Morgunblaðið - 20.12.1966, Blaðsíða 14
14
ÞriðjuÆagur 20. des. 1968
MORGU N BLAÐIÐ
Magnús Andrésson forstjóri
IUíinnlng
ÞAÐ var um hádegislbilið í Austurstræti að ég frétti andlát
Magnúsar Andréssonar, — að þessi góði drengur hefði sofn-
að hinzta svefni nóttina áður. Strengur hafði brostið í miðíbae
höfuðlborgarinnar. Hér hafði Magnús Andrésson starfað,
stuðlað að baettum viðskiptum, vexti og viðgangi verzlunar-
lífsins. Vaxið upp frá æskuáruim með einu traustasta fyrir-
tæki islenzkrar verzlunar. Orðið sómi stéttar sinnar.
Ég hefi ekki kynnzt öllu meiri drengskaparmanni en
Magniúsi Andréssyni, ljúfari manni í viðmóti og hógværari,
en jafnframt var hann stefnufastur og traustur sem bjarg.
Hann var búinn mörgum góðum kostum, sem mann mega
prýða, IjóðelskuT og söngvinn, ferðafélagi hinn eftirsóknar-
vei*ðasti á góðum reiðhestuim í fjallasal, slyngasti laxveiði-
maður og einlægur náttúruunnandi.
Áfail heilsubrests kippti í strenginn fyrir allmörgum árum.
Söknuðu þá oft margir vinar í stað í glöðum 'hópif En æðru-
laus tók Magnús þessu áfalli. Hann gleymdi ekki skyldum
sínum. Bar þunga ábyrgð í 'hinu stóra fyrirtæki eftir því
sem heilsan frekast leyfði, en þar var hann nú orðinn einn
fremstur manna og forvígismaður í nýjum og vaxandi fraim-
kvæmdum. En gömlum vinum gleymdi hann heldur ekki.
Sjaldnast leið sú helgi á vetrum og vori, að ekki sæist til
ferða hans utan við bæinn í bifreið, því að nú var honum
reiðmennskan fyrirmunuð. Hann var þá að huga að félöguim
og vinum, yngri og eldri, sem nutu lífsins á fákum sínum í
útreiðartúrum. Hann þekkti alla hestana ekki síður en reið-
fólkið, kynntist nýjum gæðingum og naut þess að sjá þá
fara á kostum. Tæplega er hægt að ætla, að þá hafi aldrei
brugðið við, að þessum tápmikla hestamanni kunni ekki að
hafa þyngt fyrir brjósti. En Magnús bar harm sinn í hljóði
og gladdist æðrulaus í Ijiúfmennsku sinni með glöðum, þó
að heilsubrestur hefti nú þátttöku hans sjálfs.
Mér er næst að halda, að enga óvildarmenn hafi Magniús
Andrésson nokkru sinri átt. Hitt veit ég með vissu að hann
naut hins mesta t ^ .its og vir'ðingar samstarfsmanna og
stéttarbræðra og þeirra fjölmörgu, sem fyrir honum lá að
eiga skipti við.
Magnús Andrésson var einlægur Sjáifstæðismaður, en 1
þeirra hópi, sem eru hiédrægir á pólitískum vettvangi, en
jafnframt manna traustastir. Sjálfstæðisflokknum er mikil
eftirsjá að slíkum mönnum og vábrestur, þegar þeirra nýt-
ur ekki lengur við.
Ég veit að fátækleg orð í minningargrein eru lítil huggun
í harmi ástvina. Þau votta virðingu og þakklæti samferða-
manna á iífsleiðinni. Þeim er líka ætlað að vera bergmál úr
brjósti vinar til vinar. Sómi og aðrir mannkostir Magnúsar
Andréssonar munu lengi bera honum vitni hér í Reykjavík
— og víða um sveitir, þar sem hann hafði tengt tryggðir vfð
fólkið og landið.
Blessuð sé minning hins ágæta manns.
Jóhann Hafstein.
f BAG fer fram frá Fossvogs-
kirkju, útför Magnúsar Andrés-
sonar forstjóra. Magnús var
fæddur 6. október 1904 í Reykja-
vík, sonur Andrésar Andrésson-
ar verzlunarmanns og frú Krist-
ínar Pálsdóttur. Magnús kvænt-
ist hinn 30. ókótber 198-1 Stefaníu
Ólöfu Möller, dóttur Jóhanns
Georgs Möller, verzlunarstjóra á
Sauðárkróki. Lifir hún mann
sinni ásamt dóttur þeirra Ólöfu,
sem gift er Einari Hermanns-
gyni, er stundar nám í skipa-
verkfræði í Englandi. Magnús
Andrésson lézt þann 15. þ.m.
Magnús útskriíaðist frá Verzl-
unarskóla íslands árið 1928, en
hann hóf störf hjá O. Johnson &
Kaaber árið 1917, aðeins 13 ára
að aldri. Árið 1932 var Magnús
orðinn fulltrúi þess félags, og
6rið 1935, þegar fyrirtækið var
gert að hlutafélagi, varð hann
einn af stofnendum og meðeig-
andi í hlutafélaginu. Hann gekk
svo í stjórn þess og varð einn
af forstjórum félagsins árið
1952, og gegndi þessum störfum
til æviloka. Eins og að framan
getur, helgaði Magnús ævi sína
fyrirtækinu O. Johnson & Kaab-
er hf., og verða honum aldrei
fullþökkuð þau mikilvægu störf,
sem hann vann þar. Einnig lét
faann sig miklu skipta félagssam-
tök kaupsýslumanna, og var
í stjórn Félags íslenzka stórkaup
manna árin 1948-49 og 1952-53,
og enn fremur í stjórn Verzlun-
arráðs fslands árin 1949-52. Hann
hefur verið varaformaður Inn-
fiytjendasambandsins firá 1950.
Á sínum yngri árum stundaði
Magnús íþróttir af kappi, en lét
sér það ekki nægja, heldur tók
einnig virkan þátt í félagssamtök
um þeirra íþrótta, sem hann
stundaði. Var hann á þeim ár-
um í stjó.rn Skíðafélags Reykj-a-
víkur, Golfklúbbs Reykjavíkur
að ógleymdu Hestam-annafélag-
inu Fáki, en hestar voru yndi
Magnúsar frá bernsku til ævi-
loka. Tennisíþróttin var Magn-
ósi einnig hugleikin. Magnús tók
ainn þátt í starfi fleiri félaga, og
var hann endurskoðandi Flug-
félags íslands hf. frá stofnun
þess árið 1937 og einnig í Skelj-
ungi hf. frá 1955, í báðum félög
um þessum til æviloka.
Það hefur verið undirrituðum
ómetanlegt lán að hafa fengið að
starfa með Magnúsi og kynnast
og njóta mannkosta hans í gegn-
um 14 ára samstarf. Aldrei stóð
á honum að rétta mér hjálpar-
hönd og styðja mig að styrkja í
starfi mínu. Við Magnús átfum
margar skemmtilegar samveru-
stundir við veiðar í Þverá í Borg-
arfirði, en þar átti hann marga
vini og skyldmenni. Laxinn
heillaði hann, og utan heimilis
síns held ég að hann hafi hvergi
unað sér betur, heldur en á bökk
um Þverár. Þar þekkti hann
hvern hyl og streng og ennfrem-
ur flestalla búendur náigrennis-
ins. Efa ég ekki að nú muni marg
ir sakna þess, að eigi verður
framar von Magnúsar Andrés-
sonar að Þverá, þegar laxveiðar
hefjast þar í sumarbyrj un.
Fyrir allmörgum árum
kenndi Magnús fyrst þess heilsu-
brests, sem nú hefur orðið hon-
um að fjörtjóni. Þá, eins og
endranær, staðfestist æðruleysi
Magnúsar þegar vanda bar að
höndum, ásamt sérstökum hæfi-
leikum hans til að mæta erfið-
leikum með karmennsku, festu
og skynsemi. íþróttirnar, og þar
með talin hestamennskan, urðu
að víkja, en því fór fjarri, að
árar væru lagðar í bát. Strax og
kraftarnir leyfðu var dagurinn
skipulagður, fyrst og fremst'fyr-
ir skyldustörfin, en tómstundir
eirrnig með aukinni áherzlu á
gömul og ný áhugamál, sem bet-
ur hæfðu nýjum heilsufarsvið-
horfum, og mætti þax ef til vill
sérstaklega nefna frímerkjasöfn-
unina, sem frá barnæsku hafði
átt hug Magnúsar. Þeir, sem til
þekkja, vita, að fá söfn íslenzkra
frímerkja muni betri finnast,
heldur en það, sem Magnús lætur
eftir sig.
Sár söknuður er nú hlutskipti
þeirra, sem þekktu Magnús.
Mannkostir hans voru svo marg-
ir og ótvíræðir, að vart mun sá
maður finnast sem kynntist hon-
um, er eigi bar til hans hlýjan
hug virðingar, trausts og vel-
vildar. Eiginkona hans, dóttir
og tengdasonur finna þar sárast
til, því að hér er óvenju ástríkur
faðir og heimilisfaðir kvaddur.
Þeim og öðrum ástvinum hans
sendum við hjónin okkar innileg
ustu samúðarkveðjur, og kveðj-
um um leið sannan og góðan vin.
Ólafur Ó. Johnson.
t
Hjá O. Johnson & Kaaber hf.
vinnur tiltölulega stór hópur
fólks. Það mun geta talizt ein-
kennandi fyrir þennan starfs-
mannahóp, hversu mikill hluti
hans er fólk, sem unnið hefur
alla sína starfsæfi hjá fyrirtæk-
inu, margir hverjir í áratugi.
Það er engum vafa bundið, að
orsakanna fyrir þeirri tryggð,
sem starfsmenn fyrirtækisins
hafa frá öndverðu sýnt því, er að
leita hjá þeim forystumönnum,
sem haldið hafa hér um stjóm-
völinn, nú um rétt sextiu ára
skeið. Einn þessara forystu-
manna, Magnús Andrésson for-
stjóri, er nú í dag til moldar
borinn.
Það er ekki ofmælt, að fregnin
um andlát Magnúsar Andrésson-
ar, sem barst okkur starfsfólki
firmans að morgni þess 15. þ.m.
hafi komið yfir hópinn sem reið-
arslag, og er það að vonum. Það
munu allir, sem þekktu mann-
kosti Magnúsar, skilja.
Þeir eðlislægu eiginleikar, sem
ef til vill voru ríkastir í fari
Magnúsar og mest einkennandi
fyrir persónuleika hans, voru
hlýlegt glaðlyndi, drengskapur,
góðvild, sanngirni og höfðings-
skapur í öllum samskiptum við
samfeTðamenn sína í lífinu,
ásamt óvenjulegum hæfileikum
til þeirra starfa, sem hann helg-
aði krafta sína. Og ekki skal
gleymt að minnast þeirrar ein-
lægu umhyggju, sem hann stöð-
ugt bar fyrir pecsónulegri vel-
ferð starfsfólks síns. Af löngum
I kynnum við Magnús, þykist
■undirritaður mega ráða, að af
"framanskráðum mannkostum
hans muni sprottin farsæld hans
í starfi og óvenjulegur hlýhugur
og virðing, sem han-n hefur alla
tíð notið hjá starfsfólki sínu.
Þykist ég óhikað geta m-ælt þar
fyrir munn hvers einstaks af
starfsmönnum O. Johnson &
Kaaber hf., og mun eigi ofsagt,
að svo kunni að hafa verið um
flesta, ef ekki alla aðra, sem per-
sónuleg kynni höfðu af þessum
mæta manni.
Það er því með miklum sökn-
uði, sem Magnús Andrésson er
kvaddur. Vildi ég fyrir hönd
okkar, sem unnið höfum undir
stjórn hans og eignazt um leið
góðan félaga, mega flytja hér
síðustu kveðjur okkar og þakk-
ir.
Öllum þeim, sem nú eru harmi
slegnir við fráfall Magnúsar,
flyt ég hlýjar samúðairkveðjur
okkar allra, og verður þá efst í
huga frænka mín Ólöf eigin-
kona hans, dóttir þeirra og
tengdasonur. Megi tímans hönd,
vakandi minningin um góðar.
dreng og fyririheit það um end-
urfundi, sem gefið hefur verið
öllum kristnum mönnum, milda
sorg þeirra.
Jóhann Möller.
Kveðja frá Fél. ísL
stórkaupmanna
í DAG kveðjum við einn 'af at-
orkumönnum íslenzkrar stór-
kaupmannastéttar, sem á fimmta
áratug beitti kröftum sínum til
þess að gera veg stórkaupmanna-
stéttarinnar sem mestan landi
og þjóð til blessunar og vel-
farnaðar.
Magnús Andrésson lét ekki
opiniberlega mikið á sér bera, en
var öruggur bakhjarl í baráttu
kaupsýslustéttarinnar fyrir
frjálsri verzlun og afnámi hvers-
konar verzlunarhafta, sem verzl-
unin hafði verið bundin í um
áratuga bil. Getum við þakkað
Magnúsi Andréssyni fyrir þann
skerf, er hann lagði til barátt-
unnar, sem leicMi til meira
frjálsræðis í verzluninnL
Við munum seint gleyrna at-
onku og framsýni Magnúsar
Andréssonar við undirbúning
margra mála, er leiddu til far-
sællar lausnar ýmissa vanda-
mála stéttarinnar og reyndar
þjóðarinnar allr-ar.
Ungur að árum réðst Magnús
Andrésson til fyrirtækisins O.
Johnson & Kaber h.f., þar sem
hann með dugnaði sínum og ár-
vekni vann sér traust vinnuveit-
enda sinni. Honum voru fljótt
falin mannaforráð og gerðist
síðar einn af eigendum fyrir-
tækisins og einn af framkvæmda
stjórum þess.
í störfum Magnúsar Andrés-
sonar nutu höfuðkostir hans sín
vel. Drenglyndi hans og prúð-
mennska sátu ætíð í fyrirrúmi,
ásamt miklum dugnaði og festu.
Magnús Andrósson gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
stétt sína og átti m.a. oftar en
einu sinni sæti í stjórn Félaga
íslenzkra stórkaupmanna, auk
annarra trúnaðarstarfa, er hann
var kjörinn til vegna hinna frá-
bæru mannkosta sinna.
Sá, sem þessi kveðju-orð ritar,
átti þess kost að kynnast Magn-
úsi Andréssyni hin síðustu tíu
ár, og tel ég, að það hafi verið
mér mikið lán, því að mikið var
af honum að læra.
Er það von mín, að þjóð okkar
megi ala fleiri syni slíka sem
Magnús Andrésson var, en ég tel
hann hafa verið fyrirmynd hins
dugmikla og samvizkusama
kaupsýslumanns, sem eigi mátti
vamm sitt vita í einu eða neinu,
Vil óg að lokum færa fjöl-
skyldu Magnúsar Andréssonar
og samstarfsmönnum hans sam-
úðarkveðjur mínar og samtaka
þeirra, er ég starfa fyrir, og
Magnúsi Andréssyni þökkum við
hans mikla framlag til verzlun-
arstéttarinnar, sem hann vanu
að með sínum mikla dugnaði,
framsýni og fórnfýsi.
Minningin um þennan mæta
mann mun lengi lif-a.
Hafsteinn Sigurðsson.
Skíði
Bindingar
Stafir
Bílaryksugur
JÓLAGJÖF BIFREIÐASTJÓRANS í ÁR,
ER NATIONAL RYKSUGA.
VERÐ AÐEINS KR. 1.195,00.
FÆR SAMBAND í GEGNUM
KVEIKJARA BÍLSINS.
Vé/a- og Raftækiaverzlunin
Bankastræti 10.