Morgunblaðið - 04.01.1967, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1067.
Bessi Bjarnason, Jón Júlíusson, Margrrét Guðmundsdóttir o« Snjólaug Guðjónsdóttir í hlutverk
um sínum. Myndin er tekin á æfingu fyrir skömmu.
Galdrakarlinn í Oz
Barnaleikir Þjóðleikhússins
í BYRJUN jan. frumsýnir Þjóð-
leikhúsið barnaleikritið Galdra-
karlinn í Oz eftir John Harryson,
en leikurinn er byggður á sam-
nefndri sögu eftir Fraruk Baum.
Hulda Valtýsdóttir hefur þýtt
leikinn, en Kristján frá Djúpa-
laek þýðir ljóðin og hetfur auk
þess bætt nokkrum ljóðum við
í leikinh. Birgir Engiiberts gerir
leikmyndir og er þetta frumraun
hans á því sviði, en hann hetfur
numið leikmyndagerð hjá Þjóð-
leikhúsinu í sl. fjögur ár. Carl
Billioh stjórnar hljómsveitinni og
hefur auk þess samið nokkur af
lögunum, sem sungin eru í
leiknum. Leikstjóri er Klemenz
Jónsson.
Þeir, sem fara með helztu hlut-
verkin í leiknum, eru: Margrét
Guðmundsdóttir, Bessi Bjarna-
son, Árni Tryggvason, Jón Júlí-
Geldingaholti, 22. des.
UNGMENNAFÉLAG Hruna-
manna hefur að undanförnu æft
enska gamanleikinn „Tengda-
sonur óskast“ eftir William
Douglas Home og var frumsýn-
ingin í Félagsheimili Hrauna-
manna að Flúðum 15. þ.m.
Leikstjóri er Pétur Einarsson,
en með hlutverkin, sem eru 8
fara: Sigurbjörg Hreiðarsdóttir,
Guðm. Ingimarsson, Guðrún
Sveinsdóttir, Guðrún Magnús-
dóttir, Jóhanna B. Ingólfsdóttir,
Kjartan Helgason, Loftur Þor-
steinsson og Katrín Ólafsdóttir.
' Þessi leiksýning hjá Hruna-
mönnum tókst ágætlega, allir
leikenda skiluðu hlutverkum sín-
um vel og heildarsvipur sýning-
arinnar góður, en þessi gaman-
leikur krefst létts og fjörugs
leiks.
Aðalhlutverkið er leikið af
usson, Svarrir Guðmundsson,
Nína Sveinsdóttir, Bríet Héðins-
dóttir og Valdimar Láruisson og
fleiri.
Auk þess kama fram í leiknum
15 börn úr Listdansskóla Þjóð-
leikhússins og annast Fay Wern-
er dansatriði í leiknum og semur
dansana.
Barnaleikritið Galdrakarlinn
í Oz er létt og skemmtilegt barna
ævintýri í 9 myndum, með mörg
um söngvum og dönsurn. Margir
munu kannast við samnetfnda
kvikmynd, sem sýnd var hér
fyrir allmörgum árum og lék
hin þekkta kvikmyndaleikkona
Judy Garland aðalhlutverkið í
myndinni. Þar söng hún m. a.
hið þekkta lag, „Ofar regnbogans
gliti", sem margir munu kann-
ast við og er eitt atf aðallögun-
um í leiknum.
Sigurbjörgu Hreiðarsdóttur, sem
er sunnlenzkum leikhúsgestum
að góðu kunn frá fyrri leiksýn-
íngum Hrunamanna. Virtist mér
leikur hennar í þessu mikla og
erfiða hlutverki mjög góður,
léttur og heilsteiptur frá upphafi
til enda, en hún er á sviðinu nær
allan leikinn. Hygg ég að Sigur-
björg sé með fremstu leikkonum
hér austanfjalls. Af öðrum leik-
endum vakti leikur Kjartans
Helgasonar, í ’litlu hlutverki sér-
staka athygli, en hann hefur um
árahil verið einn af beztu leik-
urum Hrunamanna.
Áhorfendur tóku leiknum
mjög vel og voru leikstjóra og
leikurum þökkuð ágæt frammi-
staða með dynjandi lófataki og
blómum í leikslok.
Hrunamenn munu nú eftir
áramótin sýna leikinn víðs veg-
ar um Suðurland. — Jón.
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
Þoka teppti
flagsamgéngur
SÍÐDEGIS á mánud. gerði mikla
þoku í Reykjavík og nágrenni,
og hafði það m.a. í för með sér
að allar flugsamgöngur um
Reykjavíkurfluigvöll og einnig
um Kefl'avíkurflugvöll lögðust
niður. Þegar þokan skall á munu
nokkrar vélar hafa verið að búa
sig undir lendingu á Reykjavík-
urflugvelli, og tókst þeim að
lenda smá saman eftir því sem
rofaði til. Tvær flugvélar, önn-
ur frá Flugsýn á leið frá Aust-
fjörðum og flugvél frá Birni Páls
syni á leið frá Blönduósi urðu
að snúa við, svo og þurfti ein
Loftleiða flugvél á leið ti'l ís-
lands að lenda í Prestvík.
„Litla gula
hænan“
NÝLEGA er komin út hjá Rík-
isútgáfu námsbóka ný útgáfa af
Litlu, gulu hænunni.
Að þessu sinni er bókin örlít-
ið stytt af því að felldir hafa
verið niður fáeinir þyngstu kafl-
arnir, aðallega vísur og kvæði.
Hins vegar eru hinar vinsælu
sögur óbreyttar frá því, sem var
i fyrri útgáfum.
Vandað hefur verið til þessar-
ar útgáfu bókarinnar eftir föng-
um. Hún er prýdd fjölda lit-
mynda eftir Baltasar og mó
vænta, að þær falli hinum ungu
lesendum vel í geð.
Á kápu bókarinnar er minnzt
sérstaklega höfundarins, hins
ágæta skólamanns, Steingríms
Arasonar.
Litla, gula hænan hefur lengi
notið mikilla vinsælda og vænt-
ir útgefandi þess, að ekki dragi
úr þeim, er bókin kemur út í
nýjum búningi.
p-^ninCTu annaðist Ríkisprent-
smiðjan Gutenberg, en Litbrá hf.
i piunaul.
Guðrún Magnúsdóttir, Sigurbjörg Hreiðarsdóttir, Katrín Ól-
afsdóttir og Kjartan Helgason í hlutverkum sínum.
Ungmennolélog Hnuiomannn
sýnir „Tengdusonur óskast“
Sænskur vélsleði
sýndur í Hveradölum
NDKKRUM gestum var um
hátíðarnar boðið að sjá og reyna
nýtt farartæki, sem ætlað er til
ferðalaga í snjó og ófærð; sænsk
an snjósleða. Var hann reyndur
upp við Skíðaskála í Hveradöl-
um Snjósleðinn er frá fyrirtæk-
inu A.B. Wester&smaskiner í Sví
þjóð, en fyrirtækið hefur reynslu
í framleiðslu snjóbíla. Snjósleði
þessi nefnist „Sno-Tric SC-1“ og
er gerður til að flytja 2 menn,
en getur auk þess dregið allmik-
inn farangur á sleða.
Sleðarnir voru reyndir við
mismunandi aðstæður á slétt-
lendi og í brekkum, og vakti
hæfni þeirra í brekkum sérstaka
athygli, en sleðarnir fóru hik-
laust upp allar helztu skíða-
brekkurnar í nágrenni Skíðaskál
ans. Ekki er þó ráðlegt að reyna
að beygja eða snúa sleðunum
í miklum bratta vegna velti-
hættu.
Á jafnsléttu eru sleðarnir mjög
liprir í snúingum og viðbragðs-
snöggir. Hámarkshraði þessara
sleða er um 50 kólómetrar á
klukkustund.
Forstjóri Clóbus hf., Arni
Gestsson, sem flytur þessa sleða
inn gaf nokrar upplýsingar um
sleðann. Kvað hann framleidd-
ar tvær gerðir, SC-1 sem þarna
var reyndur, og stærri gerði SC-2
Báðir sleðarnir eru búnir 10
hestafla loftklældum benzín-
hreyfli en stærri sleðinn er hæg
gengari, hámarkshraði um 40
kílómetrar. Drifbelti sleðanna
er úr nylonstyrktu gúmmíi. Að-
almunur sleðanna er sá að minni
gerðin SC-1 er búinn 2 stýris-
skíðum og einu drifbelti, en
stærri gerðin er með einu stýr-
isskíði og tveim beltum. Stærri
gerðin er allmiklu þyngri veg-
, um um 200 kg. og er vegna
breiðari belta stöðugri. Þá er
dráttarhæfni hans einnig mun
meiri en litla sleðans. Stærri,
sleðinn flytur auðveldlega 2 far-
þega auk ökumanns, alls þrjá.
Flothæfni beggja sleðanna er
mjög mikil, þrýstingur þeirra á
hvern fercm. er aðeins 0,03 kg.
Árni Gestsson upplýsti að vél-
sleðar þessir hefðu náð miklum
vinsældum í Skandinavíu, og
væri nú einnig farið að flytja
þá vestur um haf til U.S.A. og
Kanada. Erlendis eru þessir
sleðar mikið notaðir sem sport-
tæki en auk þess til ýmis konar
eftirlits og þjónustu s.s. síma
og raflínuviðgerða, læknis- og
póstferða o.fl o.fl.
Hér á landi hafa bændur sýnt
mjög mikinn áhuga á þessum
gerðum í snjóhéruð landsins.
Árni upplýsti að lokum að toll-
ar af þessúm tækjum væru þvi_
miður mjög háir eða 80% og
hleypti þetta verði sleðanna
mjög upp. Verð minni sleðans
er um kr. 49.800 en stærri sleð-
inn SC-2 kostar um kr. 66.400.
Með sleðunum var sýndur
léttur og þægilegur dráttarsleði
fyrir 2 farþega. Sleði þessi er
bátlaga og þannig útbúinn að
hægt er að. tjalda yfir hann og
loka honum algjörlega.
Dráttarhæfni snjósleðanna vatr
reynd með því að setja 2 far-
þega í dráttarsleðann og 2 á snjó
sleðann og reyndist sleðinn ráða
allvel við þetta hlass á jafn-
sléttu og í nokkrum bratta. Eins
og áður er getið eru sleðarnir
reimadrifnir og stjórnast hrað-
inn af benzíngjöfinni og sé svo
hratt ekið að ökumaðurinn falli
af stöðvast sleðinn samstundis
og bíður ökumanns síns.
SNO-TRIC-vélsleðinn með sleða aftaní.
Loftpressa - framkvæmdamenn
Tökum að okkur sprengingar og fleygun í hús-
grunnum og holræsum. Einnig allt múrbrot.
Upplýsingar í síma 33544.
Innheimtumaður
Stórt heildsölufyrirtæki óskar eftir inn-
heimtumanni, hið allra fyrsta. —
Hentugt fyrir innheimtumann, sem getur
bætt á sig frekari innheimtum, eða sem
aukavinna fyrir mann, sem vinnur vakta-
vinnu.
Urnsóknir sendist í pósthólf 555 fyrir 8.
janúar nk., merkt: „Innheimta“.