Morgunblaðið - 04.12.1966, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.12.1966, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 4. des. 1966 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Joiíannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. í lausasölu kr. á mánuði innanlands. Áskriftargj ald kr. 105.00 7.00 eintakið. UMBÆTUR Á SVIÐI HEILBRIGÐIS- DÓMS OG KIRKJUMÁLA ¥>reyttir þjóðfélagshættir á ** íslandi, tilflutningur fólks úr sveitum í þéttbýlishéruð, nýir atvinnuhættir og áður éþekkt vandamál, hafa skap- að þörf fyrir breytingu á akipulagi ýmissa stjórnunar- kerfa og þjónustustofnana hins opinbera. I þessu samhandi er ástæða tíl að vekja athygli á breyt- ingum og endurbótum, sem ýmist eru þegar komnar til framkvæmda eða eru í und- irbúningi á sviði heilbrigðis-, kirkju- og dómsmála. Árið 1965 voru sett ný læknaskipunarlög og var höf- uðmarkmið þeirra, annars vegar að færa í nútimalegra horf skipulag læknisþjón- ustu í dreifbýlinu og hins vegar að skapa kjaragrunnd- völl fyrir því, að læknar fervgjust til starfa úti á landi. Enn er að sjálfsögðu ekki komin mikil reynsla á þessa nýju skipan, en ástæða er til að ætla, að hún gefi góða raun og bæti ástandið í heil- brigðisþj ónustu úti á landi. Fyrir nokkru var lagt fram á Alþingi stjórnarfrum- varp um skipan prestakalla og prófastsdæma og er kjarni þess sá, að prestaköllum og prófastsdæmum er fækkað nokkuð í samræmi við breytt viðhorf og nýjar aðstæður og ennfremur eru margar mikilvægar nýjungar í frum- varpinu, m. a. heimild tiil þess að ráða prest til starfa meðal sjómanna. Það er einn- ig stutt síðan lögð var fyrir Alþingi skýrsla dómsmála- ráðherra um athugun á með- ferð dómsmála og dómaskip- an hér á landi, en þessi yfir- gripsmikla skýrsla er árang- ur af starfi nefndar, sem dómsmálaráðherra, Jóhann Hafstein, skipaði. í skýrslu þessari hefur verið safnað ít- arlegum gögnum um með- ferð dómsmála, orsakir fyrir drætti á meðferð þeirra og ennfremur koma fram í skýrslunni ýmsar hugmyndir þeirra, sem bezt eiga til að þekkja um úrbætur á þessu sviði. Skýrsla þessi mun skapa grundvöll að tillögum um ný skipan á sviði dómsmála og hraðari gang dómsmála hér á landi. í þessum þremur mikil- vægu málaflokkum hefur því mikið starf verið unnið til þess að aðlaga starfsemi þeirra opinberu stofnana, sem hér um ræðir, nýjum og breyttum aðstæðum. Þetta umbótastarf hefur verið unn- ið undir forystu Jóhanns Haf- steins, en öll þessi mál heyra undir ráðuneyti hans. STARFSEMI FJÁRVEITINGA- NEFNDAR r\járlagafrv. kom til 2. um- 1 ræðu í Sameinuðu Al- þingi sl. föstudag. Formaður fjárveitinganefndar Alþingis, Jón Árnason alþm., flutti framsöguræðu fyrir breyt- ingartillögum meiri hluta fjárveitinganefndar og kom í ljós, að tekju- og gjaldaliðir frv. hafa hækkað nokkuð í meðförum nefndarinnar. Hún hefur þó ekki lokið afgreiðslu sinni á frv., þar sem nokkur mál bíða 3. umræðu, svo sem skipting á fé til nýrra skóla- bygginga og skólastjóraíbúða. í framsöguræðu sinni sagði Jón Árnason m.a.: „Það er álit meiri hluta nefndarinn- ar, að fjárveitingar til ríkis- stofnana eða rekstur þeirra séu að þessu sinni í meira samræmi við raunverulegar þarfir stofnananna en oftast hefur tíðkazt. Þetta álit meiri Muta nefndarinnar er byggt á þeim upplýsingum, sem nefndin hefur aflað sér og fram hefur komið í viðræð- um hennar við forsvarsmenn hinna ýmsu ríkisstofnana." Fj árveitingavaldið er einn mikilvægasti réttur Alþingis og starfsemi fjárveitinga- nefndar því þýðingarmikil. Frá nefndinni og Alþingi verður að koma hið nauð- synlega aðhald í fjármála- stjórn Aiþingis. Þess vegna er ástæða til að irienn fylgist vel með athugasemdum fjár- veitinganefndar við fjárlaga- frv. hverju sinni. TVEIR MIKILVÆGIR ATBURÐIR F’ins og Mbl. hefur skýrt ^ frá síðus\i daga verður nýtt síldarleitarskip afhent íslendingum í júlíbyrjun næsta ár og undirbúningi að smíði hafrannsóknarskips er nær lokið. Er hér um mikil- væga atburði að ræða ekki einungis fyrir sjávarútveginn heldur alla þjóðina. Síldarleit hefur borið ótrú- lega góðan árangur undan- Enn er ósannað, hvað velt'ar sjúkdómnum í írska laxinum Sjúkdómurinn hefur nú borizt til ýmissa staða á Englandi TYÖ ÁR eru liðin frá því, að fyrst tók að gæta veiki þeirar í laxi í ám á SV-írlandi, sem síðar fékk nafnið „rauði dauðinn“. Þó hefur ekki enn tekizt að færa sönnur á, hvað raunverulega veldur sjúk dómnum, I þessum mán- uði varð veikinnar vart í NV-Englandi og nú sl. föstudag, var tilkynnt, að veikinnar hefði orðið vart í enn einni á í Lancashire, Conder-á. Yfirvöld telja, að hér sé um sjúkdóm að ræða, sem nefndur er Columnaris. Hans varð fyrst vart, srvo vitað sé með vissu, í fiskræktar- stöðvum í Bandarikjunum, skömmu eftir 1920. Baktería, sem nefnd er Chondrococcus columnaris reyndist þá orsök in. Sama baktería hefur fund izt f ýmsum vatnafiskum f ensku miðlöndunum nú 1 sumar, en ekki f laxi á ír- landi eða NV-Englandi. Þá þykir það nokkrum tíð- indum sæta, að sjúkdómur- inn, sem herjaði bandarísku eldisstöðvarnar, náði há- marki, þegar vatn var hlýtt, en sjúkdómurinn austan- vert við Atlantshaf veldur mestum skaða f vatni, sem er 6-7" á Celcius, eða kaldara. Landbúnaðarráðuneytið brezka hefur nú lýst því yfir, að héruðin Cumberland og Lancashire séu sýkt, en styðst þar við reglugerð, sem fjall- ar um sjúkdóminn columnar- is. Hins vegar hefur ekki tek- izt að sanna, að um þann sjúkdóm sé að ræða. Yfirvöld í Cumberland og Lancashire hafa gripið til þess að stöðva ferðir göngu- lax, með því að loka laxa- stigum, og setja rafmagns- girðingar í ár. Er þetta gert til þess að hindra ferðir sýkts lax til hrygningarsvæðanna. Gerðar hafa verið áætlanir um að hrinda í framkvæmd enn víðtækari verndun hrygn ingarsvæðanna. Sá lax einn, sem hafður hefur verið í sótt kví, og reynzt heilbrigður — stundum jafnvel verið gripið til fúkkalyfja — fær að halda á efri svæði ánna. Sjóbirtingur hefur einnig orðið fyrir sýkingu. Einkenn- in eru þau, að í fyrstu mynd- ast rauður blettur, venjulega á haus fisksins, en síðan fara að koma hvítar skellur á búknum. Mjög sýktir fiskar eru þaktir sveppagróðri, sem mest líkist baðmullarlagi, en undir því hafa myndazt djúp sár. Talið er, að í sumum írsku ánum séu 50-80% fiski- stofnanna sýktir. Vísindamenn frá Dýralækn ingarannsóknarstöð írska landbúnaðarráðuneytisins, nærri Dublin, hafa sýnt fram á, að fiskur kann að vera sýktur, þótt ekki sé um sveppagróður þann að ræða, sem að framan er lýst. Þeir hafa þannig fengið á því stað festingu, að sveppagróður- inn er sérstæður sjúkdómur. Vísindamönnum þessum hef- ur einnig tekizt að sýkja heil brigða fiska með því að setja þá í vatn, sem sýktir fiskar hafa dvalizt L Ljóst er, að sjúkdómurinn getur borizt með vatni. Fúkkalyf, sem reynd hafa verið, hafa ekki ráðið niður- lögum sjúkdómsins. Nú fer fram athugun á því, hvort veira, ekki baktería, getur verið orsökin. Brezkir sérfræðingar virð- ast enn sannfærðir um, að bakteríu sé um að kenna, ekki veiru. Fjórar tegundir þeirra eru nú sérstaklega grunaðar um að vera skað- valdarnir, og ef til vill kunna þær allar að setjast að í ein- um og sama fiskinum. Hins vegar hefur ekki tekizt að sýkja fiska með þessum bakt eríum, sem sérstaklega hafa verið ræktaðar í tilrauna- skyni. Sjúkdómsins varð fyrst vart í Waterville-ánni á SV-ír- landi, haustið 1964. Næst gerði hann vart við sig í ýms um öðrum ám í nágrenninu, sumarið 1965. Haustið 1965 varð hans svo vart í ánum Blandon, Lee og Blackwater á suðurströnd írlands. Hans tók að gæta nú í sumar í ánni Shannon, á vesturströnd írlands, svo og í ánum Liffey og Slaney, á austurströndinni. Nú í október og nóvember varð vart við hann í ám Cumberland, í Englandi og þremur ám í Lancahsire, Lune Duddon og Condor. í öllum þessum ám er það lax, sem sýkzt hefur. Þessi mynd var tekin í borginni Gwele í Rhodesíu fyrir skömmu af Garfield Todd, fyrrverandi ' forsætisráðherra S-Rhodesíu. Todd var í verzlun arerindum, en hann er nýlega laus úr eins árc ferðabanni, sem stjórn Ian Smiths setti hann L farin sumur og ljóst er, að þeir íslenzkir vísindamenn sem að henni starfa eru af- burðamenn á sínu sviði. Það er því vissulega ánægjulegt, að þeir skuli brátt fá nýtt og fullkomið skip til þess að starfa á. Ætlunin mun að hafrann- sóknarskipið verði smíðað hér innanlands og er undir- búningi að þeirri fram- kvæmd nær lokið. Tilkoma þess mun skapa ný viðhorf í rannsóknarstarfí. okkar á hafinu og lífi þess. En fátt er miki'lvægara fyrir okkar þjóð en að eiga góða vísindamenn á sviði hafrannsókna og skapa þeim sómasamlega að- stöðu til starfa. Þegar fram líða stundir mun smíði þessara tveggja skipa vera talin með mikil- vægari atburðum í sögu ís- lenzks sjávarútvegs síðari ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.