Morgunblaðið - 04.12.1966, Page 31

Morgunblaðið - 04.12.1966, Page 31
Sunnudagur 4. des. 1966 MORCUNBLAÐIÐ 31 Frá fundi forsætisráðherra Norðurlanda í Kaupmannahöfn. Srenski forsætisráðherrann, Tage Erlander er yzt tii vinstri, þá Rafael Paasio, forsætisráðherra Finna, síðan Jens Otto Krag, forsætisráðherra Dana, þá Dr. Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og loks norski forsætis- ráðherrann, Per Borten, sem tafðist nokkuð og kom ekki til Kaupmannahafnar fyrr en að kvöldi 30. nóvember. Myndin er tekin á fundi ráðherranna 1. desember. — Verzlunarferðir Framh. af bls. 32 sem hönd á festi, frá rakettum og rafmagnslestum upp í kvöld- kjóla og gólfteppi. Og meðan bjöllurnar í pen- ingakössum þeirra hringdu glaðiega, töluðu búðareigend- urnir um hina efnuðu íslend- mga sem fara fljúgandi í inn- kaupaferðir og bera þykka bunka af fimm punda seðlum. Frú J. Phillips, sem stjómar „Richard Shops“ í „Sauciehall stræti“ sagði: Peningarnir skipta þá engu máli. Flestir þeirra eyða um 200 pundum í þessari einu verzlun. Það er ekki óal- gengt að einn íslenzkur viðskipta vinur kaupi 18 kjóla og hálft dúsin af kápum. Og þeir borga allt á staðnum. fslendingarnir hafa gott auga fyrir tízkunni og vita nákvæmlega hvað þeir vilja. Það borgar sig líka fyrir þá að verzla í Glasgow. Ein ung kona sem keypti hérna sam- kvæmiskjól sem kostaði 20 pund sagði mér að hún hefði orðið að greiða ein 45 pund fyrir sama kjól í Reykjavík. Verzlunar- stjóri í annarri verzlun sagði: í dag komu til okkar þrjár tán- ingastúikur frá Reykjavík og hver þeirra eyddi meira en átta- tíu pundum í föt og skó. Þær sögðu að þær hefðu flogið hing- að bara til að verzla þennan eina dag. í gærkvöldi sagði herra John O. Peacock, íslenzki kon- súllinn í Glasgow frá ástæðunni fyrir þesum mikla peninga- straumi sem færir jólabros á andlit kaupmannanna. „Flest fólkið á eynni lifir á sjávarút- vegi. Sildarflotinn hefur átt met- ár í veiðum og sjómennirnir fá konum sínum miklar upphæðir á hendurnar. Það eru engin vand ræði með gjaldeyrisleyfi á ís- landi og fólkið getur tekið með sér eins mikið af pundum til Glasgow og það vill. Miklir inn- flutningstollar eru þess vald- andi að verðlag á íslandi er mjög hátt þannig að þar borgar sig fyrir íbúana að kaupa sér flugfar til Glasgow, sem er sá stóri verzlunarstaður sem næst- or þeim er. Flugið frá Reykja- vík tekur aðeins fjórar klukku- stundir og Flugfélag íslands er með fjórar ferðir vikulega. Svo eru einnig reglulegar skipaferð- jr frá eynni til Leith. — Skuldabréfalán Framh. af bls. 32 Ríkisstjómin samþykkti í sept ember sL að Iðnlánasjóði væri heimilt að hefja þegar á þessu hausti lánsfjáröflun, þar sem mikilvægt væri, að lánveitingar úr hinum nýja flokki hagræð- ingarlána gætu hafizt sem fyrst. t samráði við Seðlabankann var talið rétt, að Iðnlánasjóður reyndi að afla í fyrsta áfanga allt að 25 millj. kr., með því að bjóða út almennt skuldabréfalán IHefur það mál nú verið undirbú ið. En til þess að gera skulda- bréfin útgengilegri var talið rétt, að þau og vextir af þeim væru undanþegin framtals- skyldu og skattlagningu, á sama hátt og sparifé skv. 21. gr. laga nr. 55 17. júlí 1964, um tekju- skatt og eignarskatt. Til þessa þurfti að afla sérstakrar laga- heimildar, og er það meginefni frumvarps þessa. Hentast þótti að hafa breyt- inguna í formi þess, að um- orðuð væri 6. gr. iðnlánasrjóðs- laganna frá 1963 og felst breyt- ingin um skattfrelsi skuldabréfa í 3. mgr. Samtímis þykir rétt að hækka hina almennu lántökuheimild Iðnlánasjóðs sbr. 1. mgr. upp í 300 millj. kr. Með breytingu á lögunum á síðasta Alþingi var þessi lán- tökuheimild hækkuð úr 100 millj kr. En segja mó, að þá hafi láðst að taka tillit til þeirra breyt- inga, sem verða nú um ára- mótin, þegar Framkvæmdabanki Islands hættir störfum, en Fram kvæmdasjóður íslands tekur við verkefnum hans. Hefur þá jafn- an verið ráðgert að lánveiting- ar til Iðnlánasjóðs frá Fram- kvæmdasjóði mundu koma til viðbótar fyrri lántökum sjóðsins eða ákvarðast með hliðsjón af lánveitingum Framkvæmdabank ans til einstakra iðnfyrirtækja á síðastliðnum árum. Var að vísu gerð grein fyrir þessu í greinargerð frumvarpsins til laga um breyting á iðnlánasjóðs lögunum frá síðasta Alþingi, en Þá hefði þurft að miða hina al- mennu lántökuheimild við hin viðhorf, sem nú koma til fram- kvæmda um næstu áramót. — Jólapástur Framh. af bls. 32 Skipaferðir til útlanda: 10. des. Kronprins Frederik til Thorshavn og Kaup- mannahasfnar (England). 17. des. Hanne Dancoast til Thorshavn og Kaup- mannahafnar (England). Flugferðir: 17. des. Patrekisfjörður (Ríldu- dalur, Tálknafjörður). Þórshöfn (Bakkafjörður, Vopnafjörður). 10. des. Raufaiihöfn (Kópasker). 19. des. Hornatfjörður (Djúpiivog ur, Breiðdalsvík). 20. des. Patrefestfjörður (Bíldu- dalur, Tálknafjörður). 21. des. FagurfhóLsmýri — Horna fjörður (Djúpivogur, Breiðdalsvík). 21. des. Kópadker (Rautfarhöfn) Þórshöfn (Bakkafjörður, Vopnafjörðurl. 22. des. Patreksfjörður (Bildu- dalur, Táiknafjörður). Flugpóstur er sendur daglega til etfirtalinna staða: Akureyrar (Dalvífeur), Húsavík ur (Einarsstaðir). Egilsstaða (Borgarfjörður, Seyðistfjörður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Fá- skrúðsfjörður Stöðvarfjörður). Isafjörður (Bolungavík, Suður- eyri, Flateyri). Vestmannaeyjar og NeSkaupstaður (Mjóifj.). Flugpósti tii Norðurlanda þarf að skila fyrir 17. des., en fyrir 16. des. til annarra landa. — Kína Framhald af blis. 1 flokksnefndarinnar fyrir Anh- wei-hérað hafi verið sakaður um áróðursstarfsemi gegn menn ingarbyltingunni. Varðliðarnir handtóku hann 11. nóvember sL og pynduðu í marga daga, þang- að til nokkur þúsund verka- menn sem höfðu safnast sam- an fyrir framan húsið, björg- uðu honum. Hugheilar þakkir sendum við öllum nær og fjær, sem auðsýndu samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, STEINDÓRS H. EINARSSONAR Sóívallagötu 68, Reykjavík. Anna Steindórsdóttir Haarde, Sigurður Steindórsson, Kristján Steindórsson, Guðrún Steindórsdóttir, Fjóla Steindórsdóttir, tengdabörn og barnabörn. Hjartkær eiginmaður minn SUMARLIÐI JÓNSSON Laugavegi 70 B, verður jarðsunginn þriðjudaginn 6. desember kl. 13,30 frá Fossvogskirkju. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Guðbjörg Sigurðardóttir. Undanþágnr frá fasleignagSöldam — fil umrœðu í borgarstjórn BORGARFULLTRÚAR Fram- sóknarflokksins lögðu til á síð- asta borgarstjómarfundi, að „nauðjmrftar" húsnæði yrði und- anþegið fasteignagjöldum. Sagði Kristján Benediktsson, að allt benti. til þess að slík gjöld mundu hækka næsta haust og þyrfti því fyrir þann tíma að samþykkja skýr ákvæði um þetta. Birgir fsl. Gunnarsson (S) sagði að talið væri að nokkrir vankantar væru á framfevæmd slíks fyrirkomulags. Kvaðst hann ekki treysta sér til þess að taka ákveðna afstöðu til máls- ins en lagði til að því yrði vísað til borgarráðs. Aden, 3. des. AP. • Nítján ára brezkur hermaður, Rrian Gabriel, var dæmdur til dauða í morgun fyrir að haía myrt arabiskan leigubílstjóra. — Macao Framhald atf bls. 1 mannfjöldann en dueði skammt, því hvassviðri var á og feykti golan gasinu á hatf út. Óeii'ðir þessar stóðu langt fram eftir degi og sinntu óeirð- arseggir engu tilmælum ytfir- valda um að halda til síns heima. Þetta eru mestu átök sem orðið hafa í nýlendunni síðan þar urðu átiök á landamæT- unum að Kína 1952 og kínverskt stórskotalið var látið skakka leikinn. Margir lögreglumenn særðust í óeirðum þessum eins og óður sagði og nofekuð á þriðja tug óeirðanseggja að talið er. Þá munu einnig hafa særzt tveir starfsmenn 1 andistjóraemíbættis- ins og óstaðfestar fregnir herma a’ð ferðamenn staddir í nýiend- unni, sem orðið hafí. vitni að ó- eirðunum og ætlað að festa þær á filmu hafi verið gripnir og illa leiknir. Orð leikur á að KLna xnuni standa að baki óeirðum þessum og að mótmæiagöngunni sem á undan fór, hinni þriðju á fjór- um dögum, og er vitnað til ásak- ana sem fram voru bornar ný- verið á yfirvöld í Macao um griimmd og fasistaharðýðgi er lögregla þar stöðvaði verkamenn sem voru a‘ð nifia niður byiggingu þar sem reisa átti skóla að sögn stuðningsmanna kommúnista. GENERAL eru stærstu og þekktustu raftækjaverksmiðjur heims. ELECTRIC* SJÁLFVIRKAR Þvottavélar Taka 14 lbs. af þurrþvotti. — Sérstök karfa í vélinni fyrir allan viðkvæman þvott t.d. nælonfatnað, ull o. fl. Tvær hraðastillingar við þvott. — Tvær hraðastillingar á þeytivindu. — Þrjár hita stillingar á þvottavatni. — Tvær hitastiU ingar á skolvatni. — Sjálfvirk tímastiUing. Hagsætt verð. — Greiðsluskilmálar. ■LECTRIC HF. Túngötu 6. — Símar 15355 — 14126. Bílastæði fyrir viðskiptavinina. GÆÐIN TRYGGIR GENERAL ELECTRIC*

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.