Morgunblaðið - 23.09.1966, Side 25
Föstudagur 23. gept. 196«
MORGUNBLAÐIÐ
25
— Skjaldbreið
Framhald af bls. 32
Herðubreiðar og framan af urðu
skipin fyrir miklu tjóni vegna
grunnsaevis á höfnum, en nú má
segja að þau séu allt of lítil með
tilkomu nýrra hafnarmannvirkja.
Söluverð skipsins verður dá-
lítið hærra, en, að ofan getur
þar eð ekki er innifalið í kaup-
verðinu sala á talstöðvum skips-
ins, svo og miðunarstöð, sem
seldar verða með skipinu.
Guðjón gat þess, að kostnað
við slipptöku skipsins myndu
kaupendur greiða, en skipið er
nú í slipp í Reykjavík.
— Brosin
Framhald af bls. 23
ferðir þeirra fyirfram", bætti
Lawrence við.
1 dag sagði majórinn að
120.000 manns byggju í hér-
aðinu, en þannig hefur því
ekki alltaf verið farið. Fólk-
ið í Tuy Phuoc bjó undir raun
verulegri stjórn kommúnista
á dögum Frakka. Engu að
síður, og það er athyglisvert,
flúði þetta fólk þúsundum
saman er stjórn landsins fór
í mola eftir daga Diems og
kommúnistar endurnýjuðu
völd sín í héraðinu.
í þorpum, sem töldu 2000
íbúa, urðu aðeins 600 til 700
eftir. En nú hafa þessir flótta
menn snúið aftur heim, og
flest þorpanna, sem voru að
hálfu í rústum, hafa verið
endurbyggð með aðstoð fram
kvæmdasveita Tuy Phuec.
Hættulegur akstur.
Ég spurði hvort hægt væri
að skoða einhver þessara
endurbyggðu þorpa. Banda-
ríkjamenn í þorpinu höfðu
gert svo mikið úr hryðju-
verkum Viet Cong varðandi
kosningarnar að menn hik-
uðu alvarlega við að aka
aðalveginn til miðstjórnar
Tuy Phuec-svæðisins. En
majórinn visaði ákafur leið-
ina til jeppa síns, og við
héldum tafarlaust af stað. Við
ókum um héruð fullt af bros
andi fólki — því fólk kann
greinilega vel við Lawrence
majór á þessum slóðum.
Þannig leið fyrsti dagur-
inn. Því næst komu kosning-
arnar, ásamt stöðugum að-
vörunum um hryðjuverk
Viet Cong, og lengri og enn
ánægjulegri ferð um Tuy
Phuoc hérað.
Kosningarnar á þessum
slóðum voru ekki aðeins
frjálsar — þær voru beinlín-
is fjörugar. Þrátt fyrir hót-
anir Viet Cong var kjörsókn-
in geysileg — yfir 90% af
kjósendum í héraðinu. A kjör
stöðunum gerði mannfjöld-
inn að gamni sínu, ræddi
um landsins gagn og nauð-
synjar, gerði gys að vinum,
sem stóðu í biðröðum eftir
því að geta kosið. Yfirmað-
ur héraðsins, Pham Gia
Tung, kapt.einn, sem nú var
leiðsögumaður minn, er lítill
og fámáll maður. En þessi
óræki vottur þess að vel
gengi kom honum til þess
að brosa út að eyrum.
Loksins var tekið að loka
kjörstöðunum, og mér var
boðið til kvöldverðar af hér-
aðsstjóranum.
Tung kapteinn er mennta-
maður, fyrrum prófessor í
stærðfræði frá Hué. Þeir
majór Lawrence eru miklir
mátar, og Lawrence reyndi
meira að segja að fá því
framgengt að sér yrði leyft
að vera lengur þarna.
„En fjölskyldan vildi ekki
heyra á það minnst", sagði
hann. „En ég komst að sam-
komulagi við konuna um að
ég fari hingað aftur eins fljótt
og ég get. Ég kann vel við
mig hérna.“
(Eftir Joseph Alsop —
stytt í þýðingu).
— Kina
Framhald af bls. 1
varðliðamir haldi áfram að
streyma til borgarinnar utan af
landinu. Þeir séu þreytulegir eti
virðast skemmta sér ágætlega,
eins og þeir hafi fengið skóia-
leyfi sínu framlengt.
Erlendir stúdentar frá Peking
Þá hafa borizt um það fregmr
frá Peking að öllum erlendum
stúdentum hafi verið vísað það-
an burt og þeim gert að hverta
úr landi innan tveggja vikna.
Afnumdir hafa verið allir styrk-
ir til erlendra stúdenta og sendi
ráðum viðkomandi landa gerf
viðvart. Er sú skýring gefin, að
kennarar kínverskra skóla haf.
nú meira en nóg á sinni könnu
við að vinna að framkvæmd
menningarbyltingarinnar. Þegar
henni sé lokið verði aftur unnt
að taka við erlendum námsmönn
um.
Aðrar fregnir frá Peking
herma, að leiðtogar kommún-
istaflokksins hafi fyrirskipað
Rauðu varðliðunum að taka nið-
ur slagorðaspjöld sín, þar sem
alls konar fólk er sakað utn
kapitalisma og endurskoðunar-
stefnu. Ennfremur var tilkynnt í
dag, að Liu Tsu Hou hefði verið
skipaður aðalritari kommúnista-
flokksins í Hopei-héraði í stað
Lin Tieh. Fyrir nokkru koma
Rauðu varðliðarnir upp spjöld-
um í Hopei þar sem sagði, að
Lin Tieh hefði um árabil verið í
slagtogi með Peng Chen, fyrr-
um borgarstjóra í Peking.
Mao að missa völdin?
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins í Japan sagði í dag, að svo
væri að sjá sem Mao Tse tung
hefði ekki lengur fulla stjórn í
Kína — og hefði hann senni-
Allsherjarverk-
fall í Calcutta
Caucutta, ?2. sept. NTB.
• 48 KLST. allsherjarverkfall
hefur lamað gersamlega allt
athafnalíf í Caicutta, stærstu
borg Indlands.
Efndu vinstri flokkarnir til
verkfalls þessa tii þess að mót-
mæla matvælaskox-ti og hækk-
andi verði á nauðsynjum. Verk
fallið átti að ná til ails héraðsins
Vestur Bengai — en varð ekki
aigert nema í Calcutta. Allt lög-
reglulið héraðsins er reiðubúið
til þess ag grípa i taumana, ef
til átaka skyldi koma vegna
verkfallsins. Ér siðast var efnt
til slíks allsherjarverkfalls, urðu
þar átök er kostuðu 46 manns
lifið.
Frönsk mynd
hlutskörpust
í Saloniki
Saloniki, Grikklandi,
22. sept. NTB.
• FRANSKA kvikmyndin „La
Guerre Finis“ (Styrjöldinni
er lokið'), sem Alain Resnais
stjórnaði, var í dag valin bezta
myndin á kvikmyndahátiðinni í
Saloniki.
Beztu lei.kaiarnir voru kjörin
Per Oscarsson, fyrir leik sinn í
sænsku kvikmyndmni „Syskon-
badd“ og Gunnel Lindblom fyrir
leik sinni í hollenzkri kvikmynd
„La Danse Du Heron“. Verð-
launin fyrir beztu leikstjórn
féllu í nlut Rússans, Serge
Paradjanovs.
í kvikmyndahátíðinni í Salo-
niki taka þátt aðilar frá tuttugu
þjóðum. í verðiaunamyndinni
frönsku fara með aðalhlutverkm
Yves Montand og lngrid Thuiin.
A T II C G I Ð
Þegar miðað er við útbreiðslu.
ei langtum ódýrarta að auglysa
■ Morgunblaðinu en oðru.j
blöðnm
lega neyðzt til að notfæra sér
Rauðu varðWÖana, sökum þess
að flokksforystan léti ekki leng-
ur að stjórn hans Talsmaðurinn
kvað Rauðu varðliðana hata
haft mikil áhrif í Japan, eink-
um á japanska menntamenn.
Kína og Japan væru nábúar og
ættu á mörgum sviðum sameig-
inlegan menningararf. Enda þótt
Kína hefði lengi verið kommún-
ískt ríki hefð. flokkurinn þo
jafnan varðveitt menningarverð-
mæti. Nú væri svo að sjá sem
menningaraíur þeirra yrði
þurrkaður út og væri hörmu-
legt til þess að vita.
— 24 fórust
Framh. af bls. 1
Eldur kviknaði í hreyfli og
síðan varð sprenging í vél-
inni og hún steyptist logandi
til jarðar. Meðal þeirra, sem
fórust, voru tvö börn.
Vélin var í eigu ástralska flug
félagsins Ansett-Ana og var á
leið frá námubænum Mount ísa
til Brisbane. Áður en hún fór ;t
hafði flugstjórinn tilkynnt, að
kviknað hefði í einum hreyfli
vélarinnar og annar hefði stöðv-
azt. Var hann beðinn að freista
lendingar á flugvellinum í Win-
ton, en 18 km. frá vellinum hrap
aði flugvélin logandi til jarðan
Hélt áfram að loga í flakinu
lengi á eftir.
— Svifflug
Framhald af bls. 32.
og hækkaði nokkuð jafnt í
600 m. Lagði ég þá af stað
upp á von og óvon, -flaug
renniflug með austurfjöilun-
um til norðurs og varð lítið
var við uppstreymi á þeirri
leið.
— Á móts við Akureyrar-
flugvöll var ég kominn nið
ur í 180 m. hæð og var að
hugsa um að gefast upp og
lenda þar, en komst þá í hlið
aruppstreymi af Vaðlaheiði.
Hjá Steinsskarði var ég aftur
kominn í 600 m. hæð og í 1000
m. við Dalsmynni. Yfir Greni
vík kom ég í 800 m. hæð.
Þá hefði ég getað haldið
áfram, sjálfsagt eina 30 km.
eða lengra, en þótti dálítil
áhætta, að svífa yfir fjörðinn
til Dalvíkur og hálfgert
glæfraspil að halda yfir fjöll
in austur Þingeyjarsýslu,
svo að ég lenti á túni rétt
vestan við kirkjuna í Greni-
vik. Ekki hefði þýtt að fljúga
lengra norður, því að bæði
vantaði þá lendingarstað og
bílveg til að flytja fluguna til
baka.
— Þetta var í fyrsta skipti
sem flugtæki lendir í Greni-
vík og dreif strax að mér mik
ill krakkaskari. Lendingin
tókst prýðilega og var flug-
an flutt aftur suður á Mel-
gerðismela í gærkvöldi. Þeg-
ar ég lenti var klukkan 19,13
og hafði ég þá_ verið 58 min-
útur á lofti. Ég flaug alltaf
beiria línu, sneri aldrei við á
leiðinni og fékk aldrei niður-
streymi.
— Hvað vantar þig þá til
að ná_ silfur-Cinu?
— A laugardaginn náði ég
tilskilinni hæð og nærri tvis-
var sinnum það, en þá komst
ég 2200 m. upp, Nú vantar
mig aðeins fimm tíma þolíiug,
en það er nú auðveldast, eig-
inlega bara þolinmæðisverk.
En það ,sem mér þykir vænst
um núna, er að hafa getað
sýnt, að hér er hægt að fljúga
„yfirlandsflug" en vegna van
trúar á það, hefur svifflug
verið miklu minna stundað
hér á Akureyri, en ella hefði
verið. Má segja. að þarna hafi
verið „opnuð“ ný leið.
— Er félagið fjölmennt?
— Nei, það er allt of fá-
mennt. Vonandi fer félags-
mönnum fjölgandi bráðlega
og áhugi þeirra, sem starfa
er mjög mikill. Við eigum ‘
fjórar svifflugur og sú, sem j
ég notaði í gær er alveg ný, ‘
af gerðinni K 8. — Sv. P. |
— Áheyrendur
Framhald af bls. 1
réttinum, að engar sönn-
ur hefðu verið færðar á
að það, sem hann hefði
skrifað, væri rangt. Hann
sagði einræðisfyrirkomulag $
Júgóslavíu, þar sem aðeins lítill
hluti þjóðarinnar, þ.e. þau sex
til sjö prósent af þjóðinni, sem
væru í kommúnistaflokknum,
hefði nokkur réttindi. Hörð mót-
mæli heyrðust frá áheyrenda-
bekkjum, er hann lýsti því yfir,
að í Bandaríkjunum hefðu allir
stjórnmálaréttindi.
Þá sagði Mihailov, að gagnrýni
hans á stjórn Titos fæli alls ekki
í sér rangar upplýsingar. „Hvern
ig gteti það gerzt í Bretlandi,
sagði hann, að blaðamaður væri
dæmdur fyrir að skrifa, að ráð-
stafanir Wilsons bæru ekki á-
rangur? og vísaði jafnframt á
bug þeirri, staðhæfingu, að hann
kynnti undir hatri og andstöðú
þjóðanna, er Júgóslavíu byggja.
„Hvorki ég né vinir mínir óska
eftir upplausn júgóslavneska
ríkisins“ sagði hann, „tilgangur-
inn með greinum mínum var,
ekki að skaða júgóslavnesku
þjóðina, heldur að hvetja til
frjálsrar skoðanamyndunar".
Saksóknarinn Jakov Vujas vís
aði á bug þeirri fullyrðingu
Mihajlovs, að einræði væri í
Júgóslavíu „Það væri óhugs-
andi með svo beinu lýðræðisfyr-
irkomulagi sem við búum við“
sagði hann.
Verjandi Mihajlovs, lwo Glo-
watsky, lagði á það áherzlu í
varnarræðu sinni, að gagnrýni
skjólstæðings sins heíði e.t.v.
ekki verið skynsamleg, en hún
gæti á engan hátt talizt glæpsam
leg, og júgóslavnesk dagblöð
hefðu oft gengið lengra í gagn-
rýni sinni á júgóslavneskt þjóð-
félag. Hann vísaði á bug sem
móðgun ummælum saksóknar-
ans, þar sem hann gaf í skyn að
Miahjilov væri ef til vill ekki í
andlegu jafnvægi. Upplýsti
verjandinn ennfremur, að Miha-
jlov hefði í margra augum þeg-
ar verið dæmdur — honum hefði
t.d. verið neitað um afgreiðslu á
veitingahúsum og veitingastúlk-
urnar gefið þá skýringu, að þeim
væri bannað að afgreiða hann.
Mihajlov var handtekinn í
ágúst tveim dögum áður en halda
skyldi stofnfund nýs tímarits, —
óháðs menningar og stjórnmála
tímarits, — er flytja skyldi gagn
rýni á stjórn kommúnista. Var
það von hans og vina hans, sem
1 að tímaritinu stóðu, að það yrði
! kjarni nýs sósialdemokratísks
stjórnmálaflokks.
Á síðasta ári var hann dæmd-
ur í fimm mánaða fangelsi vegna
greina, er hann skrifaði eftir
ferð til Sovétríkjanna.
— Ekið á
Framhald af bls. 32.
báðum hurðum bílsins hægra
megin. Bifreiðin, sem fyrir
þessu varð er af gerðinni Volvo,
blágræn að lit.
1 fyrradag var ekið á bifreið-
ina R-16150, þar sem hún stóð á
miðju bifreiðastæðinu á Arnar-
hól. Urðu nokkrar skemmdir á
hlið bifreiðarinnar. Bifreiðin er
af gerðinni Fiat 1100, hvítur að
Aðfaranótt hins 21. þm. var
svo ekið á annan hvitan Fiat
1100 R-18373, þar sem hann stoð
á móts við Húsgagnaverzlun
Austurbæjar á Oðinsgotu Var
frambrettið dældað talsvert. Eru
allir þeir sem kunna að geta
gefið einhverjar upplýsingat um
þessa árekstra beðnir að snua
sér til rannsóknarlögreglunnar.
— Grænland
Framhald af bls. 32
ir frá Flugbjörgunarsveitinni.
Veður hefur verið gott allan
tímann. .
Björgunaraðgerðir gengu hægt a
miðvikudag og fimmtudag, vegna
þess að 60 cm. lag af nýfollnum
snjó og skafrenningur eru a
jöklinum. Flugvélin hefur sundr
azt og dreifst og ýmislegt hemu
tilheyrandi er frosið fast i is-
inn. Nokkur lík hafa fundizt og
verða þau send til Reykjavíkux
með ísbrjótnum Atka, að þvi er
segir í frétt frá bandarísku upp-
lýsingaþjónustunni. Er Atka að
ljúka björgunarstarfinu og búut
við að skipið komi til Reykja-
víkur á föstudag og laugardag,
en það fer eftir veðri. Muni
frekari tilraunir ef til vill verða
gerðar seinna.
Ferð ísbrjótsins til Wiede-
mannsfjarðar gekk vel, enda
ágætt veður.
Wiedemannsfjörður liggur
austan megin við Ravnhöfða a
68. gráðu norðlægrar breiddar.
Hann er 5 mílur á lengd, víðast-
ur yzt eða um 3 mílna breiður,
og niður í botn hans liggur skrið
jökull. Vestan megin í firðinum
er nokkurt skjól fyrir rekís og
þar er 22—23 faðma dýpi. Aust-
an megin fjarðar er jökullaust,
en dýpi allt niður í 8 faðmar.
Láglendi er þai með ströndinni
og hækkar aflíðandi og upp í
400 m. hæð. Eftir það tekur vxð
mikill bratti upp í talsvert
mikla hæð. Straumhörð á renn-
ur um 3. km. frá fjarðarbotn-
inum.
Til leigu
220 ferm. iðnaðarhúsnæði við
Laugaveg. Tilboð sendist.Mbl.
fyrir 26. sept. merkt: „Iðnaðar
húsnæði“.
Blaðburðarfólk
vantar í eftirtalin
Þingholtsstræti
Laufásveg 2—57
Freyjugata
Bergstaðastræti
Skólavörðustígur
Miðbær
Hverfisg. frá 4—62
Snorrabraut
Karlagata
Háahhð
Skiphotti II
Aðalstræti
Tjarnargötu
hverfi:
Vesturgata 2—44
Lynghagi
Ægissiða
Hringbraut 92—121
Hávallagata
Nesvegur
Víðimeiur
Fálkagata
Skerjaf jörður sunnan
flugvöll
Laugarásveg
Safamyri II
Fossvogsblett
Talið við afgreiðsluna sími 22480.