Morgunblaðið - 11.09.1966, Page 4
4
MORGU NBLAÐIÐ
Sunnudagui 11. sept. 1966
BÍLALEIGAN
FERÐ
Daggjald kr. 400.
Kr. 3,50 per km.
SfAff 34406
SENDUM
«mi 1-44-44
mmim
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
RAUÐARÁRSTfG 31
SÍMI 22 0 22 .
LITLA
bílaleigan
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
Sími 14970
‘ Bifreiðaleigan Vegferð
SÍMI - 23900
BÍLALEIGAIM
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
BJARNI beinteinssom
LÖGFR4ESINGUR
AUSTURSTRÆTI 17 (silli «. valdi»
SlMI 13536
B O S C H
Háspennukefli
Brœðurnir Ormsson
Lágmúla 9- — Sínu 38820.
^ Enn nm
„lágu launin“
Vegna bréfa, sem birzt
hafa hér í dálkunum varðandi
kostnað við uppsetningu
Hansa-húsgagna, hefur einn af
forráðamönnum fyrirtækisins
snúið sér til Velvakanda og
óskað, að þess yrði getið, að
Hansa annist ekki sjálft upp-
setninguna, heldur útvegi
menn til þess að gera það.
Ennfremur: Fyrirtækin, sem
framleiða sams konar „vegg-
húsgögn“ eru fimm og hafa þau
öll svipaðan hátt á — og það
gjald, sem uppsetningarmenn-
irnir taka er alls staðar hið
sama, eða kr. 50,— á lengdar-
metra prikanna, sem húsgögn-
in eru hengd á.
Það var upplýst, að erfitt
væri að fá menn til þess að
taka þetta að sér og sama verð
hefði gilt undanfarin fjögur
ár.
Þar með er ljóst, að Hansa
hagnast ekki sjálft á þessum
þætti þjónustunnar, en verðið,
sem viðkomandi uppsetningar-
menn selja vinnu sína á er
engu að síður óheyrilegt — og
samsvarar 5—600 krónum á
klukkustund, samkv. upplýs-
ingum, sem fram komu í fyrr-
greindu bréfi.
Vonanai tapar Hansa engu á
þessum skrifum, ' því fram-
Jeiðsla fyrirtækisins er engu
lakari en áður. Hansa á líka
hrós skilið fyrir brautryðjenda
starf það, sem það hefur unn-
ið á sviði íslenzkrar húsgagna-
framleiðslu. Hins vegar á það
ekki hrós skilið fyrir þá þjón-
ustu, sem það „útvegar" við-
skiptavinum sínum — og sama
má segja um öll önnur fyrir-
tæki, sem framleiða sams kon-
ar húsgögn og veita svipaða
fyrirgreiðslu. Uppsetningar-
mennirnir taka eitt hundrað
krónur fyrir að næla tveggja
metra spýtu með fimm skrúf-
um á vegg — og, þegar spýt-
urnar eru orðnar sjö er verðið
komið upp í sjö hundruð krón-
ur, eins og að líkindum lætur,
enda tekur verkið eitthvað á
annan klukkutíma!!!
Velvakandi hefur undir
höndum reikning þann, sem
minnst var á í fyrra bréfinu.
Ekki var óeðlilegt þótt sku’d-
inni væri skellt á Hansa, því
reikningurinn var skrifaður á
prentað eyðublað frá Hansa —
og uppsetningarkostnaður var
þar aðeins hluti af viðskiptun-
um, því framleiðsluvörur fyrir-
tækisins höfðu verið keyptar
samhliða — og var ekki annað
að sjá en þar væri aðeins skipt
við einn aðila. — Uppsetningar-
mennirnir ættu að hafa efni á
að prenta eigin eyðublöð.
Fulltrúi Hansa var samþykk-
ur Velvakanda um að umrædd-
ur uppsetningarkostnaður væri
allt of hár, en hins vegar færi
uppsetningartími mjög eftir að-
stæðum — stundum greiddi
gjaldið varla hæfilegt tíma-
kaup. En sanngjarnt væri að
veita afslátt, þegar verkið væri
fljótunnið. Sagði hann, að þar
sem Hansa sjálft annaðist
vinnu í heimahúsum — og
sendi t.d. menn til þess að
taka mál og setja upp glugga-
tjöld eða gluggakappa, væri
eins væru teknar 50 krónur fyr
ir að taka mál og uppsetning
vegna smíði á gluggakappa —
og 40 krónur vegna uppsetn-
ingar gluggatjalds.
Við lítum svo á að hér með
sé Hansa hvítþvegið — og von-
umst við til að húsgögn fyrir-
tækisins gangi vel út sem fyrr.
En hins vegar er kaupendum
húsgagnanna bent á að reyna
að klambra þeim á vegginn, ef
nokkur kostur er — fremur en
að greiða 5—600 krónur á klst.
fyrir uppsetningu, sem af
hálfu uppsetningarmanna mun
ekki teljast ósanngjarnt — því
þrátt fyrir öll þessi blaðaskrif
hefur engin leiðrétting þar á
verið boðin.
★ Engcj'
Laugarnesbúi ekrifar:
Það vakti aðdáun mína, þeg-
ar sagt var frá því í fyrra, að
hópur áhugaman.na og kvenna
hefði notað sunnudag einn til
að mála húsin í Engey. Það var
eitthvað óvenjulegt og hress-
andi við slíkt tiltæki. Algeng-
ara er að fóik nöldri yfir að
eitt og annað sé látið ógert,
sem gera ætti, og láti þar við
sitja.
Ég ek daglega um Borgartún
og Skúlagötu, og hið nýja and-
lit húsanna í Engey hefur marg
sinnis haft hressandi áhrif á
mi. Einnig hef ég heyrt ýmsa
minnast á það eftir að þessi
umbót var gerð að fallefgt
væri að líta til Engeyjar. Ó-
neitanlega mætir nú dauflegri
sýn auganu, þegar horft er út
á ytri höfn. Nú er það einungis
lágkúruleg brunarúst, sem blas
ir við.
Sagt er að umgengni gesta
hafi verið svo léleg að til van-
sæmdar hafi verið. Spurning-
in er hvers vegna gesnir séu
látnir ganga um slik hús. Eðli-
legast væri að dyr húsanna
væru læstar eða tilnegldar og
hlerar fyrir gluggum. Þannig
ganga hirðusamir eigendur frá
mannlausum húsurn.
111 umgengni almennings um
mannlaus hús er aikunn, og
er henni ekki bót mælandi.
Stundum nota hirðulausir
menn hann þó sem skálkaskjól
og hyggjast með henni fela
eigin slóðaskap.
Tilþrif áhugamannahópsins,
sem málaði Engeyjarhúsin,
voru lofsverð. Afskipti eigend
anna virðast hafa verið þau
— í fyrsta lagi að láta húsin
grotna niður og í öðru lagi að
bera eld að þeim. Lifi mynd-
arskapúrinn og framkvæmda-
semin.
Hneykslaður Laugarnesbúi.
^ Sunnudags-
hugvekjur
Bangsi á Sjónarhól skrif-
ar:
„Maðurinn er borgari tveggja
heima og skattskyldur í báð-
um“. Þannig (ef ég man rétt)
komst nafntogaður prédikari
að orði í líkræðu yfir þjóð-
kunnum merkispresti, og þótti
mér vel mælt. En orð hans
rifja ég upp mér til réttlæt-
ingar ef einhverjum lesanda
skyldi þykja það óviðfeldið að
nú ætla ég að minnast i senn
á kirkjuleg (og því trúarxeg)
málefni og verðlag íslenzkrar
matvöru.
Skelfilegur hégómi er margt
af því sem blöðin segja. Ég
held að Þorbergur okkar hljoti
að telja það forheimskandi, og
ég get ekki með nokkcu móli
séð hvert erindi það á til al-
mennings en fyrir víst ekkert
gott erindi.
En svo er aftur annað á hinn
veginn. Ég vil taka til dæmis
þær prýðilegu sunnudagshug-
vekjur, sem Mbl. hef>r flutt
núna síðustu mánuðina, allar
eftir einn og sama kenniraann-
inn. Var hún ekki athyglisverð
hugvekjan 4. september um hé
gómann og miðaldamyrkrið
sem nú hefir að því er sumum
virðist haldið innreið sína í
kirkjuna? Svo hefir fleirum
fundizt en mér.
Svo er það Velvakanda-
þátturinn (sem mér þótti stund
um sem fremur ætti að nefnast
Hálfsofanda-þáttur), hann hef
ir verið markverður nú um
skeið. Með sama áframhaldi
ætti hann að geta unnið stór-
mikið gagn. Hér skal ég taka
sem dæmi þáttinn 8. þ.m. (sept)
bréf Gunnars í Seljatungu,
manns sem vel kann að koma
fyrir sig orði og fimbulfamb-
ar aldrei, og svar Velvakanda
við bréfi hans. Þetta var lær-
dómsríkur þáttur. Látið okkur
fá meira þessu líkt, góðir háls-
ar: Á þessum vettvangi á hver
maður að geta sagt hug sinn
og stuðlað að heilbrigðum hugs
unarhætti.
Bangsi á Sjónarhól.
LYSTADUN
- DÝNAN —
LÉTTASTA DÝNA í HEIMI
Helztu kostir Lystadun dýnunnar
eru beir, að hún er fislétt, mjúk
og hlý án þess þó að mynda raka.
Lystadun dýnan er notuð t. d. á
sjúkrahúsum.
Venjuleg þykkt er 8 cm. Dýnan
er afgreidd í hvaða stærðum sem
er. Fyrirliggjandi er góður sæng-
urdúkur eða fráhrindandi bómullaráklæði, enn frem
ur plastáklæði fyrir vinnuflokka. — Litaúrval. —
HALLDÓR JÖNSSON HF.
Hafnarstræti 18. — Símar 23995 og 12586.