Morgunblaðið - 04.01.1967, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 04.01.1967, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1967. 14 t Sonur minn og bróðir okkar Markús Guðjónsson lózt af slysförum 28. des. sl. Aðstandendur. t Eiginkona mín og móðir okkar, Margrét J. Gísladóttir. frá Þórustöðum I Bitru, Brekkubraut 17, Akranesi, andaðist á sjúkrahúsí Akra- ness, þann 31. des. 1966. Guðjón Ólafsson, börn og tengdabörn. t Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, og amma, Unnur Guðmundsdóttir frá Dæli, Fnjóskadal, til heimilis Álfheimum 66, Reykjavík lézt á Borgarsjúkra húsinu aðfaranótt 3. janúar. Kristinn Ámason, Jórunn Kristinsdóttir, Aðalbjörn Kristbjarnarson, Sigurlaug Kristinsdóttir, Einar Eggertsson, Hugrún Kristinsdóttir, Halldór Briem, og bamabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, Guðrún Jensína Halldórsdóttir Þórsgötu 10, verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni fimmtudaginn 5. þ. m. kl. 10,30 f.h. Athöfninni verður útvarpað. Þórey Þorkelsdóttir, Guðmundur Ilalldórsson, Ólafur Þorkelsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, barnaböm og barnabarnabörn. t Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar, Guðmundur Sveinsson bifreiðastjóri, sem andaðist að heimili sínu, Þórustíg 13, Ytri-Njarðvik, 31. des. verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni Hafnarfirði, fimmtudaginn 5. jan. kl. 2 e.h. Anna Elísdóttir og börn. t Jarðarför eiginkonu minnar Fríðu Bjarnason fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 5. jan. kl. 13,30. Árni Eiríksson. t Minningarathöfn um systur mína og fósturmóður, Guðlaugu Jónsdóttur frá Brennistöðum, Mýrarsýslu, Sólvallagötu 66, er andaðist á Borgarsjúkrahús inu 27. des. sl. fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 5. jan. nk. kl. 10,30 f.h. Jarð- sett verður að Borg á Mýrum laugardaginn 7. jan. 1967 kl. 2 e.h. Stefán Jónsson, Pálmi Eyþórsson. t Bróðir okkar, Jakob Guðmundsson er andaðist í Borgarspítalan- um 31. des. sL verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. janúar kL 3 e.h. Magnea Sæmundsson, Þórarinn Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför Svanhildar Þorsteinsdóttur Þorsteinn Sæmundsson, Stefán Sæmundsson, Erlingur Þorsteinsson. t Innilegar þakkir færi ég 611- um þeim, sem auðsýndu mér samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför mannsins míns, Þorsteins Jakobssonar tryggingamanns. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Ragnhildur Jónsdóttir. t Innilegt þakklæti fyrir auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför Ottós Hannessonar Magnúsína Friðriksdóttir, Hannes Hannesson og systkini. Guðbjörg Árnadóttir Minningarorð GUÐBJÖRG Árnadóttir fæddist á Eyrai'bakka 9. júní 1®84. For- eldrar hennar voru Árni Þor- varðsson járnsmiður og kona hans Ingilbjörg Gúðmundsdóttir. Þau eignuðust fjórar dætur, og var Guðbjörr þeirra yngst. Ein þeirra er enn á Mfi, Sigríður gift Almar Norman. Þau búa í Silfurtúni, GarðahreppL Þegar Guðlbjörg var á öðru ári var henni komið í fóstur til ömmu sinnar Önnu Sigurðardótt- ur, sem þá bjó á Syðri-Hömrum í Holtum í Rangárvallasýslu á- samt Tómasi Vigfiússyni fóstur- syni sínum. Tómas tók Guðbjörgu að sér, ,'>egar ömmu hennar naut ekki lengur við. Minntist hiún jafnan ömmu sinnar og fóstra með miklu þakklæti og innileik, og elsta son sinn lét bún heita eftir honum. Á Syðri-Hömrum var Guðibjörg 1896, þegar jarð- skjálftarnir miklu dundu yfir. Þetta voru harðinda tiímar eins og allir vita, einhverjin þeir verstu, sem yfir landið hafa gengið, aflefðingar eldgosa, ísa- laga og jarðskjálfta. Fólk leitaði jafnvel í aðrar heimsálfur eftir betri afkomu. Foreldrar Guðlbjargar höfðu flutt til Norðfjarðar sennilega í von um betri afkomu. Á Aust- fjörðum var um þetta leyti gróskumeira atvinnulíf en ann- ars staðar á landinu vegna mik- illar síldveiði. Guðlbjörg fluttist austur á Norðfjörð til foreldra sinna, Iþegar hún var 13. ára. Um skólgöngu var ekki að ræða á þessum árum fyrir ungl- inga. Þeir urðu að sjá um sig sjálfir strax eftir fermingu og sumir fyrr. En það þótti kostur áð koma þeim fyrir á myndar- legum sveitaheimilum, því þar gætu þeir lært ýmislegt, sem síðar mátti verða þeim að gagni í Mfinu. Guðbjörg vandist því snemma ýmsum störfum til sjáv- ar og sveita. Hún dvaldi um skeið bæði á Egilsstöðum og Dvergasteini. Á þessum slóðum bar fyrst saman fundum þeirra Vigfúsar Sigurðssonar, sem þá var þar póstur. Þau fluttust til Reykjavíkur og giftu sig þar 21. febr. 1906. Þau bjuggu fyrst í Reykjavík, en Siiðan um skeið á Brekku á Álftanesi. Þar áttu þau heima, þegar Vigfiús fór í hinn fræga Grænlandsleiðangur með J. P. Kodh 1912—1913. Þá flutti Guð- björg til Reykjavíkur og dvaldi þar meðan Vigfiús var á Græn- landL Árið 1915 gerðist Vigfús vita- vörður á Reykjanesi og var það Þórunn Kristjáns- dóttir — Kveðja F. 12/8 1880 — D. 22/11 1966. KVEÐJA Með klökkum hug á kveðjustund ég kyssi minning þína. Þú bauðst mér varma vinarmund, það vermdi sálu mína. Og faðminn blíðan breiddir þú mót barni mínu kæra. í vinarhug — í von og trú — þér vil ég þakkir færa. í ættarhóp er höggvið skarð, því hrynja tár um vanga. Að kveðja mæta móður varð svo mörgum erfið ganga og vinafjöld og frændalið þér „fylgja“ — þakka og sakna, því langa tryggð um lífsins svið þú lézt af hjarta rakna. Þú áttir hressa hetjulund, og höfðingssinni barstu, er sæmdi hverri hefðarhrund — svo hlý og gjöful varstu. Þú góðvild þinni gladdir mig þá geymi ég ósk í hjarta að Guð um eilífð gleðji þig við geisla dýrðar bjarta. Ingibjörg Sumarliðadóttir. Alaír (NTB-AFP). Brezhnev, aðalritari sovézka kommúnistaflokksins, mun á næstunni beimsækja Alsír í boði forsætisráðherrans, Houari Bou- medienne, að sögn sovézka sendi herrans í Alsír. Heimsóknartím- inn hefur enn ekki verið ákvéð- inn. Hafnfirðingar. Hjartans þakkir færi ég ykk ur fyrir alla þá vinsemd, sem þið hafið sýnt mér síðan ég flutti í Hafnarfjörð. Allar gjaf ir og aðstoð mér og fjölskyldu minni til handa á liðnum ár- um. Sérstaklega þakka ég síra Garðari Þorsteinasyni, pró- fasti og öðrum þeim aðilum, sem buðu mér til Svíþjóðar á sl. hausti til sjúkraþjálfunar og limakaupa. — Allan þann höfðingsskap þakka ég hjart anlega og bið Guð að blessa ykkur ÖIL Sigurður Steinþórsson, Selvogsgötu 24, Hafnarfirði. t Við þökkum vináttu og samúð, vegna fráfalls föður okkar, tengdaföður og afa, Halldórs Kr. Þorsteinsonar skipstjóra, Háteig. Dætur, tengdasynir og barnabörn. t Alúðarþakkir til allra er sýndu mér samúð og vináttu við fráfall eiginkonu minnar, Kristjönu Bjarnadóttur Guð blessi ykkur öll. Sigurður Sigmundsson, Syðra-LangholtL Öllum hinum mörgu vinum okkar nær og fjær, sem hugs- að hafa hlýtt til okkar og veitt okkur margvíslega hjálp á iiðn um árum þökkum við af al- hug. — Blessunaróskir okkar til ykkar allra, vinir, á nýja árinu. Guðrún og Sigurjón H. Sigurðsson, Teig, AkranesL um 10 ára skeið. Guðbjörg og Vigfús bjuggu við mikla rausn á Reykjanesi þrátt fyrir Mtili efni. Þau héldu heimiliskennara á sinn kostnað. Slíkt tíðkaðist þá ekki nema á efnaðri heimilum. Gestakoma var mikil, því að ferðamenn áttu þar oft leið um til að sjá vitann, sem þótti r.ið mesta mannvirki. Einnig kom fyrir að bjarga þurfti mönnum í sjávarháska, hýsa þá og fæða. Eitt sinn sökk þýzkur togari, ea mannbjörg var. Vigfús átti mik- inn hlut í þeirri björgun og blaut þakkir og viðurkenningu þýzku ríkisstjórnarinnar fyrir. En mikill hefur Mka verið hlutur húsmóð- urinnar: fyrst a'ð sjá um að færð væri heit næring á björgunar- stað, síðan að undirbúa gistingu, þurran fatnað og mat handa heilli skipshöfn. Vigfús og Guðbjörg fluttust til Reykjav'íkur 1925 og áttu þar heima eftir það. Þau eignuðust 8 börn, sem öll eru á lífi: Tómas giftur Katrínu fædd Nprgárd, Gunnlþóra ógift, Ólafur giftur Þóru Jónsdóttur, Anna ógift, Svanhildur gift Ing- ólfi Geirdaþ Sigurður Árni ógift- ur, Auður gift Jónasi Þórðarsyni og Jóhann giftur Margréti Sigur- jónsdóttur. BarnaJbörn eru 17 og Guðbjörg lífði það að eignast 3 barnabarnabörn. Eftir að Guðbjörg fluttist til Reykjavíkur hafði hún nokkur afskipti af félagsmálum var t.d. í Góðtemplarareglunni og vann af dugna'ði að þeim málum með- an henni entist heilsa. Ég kynntist ekki Guðbjörgu fyrr en hún var komin á sextug9 aldur. Ung mun hún hafa venð fríð kona. Það sem mér fannst setja mestan svip á andlitið var hátt og fallegt enni. Hún mun hafa verið þrekvaxin alla táð og steig fast til jarðar eins og tátt er um skapmikið fólk. Miðað við sína kynslóð hefur hún verið meðal kvenmaður á hæð og vel það. Ef ég ætti að segja tiil hvera mér hefði fundist Guðbjörg bezt fallin, þá var það til að standa fyrir miklu gestalboði. Hún naut sín 'vel innan um fólk og hafði yndi af að veita af rausn. Hún hafði djarfa framkomu. Auð- mýkt átti hún ekki gagnvart mönnum, nema lítilmagnanum, En hún átti auðmjúkt hjarta gagnvart þeim guðg sem henni var kennt að trúa og treysta, þegar hún var barn. Hún trúði líka á endurfundi við Mtna ást- vini. Hún taldi sig engu þurfa að kvíða þó að hennar líf hefði ekki verið brestalaust fremur en ann- arra daúðlegra manna. Litið barnabarn hennar, sem oft svaf hjá ömmu sinni, sagði við mig: „Eg lærði allar bænir rnínar hjá henni ömmu. En hún flíkaði þessu Mtt við aðra. Síðustu stund irnar var henni mest hugsað til yngstu niðjanna og áminnti okk- ur, sem eldri voru, um að hlúa að þeim. Þannig bað hún fyrir því lífi, sem hún sjálf var að kveðja. Guðbjörg virtist ern og við sæmilega heilsu þar til fyrir rúmu ári, að vart varð illkynjaðs meins, sem fjarlægja varð með mikillli aðgerð. Hlún virtist fá all- góðan bata um skeið- En þegar líða tók á sumarið fór henni að þyngja aftur. Hún lagðist á s'júkrahús í haust og komst ekki á fætur eftir það. Síðustu vik- urnar lá hún á sjúkradeild Hrafa istu og þar andaðist hún aðfara- nótt annars jóladags á 83. aldur* árL I. G,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.