Morgunblaðið - 03.09.1966, Page 10

Morgunblaðið - 03.09.1966, Page 10
10 MOHGUNBLAÐIÐ Laugardagur 3. sept. 1966 UTAN AF LANDI - Á HÉRAÐSMÓTUM SJÁLFSTÆDISMANNA Héraðsmót í Vestmanna- eyjum og á Hellu ÞAB var ekki flugveður til Vestmannaeyjar á föstudaginn var, en það kvöld var haldið héraðsmót Sjálfstæðismanna í samkomuhúsinu Höll. Hópurinn úr Reykjavík, sem fór þangað til að skemmta og haida ræöur, varð þvi að fara sjóleiðina. Það var þungur sjór, og velktir menn sem stigu á land i Eyjum þrem stundarfjórðungum áður en skemmtunin átti að hefjast. Sumir voru sjóveikir og lítt til þess færir að skemmta fólkinu, sem þegar var farið að þyrpast til Hallarinnar. En allt fór betur en á- horfðist i fyrstu. Gunnar Eyjólfsson og Bessi Bjarn ason komu mönnum í gott skap með sínum ágætu Bkemmtiatriðum, hljómsveit Magnúsar Ingimundarsonar aðstoðaði þá, lék á milli atriða og svo fyrir dansi á eftir. Jóhann Hafstein, dómsmálaráðherra, hélt aðairæðu kvöldsins, en auk hans töluðu Guð- laugur Gíslason, alþingismaður, og Guðmundur Karlsson, vtrksmiðjustj. Jóhann Friðfinnsson, kaup- maður, setti mótið og kynnti þá sem fram komu. Að lokinni dagskrá kvöldsins var stiginn dans ál 2:15 eftir miðnætti, og mátti sjá bæði unga og gamla á dansgólfinu að skemmta sér. Arnar Sigurðsson er búinn að vinna hjá Flugfélagi íslands í Vestmannaeyjum undanfarin fjögur ár. Arnar er ættaður frá Sandi á Snæfellsnesi, en fluttist til Vestmannaeyja fyrir þrettán árum. Hann er kvæntur Helenu Gu'ðmundsdóttur, sem er Vest- mannaeyingur í húð og hár. Arn ar er 1 stjórn félags ungra Sjálf- stæðismanna í Eyjum, en það fé- lag hefur á undanförnum árum beitt sér fyrir ýmsum framfara- málum Vestmannaeyinga og unn ið að auknu menningar- og við- skiptalífi Eyjaskeggja. í stjórn félagsins sitja nú: Guðmundur Karlsson, formaður, Arnar Sig- mundsson, varaformaður, Arn- ar Sigurðsson, Sigurgeir Sigur- jónsson, Steingrímur Arnar og Gunnlaugur Axelsson. Arnar Sigurðsson Arnar er mikill áhugamaður mm samgöngumál Eyjabúa, og því snerum við okkur til hans með nokkrar spurningar um þau málefni. — Hafa samgöngur í lofti til Vestmannaeyja ekki batnað á síð ustu árum? — Jú, það má segja að þær séu komnar í sæmilegt horf nú, einkum með tilkomu Fokkei- véla Flugfélagsins, en þær halda uppi reglulegum ferðum milli Eyja og lands, tveim ferðum á fimmtudögum og þriðjudögum, en þrem ferðum daglega aðra daga vikunnar. Þó er varla hægt að segja að flugsamgöngur við land séu eins góðar og fólk hér vildi helzt hafa þær. — Hverju er ábótavant? — Ja, fyrst og fremst þarf að lengja norður-suður-brautina, svo Fokkervélarnar geti lent þar þegar ekki er hægt að lenda á eðalbrautinni fyrir vindafstöðu. Nú þyrfti og að malbika aðal- brautina alla. f vor var byrjað að malbika þá braut, og er nú foúið að malbika 100 metra á sitt Ihvorum enda a'ðalbrautarinnar *neð malbikunarvélum bæjarin3. Enn liggur þó ekki fyrir áætlun ura hvenær því verki verður lokið. Aðalbrautin er 1200 metr- ar á lengd, en þverbrautin að- eins 700 metrar. — Hvernig er með flugvallar- byggingar við völlinn? Er ekxi nauðsynlegt að stærri og betri byggingar verði reistar í náinni framtíð? — Jú, við þurfum að fá til- heyrandj byggingar reistar á vellinum, svo að skilyrði við lengingu og afgreiðslu bæði far- þega og annars flutnings geti orði'ð eins góð og á mörgum stóð um út um landið, t.d. á Akureyri og á Egilsstöðum. Núverandi bygging við flugvöllinn er af- burða léleg og gegnir ekki nærri því hlutverki sem á hana er lagt. Annars, þó margt sé ennþá 4- bótavant í flugmálum okkar, þá hafa samgöngur í lofti milli Eyja og lands stórlega aukizt á síðustu árum. Til dæmis má nefna að í ágústmánuði hafa flugvélar Flugfélagsins flutt hátt á sjötta þúsund manns til og frá Vestmannaeyjum. — Eru samgöngur á sjó full- nægjandi þörf Eyjaskeggja? — Varla er hægt að segja það. Herjólfur kemur hér frá Þor- lákshöfn annan hvern dag, allt- af hlaðinn varningi og fólki. Hglfsmánaðarlega fer skipið til Hornafjarðar, og kemur þá ekki til Eyja í fjóra daga. Þannig, ef ekki er flugveður, erum við samgöngulausir í fjóra daga og höfum litla möguleika til þess að komast í land. Okkur finnst vera þörf á stærra skipi, sem gæti jafnvel komið hér daglega, og sem gæti flutt fleiri bíla en nú er hægt áð flytja milli lands og Eyja. Ástandið hérna er þannig, að menn þurfa að panta langt fram í tímann til þess að geta flutt bifreiðir sínar til lands og til baka í Eyjarnar. Bilaeign Vestmannaeyinga er nú að nálg- ast 600, og vilja margir fara með bifreiðir sínar með sér til lands í sumarfríum eða í öðrum ferð- um. Það er þá heldur slæmt að geta ekki treyst á öruggan flutn- ing fram og til baka. Að lokum vildi ég segja það, að við ungir Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum vinnum að bættum samgöngum við heima- landið, bæði á sjó og í lofti, og munum ekki linna fyrr en sam- göngumál er komin í það horf sem bezt getur orðið. Einkum lítum við með tilhlökkun til þess dags, þegar Eyjaskeggjar geta flutt bifreiðir sínar til lands án mikilla tafa og vafsturs og kom- ið með þær jafnvel til baka sam- dægurs. Magnús Magnússon, trésmíða- meistari, meðeigandi í trésmíða- verkstæðinu Smið, er Vestmanna eyingur langt fram í ættir. Faðir hans var Magnús Guðmundsson frá Vesturhúsum, þekktur Eyja- skeggi, sem sat lengi í bæjar- stjórn og sýslunefnd fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. Magnús eldri var sjómáður lengstum um sína daga, þar á meðal fengsæll skip- þau dönsuðú nýju dansana af miklum krafti innan um fólk, sem hoppaði „The jug“, the frug" eða hvað það heitir. <Samt, á milli dansa, tókst mér að króa Magnús af og rabba stuttlega við hann. Hann sagði mér fyrst sögu frá fortíðinni: — Ég man eftir manni, Magn- úsi Eiríkssyni frá Eystri-Vestur- húsum hér í Eyjum. Um alda- mótin fór hann tvisvar til Amer- íku, eins og sumir gerðu þá, en kom þó aftur til Eyja. Við strák- arnir töluðum oft við hann, enda hann sigldur til framandi landa og fróður um marga hluti. Hann sagði okkur frá Ameríku og dá- semdinni sem þar biði hvers sem hafa vildi. Alltaf bætti hann við: Þið eigið að fara til Ameríku, strákar. Það getur aldrei orðið maður úr ykkur hérna á hjara veraldar. Hérna eru engin tæki- færi sem foíða vaxandi manna. alla okkar afkomu á sjónum svo það er ekki nema von að við höfum alltaf haft mikinn áhuga á þessum málum. Þá feng um við dýpkunarskip árið 1930, og var það kallað Vestmannaey, og vann hér lengi að bættum hafnarskilyrðum. — Hvert var viðhorf þitt til framtíðarinnar, Magnús? — Ég vil segja að ég lít björt- um augum á framtíðina. Hagur manna hér í Eyjum er mjög góður og unga fólkið virðist una sér vel hérna. — I Skip- hellum, þar sem bátar voru byggðir í eina tíð, má enn sjá unga stráka og stúlkur sprang- andi utan í berginu (Vestmanna eyingar kalla bjargsig sprang; íslenzk-íslenzka orðabókin kall- ar sprang: að sveifla sér í vaði í slútandi fuglabjargi). Hér fara menn enn mikið á fugla- Rabbað við Eyjabúa Magnús Magnússon stjóri í rúm fjörutíu ár. Magnus Magnússon hefur sjálfur jafnan tekið þátt í félagsmálum, og hef- ur m.a. setið lengi í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í Eyjum. Hann er kvæntur Kristínu Ás- mundsdóttur, ættaðri frá Seyðis- firði. Þó Magnús sé orðinn sex- tugur, vílaði hann ekki fyrir sér að fá sér snúning með konunm; Það sem hann sagði, sýnir velveiðar, enda mergð af lunda hve litla trú menn höfðu á land- hér, bæði fullfleygum, kofum og inu í fyrri daga. Þeir ættu að vera á lífi núna og sjá allar fram farirnar sem hafa átt sér stað í Eyjum. Þeir ættu að komast að raun um þá grósku sem hér er í athafnalífi manna, og fá að kynn ast öllum þeim ungum Eyja- mönnum, sem hér lifa og starfa og sjá fram á glæsilega framtíð í skjóli einstaklingsframtaks og sífellt fleiri tækifæra til mennt- unar og starfa. Þegar ég var fermdur árið 1919 voru björgunarmál á byrj- unarstigi hér í Eyjum. Það ár gáfu margir unglingar, þar á meðal ég, allar fermingargjaf- irnar okkar til þess að unnt yrði að kaupa björgunarskip. Það var að vísu ekki mikið sem hver okkar gat gefið í þá daga, en margt smátt gerir eitt stórt, og ári seinna, 1920, fengum við okkar fyrsta björgunarskip, Þór. Það skip var eitt af þeim fyrstu sem til íslands kom í þeim til- gangi einum að sinna björgun- ar og landhelgismálum. Það var mikill léttir okkur Eyjamönn- um að fá slík skip. Ég man eftir því að oft, þegar feður okk- ar voru að koma að landi, þreytt ir og lúnir eftir erfiðan dag á sjó, voru þeir beðnir að fara út aftur og leita að eða aðstoða nauðstadda báta. Með komu Þórs má segja að við Vestmannaeyingar hafi orð ið brautryðjendur í landhelgis- gæzlu og björgunarinálum á ís- landi. Náttúrlega byggjum við pysjum, sem danglast um göt- urnar í bænum og húka við margra dyr þegar þeir koma út á morgnana. Athafnalíf bæjar- ins er í blóma. — Já, og að lokum, segir Magnús, og iðar við tilhugsun- ina að komast aftur á dans- gólfið, — þú mátt segja sð skemmtunin hafi tekizt með af- brigðum vel. Og ekki er dansinn verri. Og þar með er Magnús Magn- ússon horfinn í fjörið. Morguninn eftir hittum við á Náttúrugripasafni Vestmanna- eyja Friðrik Jesson, sem hefur veitt því safni forstöðu frá því það var sett á laggirnar fyrir tveimur árum að tilstuðlan margra góðra Vestmannaeyinga, þar á meðal Guðlaugs Gísla- sonar Alþingismanns. Friðrik hefur unnið einn við safnið og stækkun þess, og er furðulegt að sjá hve miklu hann hefur áorkað. Hann hefur komið á laggirnar eina sjódýrasafni, sem til er á íslandi. Þar að aukj hef- ur hann stoppað og stillt upp um 170 fuglum. f fiskasafninu eru nú um 18-20 tegundir fiska, og vinnur Friðrik stöðugt að því að stækka safnið. í safninu eru nú alls um 4-500 tegundir fiska, fugla og plantna. — Hafðir þú kynnt þér meðferð lifandi fjska áður en þú tókst við forstöðu safnsins? — Já, áður en safnið var opn- að, fór ég á vegum bæjarins til Eina sjddýrasafnið á Islandi Friðrik jessen við einu sýningarglugga safnsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.