Morgunblaðið - 04.01.1967, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MlÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1967.
15
Hermann J. Thorsteinsson
Fæddur 3. jan. 1898
Dáinn 6. dess. 1966
Fötmál dauðans sérhvert sinn,
særir hópinn vina.
Ertu horfinn Hermann minn,
íheim í eilífðina.
Minning eina á ég nú,
yfir farnar slóðir.
Er saman unnum ég og þú,
alltaf vinir góðir.
í>ó við ættum erfitt fneð,
eeðimörgu að sinna.
Þitt var jafnan glaðvært geð,
og gott með þér að vinna.
Þá var allt með öðrum blæ,
en um þessar mundir.
Þér ég núna þakkað fæ,
þínar glöðu stundir.
Hafðir sanna og hreina trú,
heims frá leystur pínum.
Lausnarinn þig leiðir nú,
í líknararmi sínum.
Þinnar æfi er sigin sól,
svona burt án tafar.
Lifðu heill um heilög jól,
hinumegin grafar.
Angantýr Jónsson.
Vöruskiptajöfnuður
í nóv. var hagstæður
HAGSTOFA Islands hefur sent
írá sér bráðabirgðatölur fyrir
Éyrstu 11 mánuði ársins yfir
Verðmæti innflutnings og út-
flutnings. Samkvæmt tölunum
er vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
Btæður um 1008 millj. 122 þús.
kr., en var á sama tíma í fyrra
óhagstæður um 445 millj. 362
þúsund krónur.
Útfutningur í fyrra nam 4723
millj. 510 þús. kr., en í ár 5102
millj. 940 þús. kr.
Innfliutningur í fyrra nam 5168
ínillj. 872 þús. kr., en nú 6111
millj. 62 þús. kr. Meðtaldar í töl
unum um innflutning eru tölur
um innflutt skip og flugvélar.
Þær tölur námu í fyrra 467
millj. 960 þús. kr., en nema nú
388 millj. 680 þús. kr.
í nóvember nam innflutningur
nú 553 millj. 734 þús., en á sama
tíma í fyrra 516 millj. 360 þús.
kr., en útflútningur nú 656 millj.
124 þús.' kr., en í nóv. í fyrra
518 millj. 726 þús. kr.
Vöruskiptajöfnuður í nóvem-
bermánuði einum er því hag-
stæður um 2 millj. 390 þús. kr.
en var á sama tíma í fyrra hag-
stæður um 2 millj. 366 þús. kr.
Alþjóðaráðstefna
kommúnista í ár
,,Izvestia" segir hana munu verða
haldna, og erlendir fréttaritarar
í Moskvu telja, að svo verði
Moskva, 2. janúar — NTB
MÁLGAGN sovézku stjórnarinn
»r, „Izvestia", lét að því liggja
fi dag, að á þessu ári yrði hald-
inn alþjóðafundur leiðtoga
kommúnistaríkja. 1 frásögn
blaðsins var birtur listi yfir höf
Uðborgir kommúnistarikjanna,
en á þann lista vantaði nöfnin
Feking, Tirana og Belgrad.
Greinarhöfundur, A. Matve-
jev, segir, að komin sé fram um
það krafa í mörgum þeirra ríkja
sem tekið hafa upp stjórnar-
bætti kommúnista, að kommún-
fetar taki höndum saman í bar-
ítttunni gegn heimsvaldasinnum.
®egir Matvejev, að gott sé að
ihafa í huga þessa kröfu, þegar
menn láti hugann reika að því,
sem kann að eiga sér stað í
beimi kommúnista á nýja árinu.
Erlendir fréttaritarar 1
Moskvu-segja, að á því leiki eng
inn vafi, að ráðstefna sú, sem
*tð ofan er vikið, verði haldin í
ár. Enn er þó talinn leika á því
vafi, hvort til ráðstefnunnar
Hópfargjöld
lækka hjá Pan
Hinn 1. janúar s.l. gengu í gildi
hjá PAN AMERICAN ný „IT“
fargjöld á flugleiðinni milli ís-
iands og New York. Þessi far-
gjöld eru fyrir minnst 15 manna
hópa. Fargjaldið er kr. 6588.00
fyrir báðar leiðir. „IT fargjöld-
in á þessari flugleið voru áður
kr. 7234.00 en þau voru háð
ýsmsum skilyrðum. T. d. voru þau
nðeins í gildi vissa daga vikunn-
ar, en þessi nýju fargjöld gilda
«lia daga vikunnar og svo til
«dlt árið. Þessi fargjöld geta að-
•ins Ferðaskrifstofurnar selt, og
*kal fargjaldið vera hluti af
heildarverði „IT“ ferðar.
verður boðið öðrum Ieiðtogum
kommúnista en þeim, sem með
völd fara í heimlöndum sínum.
Fegurðardrottning heimsins fyrir árið 1966, hin indverska Reita Faria er um þessar mundir í
Suður-Víetnam. Hér -sést hún í hópi ákafra rit handasafnara, í Can Ranh herstöðinni.
Góiæri í Kína
Tókíó, 3. janúar (AP)
FRÉTTASTOFAN Nýja Kína í
Peking skýrði í dag frá því að
árið 1966 hafl verið mikið hag-
sældarár, og að miklar framfarir
hafi orðið á flestum sviðum fram
leiðslunnar.
Þetta var þriðja ár yfirstand-
andi fimm ára áætlunar, og fór
framleiðslan yfirleitt fram úr á-
ætlun. Þakkar fréttastofan hugs-
unum Mao Tse-tungs og „menn-
ingarbyltingunni“ góða efna-
hagsafkomu á árinu.
Engar tölur eru toirtar í sam-
bandi við þessa ársskýrslu, en
sagt að iðna'ðarframleiðslan hafi
verið 20% meiri en á árinu 1965.
Þrátt fyrir þurrka varð korn
og baðmullaruppskeran sú mesta,
sem komið hefur í sögu Kína.
Einnig hafa orðið stórstígar fram
farir á sviði tækni og vísinda, og
Hægri umferð
í undirbúningi
MORGUNBLAÐINU barst í gær
fréttatilkynning frá framkvæmda
nefnd hægri umferðar, en eins
og kunnugt er hefur Alþingi
samþykkt lög um að komið skuli
á hægri handar umferð annað
vor. Fréttatilkynningin er svo-
hljóðandi:
„Eins og kunnugt er sam-
þykkti síðasta Alþingi lög um
hægri handar umferð.
Samkvæmt þeim á að taka upp
hægri umferð á íslandi vorið
1968.
Undirbúningur er nú hafinn
að þeirri breytingu og hefur
Framkvæmdanefnd hægri um-
ferðar nú opnað skrifstofu að
Sóleyjargötu 17, og annast Bene-
dikt Gunnarsson tæknifræðingur,
sem nefndin hefur ráðið fyrir
framkvæmdastjóra, daglegan
rekstur hennar.
í höfuðatriðum verður verk-
svið nefndarinnar að fjalla um
breytingar, sem nauðsynlegt er
að framkvæma á bifreiðum,
breytingar á gatna- og vegakerf-
inu, þar með taldar breytingar
á umferðarljósum og umferðar
merkjum, og fræðsla og upp-
lýsingastarfsemi til þess að koma
í veg fyrir umferðarslys í sam-
bandi við breytingu á uroferð-
inni.
I Sviþjóð heifur, eins og kunn
ugt er, verið áfcveðið að hægri
urnferð verði tekin upp þar í
landi sunnudaginn 3. sept. 1967.
Til þess að kynna sér allan
undirbúning þar hefur íslenzka
framkvæmdanefndin farið til
Stokkhólms ásamt framfcvæmda-
stjóra sínum. Hefur framkvæmda
nefndin í Svíþjóð látið íslenzku
nefndinni í té margvíslegar upp-
lýsingar og aðstoð, sem mjög auð
velda allan undirbúning hér og
má vænta þess að hið mikla
starf, sem þegar hefur verið unn
ið þar að undirbúningi umferðar
breytingarinnar muni mjög auð-
velda undirbúninginn hér á
landi. Mun íslenzka framkvæmda
nefndin leggja áherzlu á að
fylgjast sem bezt með öllu und
irbúningsstarfi í Svíþjóð og færa
sér í nyt eftir föngum þá vinnu,
sem þar er af hendi leyst, enda
þótt augljóst sé að aðstæður séu
að mörgu leyti ólíkar í löndun-
um.
Framkvæmdanefnd hægri um
ferðar vonar að sem fyrst komizt
á náin og góð samvinna við alla
þá fjölmörgu aðila. í landinu, sem
breytingin úr vinstri í hægri um-
ferð snertir á einn eða annan
hátt og mun í því sambandi snúa
sér bráðlega til ýmissa samtaka
og félagsheilda, sem sérstaklega
má ætla að láti málið til sín taka.
Framkvæmdanefnd hægri um-
ferðar skipa: Valgarð Briem hdl.
formaður; Einar B. Pálsson, verk
fræðingur; Kjartan Jöhannsson,
læknir.“
bendir fréttastofan í því sam-
bandi á að sprengdar hafi verið
þrjár kjarnorkusprengjur á ái>
inu.
„ALlar þessar framfarir eru
nýir sigrar fyrir hugsanir Mao
Tse-tungs“, segir fréttastofan,
„og fyrir afrek hinnar miklu
menningarbyltingar alþýðunn-
ar“.
Súkarnó
skýringu
gefur
Djakarta, 3. janúar. AP.
ADAM Malik, utanríkisráðherra
Indónesiu skýrði fréttamönnum
frá þvi i dag, að Súkarnó for-
seti hefði fallizt á að gefa þjóð-
þinginu skýringu í sambandi við
misheppnuðu kommúnistaupp-
reisnina í landinu í fyrra.
Malik skýrði frá þessu eftir
að hann og æðstu menn þinsins
og hersins höfðu setið á 3ja
klukkustunda fundi með Sú-
karnó. Súharto ihershöfðingi
sagði að á fundi þessum hefði
vandamálið að endingu verið
leyst.
Síðustu daga hefur orðrómur
verið uppi um að Súkarnó hafi
hótað að segja af sér, ef ekki
yrði gengið að kröfum hans um
toreytingar á stjórn landsins.
Hann hefur lengi þverskallazt við
kröfu þingsins um að hann gæfi
því skýringu á uppreisninni og
þætti hans í henni. 1 síðustu viku
var gefin út yfirlýsing um að
hver sá sem óhlýðnaðist skipun-
um þingsins skyldi sæta þungri
refsingu. Eftir þessa yfirlýsingu
hafa fyrrnefndir aðilar átt 6
fundi með Súkarnó til að reyna
að komast að samkomulagi, en
ekfci tekizt fyrr en nú.
Hvað heitir bókin ?
UM JÓLIN komu margar bækur
á jólamarkaðinn. Það var því
nökkur vandí að velja bók í jóla-
gjöf.
Þessar fáu línur eru ritaðar til
þess að benda á eirna bók, sem er
örugglega hollur og skemmtileg-
ur lestur fyrir unglinga Það er
bófcin Bítlar eða Bláklukkur
eftir hjónin Jennu Jensdóttur og
Hreiðar Stefánsson, sem eru
bæði kennarar í Reykjavík og
hafa mikla reynslu í starfi sínu.
Þau hafa skrifað margar bækur
og hlotið sérstakar vinsældir.
Bítlar og Bláklukkur er bók,
sem snertir nútímann. Þar sjáum
við unglingana eins og þeir koma
fyrir sjónir í dag. Það er fjall-
að um vandamálin og það birtist
leið fram úr vandanum. Lýs-
ingin á atvikum er lifandi, frá-
sögnin létt og lipur, og jafnan
ný og ný viðhorf, svo að lesand-
inn kynnist lífi unga fólksins í
mörgum myndum.
Mest gildi hefir bókin vegna
þess, að hún fjallar raunhæft og
jáfcvætt um lífsstefnuna, sem
hver ungur maður verður að
taka afstöðu til. Það er hið
kristilega sjónarmið sem ræður.
Ég vil þakka rithöfundunum
ágæta bók og þann skerf, sem
þau hérmeð leggja til hinnar
kristilegu æskulýðsstarfsemi.
Allur ágóði af sölu bókarinnar
rennur til sumarbúðanna við
Vestmannsvatn.
Akureyri, 14. des. 1986
• Pétur Sigurgeirsson.
Starlsmaður S.Þ.
grunaður um njósnlr
New York, 30. des. AP.
TÉKKNESKUR starfsmaður hjá
framkvæmdaráði Sameinuðu
þjóðanna er grunaður um njósn-
ir, að því er upplýst var í aðal-
stöðvum SÞ á föstudag s.l. Tékk
inn bar fram kvartanir sínar
við U Thant, þegar honum varð
ljóst, að hann var undir eftir-
liti Bandaríkjastjórnar.
Skýrslur herma, að Tékkinn
hafi verið settur undir eftirlit,
þegar hann ryndi að fá upplýs-
ingar frá rannsóknarstofnun vís-
inda og hernðar. Talsmaður hjá
SÞ sagði, að málið væri í hönd-
um U Thant. Talsmaður þessi
neitaði að gefa upp nafn manns-
ins, en sagði, að hann væri ekki
í byggingu SÞ sem stæði.