Morgunblaðið - 07.09.1966, Page 32

Morgunblaðið - 07.09.1966, Page 32
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Langstærsta og fjölbreyttasta blað landsins Dr. Bjarni Benediktsson forsætis ráðherra og frú Sigríður Björns- dóttir viS komuna til Reykjavíkur í fyrrinótt. Ljósm. Sv. Þorm. Ræddi við forióðamenn flluswiss Ríkisútvarpið tapaði sjónvarpsmálinu í Vestmannaeyjum Dr. Bjarni Benediktsson for- sætisráðherra og kona hans, frú Sigríður Björnsdóttir, komu til landsins í fyrrakvöld úr stuttri utanlandsferð. Morgunblaðið náði snöggvast tali af forsætis- ráðherra og sagði hann að aðal- erindi sitt til útianda hefði verið að ræða við forráðamenn Alu- swiss í Svisslandi. Hefðu það ver ið gagnlegar og ánægjulegar við ræður, þar sem fjallað var um málefni fyrirtækisins og vænt- anlega starfrækslu álverksmiðju hér á landi. Skoðaði forsætis- ráðherra jafnframt þrjár af verksmiðjum fyrirtækisins. Dr. Bjarni Benediktsson gat þess, að hann hefði átt viðræð- ur við forseta Sviss og hefðu þær verið mjög vinsamlegar. Á heimleiðinni komu forsæt- isráðherrahjónin við í Svíþjóð, en þar sótti dr. Bjami Bene- diktsson norræna lögfræðinga- ráðstefnu, sem hann kvað hafa verið hina fróðlegustu. Húsin í Engey brennd !í GÆRKVÖLDI tóku borgar- búar eftir því að mikill eldur var úti í Engey, en sumir héldu hann uppi á Kjalarnesi. IHringdi fólk til blaðsins til að spyrja um hvar eldur væri laus, ennfremur var hringt ofan úr Mosfellssveit. Við athugun blaðsins kom í ljós að verið var að brenna gömlu húsin í Engey og stóð Kristinn Sigurjónsson bygg- ingarmeistari fyrir aðgerðum þar úti. Ekki alls fyrir löngu gekkst klúbbur einn hér í Reykjavík fyrir því að húsin væru máluð. Hinsvegar hefir umgengni fólks, sem farið hefir út í eyjuna, verið svo slæm, að ekki var talin ástæða til að láta húsin standa leng- ur, enda voru þau að hruni komin. Var því ákveðið að brenna þau. Sjálfstæðisfél. Rangæinga AÐALFUNDUR Sjálfstæðis- félags Rangæinga verður hald- inn á Hellu næstkomandi laug- ardag, 10. september, kl. 2 e.h. Ingólfur Jónsson landbúnaðar- ráðherra mætir á fundinum. Stjórnin. Vestmannaeyjum, 6. sept. SVO SEM kunnugt er af frétt um höfðaði Ríkisútvarpið mál gegn Félagi sjónvarpsáhuga- manna í Vestmannaeyjum þar sem Ríkisútvarpið krefst þess að endurvarpsloftnet cða magn- ari, sem félagið hafði komið upp á Stóra-Klifi í Vestmanna- eyjum til þess að taka á móti sjónvarpssendingum frá Kefla- víkursjónvarpinu verði tekið úr notkun. Byggði Ríkisútvarpið sína lögbannsbeiðni á lögum um útvarp frá 1034. Lögfræðingur félags sjónvarpsáhugamanna í V estmannaey j um taldi hins vegar að þetta heyrði ekki undir Ríkisútvarpið, sem slíkt, þar sem umrædd lög fjalla ekkert um sjónvarp Málflutningur fór fram í þessu máli sl. föstudag. Nú í dag hefir dómari í þessu máli, Jón Óskarsson fulltrúi bæj I GÆR settu dönsku kvik- myndatökumennirnir frá ASA arfógetans í Vestmannaeyjum, fellt svohljóðandi úrskurð: „Hin umbeðna lögbannsgerð skal ekki fara fram.“ Ennfremur var Ríkisútvarpinu gert að greiða félagi sjónvarps- áhugamanna kr. 4000,00 í máls- kostnað. Úrskurðurinn er fyrst og fremst byggður á því að Rík- isútvarpið eigi ekki aðild að þessu máli, heldur póst- og síma málastjórnin. Á morgun verður felldur úr- skurður um hvort veita skuli frest í málinu varðandi brott- flutning tækja Félags sjónvarps áhugamanna af Stóra-Klifi, en lögmaður félagsins véfengir rétt pósts og síma til landsins og fer fram á frest til að afla gagna því til sönnunar. Ríkisútvarpið hefur áfrýjað málinu til Hæstaréttar. film bankatryggingu fyrir öll- um skuldakröfum, og var lög- hald á tæki þeirra því fellt nið- Settu bankatryggingj fyrir skuldakröfunum Eldur í brezkum togara í stórsjú út af Eyjum Togarinn HVaí dró hann til hafnar ELDUR KOM upp í vélarrúmi brezka togarans Robert Hewett Lo 65 kl. 6 á mánudag sl. þar sem hann var staddur 62 mílur SA af Vestmannaeyjum. Stór- viðri var á þessum slóðum er kviknaði í skipinu, en skipsmenn höfðu slökkt eldinn áður en tog- arinn Maí kom til aðstoðar 3 tímum síðar. Rak þá togarinn stjórnlaus undan veðri og var auk þess ljóslaus. Blaðið hafði í gærdag sam- band við Halldór Halldórsson skipstjóra á togaranum Maí, og kvaðst hann hafa heyrt hjálpar kall brezka togarans kl. 11 á mánudagskvöld, en þá var Maí staddur skammt undan Vest- mannaeyjum. Fór Maí þegar á vettvang og var kominn að tog- aranum kl. 2 um nóttina, en þá rak hann um 40 sjómílur undan Dyrhólaey. Maí skaut dráttar- taug um borð í brezka togarann og náðu skipsmenn hans í taug- ina í annarri tilraun. Hélt Maí síðan með togarann áleiðis til Vestmannaeyja og slitnaði drátt artaugin einu sinni á leiðinni. Komu togararir báðir til Vest- Stórárekstur á Miklu- braut í gær Iðnþing hefst á morgun 28. Iðnþing íslendinga verður sett á morgun á Hótel Sögu kl. 11 f.h. Viðstaddur setningu þings ins verður m.a. Jóhann^Hafstein, iðnaðarmálaráðherra. — Þingið munu sitja um 100 fulltrúar af öllu landinu. Helztu mái, sem rædd verða á þinginu, eru lánamál iðnaðarins, iðnfræðsla og tæknimenntun og tryggingarmál iðnaðarins. Iðnþingsfundirnir munu fara fram í sarukomusal Iðnskólans í Reykjavík. Búizt er við að þing inu verði lokið síðdegis á laug- ardag. GEYSILEGA harður árekst- ur varð um tvö leytið í gær- dag á gatnamótum Lönguhlíð- ar og Miklubrautar. Þar rákust saman tvær vörubifreiðir með þeim afleiðingum að flytja varð annan ökumanninn í Slysavarð- stofuna. Báðar bifreiðarnar stór skemmdust auk þess sem götu- viti og Ijósastaur brotnuðu nið- ur. Að því er lögreglan tjáði Mbl. í gær varð áreksturinn með eft- irfarandi hætti: Önnur vörubif- reiðin beið á Lönguhlíðinni sunnan Miklubrautar eftir grænu ljósi og var bifreið við hliðina á henni á hinni akgrein- inni. í því bar að sjúkrabif- reið með sírenu á, og taldi öku- maður vörubifreiðarinnar að henni lægi mikið á. Tók hann því það ráð að aka út að gatna- mótum til þess að greiða götu sj úkrabif reiðarinnar. í því bar þar að aðra vöru- bifreið, sem ók austur Miklu- brautina gegnt grænu ljósi, og skipti engum togum að bifreið- Framhald á bls. 31 mannaeyja kl. 18 í gær. Fréttaritari Mbl. í Vestmanna eyjum átti samtal við skipstjóra brezka togarans, Harry Ferrar, og skýrði hann svo frá, að eld- urinn hefði komið upp í raf- magnstöflu er togarinn fékk á sig brotsjó. Skipsmenn hefðu slökkt eldinn von bráðar, en þá var togarinn orðinn ljóslaus og stjórnlaus um leið. Ferrar róm- aði björgunarstarf áhafnarinnar á Maí og gott skipulag við björg unina. Viðgerð á togaranum fer fram í Eyjum, en hann er að sögn Ferrars skipstjóra lítt skemmdur. Slys urðu engin á mönnum við þetta óhapp. V wi u. 1V1 UIUI licd . ðCJU A.UIIJ l fram hjá borgarfógeta í gær tvennu lagi. 1 fyrsta lagi kröfui frá 9 mönnum að upphæð 30í þús. kr. og var sett trygginf fyrir þeim, og að auki fyrii vöxtum og innheimtugjaldi. ; annan stað voru kröfur að upp hæð 122 þús. kr. og var einnij sett trygging fyrir þeim. Fór kvikmyndaflokkurinn ai svo búnu með tæki sín og vél ar. Engin síldvetði ENGIN síldveiði var í gær oj lágu síldarskipin ýmist í vari eða í höfnum. M.a. var mikill floti inni á Seyðisfirði. Þar var súld og dumbungur í gærdag. Bílarnir eftir áreksturinn á Miklubraut í gær. (Ljósm.: Sv. Þ.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.