Morgunblaðið - 11.09.1966, Side 14

Morgunblaðið - 11.09.1966, Side 14
14 MORGU N BLAÐIÐ Sunnucfagtir II. sept. 198« Maðurinn af Meðaihúsum Þrœndastjórn í Noregí Miðvikudaginn 31. ágúst las ég í dagblaði austur í Stafangri um annríki það er biði forsæt- isráðherra Noðmanna Pers Bort en hér á íslandi dagana 7.-13. september. Meðal annars var þar " frá því sagt að í dag — sunnu- daginn 11. september ætti hann að kynna sér búskap bænda í Eyjafirði. Vel fer á því — hugs aði ég, þá ber vel í veiði fyrir Ingólf Jónsson landbúnaðarráð- herra og ráðgjafa hans í bún- aðarmálum að ræða á þeim vett vangi búnaðarmál við hin vel- menntaða búnaðarmann Fer Borten sem er starfsreyndur ráðunautur í búnaði um langt skeið og sem búnaðarmálamað- ur, í einu mesta og bezta bún- aðarfylki Noregs, Suður-Þrænda lögum. Þar við bætist að þing- maðurinn og forsætisráðherrann Per Borten er einnig reyndur vel í norskum búnaðarstjórnmál um, sem sannarlega hafa verið allvandasöm og torveld nú um skeið, og má búast við að svo verði einnig á komandi arum. Ekkert er af forsætisráðherr- anum Per Borten tekið þótt þess sé minnst er hann ferðast um hér á landi og heimsækir ey- firzka bændur, að hann er að menntun og frumstarfi fyrst og fremst búnaðarráðunautur og búnaðarmálamaður, þótt nú sé annað meira í efni um störf hans fyrir norsku þjóðina. Þrændalög ber hátt sem bún- aðarhéruð og á flestan hátt finnst mér alltaf að í Niðarósi og Þrændalögum sé hærra til lofts og viðara til veggja en í öðrum héruðum Noregs flest- um eða öllum, íslenzkum bænd- um, sem fátt rækta annað en gras til töðu, má vera það fróð- leikur og lærdómur að Þrænda- lög hafa löngum verið og eru heyforðabúr Noregs, þaðan er í mörgum árum flutt „Þrænda- hey“ norður og suður um allan -Noreg, þegar þess gerist þörf. En svo er það ekki nema sjálf- sagt á býlum bænda í Þrænda- lögum að fá 100 hesta töðufall af hektara af hesjuþurru heyi. En það er, eins og allir vita, í sögu og minningum sem Þrændalög og Niðarós ber hæst hér á landi og hefir löngum gert. Drjúgur var hlutur Þrænda laga í landnáminu og upphafi íslenzkrar sögu, og það svo af ber ef vér teljum Naumudal til Þrændalaga, svo sem nú er gert, þótt eitt sinn væru þar sveitir sérstakt fylki. Naumdælafylki. Óþarft er upp að telja landnáms menn úr Þrændalögum og ætt- aða þaðan, Þorsteinn svarfaður, Eyvindur vápni og fóstbróðir hans Hróaldar bjóla, Graut-Atli og Ketill bróðir hans, Þórhadd- ur hinn gamli er var hofgoði í Þrándheimi, en tók ofan hofið og flutti með sér hofsmoldina og súlurnar til Stöðvarfjarðar, Þorgeir hörðski. Loks er að nefna það sem mest er um vert, mennina af ætt Hrafnistumanna: Þar er Ketill hængur og Baug- ur fóstbróðir hans. Ketilbjörn (á Mosfelli) og Hallkell bróðir hans, og ljúkum þessu úrtaki með að nefna Kveldúlf og Skalla Grím ættaða úr Hrafnistu. Ég vona að forsætisráðherrahjónun- um norsku verði sýnd Hrafnista svo að þau megi sjá með eigin augum að vér kunnum að meta ættlegginn úr Hrafnistu í Naumu 'dal ytri. Enginn íslenzkur maður eða kona getur gengið svo um stræt in í Niðarósi að minningar sög- unnar leiti ekki á hugann. Hér hafa tugir og jafnvel hundruð íslenzkra manna, sem vér vit- um deili á, gengið um garða og enn fleiri sem vér kunnum ekki að nefna. Hingað sóttu þeir fjöl margir er þeir hleyptu heim- draganum. Fáar af íslendinga- (sögunum getum vér lesið til | enda án þess að Niðarós og dval : ir íslenzkra manna þar beri á góma. Sumum varð gæfu vant á þessum slóðum svo sem Gretti Ásmundarsyni og Steini Skaftasyni, og hið sama verður víst að segja um þá Gunnlaug Ormstungu og Hrafn Önundar- son. En margir sóttu hingað frama, svo sem Gunnar á Hlíð- arenda, Kjartan Ólafsson, Hall- dór Snorrason o.fl. o.fl. sem óþarft er og oflangt upp að telja ] Hér — í Niðarósi —< ortu þeir og Hallfreður vandræðaskáld, liðin ótíðindi. Þegar slíkt bar að höndum réðust Svíar oftast inn í Þrændalög. Áttu Þrændur þá í vök að verjast, jafnvel stundum svo að þeir fengu ekki rönd við reist, og í eina tíð — 1658-60 urðu Þrændalög að lúta sænskum yfirráðum. En Þrænd- ur urðu aldrei kúgaðir til lengd ar. Ef til vill var það engin til- viljun að sjóhetjan mikla Peter Tordenskjold (Peter Wessel) var Þrændaættar og ólst upp í Niðarósi — í hópi 18 systkina. Nú skiptast Þrændalög í tvö fylkií Suður-Þrændalög og Norð hins nýja hrepps að taka upp hið forna nafn og nefna hrepp- inn Medalhus. Því miður varð það ekki, en það breytir eigi þeirri staðreynd að nú er for- sætisráðherrann Per Borten maður af Meðalhúsum eins og Snorri orð.ar það í sögu Há- konar góða, er hann segir frá viðskiptum þeirra konungs og Asbjarnar af Meðalhúsum. Er ræða Ásbjarnar einn af gim- steinunum í Heimskringlu, svo sem alkunnugt er, ég efast ekki um að Per Borten muni kunna ræðuna þá utanbókar. En það er ekki nóg með það að forsætisráðherrann Per Borten er borinn og barnfæddur í Þrændalögum, „maðurinn af meðalhúsum“. Norska stjórnin telur 15 ráðherra, af þeim eru 5 Þrændur. Það er því nokkuð að vonum er gamanyrtir Norðmenn kalla stjórmna „Trönderregjer- ingen“ og stjórnarráðshúsið Við Borgfjörden í Vestdal í Þrændalögum. Þorleifur jarlskáld, Óttar svarti, svo nokkrir séu nefndir. í dóm- kirkjunni í Niðarósi flutti Einar Skúlason kvæði sit Geisla 1153 í vióurvist þriggja konunga og anars stórmennis. í Niðarósi bar hann beinin Eysteinn Ásgríms- son höfundur Lilju, hann hvílir í gleymdri gröf að Helgisetri við Niðarós. Hér er mikla sögu að rekja. — Og Snorri Sturlu- son, hér var hann, heimsborgar- inn, sagnfræðingurinn, skáldið, svo mikils metinn að honum tkst að afstýra herför til ís- lands með öllum þeim ófarn- aði sem af slíku ofbeldistiltæki hefði leitt. Hér mælti hann orð- in frægu: „Út vil ek“, sem öllum íslendingum ættu að vera minni stæð þegar þann vanda bar að höndum að halda hlut sínum og vöku, er herðir að í málum lands og þjóðar. Einn síðari aldar mann ís- lenzkan er rétt að nefa í sam- bandi við Þrændalög, hinn góð- í fræga embættismann Þorkel | Jónsson Fjeldsted sem varð stift amtmaður í Þrándheimi 1786, en j áður amtmaður á Finnmörk. Var j embættisframi hans og ferill í Danaveldi meiri en þá var títt um íslenzka menn. Hlutur þrænda hefir löngum verið mikill í Noregi, og það er almælt þar í landi að hverju því máli sé vel borið sem Þrænd ur fylgja af heilum hug. Norska skemmtiskáldið Johan Herman Wessel (1742-1785) kvað eitt sinn: Engang en ret forvoven Jyde med Hagel paa en Thrönder vilde skyde, men fik hans Pande ei i sönd- er, nei, det skal Kugle til en Thrönder. Síðan er orðtæki í Noregi: i „Det skal kule til en trönder“. J Oft hefir komið sér vel að Þrændur eru fastir fyrir. Því j miður hefir oft á umliðnum öld um dregið til ófriðar á milli frændþjóðanna Svía og Norð- i manna, þótt nú sé slíkt löngu ur-Þrændalög, en alltaf finnst mér bezt fara á því að hugsa sér Þrændalög sem eina heild og fólkið sem Þrændur án frek- ari skilgreiningar. Suður-Þrændalög fylki er 19193 ferkm. Það skiptist í 25 hreppa (voru 55 hreppar, áður en nýskipan hreppa í Noregi komst á nýverið). íbúar fylkis- ins eru um 220 þús. manns, þar með talin borgin Niðarós með um 114 þús. íbúa, en borgin hef- ir nú lagt undir sig mikið bænda land. Árið 1959 voru í Suður- Þrændalögum um 12000 lögbýli með einn hektara ræktað land eða meira. Mörg eru býlin smá, ekki nema 10 býli með 50 ha. rækt aðs lands eða meir. „Búnaðar- land“ í fylkinu var alls um 71 þús. ha, of af því um 39700 ha, fullræktað land. Nytjaskógur: barrskógur um 180.000 ha lauf- skógur um 77000 ha. Þannig er skógurinn snar þáttur af búskapn um. Búfé var 1959: Hestar 9684, nautgripir 89263, sauðfé 117622 (talið að sumri), geitur 2300. Svín 18500, hænsn um 10700. Norður-Þrændalög eru 22463 ferkílóm. og þar búa um 117 þús. manns í 22 hreppum og tveimur kaupstöðum — Steinker um og Namsós. Það er í þessu umhverfi og úr þesssum jarðvegi sem for- sætisráðherrann norski er upp- runninn og um hina góðu konu hans Magnhild er einnig hið sama að segja, Per Borten er svo sem kunnugt er fæddur bóndasonur og uppalinn við bú- skap og bændakjör í sveit er nefnist Flá í Suður-Þrændalags fylki, en við sameiningu hreppa hefir nú skipast þannig að upp er risinn nýr og stór 8 þús. manna hreppur er nefnist Mel- hús. Ekki þarf djúpt að kafa, hér er um að ræða hið forna nafn Meðalhús, enda mun hafa komið mjög til orða við stofnun mikla í Ósló „Trönderheimen' „Þrændastjórnin" hefir reynzt vinsæl og stendur föstum fótum. Hana sakar lítt þótt framámenn Verkamannaflokksins, sem urðu að hverfa frá völdum 1965 eftir áratuga stjórn, skjóti að henni haglaskotum. „Det skal kule til en trönder" og enn er hún ó- steypt kúlan sem fellir stjórn Pers Borten, þótt vafalaust eigi hún fyrir höndum að víkja þegar þar að kemur, svo sem verður um allar stjórnmálastjórnir. „Þrændastjórnin" kom ekki sem þjófur úr heiðskíru lofti. Málið á sinn bakgrunn. Árið 1896 stofnuðu norskir bændur hin fyrstu stéttarsambandssam- tök sín. Norsk Landmansfor- bund. Félagi.ð breytti um narn 1922 og nefnist síðan Norges Bondelag. Stjórnmálaflokkurmn Bondepartiet var stofnaður 1920. Átti tilkoma hans vafalaust nokkrar rætur í stéttasamtökun- um, þótt þau væru ekki stjórn- málaleg. Árið 1959 skipti bænaa- flokkurinn um náfn og nefnist síðan Senterpartiet. Það þóttu mér ill nafnaskipti, en efalaust hefir flokkurinn grætt fylgi við nafnbreytinguna. — Flokkurinn heifr 18 þingmenn (af 150) og 3 ráðherra í stjórninni. Per Bort- enog stjórn hans tók við völduui 12. október 1965. Aðalmálgagn Miðflokksins — Senterpartiet — er dagblaðið Nationen, stofnað 1918, en fyrir- rennari Nationen var blaðið Landmandsposten sem hóf göngu sína 1896 svo að segja um leið og Norsk Landmansforbund var stofnað. Landmandsposten kom út með ýmsum hætti allt til 1918 er Nationen tók við, og enn ber ein blaðsíða blaðsins Nationen nafnið Landmandsposten, þannig er Landmandsposten nú sjötug- ur. Nationen kemur út í Ósló í allt að 30,000 eintökum, ritstjór- inn er — auðvitað — bóndason- ur úr Þrændalögum. Hann er raunar ritstjóri í „forföllum“ bróður síns, sem var ritstjóri en situr nú í „Þrændastjórninni" Hin fornu bönd sem bundu þjóð vora við Niðarós og Þrændr lög, og skáldin bundu fastast, er r löngu brostin, en ný tengsl ha:a myndast. Allt frá 1917 hafa ís- lenzkir menn — og konur — menntast við Tækniskólann r Niðarósi, álitlegur hópur Þránd- heimsverkfræðinga er nú með ) verki að setja svip á verklegar framkvæmdir hér á landi. Þó nokkrir hinna ungu verkfræð- inga hafa flutt með sér heim frá Niðarósi og Þrændalögum meira en menntunina eina. Góð afleið- ing þess og árangur er sá, að nú alast upp sem framtíðar íslena- ingar, hér í höfuðborginni og víðar á landi voru, efnilegir 50% Þrændur. Það er þáttur í sigrum lífsins á voru kalda en góða landi. Árni G. Eylands. — Utan úr heimi Framhald af bls. 16 syn að eflast meira að áhrif- um í Sýrlandi — en það er hægar sagt en gert, þar ráða nú ríkjum ungir herforingjar sem líta á sjálfa sig sig byit- ingarleiðtoga og fremur sem keppinauta Nassers en læn- sveina. írakar, sem vénjulega eru taldir með „byltingarsinnum " hafa nú í valdastólum herfor- ingja, sem litla reynslu hafa í stjórnmálum — veika stjórn, sem á fullt í fangi með að halda stjórnartaumum. Sem stendur er hún til lítils gagns, hvorum aðilanum sem er. Nasser verður því fyrst og fremst að byggja á hinni mátt ugu áróðursvél sinni, bylting- aranda og óþolinmæði ungra Araba, sem eru uppistaðan í „frelsishreyfingum“ nasser- ista og mynda hin alræmdu „skuggaráðuneyti", sem leita til Kaíró bæði um vopn, fjár- styrk og áróðursmöguleika. — Meginskotmark þessara manna er nú Arabaskaginn sjálfur — höfuðvígi Feisals konungs. Ekki miða þeir þó beint að Saudi-Arabíu heldur að smáríkjunum á landamær- unum — Suður-Arabíu-sam- SAMKOMUR Almennar samkomur Boðun fagnaðarerindisins í dag sunnudag að Austurg. 6, Hafnarfirði kl. 10 f. h.; að Hörgshlíð 12, Rvík kl. 8 e. h. bandinu, ríkjunum Hadhra- maut, Oman, Muscat, Bahrain og fleiri slíkum. Hryðjuver-c og skæruhernaður eru helztu vopnin og hafa að mestu kom ið í stað opinnar samkeppni Arabaríkjanna. Því meir sem „byltingarsinnar“ telja sér ógnað, því gjarnari eru þeir a að grípa til ofbeldisverka. (OBSERVER: Patrick Seale. Öll réttindi áskilin) — Sovétrikin Framhald af bls 1 Kína muni ekki á neinn hatt breyta utanríkismálastefnu al þýðulýðveldisins. Haft er einnig eftir áreiðan- legum heimildum í Moskvu, þótt ekki bafi þær fregmr fengizt staðfestar, að N-Viet nam haff alls ekki í hyggju að draga saman seglin í styrjöld inni í Vietnam, heldur hafi ráðamenn landsins farið fram á það við sovézka ráðamenn, að þeir auki hernaðaraðstoð sína. Margt er einnig talið til þess benda, að Sovétríkin hafi í hyggju að auka aðstoð sína viö N-Vietnam. Þanmg sagði varnarmálaráðherra Sov étríkjanna, Rodion Malinov- sky, sl. fimmtudag, að þúsund ir ungra sovézkra borgara væru reiðubúnir til að gerast sjálfboðaliðar í Vietnam. Líkti ráðherrann styrjöldinni í Viet nam við borgarastyrjöldina a Spáni. Þá hafa sovézk biöð birt á und&nförnum dögum margar myndir af sovézkum vopnum í Vietnam, m.a. eld- flaugum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.