Morgunblaðið - 08.10.1966, Blaðsíða 26
ía\J
mUKUU N tí LAVIU
Laugardagur 8. október 1966
— Stefna
Framhald af bls. 3.
ins vill það ekki skuldbinda sig
til hærri tollkvóta.
Þá sagði viðskiptamálaráð-
herra:
„Þetta þarf þó ekki að jafn-
gilda því, að ekki sé hægt að
semja um tollkvóta fyrir þessar
vörur, eins og verið hefur, og er
þegar verið að vinna að því.
En tilboð Efnahagsbandalags-
ins kann að benda til þess, á
hverju við gætum átt von í
framtíðinni, það er að stefna
Efnahagsbandalagsins sé sú, að
hætta smám saman algjörlega
við tollkvótana“.
Þá gat ráðherrann þess að
Bandaríkin hefðu boðið helmings
lækkun eða hugsanlegt afnám
tolls á frystum fiskblokkum.
Dr. Gylfi kvað Bandaríkin hafa
gefið í skyn, að útflutningsþjóð-
irnar þyrftu að sýna lit heima
fyrir, ef Bandaríkjastjórn ætti
að geta réttlætt þessa tollaniður-
færslu gagnvart sínum fisk-
framleiðendum. Þá kvað hann
Breta líklega bjóða einhverjar
tollalækkanir á þessu ári.
Viðskiptamálaráðherra taldi
ekki mikils ávinnings að vænta
fyrir okkur af Kennedy-yiðræð-
unum. Hann sagði:
„Við stöndum því von bráðar
frammi fyrir því, að tollar hækki
verulega á útflutningsvörum
okkar í Efnahagsbandalagslönd
unum og að tollkvótar, sem við
fram til þessa höfum notið góðs
af í viðskiptum okkar við þau
lönd, minnki eða hverfi alveg úr
sögunni. Til Efnahagsbandalags-
landanna flytjum við nú um það
bil Vfe hluta heildarútflutnings
okkar. Aðstaða fiskframleið-
enda innan Efnahagsbandalags-
ins. mun án efa batna á næstu
árum miðað við framleiðendur
utan Efnahagsbandalagsins. Og
svipuð þróun mun eflaust eiga
sér stað innan Fríverzlunar-
bandalagsins, en þangað flytjum
við nú um 40% alls útflutnings
okkar. Þróun mála í þessum við-
skiptabandalögum báðum er sú,
að aðstaða framleiðenda innan
bandalaganna batnar smám sam-
an á kostnað framleiðenda utan
þeirra“.
Dr. Gylfi Þ. Gíslason kvað
þetta vera mikið vandamál, og
erfitt væri litilli þjóð, sem ætii
um það bil 60% allar útflutnings
verzluhár sinnar við þjóðir
bandalaganna, að standa utan
við þau. Kvað hann þetta mál
verða mikilvægast fyrir íslenzkt
viðskiptalíf á næstu árum.
—, Verzlunarráð
Framhald aí bls. 3.
vegum þjóðarinnar bráð nauð-
syn. Og þó að útlendir aðilar eigi
með okkur fyrirtækin um um-
samið árabil, þá fáum við ekki
aðeins fjárman inn í landið, held
ur og ómetalega tæknikunnáttu
og reynslu auk nauðsynlegrar og
þýðingarmikillar markaðsað-
stöðu. Við þurfum ekki að semja
af okkur í slíkum viðskiptum,
heldur kynna okkur sem bezt
samningsfyrirkomulag og reynslu
hinna Norðurlandaþjóðanna, og
þá helzt Norges, og treysta okk-
ur sjálfum til að gæta hagsmuna
okkar, og tryggja aðstöðu okkar
til að verða aðnjótandi efnahags
legra framfara, og jafnframt meta
rétt aðstöðu og takmarkanir okk-
ar, sem fjárhagslega vanmegnugr
ar og lítillar þjóðar. Þessum mál
um hefur nú verið farsællega í
höfn komið“.
Magnús lauk máli sínu með
þessum orðum :
„Brýnasta viðfangsefnið í efna
hagsmálunum í dag er að tryggja
betra jafnvægi en náðst hefur
að undanförnu. Raunsæi og
festu verður að beita í fram-
kvæmdaáætlunum ríkisins, sveit
arfélaga og annarra opinberra
aðila og ætla ekki framkvæmdir
örari en bæjar- og sveitarfé-
lög geta staðið undir án þess að
stofna til aukinna skuldabyrða.
Samkomulag um laun og verðlag
verður að setja þróun fram-
Myndin hér að ofan, er sú fyrsta, sem vitað er til, að tekin hafi verið með myndavélum í gervi-
hnetti, og send til móttöku í flugvél. Myndin sýnir stormsveip fellibylsins „Inez“, og var hún
tekin úr veðurrannsóknahnetti, er hann var yfir Bahamaeyjum sl. mánudag. Flugvélin, sem
tók á móti myndinni, var þá um 100 km. frá strönd Bandarikj anna. — AP.
Morrænns dag-
sins minnst
í Kópavogi
NORRÆNA félagið í Kópavogi
minntist Norræna dagsins með
myndarlegurn hætti Allir sex
Norðurlandafánarnir voru dregn-
ir á hún fyrir framan félagsheim
ili kaupstaðarins og dagsins var
minnzt með erindum og kvik-
myndasýnmgum í skólum bæjar-
ins. Þá hefur Norræna félagið í
Kópavogi ákveðið að efna til rit
gerðarsamkeppni um norræna
samvinnu meðal skólanemenda.
Formaður Norræna félagsins í
Kópavogi er Hjálmar Ólafsson
bæjarstjóri.
kvæmdaáætlanna hæfileg mörk,
og áframhaldandi aðhald í fjár-
málum og peningamálum er nauð
slynegt. Þetta eru brýnustu verk
efnin í íslenzkum efnahagsmál-
um í dag og þau verður að leysa,
ef áframhaldandi velmegun og
framkvæmdir eiga að geta hald-
ist. Verzlunarstéttin mun styðja
ríkisvaldið í aðgerðum þess, sem
miða að því að sporna gegn auk-
inni dýrtíð og verðbólgu, eftir
því sem henni er unnt. Verzlunin
hefur ávallt þekkt sinn vitjunar-
tíma í þessum efnum, og svo mun
enn verða“.
Max Adenauer
— Þýzkir
Framh. af bls. 1
að skrfa þriðja bindi endur-
minninga sinna.
Max Adenauer var um
tveggja ára skeið borgarstjóri
Kölnar, en nú gegnir hann
starfi bankastjóra þar í borg.
Hann er mikill íslandsvinur,
og er m. a. formaður vináttu-
félags Þjóðverja og íslendinga
í Köln. Þetta er í fjórða sinn,
sem Max Adenauer kemur til
íslands. Fyrst kom hann hing-
að á Alþingishátíðina 1930.
Dreyer Eimbeke frá Ham-
borg er formaður íslandsvina-
félagsins í Hamborg. Þetta er
í áttunda skipti sem hann
kemur til fslands, en hann
hefur umboð fyrir Eimskipa-
félag íslands í Hamborg.
Eimbeke sagði, að sér þætti æ
meira gaman að koma til ís-
lands, ekki sízt vegna þess, að
hér væri alltaf gott veður þeg-
ar hann kæmi til landsins.
Fulltrúar þýzka sendiráðs-
ins tóku' á móti gestunum á
Keflavíkurflugvelli. Hópurinn
mun ferðast til Gullfoss og
Geysis og á Þingvelli. Einnig
verður farin ferð í Borgar-
fjörð. Með fólkinu er blaða-
maður „Die Welt“, og mun
hann skrifa um ferðalagið í
blað sitt.
Dreyer Eimbeke
Forsöguleg öskulög og lurkar
undir stöðvarhúsi við Búrfell
Á VIRKJUNARSTAÐNUM
við Búrfell hefur verið grafið
mjög djúpt fyrir stöðvarhúsi.
Fékkst þar þvi gott tækifæri
til að skoða forsöguleg ösku-
lögin frá Heklu, en það eru
hvítu öskulögin, sem sjá má i
jarðvegi norðanlands. Þarna
við Búrfell eru öskulög þessi
þykk, og sjást bæði vel ösku-
lögin, sem nefnd hafa verið
Hekla 4 og Hekla 5.
Undir Heklu 4 öskunni í
stöðvarhúsgrunninum er
þykkt moldarlag með trjá-
lurkum í. Og eins er jarðveg-
ur undir Heklu 5 lagnu. Gefst
þar gott tækifæri til að fá
aldursákvarðanir með geisla-
virku koli. Mun Haukur Tóm-
asson, jarðfræðingur, hafa
tekið sýnishorn bæði af lurk-
um og mó, í þeim tilgangi að
fá það aldursgreint, og er von
að að af því geti orðið.
Áður hefur Heklu 4 ösku-
lagið verið aldursgreint á
þennan hátt og er það um
4000 ára gamalt. Heklu 5
lagið hefur aítur á móti að-
eins einu sinni verið aldurs-
greint og þvi fengur í að geta
gert það aftur. Var þetta eina
lag talið 6-7 þúsund ára gam-
alt.
Fyrsta bóka-
uppboðið
SIGURÐUR Benediktsson heldur
bókauppboð í Þjóðleikhúskjallar-
anum nk. þriðjudag. Bækurnar
verða til sýnis frá kl. 2—6 á
mánudag, og kl. 10—4 á þriðju-
dag, en þann dag, kl. 5, hefst
uppboðið.
Á söluskrá eru alls 112 númer,
mest erlendar ferðabækur um
ísland, og nokkur ísl. ljóðabækur
og tímarit, t. d. Óðinn, tímarit
Bókmenntafélagsins, Iðunn, allar
útgáfurnar, Eimreiðin og Hæsta-
réttardómar, allt verkið, og
bundið í skinn til 1953.
Um það prentverk, sem mesta
athygli mun vekja á þessu upp-
boði er mjög gott eintak af
Guðbrands Biblíu, frumprentið
frá Hólum 1584. Tvö blöð eru
ljósprentuð, að öðru leyti er ein-
takið lítið skorið, heilt og í góðu
bandi.
VERDMÆTI
VINNINGA:
1.000.000.00
Dodge Dart ’67
Plymouth Valiant ’67
Rambler American ’67
DREGIÐ
H APPDRÆTTI
SJÁLFSTÆBISFLOKKSINS