Morgunblaðið - 03.09.1966, Síða 8

Morgunblaðið - 03.09.1966, Síða 8
8 MORCU N BLAÐIÐ Laugardagur 3. sept. 1966 Frá einu móti æskulýðsnefndarinnar. Æskulýðsstorfsemi í Tónlistarfélag stofnað STARFSEM3 aeskulýðsnefnda Mýra- og Borgarfjarðarsýslu hefur verið umfangsmikil í sum ar. Hefur nefndin annast fjöl- breytta starfsemi fyrir æskufólk í héraðinu og ungt fólk, sem hér hefur dvalið frá öðrum stöð um af landinu. Starfsemj ungra hestamanna. í fyrra var stofnað í vegum aeskulýðsnefndarinnar sérstös deild ungra hestamanna. Stofn- endur urðu strax allmargir, en íleiri hafa bætzt í hópinn í sum- ar. í júlímánuði efndi hesta- mannadeildin til hópreiðar um Borgarfjörð. Var farið frá Svignaskarði og riðinn fremur fáfarinn vegur upp með Gljúf- urá um Tandrasel og þaðan yfir hálsinn áð Hreðavatni. Frá Hreðavatni var svo farið yfir Norðurá hjá Glitstöðum og yfir Grjótháls. Gist var við I>ver- árrétt. Næsta dag var svo far- ið sem leið liggur um Kláffoss, og endaði ferðin við Hvítárvelli Fararstjóri var formaður hestamannadeildarinnar, Gísii Jónsson frá Skeljabrekku. í ferðinni tóku þátt milli 30 og 40 ungmenni og höfðu þau um 70 hesta. Þótti skemmtilegt að sjá þennan hóp glaðrar æsku með hesta sína. Þessi starfsemi æskulýðsnefndarinnar miðar að því áð auka fjöltoreytni í starf- inu og að skapa viðfangsefai við sem flestra hæfL Æskulýðsmótið við Grábrók. Dagana 13. og 14. ágúst var haldið æskulýðsmót við Grá- brók í Borgarfirði. Var það haldið að tilhlutan Æskulýðs- nefndar Mýra- og Borgarfjarð- arsýslu, í samvinnu við Æsku- lýðsráð Reykjavíkur, Æskulýðs- ráð Kópavogs, Æskulýðsrað Garðahrepps og Stjörnuklútob- inn, sem er æskulýðsfélag iðn- aðarmanna í Hafnarfirði. Æsku- lýðsnefnd Dalasýslu tók einnig myndarlegan þátt í þessu móci. Kom glögglega í ljós, hve miklu samstillt átak getur áorkað. Heiður himinn og heillandi náttúrufegurð heilsaði unga fólkinu frá hinum ýmsu byggð- arlögum, þegar það tók að •treyma að í stórhópum síðdeg- is á laugardag. Tjaldibúðirnar voru reistar hver af annari, en svæðinu hafði veri'ð skipt nið- ur þannig að hvert byggðarlag hafði sinn ákveðna reit. Kom fljótlega í ljós, að það þótti sómi hvers byggðarlags að hafa sína tjaldbúð sem skipulegasta. Brátf hljómaði glaðvær leíkur lífsglaðs æskufólks milli hlíða og fjalla. Dagskráin hófst svo með því að æskulýðsfulltrúi Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, Arnar Finn- bogason, kennari, setti móti'ð og bauð gesti velkomna. Svo hófst kvöldvaka: Leikhús Æskunnar sýndi nokkra skemmtiþætti og Jón Gunnlaugsson skemmti. Dansleikur var um kvöldið, og léku þar tvær unglingahljóm- sveitir, Tíglar frá Borgarnesi og Tacton frá Kópavogi. Upp úr miðnætti var að lokum flugelda sýning í hinum sérstæða sprengi gíg, Rauðbrók. Það voru ánægðir og ef til vill svolítið þreyttir unglingar, sem gengu til hvílu þetta kvöld í tjöldúm sínum á Brekkueyrum við Grábrók. Á sunnudag fór fram óform- leg keppni í knattspyrnu pilta og handbolta bæði pilta og stúlkna. Var valið í liðin á istaðnum og gekk það bæði ifljótt og vel. Ennfremur var •keppt í boðhlaupi og víðavangs •hlaupi við mjög gó'ða þátttöku. Borgorfirði Vár áhugi svo mikill fyrir •íþróttakeppni, að menn gáfu sér •vart tíma til matarhlés. Eftir •hádegið fóru fram kappreiðar og hestasýning. Voru það ungir hestamenn í hestamannadeild •æskulýðsnefndarinnar, sem sáu um þær. Fyrst voru sýndir tveir gæðingar og sýndur ýmiskonar gangur hestsins og hann út- •skýrður. Því næst var keppt í ■150 m. stökki. Keppt var í 5 ■riðlum. Til úrslita kepptu Til- toeri, knapi Guðrún Fjeldsted, Ferjukoti, og Glófaxi, knapi Þor valdur Jónsson, Skeljabrekku. Undir lok mótsins flutti Ás- geir Pétursson, formaður Æsku- lýðsnefndar Mýra- og Borgar- fjarðarsýslu, ávarp. Ræddi hann um æskulýðsstarfsemi, skipulag hennar og framtíðaráform. Hann þakkaði öllum þeim, sem stutt höfðu að því að þetta mót tókst svo farsællega. Einkum færði hann þessum mönnum þakkir fyrir veitta liðveizlu: Sigurjóni Hilaríussyni, Kópavogi, Aðal- steini Sigurðssyni, Hafnarfirði, Reyni Karlssyni, Reykjavík, Vil hjálmi Einarssyni, Reykholti og Leopold Jóhannessyni, Hreða- vatnsskála svo og landeigend- um þeim feðgum Þorsteini Þórð arsyni og Þórði Ólafssyni, bænd- um að Brekku í Norðurárdai. Ennfremur hjálparsveit skáta, sem jafnframt annaðist eftirlit á mótinu, í samráði við lögregi- una í Borgarfirði. Fjölda margir aðrir höfðu stutt að þessu móti og var þeim einnig þakkað, þ. á. m. leikhúsi æskunnar úr Reykjavík. Æskulýðsskemmtanir. Venju samkvæmt hefur æskj lýðsnefndin haldið skemmtanir í sumar fyrir æskufólk á aldr- inum frá fermingu til tvítugs. Þær hafa verið haldnar í Braut- artungu í Lundareykjadal, Brún í Bæjarsveit og Hlöðum á Hval- fjarðarströnd. Er eftir að halda eina slíka skemmtun. Verður hún haldin í september, senni- lega í nýja félagsheimilinu að Arnarstapa á Mýrum. Tónlistarstarfsemi. Á s. 1. ári var fyrir forgöngu æskulýðs- og menningarmála- nefndarinnar stofnað Tónlistar- félag Borgarfjarðar. Var for- maður þess kjörinn Friðjón Sveinbjörnsson, sparisjóðsstjóri í Borgarnesi. í athugun er að stofnaður verði tónlistarskóli á vegum hins nýstofnaða félags. Tækninámskeið. í fyrra var haldið fyrsta tækninámskeið æskulýðsnefnd- arinnar. Var þá bændum og bændasonum og öðrum ungum mönnum kennt viðhald meðferð og öryggisgæzla dráttarvéla. Var þátttaka mikil, og þótti námskeiðið bera góðan árang- ur. '' Nú er I ráði að halda annað tsekninámskeið. Er stefnt að því að þar verði kennt um þau atr- iði, er varða orkukerfi (toenzín og olíu) og rafmagnskerfi land- búnaðarbifreiða. f fyrstu var ráðgert að halda þa’ð í ágústlok, en vegna þess hversu sláttur var seint á ferðinni eru líkur á því að námskeiðinu verði frestað fram yfir réttir og sláturtíð. Hyggjast stofna blðndaðan kór í Kópavogi NOKKRIR menn í Kópavogi hafa myndað með sér félags- skap og ætla að stofna Samkór Kópavogs og ætla þeir að hefja æfingar strax og nægileg þátt- taka fæst. Félagarnir eru þeir Skapti Ólafsson, Jan Moraveg, Valur Fannar og Garðar Sigfússon. Skapti kom að máli við blaðið í gær og sagði að engin slík starfsemi hefði verið í Kópa- vogi til þessa, en Kópavogur er eins og kunnugt er einn af stærstu kaupstöðum landsins. Kvaðst hann vonast til að hug- mynd þessi mæltist vel meðal Kópavogsbúa, svo að unnt yrði að hefja æfingar sem fyrst og sagði hann það markmið þeirra félaga að halda hljómleika að vori. Þátttökutilkynningar til- kynnist í síma 41739 og 40767. Moskvu, 29. ágúst. AP. UHRO Kekbonen, forseti Finn- lands, er um þessar mundir í orlofsheimsókn • Sovétrikjunum. Á laugardag kom hann til borg- arinnar Astrakhan við Kaspía- haf, ásamt forsætisráðherra Sov- étríkjanna, Alexei Kosygin, þar voru þeir fyrir Leonid Brezhnev, aðalritari kommúnistaflokksins og Nikolai Podgorny, forseti. Þeir Kosygin og Kekknen höfðu áður verið við hvíld og veiðar í Sochi við Svartahafið. Gjöf tU Slysuvarna „Frú Sigrún Konráðsdóttir, Bárugötu 34, hefur í dag afhent Slysavarnafélagi Islands 10.000.00 kr. sem minningargjöf um mann sinn Eyjólf Eðvalds- son, loftskeytamann er fórst með Goðafossi hinn 10. nóv, 1944 Eyjólfur var fæddur 1. sept. 1896 og hefði því orðið 70 ára í dag.“ ( Frá Slysavarnafélaginu). IMafn þriðja flug mannsins í Eyjafjallajökli LÍKIN þrjú af bandarísku flug mönnunum, sem fundust í Eyja- fjallajökli 21. ágúst sl. hafa nú þekkzt og ættingjum til- kynnt um þau. í gær birtust 1 blaðinu nöfn tveggja flugmann- anna, sem fórust 1952, en þriðji maðurinn er Lt. John Patrick Conlon. Móðir hans bjó síðast þegar vitað var í Albany í New York. . Gólfkfæðning frá DLW er heimskunn gæðavara. GÓLFDÚKAR GÓLFFLÍSAR GÓLFTEPPI við allra hæfi. Munið merkið er trygging yðar fyrir beztu fáanlegri gólfklæðningu. Deutsche Linoleum Werke AG Kristján Hannesson kennir ventlastillingu á Vélanámskeið- inu 1965. Blacka Decken HD 1285 7” Vinkilskífa. Byggð fyrir mikla og erfiða notkun. Sérstaklega fyrir jnrnsmíða- og bifreiðaverkstæði. — Snýst 5200 snúninga á mín- útu og er aðeins 6,3 kg. að þyngd. — Þægilegt að koma henni að hornum vegna færanlegs hand- fangs. — Allar legur eru kúlulegur. B. Þ0RSTEINSS8NIJOHNSON H.I. Ármúla 1 - Grjótagötu 7 Simi 2 - 42 - 50

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.