Morgunblaðið - 23.09.1966, Blaðsíða 12
12
MORCUNBLAÐtÐ
Föstudagur 23 sept. 1966
215 kórar
í Kírkju-
kórasamb.
DAGAN \ 14. — 16. septembei
var haldið námskeið á vegum
Heyrnleysingjaskóians fyrir for-
eldra heyrnardaufra barna.
Eftirtaldir aðiiar fluttu fræðslu
erindi:
Guðmundur Eyjólfsson, lækn-
ir, sem talaði um eyrnasjúk-
dóma og möguiega meðferð
þeirra.
Gylfi Baldursson, heyrnar-
fræðingur, talaði um heyrnar-
mælingar og heyrnarfræði.
Sigurjón Björnsson, sálfræð-
ingur, talaði um uppeldisvanda-
mál heyrnardaufra barna.
Almennar umræður og fyrir-
spurnir voiu að erindunum
loknum.
Á námskeiði fyrir foreldr a heyrnardaufra barna, sem Heyrnleysingjaskólinn sfndi til.
Námskeið fyrir foreldra
heyrnardaufra barna
Þá héldu skólastjóri og kenn-
«rar skólans umræðufundi með
foreldrum, kom par fram að
heyrnardauf bórn hafa stundum
komið seinna en æskilegt væri
til sérstaki ar meðferðar, þó
veruleg bót hafi orðið á því með
tilkomu Heyrnarhj álparstöðvar-
innar. Einnig voru sýndar
fræðslukvikrnyr.dir Þátttakend-
ur voru miili 50 og 60 víðsvegar
að af lano’inu.
Þá var sTofnað Foreldra og
styrktarféiag heyrnardaufra til
þess að vinna að margháttuðum
velferðarniHJurn þeirra.
Heyrnadevfa á háu stigi, or-
sakar málieysi eins og kunnugt
'er, en þeir sem hafa lítið og
ófullkomið mái, einangrast oftast
frá öðru fóJki, verða einmana
og flestir misskilja þá.
Megintilgangur allrar kennslu
heyrnardautra er að kenna þeim
tnál og opna þeim þannig leið
til að blantía geói við samborg-
ara sína og njóta þess annars,
sem málið veitir möguleika til.
Blindur maður sér hvorki lög-
un né liti og heyrnarlítill maður,
sem lifir að mestu i hljóðlausum
heimi skyr.jar lítt eða alls ekki
flest það, sem heyrandi fólk
hefir unun af að hlusta á. Þetta
getur enginn mannlegur máttur
bætt þeim að íuliu.
En með því að kenna heyrn-
„ ardaufum mál, er þeim veitt sú
mesta mögulega hjálp tii að
njóta eðiilegra samvista viö með-
bræður sína.
Til þess að stuðla að því, að
þetta geti tekisl í sem ríkustum
mæii, vill íéiagið haida uppi sem
víðtækastn fræðslustarfsemi
meðal for<aidra heyrnardaufra
barna og aJioennings um vanda-
mál þessa fólks, jafnframt því,
að styðja og styrkja starfsemi
Heyrnleysíngiaskólans, og að-
stoða heyrnardaufa við val á
lífsstarfi eða til framhalds-
menntunar. Félagið væntir góðs
samstarfs við þá aðila, sem vilja
vinna að þessum málum.
Fundurmn samþykkti starfs-
áætlun fyrir næsta ár og fól
stjórninni rn. a. að láta þýða og
dreifa fræðsiurit: fyrir foreldra
um uppeidi heyrnardaufra
barna undir skólaaidri. — Það
er undir 4ra ára aldri.
Stofnendur félagsins teljast
þeir sem gerast meðlimir á
fyrsta starfsari þess.
Félagið mun leggja kapp á að
afla sem íJestra styrktarmeð-
lima.
Stjórn félagsins er þannig
skipuð: Formaðui Vilhjálmur
Vilhjálmsson, simvirki, gjald-
keri, Hai'grímur Sæmundsson.
kennari og ritari, Hákon
Tryggvason. kennari.
Þeir sem vilja hafa samband
1 við félagið geta snúið sér til ein-
hvers stjórnarmanna, utanaskrift
til félagsins er þannig:
Foreltíra og styrktarfélag
heyrnardaufra,
Stakkholti 3, Reykjavík.
(FréUatdkynning frá For-
el^ra og styrklarfélagi
heyrnai dauf ra).
Tokío, sept. NTB
• Tvö japönsk skipasmíða-
félög hafa tilkynnt að þau
hafi fengið tilboð um að
smíða sex olíuskip, sem hvert
verði 276,000 lestir. Verða það
stærstu olíuskip sem nokkru
sinni hafa verið smiðuð.
Það er bandaríska fyrir-
tækið National Bulk Carriers
inc., sem pantað hefur skio
þessi hjá skipasmíðafélögun
um Mitsubishi og Ishikawnj
ima Harima. Voru samningar
undirritaðir í New York í
gær en kaupverðið er sam-
tals 120. milljónir dollara.
Fyrstu skipin eiga að vera
fullgerð haustið 1968 og hin
síðustu sumarið 1969. Þau
verða skráð í Líberiu.
*
Islands
AÐALFUNDUR Kirkjnkórasam-
band íslands var haldin miðviku-
daginn 22. júni sl.
Mættir voru fulltrúar frá flest-
um kórasamböndum víðsvegar
að af landinu. Fundarstjóri var
kjörinn sr. Þorgrímur Sigurðs-
son, prófastur, Staðastað.
Formaður Kirkjukórasambands
ins, Jón ísleifsson, flutti skýrslu
um liðið starfsár. Hann gat þess,
að 9 söngkennarar hefðu starfað
á vegum sambandsins sl. ár.
Tveir kirkjukórar hefðu verið
stofnaðir á árinu, og væru nú
215 kórar í sambandinu.
Ennfremur gat hann þess, að
ýms kirkjukórasambönd hefðu
aukið starf sitt með því t. d. að
standa fyrir söngskemmtunum,
og flytja þar fjölbreytta söng-
skrá, og einnig stuðlað að marg-
breyttu kirkjustarfi svo sem
kirkjukvöldum o. fl.
Mikill einhugur ríkti á aðal-
fundinum varðandi störf Kirkju-
kórasambands íslands, og allir
sammála um að efla beri starf-
semi kirkjukóranna í landinu.
S t j ó r n Kirkjukórasambands
íslands skipa: Jón ísleifsson,
organisti, formaður; Hrefna Tyn-
es, ritari; Finnur Árnason, bygg-
ingafulltrúi, gjaldkeri; Jón
Björnsson, organisti, Patreks-
firði; Eyþór Stefánsson, tónskáld,
Sauðárkróki; Séra Einar Þór
Þorsteinsson, Eiðum; Frú Hanna
Karlsdóttir, Holti.
(Frá Kirkjukórasamb. fsl.).
Kaustfagnaður
ungra Sjálf-
stæðismanna
í A-Húna-
vatnssýslu
HAUSTFAGNAÐUR ungra
Sjálfstæðismanna í A-Húna-
vatnssýslu verður haldinn í
félagsheimilinu á Blönduósi,
laugardaginn 24. sept. Þar
mun hinn landsfrægi Alli
Rúts skemmta og hin vin-
sæla hljómsveit Stormar
ieika fyrir dansi. Er ekki að
efa, að haustfagnaður þessi
mun verða vel sóttur, enda
vel til hans vandað.
Hafin bygging gagn-
fræðaskóla á Sauðárkróki
ÞANN 24. ágúst sl. voru hafnar
framkvæmdir við hinn fyrir-
hugaða Gagnfræðaskóla á Sauð-
árkróki.
í því tilefni kom byggingar-
nefnd skólans, fræðsluráð bæjar
ráðsmenn og nokkrir aðrir gest-
ir saman á lóð skólans.
Formaður byggingarnefndar
Hákon Torfason, bæjarstjóri,
bauð viðstadda velkomna og
form. fræðsluráðs, sr. Þór’r
Stephensen minntist með nokkr-
um orðum, þessa merka áfanga í
skólamálum bæjarins, er hafui
væri bygging þessa glæsilega
skólahúss, sem hér ætti að rísa.
Fræðsluráð Sauðárkróks hefir
unnið að undirbúningi þessa
máls nú um allJangt skeið og
eru nú allar teikningar tilbúnar.
Miðvikudaginn 17. ágúst sam-
þykkti menntamálaráðherra fyr-
ir sitt leyti, með bréfi til fræðslu
málastjóra, byggingu þessa skóla.
Fyrsti áfangi sem áætlað er
að byggja er að grunnfleti ca
2.000 ferm. og 8.750 ten.m., en
öll er byggingin rúmlega 4.000
ferm. og 22.500 rúmmetrar.
Skólann hafa teiknað arkitekt-
arnir Stefán Jónsson, Þorv. S.
Þorvaldsson og Jörundur Páls-
son. Byggingarverkfræðingur
skólans er Vilhjálmur Þorláks-
son. Hita-, vatn og frárennslis-
lagnir sér verkfræðiskrifstofa
Guðmundar og Kristjáns um, og
raflagnir teiknuðu verkfræðing-
arnir Jón Á. Bjarnason og Hall-
dór J. Bjarnason. — Jón.