Morgunblaðið - 03.09.1966, Síða 17
Laugardaaiir 3. sept. 1966
MORGUNBLAÐIÐ
17
Elín Gíslndóttir
Minningarorð
f. 13. nóv. 1900.
d. 24. ágúst 1966.
Stundum ber það við á lífs-
leiðinni, að við kynnumst fólki
sem er svo sérstætt hvað snert-
ir persónuleika, að við munum
svipmót þess, viðbrögð og tii-
svör þótt við séum fjarri því
langdvölum. Þessi minning hel i
ur áfram a'ð lifa löngu eftir að
iþað er horfið okkur og varir
á meðan dagur endist.
Ein af þessu fólki var frú
Elín Gísladóttir Hólmgarði 10 i
Heykjavík. Útför hennar var
gerð frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 31. ágúst s. 1.
Elín fæddist í Holti á Kjalar-
nesi þann 30. nóvember árið
1900. Foreldrar hennar voru
hjónin María Þorvarðardóttir
prests, Jónssonar, síðast á Prests
bakka á Síðu, og Gísli Halldórs
son sem síðar varð byggingar-
meistari í Reykjavík. Árið 1905
fluttu foreldrar Elínar til
Reykjavíkur með börn sín. Þir
gekk Elín í barnaskóla en síð-
ar fór hún í kvöldskóla. Eftir
það stundaði hún nám í teikm-
skóla Stefáns Eiríkssonar. Þar
lagði hún aðallega stund á blý-
ants- og svartkrítarmyndir. Hún
mun hafa þótt efnilegur nem-
andi, því Stefán hvatti hana til
að halda áfram námi, en úr því
varð ekki. Seinna lærði hún
fatasaum og varð klæðskera-
meistari. Foreldrar Elínar hljó.a
að hafa verið betur efnum búri-
ir en almennt gerðist því að í
þá daga var ekki lagt kapp a
að mennta stúlkur frá fátækum
heimilum sem ekki var von.
Hinn 14. maí 1921 gekk Elin
að eiga Jón Guðnason trésmíða
meistara. Varla hefði hún getað
kosið sér betri lífsförunaut því
hann er orðlagt valmenni. Jón
er sonur Guðna Þorbergssonar
og Margrétar Jónsdóttur sem
lengi voru gestgjafar á Kolvio-
arhóli. Hann veitir nú forstöðu
glerverkstæði Egils Vilhjálms-
sonar h. f.
Börn þeirra Jóns og Elínar
eru Aðalheiður gift Haraiui
Sæmundssyni fulltrúa og Gísli
rafveitustjóri í Hafnarfirði
kvæntur Margréti Guðnadóttar
frá Kirkjulækjarkoti i Fljóts-
hlíð. Þá hafa þau hjónin auic
sinna barna alið upp Elínu Alice
dótturdóttur sína, og verið henni
eins og beztu foreldrar. Hun
dvelst nú í Englandi.
Þegar Elín Gísladóttir var
tveggja ára fékk hún heiftuga
barnaveiki og bjó að því alla
tíð.
Það gengur kraftaverki næst
hve miklu hún hefur komið í
verk á ævinni þrátt fyrir van-
heilsu þá sem hún átti við að
stríða.
Mörg ár eru nú liðin siðan
hún tók þann sjúkdóm sem lagði
hana að velli. Hún lézt í Lands-
spítalanum þ. 24. ágúst s. 1. Þar
með lauk langri sjúkrasögu sem
enginn þekkti til hlítar nema
hún ein.
Mikil huggun hlýtur það að
vera manni hennar og börnum
hve vel þau hlúðu að henni í
veikindunum.
Eljn var um marga hluti af-
bragð annarra kvenna. Ég held
að ég hafi aldrei þekkt konu
sem var betur verki fann. Það
mátti einu gilda hvort það var
flík eða útsaumur, allt virtist
leika í höndunum á henni. Heim
ilisgjald og öll umgengni báru
vott um smekkvísi og snyrti-
mennsku. Þegar hún var fra
vinum vegna lasleika, notaði
hún allar stundir til bókalesturs
enda kunni hún skil á mörgu,
bæði mönnum og málefnum.
Ég held að öllum sem kynntust
henni hafi þótt vænt um hana
og mikið var alltaf gaman að
rabba við hana. Skyldi þó eng-
inn halda að hún hafi alltaf
verið á sama máli og síðasci
ræðumaður.
Hún hikaði ekki við að segja
álit sitt á hlutunum, og fólk sem
fór með rætni eða hailaði réttu
máli, þoldi hún ekki. Stundum
átti hún það til að missa móð-
inn og láta hugfallast. En bæri
eitthvað válegt að höndum, kall
aði lífið og skyldan á hana. Þá
var hún allra manna hugrökk-
ust.
Elín var einn af stofnendum
Kvenfélags Bústaðasóknar og
lengi ritari í stjórn þess. Öll
störf hennar þar voru unnin af
kostgæfni og alúð. FundarbÓK
félagsins ber þess glögg merki.
Þá vann hún um skeið í ferm-
ingarkyrtlanefnd félagsins, og á
erfiðustu árum þess stóð hún
fyrir saumanámskeíði sem hald
ið var einn veturinn. Þar gat
hún svo að segja alla vinnu
sina.
Kvenfélag Bústaðasóknar
þakkar henni vel unnin störf i
þágu þess. Við sem sátum með
henni í stjórn og vorum í sauma
klúbbnum forðum, þökkum
ánægjustundirnar sem við átt>-
um á heimili hennar og kveðj-
um hana með þakklæti og virð-
ingu.
Af systkinum Elinar eru þessi
á lifi: Valgerður, sem er alsyst-
ir hennar, en hálfsystkinin eru
Lilja Ólafsdóttir, Jóhann og
Skapti Ólafssynir. Þau eru börn
Maríu og fyrri manns hennar.
Um leið og ég lýk við þessar
línur minar. sendi ég Jóni
Guðnasyni, börnum hans og
öllu skylduliði innilegar sam-
úðarkveðjur.
Auður Matthiasdóttir.
>( auglýsing
borgar sig bezt.
í útbreiddasta blaðlnu
Voikswagen 1965 og ’66.
MÁTSTEINN
MÁISIEINNINN MÆ.LIR MEÐ SÉR SJÁI.FIIR! — Sterkur — traustur — öruggur. — Sparið timburkaup —— tíma —■
£é og fyrtrhöfn og hlaðið húsið strax úr MÁTSTEININUM úr Seyðishólarauðamölinni.
Þér fáið MÁTSTEININN ásamt flestu öðru bvggingarefni með hagkvæmum greiðsluskilmálum.
Skoðið sýningarbás 371 á Iðnsýning-unni!
JÓN LOFTSSON HF.
HRINGBRAUT 121 — SlMI 10600.