Morgunblaðið - 29.10.1966, Síða 17

Morgunblaðið - 29.10.1966, Síða 17
Laugardagur 29. okt. 1966 17 MORCUNBLAÐIÐ — Kína Framh. af bls. 15 Ungverjaland og Pólland og þar á móti dregið úr aðstoð við Kína. Allt þetta kom sér mjög illa fyrir Kínverja, en Mao varð nú staðráðnari í því en áður, að Kínverjar skyldu byggja upp sinn kommúnisma sem mest einir og óháðir Rússum. Jafn- framt tók hann að bíta frá sér — og lét Krúsjeff finna, að tæki hann ekki tillit til skoð- ana Kínverja skyldu þeir svo sannarlega gera ágreining ríkj- anna opinberan og neyða komm únista um allan heim til að velja á milli stefnu Rússa og Kínverja. Rússar hefðu horfið frá réttri Marx-Leniniskri stefnu og bæru ábyrgð á því, ef kommúnistahreyfingin klofn aði. Mao vissi einnig, að stefna hans átti nokkru fylgi að fagna meðal gömlu Stalínistanna í Sovétríkjunum og treysti því, að þeir mundu þjarma að Krúsjeff. Fj'rstu vísbendingar. Gagnvart umheiminum urðu ein fyrstu merki um ágreining Rússa og Kínverja afstaða þeirra til atburðanna í Irak og Libanon sumarið 1956 — er Kínverjar kröfðust þess, að Bandaríkjamönnum yrði engin linkind sýnd, ef þeir hyrfu ekki þegar á brott með herlið sitt frá Libanon og Jórdaníu. Krúsjeff vildi aftur á móti ræða málin við Eisenhower forseta. Þetta ár miðaði Krúsjeff að auknum samskiptum við Vest- urveldin. Hann ræddi við. Mac millan um nauðsyn. ráðstefnu æðstu manna, síðan ræddi hann við Nixon, þáverandi varafor- seta Bandaríkjanna og undirbjó för sína til Bandaríkjanna. Mán uði áður en hann fór þangað, höfðu landamæradeilur Kín- verja og Indverja leitt til auk- inna átaka — og sýndi hin til- tölulega hógværa afstaða hans í því máli glöggt, að kommún- istum í Kína og Rússlandi bar eitthvað meira en lítið á milli. Þegar Krúsjeff kom svo til Peking í október 1959, í tilefni tíu ara afmælis kínversku bylt- ingarinnar, fullur hrifningar af einu og öðru í bandarísku þjóð félagi — og af Eisenhower for- seta, biðu hans kaldar móttök- ur, sem gáfu vísbendingu um hversu djúpur ágreiningurinn var orðinn. „Lenin lengi lifi“. Þegar Krúsjeff kom heim frá Peking sendi sovézki kommún- istaflokkurinn bréf til allra kommúnistaflokka heims, þar sem skýrð var og réttlætt af- staða Krúsjeffs til Bandaríkj- anna. Mánuði síðar skrifaði upplýsingamálaráðherra Sovét- ríkjanna grein, sem var greini- leg árás á afstöðu Kínverja, jafnframt þvi, sem stefna Sovét stjórnarinnar var útskýrð á grundvelli þeirra kenninga Lenins, að kommúnistar ættu að byrja að byggja upp áhrif sín og vinna sér stuðning með því að koma sér upp sambandi við borgaralega flokka, ala á sundrungu innan þeirra og not- færa sér allar hugsanlegar að stæður til framdráttar. Upp frá þessu beittu báðir aðilar fyrir sig skrifum Lenins. Þar var ýmislegt að finna, sem leggja mátti í tvennskonar skiln ing og gat gagnað báðum. í febrúar 1960 var haldinn lokaður leiðtogafundur aðildar ríkja Varsjárbandalagsins, þar sem Krúsjeff réðst harðlega á stefnu Kínverja. í marz bauð hann Kinverjum að senda full- trúa flokks og stjórnar til Moskvu til viðræðna um deilur ríkjanna, en því boði var hafn- að, — og í tilefni 90 ára af- mælis Lenins í apríl birtust í kínverskum blöðum langsu- greinar undir samheitinu „Lengi lifi Leninisminn þar sem gert var upp við Rússa að verulegu leyti og hinum komm úniska heimi bent á með ýms- um rökum, að Krúsjeff hefði svikið kommúnismann og væri ekki fær um að stjórna komm- únistahreyfingunni. Nokkrum dögum síðar var Krúsjeff svo heppinn, að U-2 njósnaflugvélin bandaríska var skotin niður yfir Sovétríkjun- um. Gafst honum þá, er mest reið á, tækifæri til að sýna kommúnistum um heim allan, að hann gæti verið eins vond- ur við Vesturveldin og hver annar. Hann fór rakleitt til Parísar og hleypti upp fundi æðstu manna með eftirminnileg um hætti, — fundi, sem hann sjálfur manna mest hafði ósk að að yrði haldinn. Meðal kommúnista varð þetta Krús- jeff til vegsauka — en það breytti stefnu hans ekki til langframa og á þriðja þingi rúmenska kommúnistaflokks- ins, sem haldinn var í Búkarest í júní 1960 sögðu Rússar og Kínverjar hvor öðrum til synd anna svo um munaðL " Fundurinn í Búkarest. Sigurður Sigurðsson listmálari fimmtugur Kínverska sendinefndin undir forsæti Peng Chen, þáverandi borgarstjóra í Peking (sem einna fyrstur féll í valdabar- áttunni í sumar) átti frum- kvæðið með ræðu, þar sem hann gagnrýndi stefnu Krús- jeffs. Henni svaraði Krúsjeff með því að dreifa meðal full- trúa á þinginu greinargerð, þar sem ágreiningsatriðin væru rædd ýtarlega, lið fyrir lið, rök fast og af hógværð. Þar var því meðal annars lýst yfir, hver væri hinn raunverulegi til gangur með stefnu friðsamlegr ar sambúðar — sem sé, að vinna stuðning meðal allra frið elskandi manna í heiminum, nota þennan stuðning til að snúa þjóðum gegn ríkisstjórn- um sínum, efla verkalýðsbarátt- una og vinna að því að grafa undan varnarbandalögum Vest urveldanna og gera þeim æ erf iðara fyrir um að viðhalda er- lendum herstöðvum. Viðbrögðin létu ekki á sér standa — á næsta fundi lýsti hver fulltrúinn af öðrum yfir stuðningi við Rússa og hvatti Kínverja til sátta. Peng Chen svaraði með því að afhenda fulltrúum þýðingu á bréfi frá sovézka kommúnistaflokknum til hins kínverska, þar sem alls kyns sakir voru á hann bornar og með öllu ósvífnara orðalagi, en menn höfðu áður átt að venjast. Kínverjar voru húð- skammaðir fyrir stefnu sína í mörgum málum, ekki sízt utan ríkismálum m.a. gagnvart Ind- landi, Alsír og öðrum vanþró- uðum ríkjum. Þessu reiddist Krúsjeff óskap lega — og hélt nú eina af þrumuræðum sínum, þar sem hann hellti sér yfir Kínverja með ofsa. Hann líkti Mao við Stalín, sagði, að hann hugsaði aldrei um annað en eigin hags- muni og gerði sér enga grein fyrir því sem raunverulega væri að gerast í heiminum. Kínverjar hefðu engan skilning á nútíma herbúnaði og hefðu grafið undan hugsjónum sósíal ismans í Indlandi, með því að ásælast indverskt land í eigin- hagsmunaskyni. Lét hann og að því liggja, að Kínverjar hefðu mælt gegn varnaraðgerðum Rússa á landamærum Manchu- ríu og komið í veg fyrir könn- unarflug sovézkra flugvéla. Þessu svaraði Peng Chen með stuttri en rökfastri ræðu, sem lauk með því, að Krúsjeff hefði sýnt, að dómgreind hans væri ekki treystandi og raunar væri vandséð hver stefna hans værL Moskvuráðstefnan. Þar með lá deilan ljós fyrir öllum hinum kommúniska heimi — og á ráðstefnu komm- únistaflokkanna i Moskvu í nóvember sama ár kom til end- anlegs uppgjörs. Þangað til gengu klögumálin á víxl, kínversk tímarit voru bönnuð í Rússlandi og rússnesk ir tæknifræðingar kallaðir heim frá Kína eftir mikla deilu um framkomu þeirra og annað. Moskvuráðstefnuna sóttu full Sú var tíðin hér á landi, að fimmtugir menn þóttu nokkuð fullorðnir, nú eru þetta ungling- ar. Já, Sigurður minn Sigurðs- son, tímarnir breytast og menn- irnir með. Þess vegna er ég í nokkrum vafa um, hvort ”senda eigi þér línu í tilefni dagsins, en ég get nú samt ekki á mér setið, þar sem annar eins skemmtikraftur og heiðursmað- ur á í hlut og þú. Þannig er það nefnilega með sérstæða persónu- leika, að manni þykir svo vænt um að hafa fengið að kynnast þeim, að það er ekki hægt að þegja yfir því. Þú verður því að umbera það við mig, að ég láti þessar línur flakka. Og fimmt- ugur verður þú aðeins einu sinni. Ég er í dálitlum vandræðum, hvernig gefa á sem bezta hug- mynd um þig í fáum orðum. Það er af miklu að taka, en þar sem þú ert ekki eldri en raun ber vitni, vil ég ekki vera of hátíðlegur, og varast að fá í þetta greinarkorn eftirmælis tón eða afrekarollu. Það getur beð- ið betri tíma, þegar árunum hef- ur fjölgað. Þú hefur nú stjórnað sam- tökum myndlistamanna með einstakri lipurð og réttsýni um árabil Þannig, að sá sundur- leiti hópur hefur einróma kosið þig í oddvitastöðuna ár eftir ár, og við, sem höfum starfað þar við hlið þína, vitum manna bezt, hve fádæma heiðursmaður þú ert (ég kem mér ekki til að nota enska orðið Gentleman, en það er það, sem ég meina). Og sannast að segja sé ég ekki, að margir geta fetað þar í fótspor þín. Um list þína mætti margt segja, en ég veit, að þér er ekki hólið að geði. Samt vil ég halda því fram, að það séu t.d. ekki margir listamenn okkar, sem geta málað sláandi myndrænar andlitsmyndir og þú. Á því sviði hefur þú bókstaflega bjargað miklu. Því að hvar værum við staddir, ef við ættum ekki góð- an andlitsmyndamálara. Um kennaraferil þinn veit ég lítið sem ekkert, nema hvað þú ert búinn að vera við Handíða- skólann lengur en nokkur ann- ar, við óunandi kjör fyrir yfir- kennara, ef ég veit rétt. Ég get ekki hugsað mér annað en, að , unni. nemendur þínir hljóti að virða I við og elska. Ef svo er ekki, þá er það þeirra sök en ekki þín. Hér hef ég farið snöggt yfir sögu og læt það gott heita að sinni. Það er annars leiðinlegt að við skulum ekki fá að sjá yfirlitssýningu á verkum þínum á þessum tímamótum. En þú um það, og auðvitað verður enginn skikkaður til eins eða neins í þeim efnum, en ánægjulegt hefði það verið. Svo langar mig til að rifja upp enn einn þátt í fari þínu, sem er sérlega merkilegur og skemmtilegur, en það er sú ein- dæma frásagnargáfa, sem þú hefur yfir að ráða og oft hefur komið manni í gott skap bæði á þurrum dögum og votum. Og ævintýrin spanna frá Sauðár- krók til Samarkand, frá Arnóri afa til Einsa Balda, svo að aðeins brot sé nefnt. Já, Sigurður minn, þannig er lífið, þegar minnst varir, er maður minntur á ým- islegt í fari sjálfs síns, sem mað- ur umgengst dagsdaglega án þess að taka eftir því. Nú þegar ég er að setja þess- ar línur saman, kemur kunn- ingi okkar inn úr dyrunum og segir aldeilis hissa: „Ertu vit- laus, maður, að vera að skrifa um hann Sigurð fimmtugan, þetta er enginn aldur. „Ég jánka því, hugsa mig um andartak og slæ síðan botninn í skrifið, með miklum hamingjuóskum í tilefni dagsins, og hver veit nema við sjáumst í Fögrubrekku á næst- Valtýr Pétursson. trúar frá 81 af 87 kommúnista flokkum heimsins, — allir nema sex sendu formenn sína. Jafn- skjótt og þeir komu til Moskvu, tóku fulltrúar Rússa þá tali og skýrðu afstöðu sína. Árang- urinn kom fljótt í ljós. Hver ræðumaður af öðrum gagn- rýndi stefnu Kínverja og fyrir svörum varð Peng Hsaio-ping, aðalritari kínverska kommún- istaflokksins. Eini fulltrúinn, sem tók und- ir afstöðu Kína, var Enver Hoxa frá Albaníu, sem réðist með ofsa á Krúsjeff persónu- lega — og upp frá því varð Albanía blóraböggull fyrir all- ar misgerðir Kínverja eins og Júgóslavar fyrir syndir Rússa. Þrátt fyrir átök þessi var gefin út sameiginleg yfirlýsing, sem einnig Kínverjar undirrit- uðu og reynt var í lengstu lög að halda deilunni leyndri fyrir umheiminum. Nefnd rússneskra efnahagssérfræðinga fór til Kína og síðan tæknifræðingar — en á meðan reyndu báðir aðilar að beita áhrifum sínum innan kommúnistahreyfingar- innar og afla sér fylgis. Það gekk ekki eins vel og vænzt var. Kommúnistaflokkar heimsins tóku að sýna vaxandi tilhneigingu til að fara eigin leiðir, A-Evrópuríkin notuðu sér ástandið til aukins sjálf- stæðis og hver flokkurinn af öðrum í Evrópu, t.d. Ítalíu og Noi'ðurlöndum, mæltist til þess, að gömlum kenningum yrði varpað fyrir borð og þess í stað stefnt að því að skapa alþýðu manna betra líf, réttlátt þjóðfé- lag, hverju nafni, sem það svo nefndist. Deilan opinberuð. Það var ekki fyrr en komið var fram undir árslok 1962 að stjórnirnar í Moskvu og Peking viðurkenndu opinberlega að þær væru ekki á eitt sáttar, — eftir að báðum leiðtogunum höfðu orðið á mistök, Krúsjeff á Kúbu og Mao með innrásinni í Indland — og síðan hafa þær að verulegu leyti háð sitt stríð fyrir opnum tjöldum. Jafnframt þessari samkeppni Kínverja og Rússa um forystu í heimi kommúnismans og framkvæmd hans, hefur deilan afhjúpað annars konar ágrein- ingsatriði, þjóðernisabráttu, landamæraerjur — þ. á m. kröf- ur Kínverja um endurskoðun landamærasamninga ríkjanna frá keisaratímanum — og jafnvel kynþáttaágreining. Þess verður oft vart, að Kínverjar líti ekki allt of stórum augum hina kubbslegu og klunnalegu Rússa og Rússar hafa horn í síðu hinna gulu og skáeygu Kín- verja. Enda hafa Kínverjar spil að á kynþáttatilfinningar, í við leitni sinni til að vinna stuðn- ing Asíu og Afríku-þjóðanna. Þar fyrir utan eigast þarna við tvö stórveldi í nábýli, hvorugt vill láta sinn hlut fyrir hinu en ljóst, að Rússar óttast, að Kínverjar, sem eru í brýnni þörf fyrir aukið landrými, muni helzt leita yfir á rúss- nesk landsvæði. Á hinn bóginn er þess að gæta, að þótt Kínverjar hafi náð að sprengja kjarnorku- sprengjur og smíða eldflaug, standa þeir Rússum efnahags- lega og hernaðarlega langt að baki og finna sárt til þess. Þeir finna líka, að þeir standa — eins og nú er komið — því sem næst einir uppi með sína gömlu og úreltu heimsbyltingarhug- mynd. Einir á báti? Þegar litið er yfir heimskort- ið sjáum við, að Kínverjar eiga ekki marga bandamenn, sem stendur, hvað sem síðar verð- ur. Fyrirætlun þeirra í Indó- nesíu fór út um þúfur og hnekkti áliti þeirra meðal margra þjóða Suð-austur Asíu. Stefna þeirra í nýfrjálsum ríkj um Afríku hefur hvað eftir ann að misst marks. í Suður-Ame- ríku hefur þeim heldur ekki orðið verulega ágengt, þrátt fyrir ýtarlegar tilraunir til und irróðurs. Meira að segja Castro á Kúbu hefur snúið við þeim baki, — opinberlega vegna þess að Kínverjar stóðu ekki við samninga um sykurkaup og hrísgrjónasölu, en ekki síður vegna þess, að Castro gramdist ítrekaðar tilraunir Kínverja til að dreifa áróðursritum meðal kúbanskra hermanna. Og ekki hefur atferli Rauðu varðliðanna orðið til að auka álit Kínverja gagnvart umheim inum. Svo virðist sem Kínverjar undir stjórn Mao Tse-tungs og kommúnista, séu að nokkru leyti komnir í svipaða aðstöðu og þeir voru á fyrri hluta 19. aldar við keisarastjórn, þótt vafalaust hafi orðið þar miklar framfar- ir. Menningarbyltingin sýnir að megn og almenn óánægja er ríkjandi yfir þeirri einangrun, sem þjóðinni hefur verið hald ið í, bæði andlega og líkamlega, ef svo mætti segja. Eins og á 19. öldinni risu upp menn, sem kröfðust breyttra þjóðfélags- hátta, heiðarlegra stjórnarfars og aukinnar menntunar og menningar, rísa menn upp nú gegn þeim mikla múr, sem Mao hefur reist utan um þjóðina með stefnu sinni — í von um að geta ótruflaður af utanað- komandi áhrifum steypt 700 milljónum manna í mót komm- únismans. Enginn efast um, að átökin við rússnesku kommúnistana hafa haft víðtæk áhrif í Kína — og þær raddir orðið æ há- værari, sem heimta að fylgt sá stefnu, sem fært geti þjóðinnl aukna efnahagslega velmegun og aukið andlegt frelsi. Spurningin er, hver verða úp- slit þessara átaka — verður þaggað niður í þessum röddum enn einu sinni? Halda kínversla ir kommúnistar til streitu heimsbyltingarhugsjóninni? — Hversu langt ganga þeir til að uppfylla þann draum sinn, að Kína verði stórveldi sem beri uggvekjandi ægishjálm yfir aðrar þjóðir? Og hvað gerist nú ,er Kínverjar ráða yfir kjara orkuvopnum? í næstu og síðustu grein 1 þessum greinaflokki verður fjallað lítillega um menningar- byltinguna og þær hugmyndir, sem nokkrir kunnir stjórnmála- sérfræðingar gera sér um til- efni hennar og tilgang.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.