Morgunblaðið - 07.09.1966, Síða 1
32 síður
53. árgangur
203. tbl. — Miðvikudagur 7. september 1966
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Chen Yi utanríkisráðherra Kína:
Viðræður við USA
um Vietnam
ekki útilokaðar
Lik dr. Verwoerds forsætisráSh erra Suður-Afríku er borið á börum frá þinghúsbyggingunni i
Cape Town í gær, eftir að hann hafði verið stunginn til bana i upphafi þingfundar.
Hendrik Verwoerd
myrtur í gær
Morðið ótti sér stoð í npphoii
fundor í þingi Suður-Aíríku
í Cupe Town
Cape Town, 6. september NTB—AP.
Dr. Hendrik Verwoerd, iorsætisráðherra Suður-Afríku
og upphafsmaður aðskilnaðarstefnu landsins, Apartheid-
stefnunnar svonefndu var myrtur í þingi landsins í Cape
Town af hvítum manni síðdegis í dag.
Forsætisráðherrann, sem var 05 ára að aldri, lézt skömmu eftir
að einn af þingsveinum þingsins hafði gengið að stjórnarbekknum
og stungið ráðherrann með hnif þrisvar í hnakkann og brjóstið.
Morðið átti sér stað samtímis því, að bjöllu var hringt til merkis
um að morgunfundur skyldi byrja í þinginu. Á meðan blóðið gus-
aðist úr sárum hins deyjandi manns, köstuðu nokkrir þingmanna
sér yfir morðingjann og vörpuðu honum á gólfið, en seinna ók
lögreglan á brott með hann.
Verwoerd hafði við árásina fallið strax í gólfið. Fjórir læknar,
sem sæti eiga á þinginu, hlupu þegar í stað til hans honum til
hjálpar og einn þeirra reyndi að nota munn við munn aðferðina.
Stuttu síðar var hinn hvíthærði forsætisráðherra borinn á sjúkra-
börum út í sjúkrabíl.
Þremur stundarfjórðungum síðar stóð forseti neðri deildar þings-
Ins, Ben Schoeman, sem einnig er samgöngumálaráðherra, úr sæti
sinu og tjáði það álit sitt, að forsætisráðherrann myndi ekki vera
lengur á lífi. Stuttu síðar kom opinber staðfesting á því, að
Verwoerd væri látinn. Hann hefði verið dáinn, þegar við komuna
til sjúkrahússins.
Einu sinni áður hefur verið
gerð tilraun til þess að myrða
Verwoerd. Árið 1960 reýndi
efnaður bóndi, Davitt Patt, sem
fæddur var á Bretlandi, að
myrða Verwoerd, og skaut
hann í hnakkann og andlitið
með skammbyssu, er þeir voru
staddir á alþjóðlegri vörusýn-
ingu í Jóhannesarborg. Ver-
woerd náði sér hins vegar aftur
og Patt var settur á geðveikra-
hæli, eftir að hæstiréttur lands-
ins hafði kveðið upp dóm þess
efnis að hann væri geðveikur.
Þingfréttaritari blaðsins „Die
Vaderland" upplýsti í kvöld, að
morðinginn hefði kvartað yfir
því, að Verwoerd hefði gert of
mikið fyrir hörundslitað fólk,
en ekki nógu mikið fyrir hina
hvítu.
Ástæðan fyrir morðinu enn ekki
ljós.
Fjármálaráðherra landsins,
Ebeom Donges hefur tekið við
störfum forsætisráðherra um
stundarsakir. í yfirlýsingu, sem
hann gaf til þjóðarinnar, hét
hann á fólk að sýna stillingu.
Hann sagði, að ástæðan fyrir
morðinu væri enn ekki ljós.
'Hann fullvissaði, að lögreglan
myndi ekkert láta ógert til þess
að komast til botns í þessu rag-
mennskulega ódæði eins og hann
Dr. Hendrik Verwoerd
komst að orði. Suður-Afríka
hefði misst einlægan og ötulan
leiðtoga, sem staðið hefði við
stjórnvölinn í átta ár, og sem
hefði haft getu til þess að gera
áætlanir og notfæra sér reynsl-
una varðandi hinar augljósu
framfarir á nærri því öllum
Framh. á bls. 2
Tokíó, 6. september, NTB.
CHEN YI, utanríkisráðherra
kínverska alþýöulýðveldsins á
að hafa sagt við japanska þing-
menn í dag, að Kína vísaði ekki
á bug afdráttarlaust þeirri hug-
mynd að ræða Vietnamdeiluna
við Bandaríkin. Voru þingmenn-
irnir í heimsókn í Feking. Jafn-
framt endurtók Chen Yi það
sjónarmið Kína, að ekki yrði
unnt að finna neina lausn á
deilunni, fyrr en allar banda-
rískar hersveitir væru á brott
frá Suður-Vietnam.
Fréttamaður japönsku frétta-
stofunnar Kyodo fékk þessar
upplýsingar frá þriggja tíma
samtali, sem nefnd þingmanna
frá Frjálslynda lýðræðisflokkn-
um í Japan átti við utanríkisráð
herrann. Formaður nefndarinn-
ar var Zentaro Kosaka fyrrum
utanríkisráðherra Japans.
Samkvæmt frásögn frönsku
fréttastofunnar AFP hefur yfir-
lýsing Chen Yi, að Kína gæti
fallizt á viðræður um Vietnam,
vakið mikla eftirtekt stjórnmála
manna í París. Þar er bent á, að
Chen Yi sé kunnur að því, að
vera í fyrirsvari fyrir athafna-
samari arminn í stjórnmálum í
Kína. Það var hann, sem á sín-
um tíma skoraði á Bandarikin
að ráðast á Kína og lýsti því
yfir um leið, að þá myndu
Bandaríkjamenn bíða ósigur.
Fyrrverandi fréttaritari AFP
í Peking, heldur því fram, að
tilgangurinn með yfirlýsingum
Chen Yi sé greinilega sá, að
ryðja brautina fyrir samninga-
viðræðum við Bandaríkin, ekki
bara um Vietnam, heldur einnig
stöðu Kína í Asíu og heiminum
yfirleitt. Fréttaritarinn bendir
Framhald á bls. 31.
Tekur U Thant
endurkjöri ?
New York, 6. september, NTB.
SAMKVÆMT heimild innan Sam
einuðu þjóðanna, sem venjulega
er talin áreiðanleg, var því hald-
ið fram í dag, að V Thant myndi
sennilega fallast á að gegna
stöðu sinni áfram sem fram-
kvæmdastjóri samtakanna næstu
tvö ár svo framarlega sem ör-
yggisráðið færi þess á leit við
hann og enginn annar byði sig
fram til starfsins.
Framkvæmdastjórinn neitaði
að tjá hug sinn, er hann var
spurður í dag af blaðamönnum
um hvort ákvörðun hans um að
fara úr stöðu sinni 3. nóv. nk.,
þegar kjörtímabili hans lýkur,
væri óafturkallanleg.
U Thant kom í dag úr fimm
daga ferðalagi, sem hann fór 1,
strax og hann hafði gefið yfir-
lýsingu sína um, að hann myndi
ekki taka við kjöri annað kjör-
tímabil.
Samkvæmt heimild, sem vera
-mun í nánum tengslum við fram-
kvæmdastjórann, segir, að yfir-
lýsing hans hafi verið vandlega
sett fram, þannig að þar væri
ekki útilokaður sá kostur, »ð
hann myndi svara jákvætt til-
mælum um að halda áfram.
Þá segir í frétt frá Indlandi, að
frú Indira Gandhi forsætisráð-
herra Indlands hafi sent afar
eindregna persónulega áskorun
til U Thant þess efnis, að hann
tæki aftur endurkjöri.
Wilson krefst meiri tíma
í Rhodesíudeilunni
Segir efnahagsrefsiaðgerðirnar senn
ná tilætluðum árangri — Hafnar
waldbeitingu
London, 6. september — NTB
BREZKI forsætisráðherrann,
Harold Wilson skoraði í dag á
þá afríska leiðtoga, sem gagn-
rýndu stefnu hans í Rhodesiu-
málinu, að veita þeim efnahags-
ráðstöfunum, sem gerðar hafa
verið gegn stjórn Ian Smiths,
meiri tíma til þess að hafa þau
áhrif, sem þeim er ætlað. Hins
vegar hafnaði hann algjörlega
þeirri leið að knésetja Rhodesiu
stjórn með valdi.
Wilson gerði grein fyrir deil-
unni við Rhodesiu á fyrsta fundi
forsætisráðherra samveldisland-
anna, er hann var haldinn í dag.
Hófust umræður um Rhodesimál
ið stuttu eftir, að fulltrúarnir
á ráðstefnunni höfðu fengið
fréttina um morðið á Verwoerd
forsætisráðherra Suður-Afríku.
Til stuðnings stefnu sinni
lagði Wilson fram nýja útreikn-
inga um áhrifin af hinum efna-
hagslegu refsiaðgerðum gagn-
vart Rhodesiu. Sagði hann, að Vá
hluti tóbaksræktenda landsins
yrðu neyddir til þess að taka
upp annað starf, áður en árið
væri liðið. Þá væru tvær aðrar
mikilvægar framleiðslugreinar
landsins svo sem sykurræktin
í alvarlegum erfiðleikum.
Wilson tók til máls, eftir að
Malaysia hafði borið fram þau
tilmæli við Zambiu og Sierra
Leone að sýna þolinmæði Þessi
lönd höfðu hótað því að segja
sig úr samveldinu vegna Rhod-
esiu.
Leiðtogar Afríkuríkja innan
samveldisins hugðust halda sér
stakan fund í kvöld, þar sem
fjallað yrði nákvæmlega um
ræðu Wilsons, og síðan koma
sér saman um, hvernig setja
ætti fram gagntillögur fyrir morg
Framhald á bls. 31