Morgunblaðið - 08.10.1966, Qupperneq 7
Laugarclagnr 8. október 198S
MORCUNBLAÐIÐ
7
Vinsæll skemmtikraftur I Lídó
c m þessar mundir skemmlir í Lídó sænska kvik myndaleikkonan, söngkonan, dansmærin, saxafón-
lcikarinn og þokkadísin Ingela Brander. Ungfrú Brandel hefur vakið mikla athygli í Evrópu með
Bkemmtiatriðum, og er ekki að efa, að hún mun falla íslenzkum áhorfendum og áheyrendum vel í |
geð. Myndin af stúlkunni er tekin í hinum vistleg u húsakynnum Lídó. Hún mun skemmta þar í tvær
Vikur. (Ljósm. Jóhannes Long).
ítalskir spéfugl-
ar í Víkingasal
UEIR ERU miklir sprelligosar
itölsku bræðurnir tveir, sem
þessa dagana skemmta að Hótel
Loftleiðum. Dandy Brothers heita
þeir, og er margt til lista lagt.
Raddir hafa þeir miklar og góð-
ar, flautað geta þeir á furðu-
legasta hátt, dansað og sitthvað
fleira.
Blaðamönnum gafst kostur á
að sjá þá braeður skemmta
fyrsta kvöldið að Hótel Loftleið-
um sl. sunnudagskvöld. Höfðu
bræðurnir komið flugleiðis til
landsins frá Svíþjóð þá um dag-
inn, og gafst lítill tími til æfinga
með hljómsveitinni, en ekki verð
ur annað sagt en þeir Karl
Lilliendal og félagar hafi staðið
prófraunina.
Dandy Brothers koma hingað
frá Svíþjóð, eins og fyrr greinir.
t>eir hafa skemmt þar í nokkrar
vikur á Ambassadeur. Þeir hafa
farið víða um, og eru enda „bók-
aðir“ ár fram í tímann. Héðan
halda þeir til Luxemborg og
Teheran.
Bræðurnir, sem eru 48 og 53
ára gamlir hafa m.a. komið þrí-
vegis fram í sjónvarpsþætti Ed
Sullivans í Ameríku. Þá hafa
þeir og komið fram í Radio City
Music Hall í New York, og í
sjónvarpi víða í Evrópu. Þeir eru
ættaðir frá Sam Remo á Jtaliu,
og hafa starfað saman sem
skemmtikraftar í samfleytt 25
ár.
Friðrik Theodórsson, sölustjori
Loftleiðahótelsins, skýrði fret.ta-
mönnum svo frá, að búið væri
að ákveða hvaða skemmtikraftar
kæmu fram í Víkingasal hótels-
ins til áramóta. Á eftir Danay
Brothers, sem skemmta til 12.
þessa mánaðar, koma Los Vall-
demosa, spánskir söngvarar.
Með þeim er og söngkona og
dansari. Næstur kemur Vic
Domino. Hann er „juggler", sem
kallað er, þ.e .einskonar jafn-
vægislistamaður. Þá kemur
sænski látbragðslistamaðurinn
Mats Bahr, sem jafnframt er
eftirherma. Han nhefur skemmt
í „Folkepörkunum“ í Svíþjóð og
er geysi vinsæll skemmtikraftur.
Og síðast en ekki sízt kemur
egypzki töframaðurinn og háð-
fuglinn Gally Gally og skemmtir
hér 15. til 31. desember. Hann
hefur skemmt áður á Loftleiða-
hótelinu og var mjög vinsæll.
VÍSLKORiM
Ég hef kynnzt við kjörin blíð,
kannað lífs-andstæður,
teflt við hroka, og heimskuníð
heyrt á vízkuræður.
Kjartan ólafsson.
GAMALT og GOTT
Ósabakki í Meðallandi (farinn af
fyrir 1550).
Árni minn á Ósabakka er ekki
frómur:
sannur er það seggja rómur,
siðan hann át úr hrútnum blómur
Haust
sá HÆST bezti
„Hvar er Noregur, Jón minn“, sagði kerlingin, „er hann fyrir
norðan?“
„Alltaf ertu sami bjáninn, veiztu ekki, að hann er langt úti á
sjo!“, svaraði Jón.
Hvort ber þú
— Haust —
að heiti —
blakki jór
á brúnir hvass —
er taumlaus
töltir að
og töðu beiðir?
Velja þér vindar
lifrautt lauf —
og leggja
að fótum —
gulli lita
grös og móa
að þú
una megir.
Blakar væng
blásvört nótt —
ann þér
blund á auga.
Glitra hrímtár
á hrjúfum hvarmi
þá frost
kyssir fold.
Víst ber þú
blakki Jór
— Haust —
að heiti.
Boðar feigð
í fegurð —
fallvalt
farargengi.
Vel má þó
á þinni ásýnd
cilifð greina —-
ef að er gáð.
Líf í dauða
liggur falið —
er nýjan sprota
nærir.
Steingerður Guðmundsd.
(
Undirkjólar
—. brjóstahöld og maga-
belti — í miklu úrvali. —
Hudson og Taucher sokkar.
Sokkabuxur barna og full
orðinna. Hullsaumastofan,
Svalbarði 3. Sími 51075.
Sængurfatnaður
— lök, ^rvöggusett, hand-
klæði o.m.fl. — Hagstætt
verð. — Hullsaumastofan,
Svalbarði 3, sími 51075.
ÁRSHÁTÍÐ
ísl. ameriska félagsins, er
að Hótel Borg sunnudags-
kvöld 9. október.
Á árshátíð
ísl. ameríska félagsins mun
Hjörvarður H. Árnason
flytja ræðu og Magnús
Jónsson, óperusöngvari
syngja.
Spakmœli dagsins
Þú barst minn Sigurð fremstan
í fylkingum frægra manna.
Guðrún Gjúkadóttir við hestinn |
Grana.
liei (L
í dag verða gefin saman í
hjónaband af séra Jóni Thoraren
sen ungfrú Hólmfríður Maria
Ólafsdóttir, hárgreiðslustúlka,
Rauðalæk 32 og Guðmundur
Hallvarðsson, stýrimaður, Hrísa
teig 37. Heimili þeirra verður að |
Hrísateig 37.
75 ára verður á sunnudag 9. I
okt. Jensína Valdimarsdóttir,
Höfðaborg 71. Á afmælisdaginn ]
dvelst hún á heimili dóttur sinn-
ar, Bugðulæk 15.
Þann 4. þ.m. opinberuðu trú-
lofun sína í Kaupmannahöfn
ungfrú Þórunn Skeggjadóttir,
flugfreyja og Runólfur Sigurðs-
son, flugvélstjóri.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Kristrún Gunn-
arsdóttir, Miklubraut og Egill
Gunnar Ingólfsson, Víðimel 25,
Reykjavík.
Einnig
mun koma fram á árshátíð
Isl. ameríska fél. hljóm-
sveit Guðjóns Pálssonar, —
og hinn heimsfrægi bassa-
söngvari A1 Bishop.
Ódýrt mótatimbur
til sölu. 1x4 1900 fet. 1x8
750 fet. Upplýsingar að
Austurgerði 9, Kópavogi.
Volkswagen
(rúgbrauð) 1959 til sölu
strax. — Sími 15993.
íbúð til leigu
5 herbergi. Laus nú þegar.
Tilboð auðkennt „Ljósheim
ar 222 — 4491“, leggist inn
á afgr. Mbl.
Ung reglusöm bjón
með bam á fyrsta ári, óska
eftir 2ja til 3ja herb. íbúð
sem fyrst. Upplýsingar í
síma 23798.
Ráðskona óskast
í sveit. Mætti hafa eitt til
tvö börn. Upplýsingar í
síma 37755.
i | Ermalangar ullarpeysur
í miklu úrvali nýkomnar.
Verzl. Kristín, Bergstaða-
stræti 7. Sími 18315.
ATHUGIÐ!
I Þegar miðað er við útbreiðslu
er langtum ódýrara aff auglýsa
I í Morgunblaffinu en öðrum
blöðum.
Hestar
til sölu af sérstökum ástæð
um. Tveir hestar og ein
hryssa, lítið tamið. Upplýs-
ingar í síma 19084 eftir
kl. 1 í dag.
Vélritun
Tek að mér hvers konar vél
ritun. Er vön uppsetningu
verzlunarbréfa. Tilboð legg
ist inn á afgr. Mbl. merkt:
„4482“.
Gítar
til sölu, með Pick up. —
Uppl. í síma 30105, eftir
kl. 1.
Svefnbekkir
með rúmfataskáp, seldir á
verkstæðisverði. Húsgagna
vinnustofan, Baldursg. 8.
Stúlka
— vön skrifstofustörfum,
óskar eftir atvinnu hálfan
eða allan daginn til 1. febr.
n.k. Vinsamlegast hringið
í síma 37833.
Til sölu
Opel Rekord, árg. 1961.
Keyptur notaður frá Þýzka
landi. Verður til sýnis að
Arnarhrauni 22, Hafnar-
firði. Upplýsingar í síma
50623 og 51996.
Byggingasamvinnufélag
Reykjavíkur
vantar nokkra verkamenn.
Uppl. í síma 36452 og 32053
Kópavogsbúar
Höfum fengið frá dönskum
framleiðendum sendingu af
barnafatnaði. — Verzlunin
Lúna, Þinghólsbraut 19.
Sniðkennsla
Vegna forfalla eru pláss
laus í kvöldnámskeið. —
Sigrún Á. Sigurffardóttir,
Drápuhlíð 48. Sími 19178.
Sextán ára ungling
vantar vinnu. Sími 16089.
Honda 50 til sölu
Til sýnis að Steinagerði 14
frá kl. 1—7 laugardag og
sunnudag. Sími 36045.
Til sölu
er Mercedes Benz 17
manna. Allar upplýsingar í
síma 198, Patreksfirði.
Nemendur athugið:
Vegna viðgerða
tekur skólinn ekki
til stavfa fyrr en
mánud. 10. okt.
INNRITUN í síma 21745.
Listdansskóli Herders Anderssonar.