Morgunblaðið - 04.01.1967, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1967.
11
Sjötugur í dag:
Ingimar Finnbjörnsson
útgerðarmaður Bflnífsdal
í DAG á einn af dugmestu og
athafnasömustu borgurum í Hnifs
dal sjiötugsafmseli. I>að er Ingi-
mar Finnlbjörnsson útgerðarma'ð-
ur. Þessi heiðunsmaður er einn af
Ibrautryðjendum í atvinnumálum
þessa þróttmikla framleiðslu-
Qayggðarlags. Hann hefur um ára-
tugaskeið stundað þar skipstjórn,
lútgerð og verkstjórn. Að öllum
þessum störfum hefur hann geng-
ið af miklum áhuga, góðvild og
Bkilningi á þörfum heimaibyggð-
ar sinnar. S'líkir menn vinna ó-
metanlegt gagn í þágu héraða
sinna.
Ingimar Finnibjörnsson fæddist
4. janiúar 1897 að Görðum í Aðal-
Vík í Sléttuhreppi. ForeLdrar
Ihans voru myndarhjónin Hail-
dóra Halldórsdóttir og Finníbjörn
Elíasson. Fluttust þau vestur í
IHnífsdal þegar Ingimar var fjög-
urra ára gamall. Hefur hann átt
heima í Hnífsdal æ síðan. Hann
hóf sjósókn með fö'ður sínum
jþegar á barnsaldri. Reyndist
Ihann snemma þrekmikill og harð
fengur sjómaður. Varð hann
þegar á unga aldri formaður á
bátum í Hnífsdal, fyrst á annarra
útgerð en síðar á eigin bátum.
Hafði hann þá forgöngu um kaup
nýrra og stærri báta og reynd-
ist hinn farsælasti skip-stjóri.
Sótti sjóinn fast og var ágætur
aflamaður.
Hnifsdal og Hnífsdælingum til
hagsbóta og menningarauka.
Hann er því einn í hópi þeirra
manna, sem mest ber að þakka
það að HnifsdaluT er í dag eitt
af þróttmestu athafnabyggðalög-
unum á Vestfjörðum, og þótt við-
ar væri leitað. Samiheldni og
dugnaður fólksins mótar alian
bæjarbrag í Hnífsdal. baðan hafa
og komið margir af frábærustu
afla- og dugnaðarmönnum ís-
lenzka fiskiskipaflotans, bæði tog
ara og vélskipa.
'k
Kona Ingimars Finnbjörnsson-
ar er Sigríður Guðmundsdóttir
frá Fossum, glæsileg og mikil-
hæf hiúsmóðir, sem búið hefur
honum og börnum þeirra fagurt
og hlýlegt heimili. Eiga þau fimm
börn, þrjár dætur Ingu, Hrefnu
og Margréti og tvo syni Guð-
nund stýrimann, sem lengi hef-
ur siglt á skipum Eimskipafélags
ísilands og Bjöm Elliías, sem er
skipstjóri heima í HniífsdaL ÖU
Hryssa kastar
í skammdeginu
'k
í>að mun hafa verið nokkru
eftir 1940 að Ingimar hætti sjálf-
ur skipstjórn, en gerðist starfs-
maður við hraðfrystihús Hnífs-
dælinga. En hann var einn af
stofnendúm og forystumönnum
þess fyrirtækis, sem allt frá upp-
hafi hefur verið hyrningarsteinn
í atvinnulífi Hnífsdælinga. Hefur
það jafnan verið vel stætt og
égætlega reki'ð fyrirtæki. Ingi-
imar varð fyrst vélstjóri eftir að
faann fór i land, en síðar verk-
stjóri við hraðfrystihúsið. Varð
hann þar nokkru síðar fyrir al-
varlegu slysi, sem dró verulega
úr starfskröftum hans um skeið.
En með einstæðum kjarki og
dugnaði tókst honum að komast
®ð mestu leyti yfir þetta áfall,
og hé'lt áfram störfum við fyrir-
tækið.
Útgerð og öll störf Ingimars
IFinnbjörnssonar hafa jafnah mót
ast af sérstakri fyrirhyggju og
góðri þekkingu á öllu er að sjó-
sókn og sjómennsku lýtur. Allt
Oiífsstarf hans hefur veri'ð nátengt
Kjónum frá blautu barnsbeini.
Ingi-mar Finnbjörnsson hefur
tekið mikinn þátt i félagsmál-
um í byggðarfagi sánu. Hann hef-
ur átt sæti í hreppsnefnd um
éraskeið, verið formaður ung-
mennafélagsins og beitt sér fyrir
fjölmörgum framfaramálum
Hnífsdælinga. Hann hefur haft
óþreytandi áhuga á uppbyggingu
byggðarlagsins og jafnan staðið
fremstur í flokki í baráttunni
fyrir hverju þvlí, sem verða mátti
Gaulverjabæjarhreppi, 30. des.
>AÐ bar við hér í sveitinni í
dag, er Guðjón bóndi í Gaul-
verjabæ var að huga að hrossum
sínum er á beit voru í landar-
eign hans, að hann fann hryssu,
nýkastaða. Var þetta fjögurra
/etra hryssa er Guðjón hafði
keypt á síðastliðnu haustL
Folaldið er brún hryssa og leið
mæðgunum ágætlega. Guðjón
brá skjótt við og gerði ráðstaf-
anir til þess að taka „móður og
barn“ til tilfalýðilegrar meðferð-
ar í húsi. I>ess þarf varla að geta
að slíkur viðburður er fátíður
að hryssur kasti á þessum tíma.
— Gunnar.
Föndurnámskeið í Hafnarfirði
Tveggja mánaða námskeið hefst 9. janúar fyrir
börn 5—7 ára. — Upplýsingar í sima 51020.
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir.
ylugnemar
Bóklegt námskeið fyrir einkaflugs- og
atvinnuflugspróf er að hefjast.
Mætið til innritunar fyrir 7. þ. m.
Flugskólinn Þytur
eru börn þeirra hjóna frábærlega
myndarleg og vel gert fólk. Hafa
þau öll öðlast góða mehntun.
Hafa foreldrár þeirra einskis lát-
ið ófreistað til þess að búa þau
öli sem bezt undir lífið.
Ég á mar^s að minnast frá
samskiptunum við Ingimar Finn-
björnsson, aillt frá unglingsárum
minum heima í DjúpL Á þau
samskipti ber éngan skugga.
Ingimar Finnbjörnsson er dreng-
ur góður, glaðvær og gestrisinn.
Það er ávallt ánægjulegt áð
koma á heimili hans og hans
góðu konu.
Skuggi sorgarinnar hefur und-
anfarið hvilt yfir Hnífsdal eftir
hörmulegan mannskaða rétt fyrir
jólin. Það var mikið áfall fyrir
þetta litla byggðarlag, og það
fólk sem þar býr. En margir
munu iþrátt fyrir það, minnast
Ingimars Finnbjörnssonar og
heimilis hans á sjötugsafmæli
hans í dag. Ég óska þessum
gamla vini innilega til ham-
ingju með sjötugs afmæHð, þakka
honum allt gott og drengilegt á
liðnum tíma og árna honum,
heimili hans og fjölskyldu allri
blessunar í nútáð og framtíð.
Ingimar Finrtbjörnsson verður
að heiman í dag.
S. Bj.
KUGFREYJUR
Flugfélag fslands hf. óskar að ráða flugfreyjur í
þjónustu sína, sem hefji störf á vori konianda á
tímabilinu apríl — júní.
Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamálinu
nauðsynleg.
Umsækjendur þurfa að geta sótt kvöldnámskeið,
sem hefjast væntanlega í febrúar r>k.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofum vorum, og
óskast þeim skilað til starfsmannahalds félagsins
fyrir 20. jan. nk.
Eldri umsóknir óskast staðfestar.
Þar sem verzlunin verðnr að liæfta á VESTUif-
GÖTU 2, 7. janúar nk. verður SK YIMIHSAL4
þessa daga og afsláttur gefinn — 10—50%
— af öllum vörum verzlunarinnar
Vesturgötu 2
Sími 20-300