Morgunblaðið - 11.09.1966, Blaðsíða 31
Sunnudagur 11. sepl. 1966
MORGUNBLAÐIÐ
31
Heiðursvörður við kistu Verwoerds, forsætisráðherra S-Afríku. Útför hans fór fram í gær, laug-
ardag, að viðstöddu fjölmenni, í Pretoria.
— Sandur
Framhald af bls. 32.
skipi, en ókleift er að bjarga
bátnum nema af sjó.
Eggert sagði ennfremur, að í
athugun væri hvort einhverjar
björgunaraðgerðir færu fram í
Sandvíkinni, en þær lægju niðri
á meðan svar berst ekki við
skýrslu Björgunarfélagsins.
Gesina ev 387 tonn að stærð og
28 ára garna.il. t bátnum eru lé-
leg tæki, að sögn Eggerts, t.d.
engin ratsjá, dýptarmælir og
asdik lélegt en talstöð sæmileg.
Kvað Eggert bátinn ekkí mikils
virði, en var hins vegar ókunn-
ugt um matið á honum.
-' Senn
Framhald af bls. 32
í Vatnsdal vildi ekki segja frá
nöfnum þeirra kvenna, sem það-
an fara í leitir. Hann sagði að
þær gengju nógu fljótt út samt,
þær sem í göngur fara. Úr Vatns-
dal fara 32 á fjall og smala Ás
og Sveinsstaðaáfrétti. Þeir sem
fara í lengri leitina, þ. e. á
Grímstunguheiði, Stórasand og í
Fljótsdrög, leggja af stað þann
13. þ. m., en síðari flokkurinn fer
tveim dögum seinna, en sá fiokk-
ur fer í Sanddal norðan við
krák.
— Varnarbandalag
Framh. af bls. 1
að trúa á „hættuna í austri".
Reyni einhverjir ráðamanna á
Norðurlöndum að halda því
fram, að um hættu sé að ræða
úr þeirri átt, þá sé það einungis
vegna þess, að þeir sömu séu að
reyna að þóknast ráðamönnum
Atlantshafsbandalagsins.
Þá segir í greininni, að til-
raunir bandarískra ráðamanna
til þess að fá ríki Atlantshafs-
bandalagsins til þátttöku í styrj-
öldinni í Vietnam hafa mjög
veikt trú Norðmanna og Dana á
„friðarvilja Bandaríkjanna". Þá
er því haldið fram, að v-þýzkir
hefndarsinnar hafi verið valdir
til ábyrgðarmikilla starfa innan
þeirra deilda Atlantshafsbanda-
lagsins, sem fjalli um öryggismál
Norðurlanda.
„Izvestia" heldur því fram, að
hversu „norrænt" sem varnar-
bandalag Norðurlanda yrði, þá
myndi það tengjast nánum bönd-
um hernaðarsamtökum Norður-
landanna. Slíkt myndi binda
enda á hlutleysi Svíþjóðar og
Finnlands. Aftur á móti telur
blaðið, að skynsamlegra væri að
vinna að „hlutleysi allra Norður-
landanna". Því er haldið fram,
að m. a. í Svíþjóð séu þeir marg-
ir, sem telji hlutleysi betri vörn
en varnarbandalög, enda reyni
hvorki Danir né Norðmenn að
neita því, að hlutlaus ríki séu
stórveldunum hættuminni en
þau, sem aðild eiga að hernaðar-
bandalögum. Er því lýst yfir, að
Sovétríkin myndu viðurkenna
hlutleysi Norðurlandanna, ef
Vesturveldin gerðu slíkt hið
sama.
Loks segir í „Izvestia", að
Norðmenn og Danir leggist gegn
hugmyndinni um kjarnorkulaust
svæði á Norðurlöndum, þar sem
slík áætlun gæti valdið glundroða
í Atlantshafsbandalaginu. Þess
vegna sé það engin tilviljun, að
bæði Noregur og Danmörk
eigi aðild að McNamara-nefnd-
inni (kjarnorkumálanefnd) Atl-
antshafsbandalagsins. Skoðanir
ráðamanna þessara ríkja á kjarn
orkumálum séu æðstu mönnum
bandalagsins mjög að skapi, því
að með þeim sé tryggt, að alltaf
megi víðhalda þeirri stefnu, sem
sé Norðurlöndunum hættuleg.
Loks heldur greinarhöfundur
því fram, að kjarnorkuvopna-
laust svæði á Norðurlöndum
myndi ekki breyta styrkleika-
hlutföllum stórveldanna, heldur
þvert á móti hafa mjög heppileg
áhrif.
Sumorsýning-
unni í Ásgríms-
soini oð Ijúko
SUMARSÝNINGIN í Ásgrims-
safni, sem opnuð var 15. maí sl.
stendur aðeins yfir í 4 daga enn-
þá. Lýkur henni sunnudaginn 18.
september. Safnið verður þá lok-
að um tíma, m. a. vegna undir-
búnings að sýningu á verkum
Ásgríms Jónssonar í Danmörku.
Sumarsýningin er einskonar
yfirlitssýning, myndir frá árinu
1900 og fram til ársins 1957.
Margt erlendra gesta hefur kom-
ið í heimsókn í hús Ásgríms
Jónssonar á þessu sumri.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti
74, er opið sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá kl.
Systir mín,
HALI.A BERGVINSDÓfTIK
lézt að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, laugardag-
inn 10. september.
Þorbjörg Bergvinsdóttir.
Góð síldveiði í
Reyðarfjarðar-
dýpi
GOTT veður er þessa dagana á
síldarmiðunum og ágæt vciði á
Reyðjarf jaðardýpi, þar seín megn
ið af síldarflotanum heldur sig
nú.
Starfsfólk söltunarstöðvanna
á Raufarhöfn er nú flest komið
á Austfjarðahafnir, að því er
fréttaritari blaðsins tjáði því í
gær. Þar er einnig lokið við að
bræða alla síld. Er fólk á Rauf-
arhöfn nu farið að búa sig undir
göngur og haustslátrun.
2 skip lönduðu á Vopnafirði í
gærmorgun, en nær eingöngu er
landað á hafnir sunnan hans.
Sl. sólarhring tilkynntu 96
skip um afla, samtals 7.520 lestir:
Fyrsta kjam-
orkuaflstóð
Dana reist
fyrir 1970.^
Kaupmannahöfn, 8. sept., NTB
AÐ þvi er haft er eftir kjarn-
orkumálanefnd Dana er áform
að að reisa fyrsta kjarnorku-
aflstöð í Danmörku fyrir árið
1970 og síðan er ráðgert að
reisa megi í samvinnu við
dönsk iðnaðarfyrirtæki átta
til tíu stöðvar aðrar.
Nefndin mælir með því að
beðið verði í nokkur ár áður
en hafin verði bygging fyrstu
stöðvarinnar, því allt sem til
hennar þurfi verði ódýrara
með hverjum deginum sem
líði og jafnframt betra sökum
hinna öru tækniframfara á
þessu sviði.
Bítillinn frægi John Lennon hefur nú loks látið skera hár
sitt. Aatburðurinn gerðist í Þýzkalandi í rakarastofu í Celle,
sem er í nánd við Hanover. Sá sem athöfnina framkvæmdi
var Klaus Baruck. Lennon lét klippa sig fyrir kvikmyndatöku
á „Hvernig ég vann stríðið", en þar leikur hann aðalhlutverk-
ið. Kvikmyndin er framleidd af „United Artists“ undir leik-
stjórn Dick Lester, sem er lengst til hægri á myndinni.
Hestamenn athugið
Til sölu er hópur af hestum, 4ra—7 vetra. —
Reiðhestar, smalahestar, taumvanir hestar og hryss-
ur. — Hagkvæmir greiðsluskilmálar. — Upplýsing-
ar í síma 13334 kl. 9—10 f.h. og 5—6 e.h. alla
virka daga.
Móðir okkar og systir mín,
JÚNÍANA HELGADÓITIR
1.30—4.
Norðurgötu 2, Akureyii,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri 9. september.
Helga Guðniundsdóttir,
Hanna Guðmundsdóttir,
Guðbjörg Helgadótíir.
Litli drengurinn okkar,
HLYNUR GUÐJÓN HAIBERG
andaðist í Landakotsspítala 3. þ. m. — Jarðarförin hefir
farið fram. Innilegar þakkir til allra peirra, sem sýnt
hafa okkur samúð og hluttekningu.
Erla og Karl Ilafberg
og systur liinns látna.
Vé'shólinn settur
17. september
SKÓLASEINING í Vélskóla ís-
lands verður laugardaginn 17.
september en ekki 15. eins og
áður VEir tilkynnt. Stafar frest-
unin af lagfæringum á húsnæði
skólans. .
Kennsla í 2. og 3. bekk hefst
1. október.
Setning vélstjóranámskeiðs á
Akureyri verður auglýst síðar
en vélstjóranómskeið í Vest-
mannaeyjum fellur niður vegna
lítillar þátttöku.
Garðahreppur
Börn óskast til að bera út IVlorgunblaðið
í Garðahreppi.
Upplýsingar í síma 51247.