Morgunblaðið - 17.12.1966, Blaðsíða 19
LaugarJagor 17. des. 1966
MORCUNBLAÐIÐ
19
Mem&ndaskipti
Maður og kona á Fáskrúðsfirði
Fáskrúðsfirði 13. desember.
Leikfélag Fáskrúðsfjarðar frum
Sýndi sjónleikinn Mann og konu
eftir Jón Thoroddsen sl. sunnu-
dagskvöld. Tókst sýningin mjög
vel og fögnuðu áhorfendur ákaft
Leikstjóri er Einar Freyr, en
hann hefur aeft leikinn siðan í
nóvemberbyrjun.
Þetta er fyrsta verkefni félags
Ins á þessu ári, en fyrri verkefni
félagsins eru Græna lyftan, Log-
inn helgi og Saklausi svallarinn.
Stjórn félagsins skipa Þórólfur
Friðgeirsson form. Einar Jóns-
son gjaldkeri og Magnús Stefáns
son ritari.
Aðalhlutverk, séra Sigvalda lék
Einar Jónsson.
f ráði er að sýna leikinn sem
víðast um Austurland, en fyrir
jól aðallega á Fáskrúðsfirði.
Ól. Bergþórsson.
1 NOKKUR ár hefur Þjóð-
kirkja Islands verið aðili að
stofnun, sem hefur það að mark-
miði að stuðla að auknum kynn-
um og skilningi þjáða milli með
því að gefa ungmennum kost
á því að dveljast eitt ár í fram-
andi landi. Stofnun þessi nefn-
ist International Christian
Youth Exchange (I.C:Y.E.).
Á vegum Þjóðkirkjunnar voru
nemendaskipti þessi í fyrstu
einskorðuð við Bandaríkin, en
nú tvö undanfarin ár hafa nem-
endur einnig farið til Þýzka-
lands. Á þessu ári dveljast 20
ungmenni í Bandaríkjunum á
vegum Þjóðkirkjunnar og 1 í
Þýzkalandi. Alls eru þátttak-
endur orðnir 100 frá upphaíi.
Þessum skiptum er hagað
þannig, að unglingarnir dvelja
í eitt ár á erlendu heimili ganga
í skóla og taka þátt í kirkju-
legu starfi fyrir ungt fólk o.s.
frv.
Þjóðkirkjan auglýsir nú eftir
umsóknum um nemencfaskiptin,
og er umsóknarfrestur til 31. dcs
ember. Umsækjendur þurfa að
hafa góða undirstöðuþekkingu í
ensku, vera félagslyndir og á
allan hátt verðugir fulltrúar
lands og kirkju.
Einnig óskar Þjóðlkirkjan eft-
ir umsóknum frá fjölskyldum,
sem vildu taka unglinga frá
Bandaríkjunum eða einhverju
Evrópulandi til ársdvalar.
Umsækjendur þurfa að vera
orðnir 16. ára 1. september 1967
og ekki eldri en 18 ára sama dag
til þess, að þeir komi til greina.
Kynning
verður á Stereo-hljómtækjum laugardag-
inn 17. þ.m. Þar verður til sýnis og sölu
úrvalsmagnarar, hátalarar, spilarar
og segulbönd.
Hljómur
Skipholti 9.
íslandsmyndabók Hjálmars R.
Bár&arsonar er vandaðasfa
landkynningarbókin
Tilvalin jólagjöf til vina
heima og heiman
Jólagjöf sem ávallt
gleður það er
SHEFFERS
Eruð þér í vanda með að velja hin réttu gjöf. Sá vandi
er auðleystur. Þér veljið auðvitað SHEAFFERS.
Veljið SHEAFFERS PFM penna, sem sniðinn er fyrir
karlmannshendi handa unnusta yðéu- eða eiginmanni.
Veljið SHEAFFERS Imperial handa vuinustu yðar eða
úginkonu.
vreljið SHEAFFERS Cartridge handa börnunum.
í næstu ritfangaverzlun getið þér valið SHEAFFERS
penna eða pennasett, sem hæfir þörfum yðar.
SHEAFFERS pennar, kúlupennar og skrúfblýantar frá
kr. 78.00 til kr. 4,800.00
SHEAFFER
your assuranca of the best
SHEAFFER’s umboðið
Egill Guttormsson
Sími 14189.
Ferðabók
Steinaidarþjóð heimsótt ööru sinni
Skemmtileg — f alleg — ódýr —
Þessi bók er ein fallegasta ferðabókin, sem
komið hefur á íslenzku. Hún er fróðleg, lýsir af
nærfærni háttum og siðum manna á steinaldar-
stigi og er skreytt 56 skrautlegum myndum,
prentuðum með f jórum litum. Ungir og gamlir
hafa ánægju af þessari fallegu bók.
Kostar 349.40 í fallegu bandi.
Fœst la|á öllum bóksölum.
LEIFTUR