Morgunblaðið - 18.09.1966, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.09.1966, Blaðsíða 1
32 slður og Lesbók >3. árgangur 213. tbl. — Sunnudagur 18. september 1966 Prentsmiðja Morgunblaðshta Iðnsýningunni lýkur í dug IÐNSÝNlNGUNNI 1966, sem haldin er í sýningar- og í- þróttahöllinni í Laugavdal, lýkur í dag. Þar sýna 140 fyrir- tæki framleiðsluvörur sínar í 12 deildum. Hin stærsta er deild tré- og húsgagnaiðnaðarins. í dag er sýningin opin frá kl. 9 árdegis til kl. 11 í kvöld. Iðnsýningin 1966, sem jafnframt kaupstefna, var opnuð Jfann 30. ágúst síðastliðinn og hefur því staðið í tæpar þrjáí vikur. Tilkynnt hefur verið, að sýningin verði ekki framlengd. Sýningin hefur vakið mikla athygli almennings, enda þykir hun nýtízkuleg í alla staði og skipulag allt til fyrir- myndar. Síðastliðið föstudagskvöld höfðu rúmlega 52 þúsund manns sótt sýninguna, auk fjölda kaupsýslumanna, sem komið hafa á kaupsteinuna sérstaklega. Búizt er við því, að fjöldi sýningargesta fari í dag yfir 60 þúsund og mun 60 þúsundasti gesturinn fá gjöi frá sýn- ingunni. Að Iðnsýningunni 1966 standa Félag íslenzkra iðnrek- enda og Landssamband iðnaðarmanna. Iðnsýningarnefnd skipa Bjarni Björnsson formaður, Davíð Sch. Thorsteins- son, Hafsteinn Guðmundsson og Þórir Jónsson. Framkvæmdastjóri sýningarinnar er Arinbjörn Kristjáns- son, tæknifræðingur „dttumst ekki styrj- öld af neinu tagi“ Kmverjar virðast telja hugsun IVIao Tse-Tung helzta vopn sitt Tókíó 17. sept. NTB. „KÍNVERSKA þjóðin mun hrekja á brott sérhvern banda- rískan glæpamann, sem hættir sér inn á kínverskt landsvæði“, sagði Alþýðudagblaðið í Peking í ritstjórnargrein í dag. 1 rit- stjórnargreininni er rætt um þær fregnir, sem fréttastofan Nýja Kína flutti í gær þess efnis að kínverskar orustuþotur hafi átt í bardaga við bandarískar þotur og að bandarískar flugvélar hafi ráðist á skotmörk innan Kína ðagana 5. og 9. september. Samkvæmt fréttum Nýja Kína á ein bandarísk þota af gerðinni F-105 Thunderchief að hafa lask azt í loftbardaga við kínverskar þotur í gær, og er sagt, -5 or- usta/n jhafi átt sér stað yfir Kwangsi Chuang-héraði við landamæri N-Vietnam. „Tvær bandarískar loftárásir áttu sér stað eftir árás á lítið, kínverskt flutningaskip í Tonkin flóa 29. ágúst. Allar þrjár árás- irnar fylla kínversku þjóðina vandlætingu“ segir Alþýðudag- blaðið. Að þvf er fréttastofan Nýja Kína segir, átti bandaríska ár- ásin þann 5. september sér stað yfir SV-Kína, skammt frá Vin- áttuskarði, sem liggur að N- Vietnam. „Við vörum bandarísku árásarseggina hátíðlega við því að ráðast á okkur og við undir- strikum að hin hugrakka kín- verska þjóð — vopnuð mestu hugsunum Mao Tse-Tung — óttast ekki styrjöld af neinu tagi“ segir blaðið. Stálgrindin, lákn Iðnsýningarinnar, við innaksturinn að Sýningar höllinni í Laugardal. (Ljósm.: Ingimundur Magnúss.) Bandaríkin mótfallin aðild Kína að T Enn hrapar ein Starfighterþota V-þýzki flugherinn hefur nú misst 63 flugvélar af þeirri gerð Leynilegar við- ræður í Rhodes- íumólinu París, 17. september, NTB. IAN SMITH forsætisráðherra Rhodesiu sagði í gær í viðtali, sem fréttamaður útvarpsstöðvar- innar Radio Luxembourg átti við hann, að fram færu nú leynileg- Framhald á bls. 31. Washington, 17. september. NTB. DEAN Rusk, utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýsti því yfir í gær, að Bandarikin myndu verða mótfallin sérhverri tillögu, um að kínverska alþýðulýðveldið fengi inngöngu í Sameinuðu þjóðirnar, er allsherjarþingið kemur saman seinna í þessum mánuði. Ráðherrann sagði, að viðhorf bandarísku stjórnarinnar í þessu máli hefði ekki breytzt á neinn hátt og að stjórnin væri sann- færð um, að meirihluti meðlima- ríkjanna myndi eftir sem áður vera því mótfallin, að Peking- stjórnin fengi aðild að Samein- uðu þjóðunum á kostnað kín- versku þjóðernissinnastjórnar- innar. Rusk lagði hins vegar áherzlu á, að Bandaríkjastjórn vildi halda opnum dyrum íyrir hugsanlegum samskiptum við Pekingstjórnina en sagði, að kínverska alþýðulýðveldið væri, eins og nú væri ástatt, ein veiga- mesta hindrunin fyrir friðsam- legri lausn Vietnammálsins. Bonn, 17. september NTB. Vesturþýzki flugherinn missti 63. orrustuþotu sína í gær, af gerðinni Starfighter F-104. Flug- vélin hrapaði rétt eftir flugtak frá flugvelli í Arizona í Banda- rikjunum. Flugmanninum tókst að komast út úr flugvélinni og varpa sér niður í fallhlíf, en slasaðist mikið. örsök þess, að flugvélin hrapaði er ókunn. Alls hafa 35 flugmenn látið lífið s.l. fimm ár, er orrustuþot- ur af þessari gerð hröpuðu. S.l. fimmtudag hrapaði önnur Starfighterþota við sama flug- völl og hin síðari, það er Luke- flugvöllinn í Arizona, en þar eru vesturþýzkir flugmenn þjálfaðir. Flugmaðurinn, sem flaug þotí' unni, er hrapaði í gær, var banda rískur flugkennari. Vesturþýzka varnarmálaráðu- neytið skýrði frá því í gær, að 14 háttsettir liðsforingjar í öll- um greinum hersins myndu nú verða settir á eftirlaun og yngri menn myndu koma í þeirra stað. Framh. á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.