Morgunblaðið - 11.09.1966, Síða 32

Morgunblaðið - 11.09.1966, Síða 32
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Langstærsta og íjölbreyttasta blað landsins 207. tbl. — Sunnudagur 11. september 1966 Senn kemur té af fjaW — nokkrar konur smala í ár SENN KOMA RÉTTIR. Leitar- menn eru víðast hvar lagðir af stað til þess að smala afréttina. Flóamenn fóru á sunnudaginn var í lengstu leit, svokallaða Sandleit, inn í Arnarfellið mikla. I>á fóru menn í Norðurleit úr Hreppum og Flóa á fimmtudags- morgun. Þeir sem smala Sultarfit lögðu upp í gær. Alls smala um 60 manns afréttarsvæðið milli Þjórsár og Hvítár. Blaðamaður Mbl. hafði í gær tal af Eiríki Eiríkssyni á Gafli í Villingaholts- hreppi, og sagði hann að sér væri kunnugt um tvær stúlkur, sem fara á fjall úr Flóanum í ár. Eru það Svala Steingrímsdóttir frá Hóli í Gaulverjabæjarhreppi og Alda Hermannsdóttir frá Lang- holti í Hraungerðishreppi. Skeiða réttum hefur verið flýtt um viku í ár, og verða þær þann 16. þ. m. Ástæðuna fyrir þessu kvað Eirík- ur vera þá, að féð er farið að standa niður við afréttargirðing- una nú þegar. Sigurður Guðmundsson á Foss- um í Svartárdal í Húnavatns- sýslu sagði að um 20 menn þar úr héraði færu á fjall í haust. Fara þeir ekki fyrr en eftir viku, en réttað verður í Stafnsrétt 22. og 23. þ. m. Ein kvenna meðal göngumanna verður Sigurlaug Markúsdóttir, Reykjarhóli í Seilu hreppi í Skagafirði. Gangnafor- ingi í göngunum á Eyvindarstaða heiði er Sigurður Guðmundsson á Fossum. Lárus Björnsson á Grímstungu Framhald á bls. 31 KR-Keflavík í dag kl. 4 Mikill spenningur ríkir um úrslitin í þessum nœstsíðasta leik í I. deild Myndin er af hjónunum, sem unnu hægindastólinn veittum 25. þúsundasta gesti Iðnsýningar- innar á föstudagskvöld. Til vinstri er Arinbjörn Kristjánsson framkvæmdastjóri sýningarinn- ar. Næst honum stendur Lilja Sigurðardóttir, kona 25. þúsundasta gestsins, Ólafs Jónssonar, Bræðraborgarstíg 13b. Hann er til hægri. 1 forgrunni myndarinnar er stóllinn sem þau hjón hlutu. (Ljósm. Ingim. Magnússon.) f DAG, kl. 4 leika KR-ingar og Keflvíkingar á Laugardalsvell- inum og er þetta næst síðasti leikurinn í 1. deild í ár — nema féölg verði jöfn að stigum í efsta sæti. Miklu meiri spenna ríkir um úrslit þessa ieiks en hins leiks- ins, sem eítir er en hann er milli Vals og Þrótcar. Stigin standa nú þannig að Keflvíkingar og Valsmenn haf.. 12 stig en KR 10. Keflvíkingar verða að vinna í dag til að hafa möguleikann jafn vel þó KR vinni Þrótt — eins og líklegt er talið. KR-ingar keppa að sigri og hafa með sigri mögu leika á að bianda sér í „auka“- úrslitabaráttu ef Þróttur vinnur Val. En hvað urr. það. Víst má bú- ast við góðum og spennandi leik því Keflvikingar hafa átt góða leiki í sumar og KR-ingar hafa mjög sótt sig að undanförnu og bezti leikur peirra um langt skeið var gegn Frakklandsmeist urunum frá Nantes. Sandur hleðst að norska bátnum Aðstaða til björgunar mjög erfið UNDANFARNA daga hafa menn frá Björgunarfélaginu h.f. dval- izt við Sandvik, skammt norðan við Gerpi til að athuga mögu- leika á björgun norska síldveiði bátsins Gesina sem þar strand- aði aðfaranótt þriðjudags sl. — Brezkt tryggingafélag býöst til aö tryggja íslenzkar laxár — fyrir „Irlandsveikinni44 svonefndu — Hverfandi hætta talin á, að sjúkdómurinn berist hingað — Rætt við Þór Guðjónsson, veiðimálastjóra FYRIR nokkru barst Gunn ari Bjarnasyni, skólastjóra, fyrrv. formanni Stanga- veiðifélags Reykjavíkur, bréf frá brezku trygginga- félagi, þar sem það býðst til þess að tryggja laxveiði ár á íslandi, þ.e. að bæta veiðieigendum tjón það, sem myndi verða, ef sjúk- dómur sá, sem nú herjar á lax í írlandi, bærist hing- að. Kveðst tryggingafélag- ið þegar hafa tryggt ár í Bretlandi vegna þessa, og býður nú fram þjónustu sína í þessum etnum. — í tilefni þessa sneri Mbl. sér til Þórs Guðjónssonar, veiðimálastjóra, sem ný- kominn er af fiskimálaráð- stefnu Norðurlanda í Finn landi, og innti hann eftir írlandsveikinni svonefndu, hvort hætta væri á að hun bærist hingað, svo og fisk sjúkdómamálum almennt. í viðtalinu, sem hér fer á eftir, kom margi fróðlegt fram, m.a. að aO líkindum er þess að vænta, að bráð- lega verði sett reglugerð um innflutning skraut- fiska til Islanus, þar eð þeir munu geta nono með ser sjukuoma. „Pao sem i.yrst og fremst vaKU atnygn mina a iiskí- málaráðsteínu Norðurlanda, voru erindi, sem þar voru flutt um fiskivötn og vatna- fiska. í þessu sambandi var einmitt rætt mjög um sjúk- dóma, og hættuna á því, að þeir bærust milli landa. Eftir- tektarvert þótti mér erindi veiðimálastjóra Svíþjóðar, Ing mar Sörensen, en hann ræddi um fisksjúkdóma og flutning fiska milli landa með tilliti til sjúkdómahættu", sagði Þór. „Það er nú fyrst á síðustu árum, að aimennur áhugi hef- ur vaknað fyrir fisksjúkdóm- um og orsökum þeirra. Menn eru nú farnir að gera sér grein fyrir því, hversu mikil hætta er á því, að sjúkdómar flytjist með hrognum og seið- um milli landa. Svíar telja sig hafa fengið hina mjög alvar- legu kýlaveiki, Furunculosis, með' fiski frá Danmörku, en þar er þessi sjúkdómur all- útbreiddur. Svo vill til, að regnbogasilungur þolir kýla- veikina betur en aðrar fisk- tegundir, þannig að borið hef- ur minna á veikinni í Dan- mörku en í laxinum í Svíþjóð. Svíar telja kýlaveikina ógnun Framhald á bls. 11. Þessar athuganir voru gerðar samkvæmt beiðni norskra vá- tryggjenda, og hefur Björgunar félagið h.f. gefið þeim skýrslu um málið, en ekki lieyrt frá þeim j síðan. Eggert Karlsson hjá Björgun arfélaginu h.f. tjáði Mbl. í gær, að öll aðstaða til björgunar- starfa í Sandvik væri mjög erf- ið og kostnaðarsöm. Þarna renn- ur á, sem ber sand að bátnum. Er sandurinn nú kominn allhátt upp að síðum hanj. Þá er sandrif 200—300 metra fyrir utan, sem brýtur á, og ekki hægt að kom- ast inn fyrir það á björgunar- Framhald á bls. 31 Þrem bílum stolið í NÓTT var þremur bifreiðum stolið í Reykjavik. Voru það R-5302, Flymouth-fólksbifreið, árgerð 1955, græn að lit, sem hvarf af bílastæðinu við Tjörn- ina einhvern tima frá því kl. 5 síðd. á föstuciag til gærmorguns. R-19145 Ford Fairline, fólksbif- reið, dökkur og hvítur, árgerð 1959, sem hvarf af Laugavegi og R. 10595, Chevrolet, hvítur og grænn, tveggja dyra, árgerð 1956, sem hvarf af Njálsgötu. — Báðum þessum bifreiðum var stolið einhvern tíma, frá mið- nætti til kl. 8— 9 f gærmorgun. Þeir, sem gætu gefið einhverjar upplýsingar um þessa þjófnaði eru beðnir að hafa samband við rannsóknarlögregluna. 3 gengu af brezk- um togara LÖGREGLAN á Akureyri þurfti að hafa talsverð afskipti af brezkum togarasjómönnum í fyrrinótt og gær. Sl. fimmtu- dag hafði togarinn Lock Doon frá Hull komið inn til Akureyr- ar vegna bilunar. Á föstudag gengu þrír af skipshöfninni af togaranum og leituðu til lög- reglunnar, en það varð að sam- komulagi að þeir svæfu af um nóttina um borð í skipinu og komu þeir svo snemma í gær- morgun aftur í land og höfðu ekki breytt afstöðu sinni um að ganga af skipinu, og skipstjór- inn gerði heldur engar kröfur um að þeir væru fluttir um borð með valdi. í fyrrinótt var róstusamt um borð í togaranum og tveir skipverja voru látnir gista í fangahúsi lögreglunnar sökum ölvunar. Þeir fóru síðan aftur um borð í togarann og fóru með honum er hann sigldi út í gærdag. Þremenningarnir voru ekki ölvaðir. Ástæðan til að hinir þrír skip verjar gengu af var sú, að þeir töldu sig ekki hafa fengið sóma- samlegt fæði um borð í fleiri daga, en það stafaði af því að matsveinninn var veikur og var fluttur til Reykjavíkur á föstu- daginn af þeim sökum. Hinir brezku togaramenn áttu að koma með flugvél hing- að til Reykjavíkur í gær. Forseti fer utan FORSETI Islands, herra As- geir Ásgeirsson, fór í gær í einkaerindum til útlanda. i fjarveru hans fara forsætis- ráðherra, forseti sameinaðs Al- þingis og forseti Hæstaréttar með vald forseta Islands, >am- kvæmt 8. gr. stjórnarskrárinn- ar. Forsætisraðuneytið 10. september 1966.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.