Morgunblaðið - 23.09.1966, Síða 1
3Z síður
53 árgangur
217. tbl. — Föstudagur 23. september 1966.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
VERÐ LANDBÚNAÐARAFURÐA OBREYTT
Brýn nauðsyn að stöðva
verðhækkanir innanlands
— vegna lækkandi verðs
á útflutningsafurðum
í FRÉTT frá forsætisráðuneytinu kemur fram, að brýn
iiuuðsyn er að stöðva liækkanir innanlands vegna versnandi
viðskiptak i ara út á við en íslenzkar útflutningsafurðir haía
lækkað veruiega á erlendum mörkuðum að undanförna.
T il að gieiða fyrir því að takast megi að stöðva verð-
hækkanir innanlands hefur ríkisstjórnin ákveðið að greiða
mður hækknn þá, sem átt? að vera á verði landbúnaðar-
vara, þamJg að verð þeirra verður yfirieitt óbreytt. Ti»-
kynning forsætisráðuneytisms fer hér á eftir:
-<•>-
„Á síðustu mánuðum hefur snu-
izt við sú verðlagsþróun, sem
átt hefur sér stað um íslenzK-
ar afurðir erlendis undanfarin
misseri. Verðhækkanir hafa yfir
leitt stöðvazt og sumar hinar þýð
ingarmestu afurða lækkað í
verði, einstaka stórlega. Að svo
Fric&arslfinar
slógust með
stokkum og
steiinum
Tokío, 22. sept. NTB
Feiknarleg slagsmál urðu
í skemmtigarði einum í
Tokíó í dag. Áttust þar við
samtök friðarsinnaðra stúd
Framhald á bls. 31
Nýjar tillógur
lan Smiths?
Salisbury, Rhódesíu, 22. sept.
SIR Morrice James, ritari í
Samveldismálaráðuneytinu, fór
í dag frá Salisbury til London,
þar sem hann mun gera stjórn-
inni grein fyrir viðræðum, er
sendimenn hennar hafa átt við
lan Smith, forsætisráðherra
Rhódesíu, og fleiri aðila. Talið
er, að hann hafi meðferðis nýj-
ar tillögur til lausnar málinu frá
Ian Smith.
vöxnu máli ber brýna naúðsyn
til að stöðva verðhækkanir inn-
anlands. Til að greiða fyrir að
svo megi verða, hefur ríkisstjór-
in ákveðið að borga niður þá
verðhækkun, sem leiðir af sam-
komulagi sex manna nefndar um
hækkun á búvöruverði. Mun
verð á mjólk og kindakjöti haid-
ast óbreytt, svo og á smjöri, að
því er ákvarðanir ríkisstjórnai-
innar taka til. Verð á öðrum bu-
vörum mun hækka lítillega, en
verð á osti lækka sem jafngildir
þeirri hækkun“.
24 fórust
Brisbane 22. sept. NTB
24 manneskjur týndu lífi í
dag, er farþegafluvél af gerð
inni „Viscount“ fórst yfir
norðvesturhluta Queenslands.
Framh. á bls. 25
Þegar maður er orðinn for
seti, verður maður að vera
fínn. Það finnst Bokassa for-
seta Mið-Afríkulýðveldisins
að minnsta kosti. Þegar hann ^ ,
fór í heimsókn til nágranna
síns, Mobutus i Kongó, þá
skartaði hann 33 heiðurs-
merkjum, krossum, pening-
um og litríkum borðum. Gn
þetta hafði hann allt keypt
sjálfur hjá heiðursmerkjasala
á Signubökkum. Gestgjafi
hans og æðsti maður Kongó
Mobutu hershöfðingi, var
ekki nærri eins fínn. Hann
er fyrrverandi hermaður í
franska hernum, þar sem
hann hlaut mörg heiðurs-
merki og var orðinn kapteinn
eftir 22ja ára þjónustu. Á
myndinni sést einkennisbún-
ingur Bokassa, heiðursmerkj
um prýddur og þar má m.a.
sjá æðstu heiðursmerki
Frakka.
//
Rauðu varðliðarnir senda Rússum tóninn:
Við munum flá af ykkur skinnið, rífa
úr ykkur þarmana og brenna líkin"
— Er Mao Tso-tung að missa tögl og hagldir?
Peking Tokío, 22. sept
NTB—AP
DAGBLAÐ sovézku æsku-
lýðshreyfingarinnar „Koms-
omolskaya Pravda“ segir í
dag, að Rauðu varðliðarn r
kínversku hafi hengt spjölJ
á sendiráð Sovétríkjanna í
Peking, þar sem á var letr
að „ Við munum flá af ykkur
skinnið, rífa úr ykkur þarm
ana, brenna lík ykkar og
fleygja öskunni“.
Frá þessu segir blaðið í grein
um varðliðana, þar sem farið er
hörðum orðum um þá og sagt,
að þeir mæti vaxandi andspyrnu
verkalýðsins í Kína. Segir blað-
ið, að atburðirnir í Kína að und-
anförnu sýni, að þar eigi sér
stað hörð átök í innanlandsmái-
um. Ljóst sé, a'ð Mao Tse Tung
og fylgismenn hans hafi gersaná
lega vísað á bug sönnum komm-
únisma.
Þá er skýrt frá framkomu
varðliðanna við sovézka sendi-
ráðið og spjöldunum þar sem
skrifað hafði verið: Allt hið
gamla og einnig hið nýja hatur
býr í hjörtum vorum. Við mun-
um ekki gleyma, ekki þótt líði
hundrað, þúsund. eða tugþúsund
ir ára. Þegar rétti tíminn kem-
ur skulum við flá af ykkur skinn
ið, rífa úr ykkur þarmana,
brenna lík ykkar og fleygja ösk
unni í vindinn". Fréttamaður
blaðsins í Peking segir, að Rauðu
Framhald á bls. 25
Aheyrendur í réttarsal
geriu hróp að Mihajlov
Zadar, 22. sept. NTB
Júgoslavneski rithöfundur-
inn og háskólakennarinn,
Mihajlo Mihajlov, kom fyrir
rétt í Zadar í dag. Áhorfend-
ur í réttarsalnum voru marg-
ir — og gerðu þeir hróp að
honum, er hann lýsti það sann
færingu sína að allt er hann
hefði skrifað um Júgóslavíu
væri satt og rétt. Einkum urðu
áheyrendur illskeyttir, er
hann sagði, að einræði ríkti í
Júgóslavíu.
Saksóknari ríkisins krafðist
þess, að Mihajlov yrði dæmd-
ur til hegningar, er kæmi í
veg fyrir, að hann yrði hættu-
legur þjóðfélaginu, en verj-
andi hans krafðist sýknu á
þeirri forsendu að Mihailov
hefði hreint ekkert til saka
unnið. Honum er gefið að sök
að hafa dreift erlendis fölsk-
um upplýsingum um Júgó-
slavíu. Búizt er við, að dómur
falli í máli hans fyrir hádegi
á morgun. Samkvæmt júgó-
slavneskum lögum getur há-
marksrefsing í máli hans orðið
tveggja og hálfs árs fangelsi.
Mihajlov lýsti því yfir fyrir
Framhaid á bls 25
Erhard gekk af fundi
ríkisstarfsmanna
Bad Godesberg, 22. sept. NTB.
LUDWIG ERHARD, kanzlari V-
Þýzkalands gekk í dag af fundi
opinberra starfsmanna í Bad
Godesberg, eftir að hafa sætt þar
harðri gagnrýni.
Hér var um að ræða ársþing
sambands opinberra starfsmanna
í V-Þýzkalandi og sátu það þús-
und fulltrúar 700.000 starfs-
manna.
Við setningu fundarins lýsti
formaður sambandsins Alfred
Krause því yfir að 8% kaup-
hækkun, sem opinberir starfs-
menn fengu nýlega væri alls
ekki nægileg. Hefði verið komið
fram við opinbera starfsmenn á
þann hátt, að algert vafamál
væri hvort hægt væri að sýna
hollustu þeim, er svo gersam-
lega skytu sér undan ábyrgð.
Hver vonbrigðin á fætur öðrum
hefðu drepið hvern hugsjóna-
neista og opinberir starfsmenn
væru nú hættir að láta blekkjast
af fagurgala þeim, er stöðugt
klingdi yfir þeim við hátíðlM
tækifæri.
Fundarmenn fögnuðu ákaft
þessum ummælum Krause og var
honum klappað lof í lófa meðan
Erhard kanzlari gekk til dyra
þungur á brún.
Opinberir starfsmenn krefjast
þess að launakjör þeirra verði
ekki lakari en iðnverkamanna en
telja sig enn 5% undir því marki,
þrátt fyrir 8% hækkunina sem
þeir fengu fyrir skömmu.