Morgunblaðið - 14.12.1966, Qupperneq 14
14
MORGUNBLADIÐ
Miðvikudagur 14. des. 1966
Verzlunin Veiðimaðurinn
HEFUR MARGAR GÓÐAR OG FALLEGAR
jólagjafir
FYRIR VEIÐIMENN.
Veiðimaðurinn
Hafnarstræti 22 — Sími 16760.
SÍGILDAR SÖGUR
IÐUNNAR
Víðkunnar úrvalssögur, sem um áratuga skeið hafa
verið vinsæiasta lestrarefni fólks á öllum aldri og eru
alveg sérstaklega heppilegt lestrarefni handa stálp-
uðum unglingum. — Eftirtaldar sögur eru komnar út:
Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu
Orustan um Bretland
Margar og afdrifaríkar orustur voru háS-
ar í síðari heimsstyrjöldinni, en vart leikur
á tveimur tungum að það var orustan um
Bretland — háð síðsumars 1940 — sem var
afdrifaríkust allra.
I>etta verður greinilega Ijóst af bók þeirri
um þetta efni — .Orustan um Bretland“ —
sem kemur út samtímis á íslandi og Bret-
landL Höfundur er brezkur blaðamaður
Þegar orustan um Bretland hófst í ágúst
1940 virtust Þjóðverjar ósigrandi og Hitler
allir vegir færir. Flugher Þjóðverja átti að-
eins eftir að sópa brezka flughernum úr loft
inu yfir Ermarsundi og Suður-Bretlandi, og
þegar þvi væri lokið, gæti innrás hafizt og
henni mundi ljúka með algerum sigri naz-
Í8ta. Að sjálfsögðu töldu Þjóðverjar að þetta
mundi verða leikur einn. Slík afrek hafði
þýzki flugherinn unnið undanfarna mánuði
að ekki átti að vera miklum vandkvæðum
bundið að ganga á milli bols og höfuðs á
þeim litla flugher, sem Bretar áttu eftir.
Dag eftir dag sendu Þjóðverjar ótöluleg-
an grúa flugvéla af öllu tagi til árása á
Bretland, og alltaf var árásunum hagað
þannig, að sækjendur höfðu sólina í bakið,
en verjendur beint í augun. Slíkt var væn-
legt til góðs árangurs.
En flugmenn Breta uxu með hverjum
vanda. Því fleiri sem árásirnar urðu, þeim
mun fleiri ferðir fór hver brezkur flugmað-
ur. Þess voru dæmi að einstakir flugmenn
færu átta flugferðir á dag, þegar mest gekk
á. Það var þess vegna ekki að furða, þótt
Churchill kæmist svo að orði um hetjuskap
brezkra flugmanna,. að „aldrei hafa eins
margir átt eins fáum mikið að þakka“.
f bók þeirri, sem hér er um að ræða, er
brugðið upp myndum af óteljandi hetjudáð-
um brezkra flugmanna, er þeir vörðust ofur-
efiinum, og hún er merkileg að því leyti, en
þó er hún enn eftirtektarverðari fyrir þá
Þorsteinn E. Jónsson flugmaður úr 111 flug-
sveit Breta stígur út úr Spitfireherflugvél
sinni eftir loftorustu.
sök, að í henni er í fyrsta skipti frá því sagt
hve nærri Bretar voru algerum ósigri.
Það er ekki ofsagt að þessi bók sé merki-
legt framlag til veraldarsögu síðustu ára-
tuga — mikilla umbrotatíma, sem enn eru
í deiglunnL og víst er, að mannkynssagan
hefði ekki þróazt eins og raun ber vitni frá
1940 ef Bretar hefðu tapað „orustunni um
Bretland".
Aðeins einn íslendingur Þorsteinn .fóns-
son, nú flugstjóri hjá Flugfélagi íslands,
barðist með RAF, brezka flughernum á
stríðsárunum. Hann var í 111. flugsveit-
inni sem hafði m. a. aðsetur á flugvöllunum
í Northweald Kenley og Greavesend. Þekk-
ir Þorsteinn marga þá menn, sem um getur
í bókinni, og er án efa sá íslendingur sem
er kunnugastur þeim atburðum, sem þar er
lýst.
Þorsteinn hefur eftirfarandi um bókina
að segja:
Ég hafði mikla ánægju af því að lesa
ina sérstaklega vegna þess að ég þekkti per-
sónulega marga af þeim mönnum, sem við
sögu koma. Þó að ég sjálfur hafi ekki lokið
orustuflugnámi fyrr en um það leyti er or-
ustunni um Bretland var að ljúka. Flugsveit
mín, 111. flugsveitin, kemur einnig víða við
sögu. Frásögn bókarinnar er í öllum þeim
atriðum, sem mcr eru persónulega kunnug,
rétt.
Það sem gerir bókina fróðlega og skemmti
lega til aflestrar er, að höfundurinn hefur
haft aðgang að heimildum frá báðum stríðs-
aðilum, og er ekki sízt fróðlegt að kynnast
málum frá hlið Þjóðverja, viðbrögðum flug-
manna þeirra og okkar.
Bókaútgáfan Fífilt
BEN HÚR L.Wallace I
¥ íOFI TÓMASAR FRÆNDA H.B.Stowe
i ÍVAR HLÚJÁRN J WScott
SKYTTURNAR 1 A. Dumas 1-3
bOrniní nyskógum E Marryat
BASKERVILLE HUNDURINN A.Conan Doyle 1
GRANT SKIPSTJORI J.Verne
Tveer beekur í þessum flokki eru nýkomnar út»
KYNIALYFIÐ, spennandi og skemmtileg saga eftir Síf Walter
Scott, höfund sögunnar ívar Hlújárn.
FANGINN í ZENDA, hin margeftirspurSa, hörkuspennandi saga
eftir Sir Anthony Hope.
Ofantaldar bækur fást allar enn. Þær kosta kr. 135,00-195,00 hver bók
án söluskatts, flestar kr. 150,00-165,00. Við sendum burðargjaldsfrítt
gegn póstkröfu um land allt. Seljum einnig gegn afborgunum.
IÐUNN Skegg|ágöfu 1 - Símar 12923 og 19156