaf verið mér mikið áhugamál. Mér finnst hafa vantað að- stöð til skautaiðkana að vetr- ! inum, en nú verður starfrsekt skautavell í Laugardalnum næsta vetur, og e.t.v. á fleiri stöðum. Annars hefur að- J staða til íþróttaiðkana mjög verið aukin og endurbætt. Ég get nú ekki að mér gert en ég mun sakna gömlu sund- lauganna mikið, þegar þær verða rifnar, þótt vitaskuld verði aðstaða öill í nýju laug- inni miklu betri. ) — Stundið þið hjónin mik- ið sund? — Bóndinn fer yfirleitt á hverjum morgni og ég svona stundum, þegar hárgreiðslan leyfir, frúin hlær við. — Ann ars syntum við bæði 200 metrana í morgun. j — Hafið þið e.t.v. aðrar fþróttir á dagskrá? — Já, ég hef stundað mik- ið badminton, skautaíþróttir og verið á skíðum og sömu-, leiðis fer ég mikið í göngu- ferðir. i — Er það nokkuð sérstakt sem þér vilduð segja í sam- bandi við skólamálin? — f>að væri þá helzt að mér finnst eiginlega ekki lögð nægileg áherzla á lík- amsrækt í skólunum. I>að mætti auka leikfimikennsl- una. Að vísu eru ekki leik- fimissalir enn sem komið er við alla skólana, en t.d. hér í Laugalækjarskólanum sækja börnin leikfimi í Iþróttasalinn á Laugardals- vellinum og þar er öll að- staða prýðileg. I>að er ein- ungis góð gönguferð fyrir börnin að fara þangað. — Það væri auðvitað æskilegast að sérstakir leikfimisalir séu við skólana og er það vitanlega það sem koma skal, en ekki er hægt að gera allt í einu SigTÍður Guðmunðsdóttir og betra að bæta sem víðast úrbrýnustu þörfinni. — Að lokum frú Sigríður, er það eitbhvað sem þér vilj- ið taka fram? — Ekki annað en ég vildi gjarnan nota tækifærið til þess að lýsa ánægju minni með hverfisfundina, sem borgarstjórinn okkar gekkst fy rir að haldnir voru. Ég hefi aldrei fyrr farið á pólitískan fund, en ég hafði bæði gam- an og ánægju af þessum fundi. Það er áreiðanlega rétta leiðin að hafa svona fundi fyrir hvert hverfi fyrir sig, þar sem rædd eru mál hverfisins, heldur en allsherj arfundi, þar sem kemur fjöld inn úr mörgum hverfum. Hulda Victorsdóttir Heimilið er fyrst og fremst fyrir börnin — EKKI dettur mér í hug að kjósa annan flokk en Sjálf- stæðisflokkinn í komandi kosningum, sagði frú Huida Victorsdóttir, verzlunarstjóri í Skóhúsinu í Bankastræti, er við hittum hana nýlega að máli, en hún er einnig þekkt fyrir söng sinn. — Foreldrar minir Victor Helgason, kaup maður og Eygló Gísladóttir, sem nú eru bæði látin, fylgdu alla tið Sjálfstæðisflokknum enda voru þau gagnmerkir Reykvíkingar. En það er ekki frá þeim sem við systkinin höfum okkar „sjálfstæðis- skoðun". Pabbi og mamma vildu aldrei láta okkur krakk ana vita neitt um hvað þau kysu, þau sögðu alltaf að við yrðum sjálf að mynda og móta okkar stjórnmálaskoð- anir. — Og af hverju er það nú einna helzt að fylgir Sjálf- stæðisflokknum svo eindreg- ið? Hulda hlær við þessari spurningu. — Ég hef nú satt að segja ekki orðið vör við þessi vandræði sem talað heí ur verið um. Mínar dætur, sem eru 19 og 15 ára, eru mjög heimakærar. Okkur hjónun- um finnst að heimilið eigi að vera fyrir börnin og fyrst við höfum nóg húsrými hafa dæt- urnar fullt leyfi til þess að vera heima með kunningja sína. Þær eru einnig mjög spenntar fyrir tónlist og við eigum margar góðar plötur. Nú svo höfum við sjónvarp, sem okkur finnst öllum gam- an að. Við skulum bara vona að við fáum að hafa frelsi til þess að velja á milli Kefla- víkurstöðvarinnar og Reykja- víkur þegar þar að kemur. Ef farið verður að banna send- ingar frá Keflavík er strax farið út á hála braut að skerða persónufrelsi fólks. — Þú hefur tekið virkan þátt í félags- og sönglífi borg arinnar? — Jú, ég söng þar til ég fékk illt í hálsinn fyrir nokkrum árum og hætti þá alveg að syngja. Um líkt leyti fór ég að vinna hér í Skóhús- inu og þá kom það líka að sjálfu sér að ekki var bægt að stunda sönginn, vinna úti og einnig að hugsa um heimilið. — Ég hefi og verið í Kvenna- deild Slysavarnafélagsins í sl. 20 ár, en móðir mín sem er nú nýlátin, var ritari deildar- innar í fjöldamörg ár. Ég tók raunar við ritarastarfinu er hún var orðin veik og hef það á hendi sem stendur. — Og nú selur þú borgur- unum skó? — Já, þ.e.a.s. aðallega yngstu borgurunum. Við höf- um nær eingöngu verzlað með barnaskó, ég held að segja megi að þetta sé stærsta barnaskóbúð borgarinnar, sagði frú Hulda að lokum. Sjáum eftir Gróu úr borgarstjórn EFTIR að hafa lent í hálf- gerðum ógöngum komumst við loks að Baugsveg 29, þar sem frú Regína Benediktsdótt ir býr ásamt manni sínum, Baldri Jónssyni, íþróttavallar stjóra. — Það má eiginlega segja að það sé hálfófært hingað til ykkar, frú Regína. Hvað er eiginlega verið að gera? — Já, þetta er heilmikil ófærð, en við erum nú svo af- skaplega þakklát fyrir, að verið er að malbika göturnar hér í kring. Að vísu verður Baugsvegurinn ekki tekinn að þessu sinni, en það verður vonandi fljótlega. Sömuleiðis vonumst við til þess að fá hitaveitu sem fyrst. — Nú eru kosningarnar á næsta leiti. Eruð þér ánægð- ar með núverandi stjórn borg armálanna? — Já, svo sannarlega. Mér finnst reglulega ánægjulegt að sjá hve borgin er orðin falleg. Ég er alin upp á Bók- hlöðustígnum og man vel eft- ir því þegar ekki var mikið gert til þess að fegra borg- ina. Það hafa orðið ótrúlega miklar breytingar til góðs á undanförnum árum. — Hafið þér starfað eití- hvað að félagsmálum? — Já, ég hef starfað í kvennadeild Slysavarnafélags ins og finnst mér samstarfið' við þær ágætu konur sem þar starfa mjög ánægjulegt. Sér- staklega vil ég minnast á frú Gróu Pétursdóttir, sem mér finnst mikill. söknuður að missa úr borgarstjórninni. Annars kynntist ég frú Gróu þegar ég var barn. — Segið mér, frú Regína, Regina Benediktsdóttir hvert sækja börnin hér I hverfinu skóla? — Þau sækja Miðbæjar- barnaskólann. — Er það ekki slæmt, þar sem þetta er töluverð vega- lengd? — Ekki er það nú, því börn in fá strætisvagnapeninga og ferðir vagnanna eru hingað á y2 tíma fresti. Annars eru Framhald á bls. 20 Hver skólabygging ann- arri stœrri rís at grunni — Þegar maður hefur fylgst með því á undanförn- um árum hve mikið og vel hefur verið unnið að margvís legum framkvæmdum hér í borginni er það næg sönnun þess að það er eina rétta leið in að fylgja þeim flokki. Mér finnst að framfarirnar hafi verið sérlega örar nú á síð- ustu árum og þarf hreint ekki að líta langt aftur í tímann til þess að komast að raun um það, Vil ég sérstaklega minnast á betri götur og fegr un borgarinnar. — Eruð þið hjónin komin í nýja íbúð? — Já, við keypum 6 her- bergja íbúð, tilbúna undir tré verk að Meistaravöllum 7, fyrir um það bil 2Vt ári. Það er í nýju hverfi sem er að rísa við Kaplaskjólsveginn og býr þar sægur af ungu fólki, sem getur komið eigin þaki yfir höfuðið vegna þess, að það fær góð lán frá húsnæðis málastjórninni. — Hvernig gengur þér að ala dætur þínar upp í þess- um „skemmtanasnauða bæ fyrir unglinga?“ EIN af konunum á framhoðs lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik er frú Sigurlaug Bjarnadóttir að Rauðalæk 20. Sigurlaug er kennari við Gagnfræðaskóla Austurbæjar og hefur því góða aðstöðu til að fylgjast með fræðslu- og uppeldismálum borgarinnar. Við fórum á fund frú Sigur- laugar og hér á eftir fara hennar orð: — Það er margt og mikið talað um að gerbreyta þurfi fræðslu- og skólakerfi okkar — þar sé helzt allt orðið úr- elt og ónothæft, það þurfi að bylta því öllu við og fá nýtt í stað þess gamla. Þannig tala að minnsta kosti þeir, sem róttækastir eru á þessu sviði. Svo eru aðrir, sem hæg ar vilja fara í sakirnar og ganga út frá því sem gefnum hlut, að margt sé nýtilegt i Sigurlaug Bjarnadóttir því gamla og að fara beri að með fullri gát, þegar farið er út í verulegar breytingar í þessum efnum. Ég er i hópi þeirra siðarnefndu, og tel að við endurskoðun á núverandi skólakerfi — sem vafalaust er nauðsynleg vegna stór- breyttra þjóðfélags- og menn ingarhátta, þá sé það mikil- vægt að reynt sé að byggja sem mest á okkar eigin heima fengnu reynslu í þessum efn- um. Auðvitað ér rétt og sjálf- sagt að hyggja hér að reynslu annarra þjóða, og þá helzt þeirra, sem standa okkur næst hvað snertir skapgerð, atvinnuhætti og menningu. En ég held að við íslending- ar hljótum að hafa hér sér- stöðu um margt, sem of langt mál yrði að fara út í hér, — og að við verðum að haga okkur eftir því. — Hverjar eru helztu nýj- ungar í skólamálum að undan förnu? Framhakl á bls. 21.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.