Morgunblaðið - 20.12.1966, Blaðsíða 25
Þriðjudagur 20. des. 1^66
MORGUNBLAÐIB
25
—Alþingi
S Framhald af bls. 12
ef helmingur af þessum auknu
tekjum er .tekið. í útsvar og
tekjuskatt en í þeirri vísitölu
framfærslukostnaðar, sem nú er
notuð er einnig tekið tillit til
beinu skattanna, svo að auð-
vitað gefur hún réttari mynd af
þróun kjaranna í heild. >á vil
ég benda á það, að það er
ekki rétt að bera saman aukn-
ingu kaupmáttar tímakaups og
aukningu þjóðartekna. í>jóðar-
tekjurnar hafa aukizt, vegna
yfirvinnunnar m.a. og því hafa
þær aukizt meira en kaupmátt-
ur tímakaups. Ef meta á, hvort
launþegar hafi bætt kjör sín
í hlutfalli við þjóðartekjur, er
því auðvitað eðlilegra að miða
Við atvinnutekjur eða ráðstöf-
Unartekj ur, og sé það gert, kem
lir í ljós, að kaupmáttur at-
vinnutekna eða ráðstöfunar-
tekna, hvort heldur sem miðað
er við, á tímabilinu 1&60-1965,
hefur aukizt meira en þjóðar-
tekjurnar. Skv. tölum Efnahags
etofnunarinnar hafa raunveruleg
er þjóðartekjur á þessu tímabili
aukizt um 3i2,2%, en atvinnu-
tekjur verikamanna í Reyfkja-
vílk hafa á sama tíma-
bili aukizt um 46,2% reiknað
á föstu verðlagi, en ráðstöf-
unartekjur um 36% en hvoru
tveggja er hærri hlutfallstala en
raunverulegar þjóðartekjur
bafa aukizt. Hitt er svo auð-
Vitað rétt, að lífskjörin hafa
ekki batnað sem þessu nemur,
ef vinutími hefur lengst, þótt
hitt sé annað mál, að það er
erfitt að meta frádrátt, vegna
þess tölulega. En úr því að ég
hef gert ræðu hv. 4. þm. Norð-
url. e. og þær tölulegu upp-
lýsingar, er fram komu í henni
*vo mjög að umtalsefni, vil ég
ekki ljúka svo máli mínu, að
tninnast ekki þeirra jákvæðu
viðhorfa, sem í henni komu fram
og þeirra ummæla hans, sem ég
tel ástæðu til að fagna Því að
þrátt fyrir allt,' kom hjá hon-
uim fram skilnin.gur á því, að ef
Verkalýðurinn á að geta vænzt
érangurs í kjarabaráttu sinni,
má ekki hjakka sífellt í sama
farinu, nota alltaf sömu vígorð-
in og baráttuaðferðirnar, held-
ur laga sig að breyttum þjóð-
félagsaðstæðum og grípa þau
tækifæri, sem hverju sinni bjóð
ast. Það er einmitt vöntun á
slíkum skilningi frá ísl. verka-
lýðsforingjum, sem öðru frem-
ur hefur valdið því, að árang-
Urinn í kjarabaráttunni hefur
löngum verið svo magur, sem
raun hefur verið á, og á það
ekki sízt við tvo síðustu ára-
tugina. Hvað snertir, að knýja
fram hærra kaup í krónutölu,
hafa ísL verkamenn að vísu met,
•amanborið við önnur Vestur-
Evrópulönd, en það sama á því
miður ekki við, ef meta á kaup
hækkanir til raunhæfra kjara-
t»óta, en það má vitna til út-
reikninga, sem hv. 3. þm. Reykv.
Kinar Olgeirsson, hefur á und-
anfömum þingum látið útbýta
með frv., er hann hefur haft
og bera þeir útreikningar ein-
mitt þessu ömurlegt vitni. Tveir
áfangar í baráttunni gnæfa þó
þar upp úr, samkomulagið, sem
núverandi forseti ASÍ, hv. 5. þm.
Vestf. beitti sér fyrir til lausn-
«r jólaverkfallinu 1952, og sætti
þá miklu aðkasti fyrir af hinum
ovokölluðum róttæku öflum
'verkalýðshreyfingarinnar, og
«vo aftur júní-samkomulagið
1964. Það var að vísu samið þá
um minni beinar kauphækkan-
ir en oftast endranær, og í fyrra
tilvikinu raunar ekki um nein-
•r, en þær kjarabætur, sem um
var samið, héldust hins vegar
áskertctr. Berum nú þetta sam-
*n við árangurinn af því, þeg-
ar að vísu hefur í bili tekizt
•ð knýja fram 10-15% almenn-
*r kauphækkanir, eftir langa og
dýra verkfallsbaráttu, en svo
hefur allt runnið út í sandinn
i hækkuðu verðlagi, þannig að
árangurinn í bættum kjörum
hefur oft verið orðinn enginn
löngu áður en búið hefur verið
•ð vinna upp herkostnaðinn við
verkfaUið.
Tízkan
í dag
Nýkomið sending a£
ARWA sokkum.
Tízkulitir.
Tíbrá
Laugavcgi 19.
Verzlunin PERSÍA
Gólfteppi og mottur í mörgum stærðum og
gerðum nýkomið.
Wilton teppadreglar 366 cm. breiðir.
Teppalagnir eftir máli.
Sæusk rýja teppi. — Mýnztrin og litaval gert
af hinni þekktu listakonu Marianne Richter.
Manilla hsgögn fara vel með öðrum hsúgögn,-
eða ein sér. Nýkomið: stólar, borð, blaða-
grindur, ruggustólar og kollar.
Verziunin PERSÍA
Laugavegi 31 — Sími 11822.
— / hraunsprungu
Framh. af bls. 5
Ég fer innan tíðar ásamt kunn
ingja mínum að sprungunni og
hef í hyggju að síga þar niður
til að ná í byssuna, sem er
dýr og góður gripur.
— Eftir eina og hálfa
klukkustund komu fjórir
menn með syni mínum að
sprungunni og höfðu þeir
reipi meðferðis, sem þeir létu
síga niður. Ég vil senda þess-
um mönnum mínar beztu
kveðjur og þakklæti, en þeir
eru ' Gunnar J. Guðjónsson,
Þorvaldur Axelsson, Pétur
Símonarson frá Vatnskoti og
Halidór Erlendsison. Það er
ilit að segja fyrir um hvernig
hefði farið, ef þeir hefðu ékki
komið í tæka tíð, en þegar
leið að kvöldi fór að hvessa
Og snjóa og skilyrði til að leita
í hrauninu mjög slæm vægast
sagt
— Þrátt fyrir þetta hélt ég
veiðunum áfram enn uim
stund, þegar upp var komið
með öðru skotvopni og hafði
þrjár rjúpur upp úr krafsinu,
sem er ekki mikíl eftirtekj*
eftir þvilíkt ævintýri. Ég sá
ekki ástæðu til að leita læka
is þá, en er ég kom aftur til
Reykjavíkur var ég allmjög
farinn að stirðna og læknir,
sem býr hér á hæðinni yfir
mér, rannsakaði meiðslin, sem
voru tognun og mar. Nú er
ég hins vegar alheill og kenni
mér einskis mein.
— Það þarf ekki að fjölyrða
um nauðsyn þess að vera vel
búinn, þegar haldið er á
rjúpnaveiðar því allt getur
komið fyrir. Hins vegar sé ég
ekki ástæðu til að hrakfarir
mínar á laugardagsmorguninn
verði til þess að fæla menn
frá því, að stunda rjúpna-
veiðar. Það eru ekki veiðarn-
ar sjálfar, sem mest aðdráttar
afl hafa fyrir mig, heldur sú
hollusta, sem útiverunni fylg-
ir og hreyfingin, sem er bráð-
nauðsynleg hverjum manni.i
— Það er mikið kraftaverfe
að ekki fór verr í þetta sinn
en á horfðist í fyrstu og
aldrei hef ég orðið eins feg-
inn að sjá aftur sólina: segir
Jón flugstjóri að lokum.
Kornelius Jónsson, úrsmiður
Skólavöröustíg 8 — Sími 18588.
Eldhús-
innréttingar
tízkan í dag
SELL — hinar frægu þýzku Sell-eidhúsinnréttingar (úr
plasti eða stáli), í íbúðir, félagsheimili, hótel, spítala, báta
og flugvélar. Allir eldhússkápar klæddir þýzkum „Form-
ika“-plötum, og falla saman með mm nákvæmni, — og fylli
stykkjum ef með þarf. — Mjög hagkvæmir vaskar (margar
gerðir) — fást með hljóðeinangrun ef óskað er. —
Allir hlutir og innréttingar sérsmíðaðir samkv. teikningum,
hvort heldur er í hús, báta (skip) o. s. frv. Rafmagnstæki og
vélar frá hinum viðurkenndu þýzku Burger-verksmiðjum
— (aðrar tegundir fást ef óskað er). Hagstætt verð (sölu-
skattur innifalinn). — Hagstæðir greiðsluskilmálar.
Hinir vandlátu nota SELL
1. flokks þýzk úrvalstækni.
MÁLNINGARVÖRUR HF„ Bergstaðastr. 19. - Sími 15166.