Morgunblaðið - 17.12.1966, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 17.12.1966, Blaðsíða 9
Laugardagœr 17. des. 1966 MORCUNBLAÐIÐ 9 Pessi mynd var tekin í fullveldisfagnaði, sem Félag fslendinga í Hessen efndi til í Gicssen 3. desember. Aðalveizlugestur var Horst Schubring prófastur í Ober-Hessen. Er hann Islend- ingum að góðu kunnur, sakir vináttu og hlýju í garð íslenzks málefnis og fslendinga í Hess- en. Fór fagnaðurinn vei og skemmtilega fram sem oftar, þegar þessi hópur hefur komið sam- au. Vestmannaeyingar vinna meiðyrðamál Ihegningarlaga nr. 19/1949. Þegar ummælin eru lesin í samhengi, þykir óhjákvæmilegt að ómerkja í heild þau ummæli, sem stefn- endur hafa sérstaklega krafizt ómerkingar á sbr. 1. mgr. 24)1. gr. alm. hegningarlaga, enda hafa þau ekki á nokkurn hátt verið réttlætt gagnvart stefnendum. Ber samkvæmt kröfu stefn- Á RÆJARÞINGI Reykjavíkur er dómur genginn í máli sem Fisk- iðjan h.f. o. fí. í Vestmanna- eyjum höfðuðu gegn Geir Gunn- arssyni ritstjóra og útgefanda Nýrra vikutíðinda. Var málið höfðað vegna greinar í blaðinu er það birti í marz 1965 undir fyrirsögninni „Kynsjúkdómafar- aldur í Vestmannaeyjum" og með undirfyrirsögnunum: „Heil- brigðiseftirliti og útlendingaeftir liti ábótavant. — Aðkomufólk hættulegir smitberar." Stofnendur gerðu kröfur í 6 Jiðum á hendur Geir Gunnars- syni og voru það höfuðkröfur að greinin yrði dæmd dauð og ómerk. I>á voru gei'ðar kröfur um skaðalbætur til forsvars- imanna fyrirtækjanna sem að imáIshöfðuninni standa svo og til fyrirtækjanna sjálfra en fyrir- tækin eru auk Fiskiðjunnar h.f.: Hraðfrystistöð Vestmannaeyja, Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum og ísfélag Vestmannaeyja, — gerð var og krafa um greiðslu sakakostnaðar o. fl. Stefndi gerði þær kröfur að hann yrði sýknaður af öllum kröfum. í forsendum dómsins segir m.a. á þessa leið: „Telja verður, að ummæli þau f margnefndri grein, sem sér- staklega er vitnað til í stefnu málsins og beinast gegn stefn- endum, séu meiðandi fyrir þá, Ibæ'ði einstaka stjórnarmenn, framkvæmdastjóra svo og fram- angreind atvinnufyrirtæki, sem lögpersónur, sbr. 1. gr. laga nr. 71 frá 7. maí 1928. Með ummæl- wm þessum er því dróttað að stefnendum ,að þeir hafi van- rækt þá sjálfsögðu skyldu að Ihafa eftirlit með heiilbrigði og (þrifnaði starfsfólks þess, er vlnnur við framleiðslu fiskafurða . . . _ , . .enda, að refea stefnda, sem á- a þeirra vegum. Þykja ummæl- byrg'ðarmanni Nýrra vikutíð- in varða við 235. gr. almennra I .nda, fyrir ummæli þessi skv. Allt fyrir börnin: LEIKFÖNG. BARNAFATNAÐUR. GJAFAVÖRUR JÓLAVÖRUR. VERZLUNIN HOLT, Skólavörðustíg 22. JOLAGJAFIR! HEFILBEKKIR 2 stærðir Hentug jólagjöf til heimilisnota LUDVIG STORR Laugavegi 15, Sími 1-33-33. jéLAGJAFIR! SPEGLAR eru kœrkomnar og nytsamar jólagjafir Vér bjóöum yður mesta SPEGLA-ÚRVAL, sem sézt hefir hérlendis. SPEGLAR og verð við allra hæfi. LUDVIG STORR, SPEGLABÚÐIN Sími 1-9635. 235. gr. alm. hegningarlaga. Kunnugt er, að stefndi hefir þrisvar sinnum áður verið dæmdur fyrir brot gegn meið- yrðalöggjöfinni með dómum, uppkveðnum á bæjarlþingi Reykjavíkur, hinn 30. marz 1965, hinn 20. júlí 1955, og hinn 22. febr. 1986. Ber því að dæma hon um hegningarauka í máli þessu skv. 78. gr. alm. hegningarlaga nr. 19/1940. Þegar þetta er virt og jafnframt eru höfð í huga ákvæði 1. og 3. töluliðs 70. gr. alm. hegningarlaga, þykir refs- ing stefnda í þessu máli hæfilega ákveðin kr. 4.500.00 í sekt, er renni til ríkissjóðs. Ber honum að greiða sektina innan aðfarar- frests í máli þessu, ella sæti hann varðhaldi í 12 daga í stað sekt- arinnar. Framangreind fyrirtæki hafa ekki sannað, a'ð ummæli grein- arinnar hafi valdið þeim fjár- tjóni. Er því eigi unnt að taka skaðalbótakröfur þeirra, byggða á þeim grundvelli til greina, sbr. 2. gr. laga nr. 71/1928. Ekki er heldur grundvöllur til að dæma fyrirtækjunum, sem lögpersónum, miskabætur. Hins vegar ber að taka til greina kröfur hinna einstöku stjórnarmanna og framkvæmda- stjóra um miskalbætur skv. 264. gr. alm. hegningarlaga. Þykja Iþær hæfi'lega ákveðnar kr. 3.000.00 til hvers um sig. Samkvæmt 22. gr. laga nr. 57/ 1956 ber stefnda að birta for- sendur dóms þessa og dómsorð í 1. eða 2. tölublaði Nýrra viku- tíðinda, er út kemur eftir birt- ingu dóms þessa. I>á verður stefndi dæmdur til að greiða stefnendum fjárhæð til að standa straum af kostnaði vi'ð birtingu forsendna og dómsorðs þessa máls í daglblöðum, skv. 2. mgr. 241. gr. alm. hegningar- laga. Þykir greiðslg þessi hæfi- lega ákveðin kr. 1.500.00 til bvers fyrirtækis fyrir sig ásamt stjórn þess og framkvæmda- stjóra. Samkvæmt þessum málalokum verður stefndi dæmdur til að greiða stefendum málskostnað. Samkvæmt 4 mgr. 181. gr. einka málalaganna (þykir rétt að skipta málskostnaðinum milli stefnenda, þar sem mál þetta var upphaflega höfðað sem fjög- ur sjálfetæð mál. Þykir máis- kostnaður hæfilega ákveðinn kr. 3.000.00 til hvers fyrirtækis fyrír sig ásamt stjórn þess og fram- kvæmdastjóra, þ.e.a-s. samtals á málinu í heild kr. 12.000.00.“ Þetta er forvitnileg og fögur bók, skreytt nzr eitt hundrað teikningum auk fjögurra gullfallegra málvcrka- eftirprentana í eðlilegum litum af listaverkum frú Barböru Árnason. MEXÍKÓ ER BÓK, SEM GAMAN ER AÐ GEFA GÓÐUM VINL BOKAFORLAG ODDS BJORNSSONAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.