Morgunblaðið - 29.10.1966, Síða 3
“i'
I GÆR tók félagsmálaráðherra,
Eggert G. .Þorsteinsson, fyrstu
Bkóflustunguna að Vinnu- og
dvalarheimili Sjálfsbjargar,
Eandssambands fatlaðra, á bygg
ingarsvæðinu við Laugarnesveg.
Viðstaddir voru forráðamenn
Sjálfsbjargar, borgarstjórinn í
Reykjavík, Geir Hallgrímsson,
og danskir gestir, sem færðu
Sjálfsbjörg mikla peningagjöf
til byggingarframkvæmdanna,
100.000 kr. danskar, eða rúmlega
600.000 ísl. kr. Hinir dönsku gest
ir við þetta tækifæri voru Fr.
Knudsen, form. landssarabands
fatlaðra í Danmörku og frú
hans, E. Nygaard-Jensen og AA.
Voldstedlund.
Á fundi fyrrgreindra aðila og
fréttamanna í Hótel Loftleiðum
skýrði formaður Sjálfsbjargar,
Theódór A. Jónsson, frá aðdrag-
anda þessara framkvæmda.
Sagði hann, að landssambandið
hefði verið stofnað árið 1-959 og
þá þegar hefði borið á góma
byggingu dvalarheimilis fyrir
fatlaða, sem væn hið mesta
Félagsmálaráðherra tekur fyrstu skóflustunguna á byggingar svæðinu við Laugarnesveg.
gefa 6 00.000 kr. til vinnu-
dvalarheimilis Sjálfsbjargar
Framkvæmdir eru hafnar
nauðsynjamál. Fjár til fram-
kvæmdanna verður aflað með
ýmsu móti, stærsti hluti þess
kæmi úr styrktarsióði lamaðra
og fatlaðra, sem í eru 4 miUi.
kr. Þá hefur fjáv verið aflað
með merkjasölu og bókasölu og
sagði Theódór, að landsfólk
hefði sýnt málefnum fatlaðra
mikinn skilning með merkja-
kaupum, en sala þeirra er að
öllum líkindum í ár 50% meiri
en í fyrra.
Þá lýsti Theódór byggingunni.
Hún er teiknuð og skipulögð
með það í huga, að þarna rísi
af grunni heimili, lækningarmið
stöð og starfsaðstaða fyrir fatl-
að fólk. Sömuleiðis að þarna
verði miðstöð Sjálfsbjargar.
í byggingunni verður allt mið
að við, að vistmenn verði sem
mest sjálfum sér nógir bæði
hvað varðar einkalíf marina,
læknisþjálfun, starf og ferðalög
utanhúss sem innan.
Húsið verður byggt sem þrjár
aðalálmur, þar af tvær upp á
fimm hæðir, en hliðarálmur eru
einna hæða. Kjallari verður und
ir öllu húsinu.
Fyrsta hæð byggingarinnar
er kjarni hússins. Þar kemur
stór lækningar- og þjálfunarmið
stöð, þ.á.m. fullkomin sundlaug
með tilheyrandi búningsklefum
og böðum. Á fyrstu hæð verða
einnig vinnusalir fyrir fatlaða
og ýmiskonar aðstaða fyrir starf
og verkstjórn. Þá verða þar aðal
skirfstofur fatlaðra, stór fundar
salur fyrir um 80 manns, verzl-
un fyrir vistmenn, skóvinnu-
verkstæði, bókasafn, lesstofa
o.fl.
Á annarri hæð verður aðal-
eldhús stofunarinnar og borð-
salur fyrir rúmlega 100 manns,
auk fundarsals og hljómlistar-
stofa. Þar er einnig vistmanna-
deild með smáíbúðum og ýmis-
konar aðstöðu fyrir vistmenn.
Á 3., 4., og 5. hæð eru vistmanna
deildir með smáíbúðum og einka
herbergjum o.fl. Alls verða í
húsinu 12 íbúðir, 24 stærri her-
bergi og 45 einsmanns-herbergi,
allt ætlað mikið fötluðu fólki.
í kjallaranum verða miklar
bílageymslur, og geymslurými
fyrir vistmannadeildirnar. AUs
verða 4 rúmgóðar lyftur 1 hús-
inu.
Grunnflötur fyrirhugaðrar
byggingar verður alls 2377 ferm.,
en samanlögð gólfflatarstærð
verður alls um 7170 ferm. Stærð
hússins verður um 26000 rúm-
metrar.
Teikningar af húsinu gerði
Teiknistofan sf. Ármúla 6, en
teikningar af berandi húshlut-
um gerir Verkfræðistofa Braga
Þorsteinssonar og Eyvindar
V aldimarssonar.
Fyrsti áfangi byggingarinnar
var boðinn út í ágúst sl. Alls
bárust 6 tilboð í verkið, en þau
voru opnuð 14. sept. Lægstbjóð-
andi var byggingarfélagið OK
hf. í Reykjavík og hefur nú ver-
ið gerður verksamningur við
það fyrirtæki að steypa upp und
irstöður og kjallara undir alit
húsið svo og að steypa upp og
fuilegra að utan aðalálmu húss-
ins. Skal þessu verki vera lokið
haustið 1968.
Þá tók til máls Gísli Halldórs-
son arkitekt og lýsti nánar
teikningu hússins. Formaður
landssambands fatlaðra i Dan-
mörku Fr. Knudsen tók því ræst
til máls og flutti Sjálfsbjörg
kveðjur danska sambandsins og
flutti einnig ráðherra, borgar-
stjpra og Sjálfsbjörg kveðjur
Viggo Kampman fyrrv. forsætis-
ráðherra Danmerkur, en Kamp-
man er formaður Vanförefond-
en, öryrkjasjóðs, sem hinar
600.000 kr. voru gefnar úr. Þá
færði Fr. Knudsen félagsmála-
ráðherra og borgarstjóra minn-
ispeninga úr silfri, sem slegnir
voru í tilefni trúlofunar Anne
Marie Grikklandsdrottningar og
Konstantíns konungs. Landssam-
band fatlaðra í Danmörku lætur
slá slíka minnispeninga við
áþekk tækifæri og hagnaðist
um eina milljón danskra króna
á sölu þeirra við trúlofunina.
Minnispeningana, sem gefnir
voru ráðherranum og borgar-
stjóra, kvað Fr. Knudsen eiga
að minna þá á skyldur þeirra
Fr. Knudsen
færði gjöfina
frá Hanmörku.
við fatlaða menn og öryrkja á
íslandi.
Teódór A. Jónsson, formaður
Sjálfsbjargar þakkaði í nokkr-
um orðum hina stórhöfðinglegu
gjöf Dana.
Er félagsmálaráðherra tók
fyrstu skóflustunguna á bygging
arsvæðinu við Laugarnesveg
hélt hann stutt ávarp og minnti
á skyldur heilbrigðra við þá
sem af einhverjum ástæðum
ganga ekki heilir til skógar.
Byggingarframkvæmdir við
Vinnu- og dvalarheimili Sjálfs-
bjargar hefjast nú þegar. Fram-
kvæmdastjóri Sjálfsbjargar er
Trausti Sigurlaugsson.
Gömul konu
íyrir bíl
UM KL. 21 í gærkvöldi varð
það slys, að 76 ára kona varð
fyrir lítilli fólksbifreið á mótum
Hringbrautar og Sóleyjargötu.
Gekk hún í veg fyrir bifreiðina,
en bifreiðastjóranum tókst ekki
að stöðva fyrr en hann hafði
ekið á konuna, sem féll í göt-
una og slasaðist svo að flytja
varð hana á Slysavarðstofuna.
Hún var hress er lögreglan
hafði þar tal af henni og kvaðst
hún hafa haldið bifreiðina í
meiri fjarlægð, en raun varð á,
en jafnframt, að bifreiðin hefði
ekki verið á mikilli ferð þar
sem hún hefði numið staðar í
þann mund er hún hafði ekið
á sig. Meiðsl konunnar eru ó-
kunn.
PRÓFESSOR dr. med. Morgens
Fog hefur verið kjörinn rektor
Kaupmannahafnarháskóla til
næstu tveggja ára.
STAKSHlMáR
„Hafnarbætur og
annar hégómi“!
Einn af þingmönnum Alþýðu-
bandalagsins, Alfreð GísXason,
flutti læðu í efri deild Alþingis
sl. fimmtudag og sakaði ráðhera
ríkisstjórnarinnar um að hafa
ltiið vit á heilbrigðismálum, en
hins vegar teldu þeir sér nauð- ..
syulegt að hafa meiri þekkingu
á „Hafnarbótum og öðrum hé-
góma“. TJmmæli þessi vöktu að
sjálfsögðu mikla furðu þing-
manna, og er ekki úr vegi í
tilefni af þeim, að beina fyrir-
spurn til Alþýðubandalagsins og
málgagna þess hvort þessi yfir-
lýsing þingmannsins sé í sam-
ræmi við stefnu Alþýðubanda-
lagsins gagnvart hafnarbótum.
Telur Alþýðubandalagið að hafa
arbætur séu hégómi?
Gleði
kommúnistablaðsins
Ástæða er til að ætla, að nokk
ur átök hafi farið fram á rit-
stjórnarskrifstofu Þjóðviljans
um afstöðu blaðsins til „menn-
ingarbyltingarinnar” i Kína og
að helzti stjórnmálaritstjóri
blaðsins, sem dvalizt hefur í
DIOÐVimMW
MtTT oo MJOG ÓVMHT VtSMOAAHtEK KlNVEKJA V«l* HDMSATHYðU
Sendu kjarnasprengju með eldflaug
EMftauW* I BMdt œ f|ér*« Kherari* - F»«a
•• Ki«v«iw lw«l bM (*o bMm hwka énm fré firntii MmoprMahgWMl
Kína, hafi ekki fengið að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri
í þeim málum. Hins vegar er .
ljóst, að Pekin|,sinnar á rit-
stjórnarskrifstofu Kommúnista-
blaðsins hafa orðið ofan á i gær,
þvi að gleði og ánægja Þjóð-
viljans yfir kjarnorkusprengingu
Kínverja leynir sér ekki á for-
síðu blaðsins, og í fréttinni, sem -
birt er um þetta mál. Fréttia
er þannig yfir alla forr>3una
með stóreflis letri, og í lok frétt
arinnar er birt kínversk tilkynn
ing, þar sem veitzt er bæði að
Bandaríkjamönnum og kommún
istum í Sovétríkjúnum. Fer
ekki milli mála að Þjóðviljinn
birtir þessa yfirlýsingu Kín-
verja með hinni mestu velþókn-
un.
Landsfundur
I gær hófst hinn svonefndi
Landsfundur Alþýðubandalags-
ins og mun helzta verkefni hans
að koma einhverri flokksmynd
á þá ómynd, sem nefnd hefur %
verið Alþýðubandalag sl. 10 ár.
Vafalítið verða umræður fjör-
ugar á fundinum, og þá ekki
síður kosningar í ýmsar trún-
aðarstöður. Sjaldan mun lands-
fundur stjórnmálasamtaka hafa
verið haldinn hér á landi eftir
svo langvinn og hörð átök og
mikil umbrot, sem þessir fundir
Alþý ðubandalagsins, og jafn-
vel þótt skaplega takizt að hafa
hemil á þeim mikla óróa, sem
í þessum stjórnmálasamtökum
er á þessum fundi, er hitt jafn
vist, að eftir sem áður mun ríkja
fullkominn fjandskapur milK for
ustumanna þessarar hreyfingar,
og hún raunar klofinn, ekki að-
eins í tvennt, heldur mörg flokks
brot. Það eru því enn allar lík-
ur á því, að þessi samtök muni
ekki verða langlíf í sinni nú-
verandi my», og að því komi
fyrr en síðar, að þau sundrist
og hinir mismunandi hópar
flokksbrota eftir því hvort þeir
skipi sér í raðir mismunandi
flokksbrota eftir því hvort
eru hlynntir Peking eða Moskvu
hlutleysingjar, þjóðvarnaifrnenn
eða annarar skoðunar.
r