Morgunblaðið - 04.12.1966, Side 25

Morgunblaðið - 04.12.1966, Side 25
Sunnudagur 4. des. 1968 MORCUNBLAÐIÐ 25 RÍMNASAFNIÐ Margt hinna fegurstu og bezt ortu rímnaflokka ofckar, eru kveðnir af alþýðu manna, bændum og verkamönnum, Mætti því til sönnunar benda á Bólu-Hjáknar og Sigurð Breiðfjörð. Nú hefur íslenzkur bóndi, Sveinbjörn Beinteinsson á Draghálsi, Borganfirði, safnað og valið í eitt aiLstórt bindi, úrval rímna frá fyrstu tíð, 1360 og til vorra daga. Þetta úrval úr rimnakveð- skap okikar í 600 ár, hefur heppnazt með afbrigðum vei, enda hefur Sveinbjörn allt frá barnæsku tekið ástfóstri við rímuna, og stendur þessi þjóðlegi kveðskapur í mikilli þakkarskuki við hinn gáfaða bónda og skálcL Sveinbjörn skrifar formála fyrir verki sínu, og awk þess fróðlega grein um rámur og rímnakveðekap á íelandi fyrr og síðar. Þá kynnir hann I stuttu máli aUa höfundana, sem aru alls rúmiega sjötíu. Hér ar sannarlega bok handa ungum sem öldnum. TUvalia JolagJafabók. Unuhús - Helgofelli Jólabækurnar og málverka- prentaniraar i Unuhúsi. Góð bílastæði. Guömundur E. Guðmundsson bryti — sextugur Allt fram streymir endalausf, ár og dagar liða. verður manni efst í huga, er það kemur í ljós, að Guðmund- ur bryti á Lagarfossi fær sér frí eina ferð til þess að halda hátíðlegt sextugsafmæli sitt. Margt hefir á daga Guðmund- ar drifið eins og gengur, þegar hugurinn er látinn hvarfla til liðinnar tíðar. Hann er fæddur að Hólum í Dýrafirði 5. des. 1906. Foreldrar hans voru Guð- mundur Bjarnason bóndi og Margrét Guðmundsdóttir er þar bjuggu á þeim tíma, og áttu fyrir einn dreng Ragnar, er síð- ar varð bóndi að Hrafnabjörgum í Arnarfirði, en er nú látinn fyrir nokkrum árum. Lífsbaráttan var hörð á íslandi um þær mundir. Faðir Guðmund- ar stundaði sjómennsku með bú- skapnum og drukknaði af skonn- ortunni Fönix 5. apríl 1906 eða réttum átta mánuðum áður en sonurinn fæddist. Skömmu eftir lát bónda sins brá Margrét búi með drengina sína og hugðist halda til skyld- menna í Arnarfirði. Á leið sinni þangað dvaldi hún hjá kunn- ingjafólki í Dýrafirði, en þar urðu þau straumhvörf í áform- um hennar, að hún vistaðist til dvalar hjá merkishjónunum Kristjáni Andréssyni bónda og skipstjóra og konu hans Helgu Bergsdóttu (systur Kristjáns Bergssonar síðar forseta Fiskifé- lags íslands) og síðar syni þeirra Andrési og dvaldist þar til ævi- k)ka. Varð það því hið raunveru lega uppeldisheimili Guðmund- ar. Um 15 ára aldur hóf Guð- mundur sjómennsku eins og þá var títt um röska unglinga og eftir því sem honum óx aldur og sjómennsku harka til, stefndi hugur hans á stærri skip. 1932 fékk hann skiprúm á línuveið- aranum Fróða, hjá hinum lands- kunna skipstjóra Þorsteini Ey- firðingi og var með honum alla hans skipstjóratíð upp frá því og var á þvi skipi er hin grimmi lega árás var gerð á það í marz- mánuði 1941. Guðmundur hefir i sér það sem sérkennir margt forviturt fólk. Einhvernveginn veit hann lengra en nef hans nær, eins og sagt er. Sennilega er sú for- vizka á einhvern hátt tengd sjálfsbjargarhvötinni og ná- tengd við harða baráttu við nátt- úruöflin. Vertíðina fyrir árásina hafði Guðmundur haft þunga drauma, en áttaði sig ekki alveg á hvað þeir myndu boða. Um þetta leyti var hann heitbundinn nú- verandi eiginkonu sinni Elin- borgu Jónsdóttur frá Haukadal í Dýrafirði og horfði björtum augum á framtíðina. Honum var því ofarlega 1 huga að fara i land og hætta sjómennskunni. En margt fer öðruvísi en ætl- að er og stundum eins og menn komist ekki framhjá forlögum. Siðustu kojuvakt sína fyrir ár- ásina á Fróða, er skipið var statt um 200 sjómílur suður af Vest- mannaeyjum á leið til Englands, dreymdi Guðmund mjög sér- kennilegan draum um þá skips- félaga. Er hann vaknaði var hann viss um, að nú væri sú stund, sem hann hafði svo lengi haft válegt hugboð um, ekki langt undan í morgunskímunni hóf kafbátur miskunarlausa skot hríð á Fróða og deyddi og hel- særði fimm af skipsfélögunum. Skömmu eftir þetta fór Guð- mundur aftur á sjóinn á ýmsum skipum, en réðist 1945 á gamla Brúarfoss með Jóni Eirííkssyni skipstjóra, en síðar á Lagar- foss með Birgi Thoroddsen skip- st.jóra og hefir nú verið á því skipi um tíu ára skeið, lengst af sem bryti. Guðmundur er heilsteyptur maður, léttur í lund og öllu dag- fari, en harður í horn að taka, afdráttarlaus í skoðunum og ó- myrkur í máli ef honum þykir við þurfa að brýna raustina. En hver sem kynnist honum finn- ur þar ósvikna manngerð með hlýju hjarta. í starfi sínu hefir Guðmundur ur viðskipti við fjölda manna innlendra og erlendra og verður þess allsstaðar vart, að hann nýt- ur óskoraðs trausts þeirra sem hann hefir samskipti við, vegna reglusemi í störfum og heiðar- leika í hvívetna, skipi sínu, út- gerðarfélagi og þjóð sinni til sóma. Guðmundur bryti er um margt merkur maður. Hann er sjómaður í húð og hár, enda sýndi hann það bezt í Fróðaslysinu, er hann sigldi bátnum áttavita og siglingatækja laust nálega 200 mílur og náði höfn í Vestmannaeyjum með þrjá látna og tvo helsærða skip- verja um borð. Guðmundur er alinn upp 1 gamla tímanum, en er samt boð- beri hins nýja og gerir sér Ijós- ar þær þjóðlífssveiflur sem átt hafa sér stað síðustu áratugina. I>að þarf meira en litið átak og kröfur til sjálfs sín, að leggja frá sér flatningshnífinn og sjó- vetlingana nær fertugur að aldri með barnaskólamenntun að baki og taka nýja atvinnustefnu í líf- inu. En svo vel vígur sem Guð- mundur var með aðgerðarhníf- inn og að stinga beifcu á öngul, sómir hann sér ekki síður vel við reikni og ritvélina nú. Allir sem til Guðmundar þekkja vita, að þar er maður sem vill hvers manns vanda leysa. Vinfastur, ættrækinn og góður heimilisfaðir. Þeir eru því margir sem hugsa hlýtt til hans og við skipsfélagarnir sendum honum hugheilar árnaðaróskir á þessum tímamótum í lífi hans. B. Thoroddsen, Halldór Jónsson. GUÐMUNDUR Einar Guð- mundsson bryti á m/s Lagar- fossi er fæddur 5. desember 1906 að Hólum í Dýrafirði, og er hann því sextugur n.k. mánu- dag. Áður en Guðmundur fædd- ist hafði faðir hans fallið fyrir borð af skipi og drukknað, og flutti Guðmundur með móður sinni frá Hólum að næsta bæ í Dýrafirði Meðaldal, og ólst hann þar upp. Guðmundur Einar byrjaði snemma til sjós, og var lengi á fiskiskipum að vestan, lengst af sem háseti. Á þeim árum hefur hann sjálfsagt lent í ýmsu, eins og oft vill verða á sjóferðum og siglingum. í bókinni Öldin okkar er sagt frá því þegar ráðist var á línuveiðarann Fróða, þar sem fimm menn voru drepn- ir af skotvopnum striðsaðila, og var Fróði þá staddur um 200 sjómílur frá Vestmannaeyjum. í hópi hinna fimm er féllu fyrir árás þessari, sem gerð var af kafbáti, voru skipstjóri og stýri- maður skipsins ásamt þremur hásetum, hinir sem lífs komust voru úr hópi vélaliðs skipsins auk matsveins og eins háseta. Þessi eini háseti var Guðmund- ur Einar, sá er nú er sextugur. Það féll í hans hlut að stjórna skipinu til hafnar, og var komið til Vestmannaeyja 28 klst. efti að árásin hófst. Meðan Guðmundur Einar vann á fiskiskipum var hann há- seti, en stuttu eftir árásina á Fróða fró hann að stunda mat- sveinsstörf, árið 1945 fluttist hann til Reykjavíkur, og ræður sig til matreiðslustarfa á gamla Brúarfoss, og hefur síðan starf- að við þau störf hjá Eimskipa- félagi íslands, en bryti hjá því útgeðarfélagi varð hann fyrir tæpum áratug, og er nú bryti á m/s. LagarfossL Sveinsprófi í matreiðslu lautj Guðmundur árið 1954. Hér að framan hef ég getið starfa Guðmundar Einars lítiS eitt, ég tel ekki rétt að rekja starfssögu hans mikið frekar, því það veit ég, að Guðmundur Einar er hlédrægur maður, og vill áreiðanlega ekki, að um sig verði ritað langt mál, þó að sjálfsögðu væri hægt að gera slíkt, en ekki má gleyma að minnast þess, að Guðmundur Einar hefur í störfum sínum verið farsæll, og eignazt fjölda vina, en ekki er mér kunnugt um að hann hafi eignazt nokk- urn óvildarmann, og tel ósenni- legt að svo sé. Virkur félagi 1 sínu stéttarfélagi hefur hann ætíð verið, hefur sýnt samtök- um sinum fullt traust, og er mér ljúft að votta þetta á þessari stundu, því saman höfum við verið félagar, fyrst í Félagi matreiðsiumanna og síðar í Fó- lagi bryta. Árið 1942 kvæntist Guðmund- ur Einar, Elinborgu Jónsdóttur frá Haukadal í DýrafirðL og bjuggu þau fyrstu árin í Dýra- firði, en eins og fyrr segir fluttu þau til Reykjavíkur árið 1945. Þau hjón hafa eignast tvo syni, Gretar sem er 13 ára og Jón sem er 11 ára. Ég vil ekki hafa línur þessar öllu lengri, en ég vil benda á, að á Hjarðarhaga 64, býr vin- sæll maður og gegn, sem mánu- daginn 5. des. heldur upp á sex- tugsafmæli sitt, hefur hann tekið sér leyfi frá erilsömu bryta starfL til þess að mega njóta þessara tímamóta með konu sinni og sonum, og' öðrum ást- vinum, kunnugum og vinum. Það verður stór hópur vina sem hugsar hlýtt til þessa mæta manns, og þakkar honum sanv- starf og vináttu á liðnum árum. Þó vitum við, að margir munu þeir vera, sem á þessum degi geta ekki tekið í hönd hans, vegna fjarveru, meðal þeirra sem þannig er ástatt um er auta mín, sem verð á þessum degi staddur nær æskustöðvum hans, munu skipsfélagar hans vera fjarri fósturjarðar ströndum. Eu bæði ég, skipsfélagar hans á m/s. Lagarfossi, svo og fjöldi annara félaga hans og vina senda hon- um beztu heillaóskir, honum sjálfum til handa sem og fjöl- skyldu hans. Stéttarfélagar han* og stéttafélag, Félag bryta tek- ur undir þessar óskir og kveðj- ur. Að síðustu vonum við ÖIL »3 afmælisbarnið megi sem lengsfc njóta góðrar heilsu, og lifi heiU sem lengst. Boð'var Steinþórsson. Þróttur Fundur verður haldinn í húsi félagsins í dag kl. JL FUNDABEFNI: 1. Húsbygging. (Tekin verður afstaða til kauptilboða). 2. Önnur mál. Stjórnin. James Bond IY IAN FLEMIN6 ÐRAWING BY JOHN McLUSKY Tiffany svaf í flugvélinnL sem með okkur tii New Tork. Ég lá vakandi og hugsaði um það, að ég var næstum þvífangin aí henni, og einnig um það að lausn gátunnar væri ekki að finna í New York haidur í ' virðulega Demantahúsi í Londou. Og -'T sá dvIfr4A» 49C? — -- ’ . ....... V

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.