Morgunblaðið - 06.09.1966, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 6. sept. 1966
Til leigu __ 1 herbergi og eldhús með R eða án húsgagna. Tilb. send 8 ist afgr. Mbl. fyrir 9. sept., merkt: „4150“.
14 feta hraðbátur til sölu ásamt mótor að Sólvalla- götu 66.
íbúð óskast Ung hjón, barnlaus, óska eftir 2—4 herbergja íbúð sem allra fyrst. Hringið í sima 35 35 6 eftir kL 7 e.n.
Stúlka óskar eftir 1—2 herb. og eldhúsi. Upplýsingar í síma 14899 (barnaheimilið Vest- urborg).
Góða stúlku vantar sem fyrst í vist á gott heimili í Portsmouth í Englandi. Góður skóli í grennd. Uppl. í síma 32733 eftir kl. 7 á kvöldin.
Ráðskona óskast í sveit, má hafa 1—3 börn. Upplýsingar í síma 33226. Telpu hjól til sölu á sama stað.
Tveggja herbergja íbúð óskast á leigu 1. október. Tvennt fullorðið í heimili. Upplýsingar í síma 15095.
Píanó og innbyggður plötuspilari tii sölu. Upplýsingar í síma 40687.
Til sölu n ý 1 e g miðstöðvareldavél (Scsandia) 3 miðstöðvarofn- ar, innihurðir og lítil eld- húsinnrétting, selst ódýrt, ef samið er strax. S. 40914.
Mótatimbur Vil kaupa notað mótatimb- ur 1x4 og 1x6. Uppl. í síma 1697, Keflavík, eftir kl. 6.
Nokkuð vinnufær 37 ára öryrki óskar eftir iéttu starfi. Tilboð merkt „Létt starf 4132“ leggist inn á afgr. Mbl. fyrir föstudag.
íbúð óskast Tvær stúlkur utan af landi óska eftir íbúð 1—2 herb. og eldhúsi. Fyrirframgr., ef óskað er. Hringið í síma 17077.
Framreiðslustúlkur — Buffetdama. Matreiðslukona og aðstoð- arstúlka í eldhús óskast. Gildaskálinn Aðalstræti 9. Sími 10870.
Volkswagen 1500 (station) til sölu, vel með farinn og lítið keyrður. — Upplýsingar í síma 36065.
Stúlka óskast til afgreiðslu í matvörubúð. 5 Upplýsingar í síma 38365 8 og 50310. 3
Tíkin hún Lassý
ÞETTA er tíkin hún Lassý og hún Margrét litla á tröppunum
heima hjá henni Margréti. Lassý var skipshundur á Vatnajökli, og
þegar hún var í landi heimsótti hún oft Margréti, sem átti heima
rétt hjá.
FRÉTTIR
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
fer í berja og skemmtiferð þriðju
daginn 6. sept. kl. 9 f.h. Farseðl-
Kiwanís. Hekla 7:15 a.l.m. Þjó«-
FÓTAABGERÐIR fyrir aldraS fólk
Kvenfélag Langholtssðknar.
Fíladelfía Reykjavík
Almennur bibliulestur í kvöld
Aheit 09 gjafir
Strandarkirkja: RG 150; Valkyrjur
Pennavinir
Blaðinu hafa borizt bréf frá
Heimilisfang hennar er:
MLss Edith AUegaert
1 Square d’Amiens
Paris 20e
France.
Tvær 16 ára sænskar stúlkur
Þær hafa áhuga á hestum,
Heimilisfang þeirra er:
Lena Seger
Föreningsgata 30A.
Oxelsund
Sverige.
og Birgitte Johansson
Fermörevagen 49
Oxelsund
Sveriae.
Ljóð dagsins
Fátt er það ferðamanni
má flýta betur heim að ranni,
en vita að valinn svanni
með von og kvíða heima er,
ef jódyn hún þá heyrir,
í húsum varla lengur eirir
sá hestinn sem að keyrir
hún sinn því ætlar muni ver;
þá fram hjá fer,
hún fréttir hvort að granni
ei segi sér
af sínum kæra manni;
nú er hann, segir hanh,
nærri hér,
nú er hann nærri hér.
Höf.: Magnús Grímsson.
Minningarspjöld
Minningarspjöld Barnaspítala-
sjóðs Hringsins fást á eftirtöld-
um stöðum: Skartgripaverziun
Jóhannesar Norðfjörð. Eymund-
senskjallaranum, verzluninni
Vesturgötu 14, Þorsteinsbúð
Snorrabraut 61, Vesturbæjar-
apóteki, Holtsapóteki og hjá frk.
Sigríði Bachmann, yfirlijúkrun-
arkonu Landspítalans.
töldum stöðum. Bókabúð Oliver
Steins, Bókabúð Böðvars Sigurðs
sonar, Blómabúðinni Burkna,
ÞVÍ að livar sem tveir eða þrír
eru saman komnir i minu nafni
þar er ég mitt k meðal þeirra (Matt.
18, 20).
í dag er þriðjudagur, 6. 9eptember
og er það 249. dagur ársins 1966.
Eftir lifa 116 dagar. Árdegisháflæði
kl. 9:45, síðdegisháflæði kl. 21:57.
Upplýsingar um læknaþjón-
nstu i borginnj gefnar i sím-
svara Læknafélags Reykjavikur,
Siminn er 18888.
Slysavarðstofan í Heilsuvernd-
arstöðinni. Opin ailan sólarhring
inn — aðeins móttaka slasaðra —
sími: 2-12-30.
Kvöldvarzla i lyfjabúðum er
dagana 3. sept. — 10. sept. —
Reykjavikur Apótek — Apótek
Austurbæjar.
Næturvarzla er að Stórholti 1,
sími 23245.
Næturvarzla í Ilafnarfirði að-
faranótt 6. september, Jósef
Ólafsson.
Næturlæknir í Keflavík 1/9.
— 2/9. Kjartan Ólafsson sími
1700. 3/9. — 4/9. Arnbjörn Ólafs
son sími 1840. 5/9. Guðjón
Klemenzson sími 1567, 6/9. Jón
K. Jóhannsson sími 1800, 7/9.
Kjartan Ólafsson sími 1700.
Kópavegapótek er opið alla
daga frá kl. 9—7 nema laugar-
daga frá kl. 9—2, helga daga frá
2—4.
Framvegts verðiír tekið á mótl þelra,
er gefa vilia blóð í Blóðbankann, sem
hér segir: Mánudaga, þriðjudaga,
Ttmmtudaga og föstudaga frá kl *—11
f.h. og 2—4 e.h. MIÐVIKUDAO^ frá
kL 2—8 eJft. Laugardaga frá kl. 9—11
f.h. Sérstök athygli skal vakin á miÖ*
vikudögum, vegna kvöldtlmans.
Bilanasími Rafmagnsveitu Reykja-
víkur á skrifstofutima 18222. Nætur-
og helgidagavarzla 18230.
Upplýsingaþjónusta AA samtakanna
Hverfisgötu 116, sími 16373. Opin aUa
virka daga frá kl. 6—7.
Orð lífsins svara t sima 10000.
FYRIR
43
Arum
Fyrir 43 árum varð í Jap-
an einn ógurlegasti jarð-
skjálfti sem sögur fara af. í
Morgunblaðinu hinn 4. sept-
ember 1923 birtist eftir-
farandi skeyti frá Kaupmanna
höfn:
„Stórkostlegir jarðskjálftar
í Japan. Tokio brunnin. Tug-
ir þúsunda misst lífið í Joko-
hama.
Khöfn, 3. sept.
Stórkostlegar jarðbyltingar
hafa orðið í Japan. Höfuðborg
in Tokio, er brunnin til ösku
og í Jokohama hefir fólk týnt
lífinu, tugum þúsunda saman.
Járnbrautir og símalínur hafa
eyðilagst.
Tokio liggur á austur-
ströndu eyjarinnar Honsju,
sem er langstærst og þéttbýl-
ust allra japönsku eyjanna,
rúmlega helmingi stærri en
ísland og íbúarnir nálega 40
milljónir. Miðbik eyjannnar
er mjög eldbrunnið og er þar
skammt frá Tokio, merkas.a
eldfjallið i apan, Fusijatna.
Tokio er höfuðborg Japana og
er þar aðsetur mikadósms.
Er íbúatala borgarinnar um
2% milljón. Þar er helsri há-
skóli Japana og iðnaður mik-
ill og verzlun í borginni. Hús-
in eru að kalla öll byggð úr
timbri, en einlyft og lítil. Er
talið að í Tokio hafi verið um
400 þús. hús. Það er roest
vegna jarðskjálftanna í Jap-
an, að mjög lítið er byggt
þar af steinhúsum. Jokó’nama
stendur skammt frá Tokio og
er helzta verzlunarborg út á
við í Japan. Eru þar um 400
þús. íbúar, en fyrir 60 árutn
var bærinn aðeins lítið fiski-
ver. Byggingar þar eru marg-
ar úr steini, og mun það or-
sökin til, að svo margir hafa
týnt lífi í jarðskjálftanum.“
Og næsta dag stendur þe'.ta
í Morgunblaðinu:
„í Jokóhama er ekki eitt
hús uppistandandi og mikiil
hluti af Tokio er sokkinn i
sjó. Yfir 200 þús. menn hafa
farist. Bandaríkin hafa boðið
að láta allan flota sinn koma
til hjálpar, til að bæta úr
eyðinni."
Og 12. september stendur
þetta:
„Eftir jarðskjálftann í Jap-
an hafa 32564 lík fundist í
klæðahúsi hersins i Honja.“
Verzlun Þórðar Þórðarsonar.
Minningarspjöld ekknasjóðs
Klæðskerameistarafélags Reykja
víkur eru afgreidd hjá Vigfúsi
Guðbrandssyni og Co., Vestur-
götu 4 og Ólafi H. Árnasyni,
Laugavegi 42.
m.
Hræðsla
Að vera hræddur í draumi, án
ástæðu, er bending til að þig
skorti viljastyrk og einbeitingu.
Tollstjórinn í sviðsljósinu með nýjasta verk sitt.