Morgunblaðið - 23.02.1967, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 23.02.1967, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1967. 3 James K. Penfield, sendiherra, Gylfi Þ. Gíslason, menntamál aráðherra og Elizabeth Ful- bright, eiginkona öldungadeildarþingmannsins. (Ljósm.: Ól.K.M.) - FULBRIGHT Framhald af bls. 1 þeim hjónum hefði verið boðið í tilefni 10 ára afmælis Fulbright stofnunarinnar hér. Hann kvaðst hafa átt sæti í öldungadeildinni í 25 ár og allan þann tíma hefðu menntunarmál verið á- hugamál sín, og þá sérstaklega starfsemi Fulbright-stofnunar- innar. Vildi ekki ræða viðkvæm utanríkismál Hann kvaðst alltaf hafa verið þeirrar skoðunar, að á erlendum vettvangi bæri honum ekki að ræða viðkvæm bandarísk mál- efni. Hann kvaðst vilja taka þetta fram, þar sem blaðamenn vildu ætíð, að hann gagnrýndi stjórn sína fyrir stefnu hennar í Víetnammálinu. En hann kvstð enga launung á skoðunum sínum í því máli, enda skýrði hann oft frá þeim viðtölum við Associat- ed Press og aðrar heimsfrétta- stofur. Fulbright vék síðan að starf- semi stofnunarinnar, sem við hann er kennd, og sagði að hann hefði haft mikinn áhuga á menningarsamskiptum þjóða allt frá því hann fékk Rhodes-styrk til að stunda nám í Englandi, en hann hefði aldrei dvalizt erlendis fyrr. Á árum síðari heimsstyrj- aldarinnar hefði áhugi hans enn vaxið. 80 þúsund námsmenn hafa hlotið Fulbright-styrki Hann sagði, að námsmenn í 49 löndum nytu aðstoðar Fulbright- stofnunarinnar, þar á meðal í einu kommúnistaríki, Júgóslavíu, sem hann kvaðst hafa heimsótt fyrir 2 árum. Alls kvað hann um 80 þúsund námsmenn hafa hlotið styrki og um % hlutar þeirra væru erlendir. NATO mjög mikilvæg samtök Þeirri spurningu var beint til öldungadeildarþingmannsins, hvort hann teldi þörfina fyrir NATO minni nú, en þegar það var stofnað, og hvert hann teldi hættuna af kommúnismanum hafa minnkað í Evrópu. Hann svaraði: „Ég álít, að hættan af komm- únismanum hafi greinilega minnkað, sérstaklega hvað varð- ar beina árás, og ég álít einnig að aðdráttarafl hugmyndafræði- kenninga hans hafi einnig minnk að. Ég tel NATO sem stofnun og sem samtök mjög mikilvæg, en innan þeirra geta aðildarríkin mótað sameiginlega stefnu og vonandi skilning sín í milli. Með öðrum orðum, þá myndi ég harma mjög mikið að sjá þessi lönd fjarlægjast hvert annað og hafa ekki náið samband milli ríkisstjórnanna. Þetta er mjög mikilvægt. Hins vegar tel ég að þaðsé ekki lengur nauðsynlegt, að hafa stóran bandarískan her í Þýzkalandi. Ég held að her- sveitunum megi fækka verulega, jafnvel að tvö herfylki verði lát in nægja“. Herstöð á íslandi þýðingarmikil Þá var Fulbright spurður að því, hvort bandarískur her á vegum NATO sé nauðsynlegur á íslandi. Hann svaraði: „Ég held að það gegni öðru máli með ísland en Þýzkaland. Ég er ekki sérfræðingur hvað þessu viðvíkur, það ætti fremur að spyrja aðmírálinn eða sendi- herrann. En ég hef ætíð litið á ísland sem hlekk í flutninga- keðjunni til Evrópti og svo fram- vegis. Svo lengi sem við höfum hersveitir erlendis tel ég að bækistöð á íslandi sé mjög mikil væg. Herliðið, sem hér er, hefur alls ekki sama hlutverk og það, sem er í Þýzkalandi. Bækistöðin hér er mjög mikil- væg fyrir flugvélar. Ég man eft- ir því, að eina skiptið, sem ég hef áður komið til íslands, var á styrjaldarárunum á leið til Ev- rópu en þá tók flugvélin elds- neyti hér. Ég er þeirrar skoðunar, að svo lengi sem Atlantshafsbandalag er til þá sé einhvers konar bæki- stöð hér mikilvæg". Um stefnu Bandaríkjanna gegn Kína sagði Fulbright, að hann teldi Kína ekki ógna ör- yggi Bandaríkjanna sem stæði, eða neins annars, enda séu inn- anlandsvandamál það sem Kín- verjar eigi nú við að stríða. Hættulegt ástand í heiminum Aðspurður sagði Fulbright, að hann teldi ástandið í heiminum mjög hættulegt. Hann kvaðst harma mjög, að stórveldin hefðu vanrækt Sameinuðu þjóðirnar. Hann kvaðst hafa haft vonir um að lokinni síðari heimsstyrjöld- inni, að þjóðirnar myndu hverfa frá heimsvalda- og nýlendu- stefnu og samkeppni milli stór- veldanna og einbeita sér að sam- eiginlegu öryggi. Kvaðst hann hafa haft vonir um það um tíma, að framfarir væru á þessu sviði. En sl. eitt eða tvö ár hefði lítið áunnizt og þróunin hefði á sumum sviðum valdið vonbrigð- um. Aðspurður um, hvort hann teldi varnarliðið muni hverfa frá íslandi á næstu 4—5 árum, sagði Fulbright m.a., að vilji íslend- ingar láta varnarliðið fara þá telji hann þá hafa rétt til þess. Finnist íslendingum varnarliðið of fjölmennt, þá eigi að fækka í því. Þá var Fulbright spurður að því, hvort hann teldi að náms- menn, sem hljóti Fulbright- styrki verði óvinsælir vegna máls, sem upp hefði komið um starfsemi CIA (bandarísku leyni þjónustuna). Hann svaraði því til, að slíkt væri ekki unnt að réttlæta því CIA hefði á engan hátt reynt að hafa áhrif á starfsemi Ful- bright-stofnunarinnar. Öldungadeildarþingmaðurinn kvað sig hafa ákveðinn veik- leika fyrir íslandi, enda minnti það sig mjög á kjördæmi hans í Arkansas. Dáist að íslandi og Mexíkó Hann kvaðst hafa verið í Mexíkó nokkru áður en hann kom til íslands. Margt væri líkt með þessum þjóðum, þótt þær hefðu við ólík vandamál að etja. Kvaðst hann dást mjög að sjálfstæði Mexíkó og íslands á sviði utanríkismála og gat hann þess, að Mexíkó væri eina land latnesku Ameríku, sem færi sínu fram án tillits til Banda- ríkjanna. Ekkert bendir til friðar- samninga í Víetnam í lok blaðamannafundarins var William Fulbright spurður að því, hvort hann sæl fyrir frið í Víetnam á næstunni og hvort nokkuð hefði gerzt síðustu vik- ur, sem stuðlaði að friði þar. Fulbright svaraði: Ég hafði miklar vonir um, að eitthvað myndi gerast á með an vopnahléð var vegna nýjárs- hátíðahaldanna, en ekkert gerð- ist. Það hafði mikil áhrif á mig. Það er vegna þessa, sem ég sá engar líkur á vopnahléi eða samningaviðræðum í næstu framtíð. Það tímabil er liðið, sem ég taldi mjög hagkvæmt (til samninga) en þar sem að- ilar notfærðu sér það ekki sé ég ekkert sem bendir til frið- arsamninga." Athöfn í hátiðasal Háskólans. KÍ. 5.15 í gær hófst athöfn í hátíðasal Háskólans og flutti Fulbright þar langt erindi um mennta- og utanríkismál og lagði áherzlu á að smáþjóðir eins og ísland létu meira að sér kveða á alþjóðavettvangi. Stórþjóðirnar gætu ýmislegt af smáþjóðunum lært. Annars var fyrirlestur öldunga deildarþingmannsins mjög yf- irgripsmikill og fjallaði um flest ntiilli vonar mannkynsins EINS og áður hefir verið skýrt frá í blaðinu voru heimilisfastir íbúar Reýkjavíkur samtals 78.982 1. des. sl. Nú hefur blað- inu borizt skýrsla frá Hagsto'fu íslands um mannfjöldann í Reykjavík eftir götum 1. des. sl. Eru flestir íbúar við Kleppsveg, og er það eina gatan þar sem þeir fara yfir 2000. 25 mannflestu götur borgar- innar eru: Kleppsvegur ......... 2il32 Háaleitisbraut ....... 1946 Langlholtsvegur .... 1404 Álftamýri .......... 1351 Áii'heimar ........... 1345 Hvassaleiti .......... 1082 Hringbraut ........... 1033 Ljósheimar .......... 10*13 Laugavegur ............ 982 Rauðalækur ............ 978 Safamýri .............. 963 Sóiheimar ............. 936 Laugarnesvegur .... 934 Njálsgata.............. 923 Gnoðavogur ............ 910 Bólstaðar'hlíð ........ 883 Suðurlandsbiaut .... 880 Grettisgata ........... 871 Hverfisgata ........... 854 Skipasund ............. 800 Stóragerði ............ 799 Stigahlíð ............. 793 Eski'hlíð ............. 749 Efstasund ............. 695 Bergstaðastræti .... 690 um frið á jörðu og þess sem líkt er með kjósendum hans í Arkansas og íslendingum. Háskólarektor, Ármann Snæv arr, kynnti gestinn og bauð hann velkominn. Gylfi Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra, fagnaði komu hins ágæta gests og benti m.a. á hvernig menntun hefur ávallt verið aflgjafi íslenzku þjóðar- innar. James K. Penfield, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, talaði einnig og ræddi m.a. um ánægju leg menningarskipti íslands og Bandaríkj anna. Kl. 8 síðdegis hélt ríkisstjórn- in Fulbrighthjónunum veizlu í Ráðherrabústaðnum. Fara heimleiðis í dag. í dag fara þau hjónin í kynn- ingarferð um Reykjavík. Um há degið verða þau viðstödd há- degisverðarveizlu að Hótel Sögu, sem Íslenzk-ameríska fé- lagið gengst fyrir. Kl. 5 síðdeg- is halda þau hjónin vestur um haf. Við þrjár götur í borginni er aðeins einn maður heimilisfast- ur. Eru það Hallarmúli, Grófin og Skólavörðutorg. Sýna ,.Þr já skálka44 á Vestfjörðum Bíldudal, 21. febrúar. LEIKFÉLAGIÐ Baldur í Bíldu- dal frumsýndi sl. miðvikudag 15. febrúar gamansöngleikinn „Þrír skálkar" eftir Candrup. Leikstjóri var Kristján Jónsson, og undirleik annaðist Guðmund- ur Guðjónsson. Uppselt var á sýninguna og leiknum mjög vel tekið. Var leikendum, leikstjóra og undirleikara ákaft fagnað að sýningu lokinni. Síðan hefur leik urinn verið sýndur 4 sinnum hér, og verið uppselt á þær allar, og mun hátt á 6. hundrað manns hafa séð leikinn, og er þetta algjört met í leikaðsókn hér á Bíldudal. Það skal tekið fram til að forðast misskilning að sýningar hafa verið mikið sóttar frá Patreksfirði og Tálkanfirði. N.k. laugardag verður sýning á Flateyri, og sunnudag á Þingeyri, og verð- ur ferðast víðar með leikrit- ið. — Hannes. STAKST [I Wlt „ Skýr svör “ VIUHORF kommúnista tll vest- rænnar menningar og skilning- ur á henni, hafa löngum verið i nokkru ósamræmi við skoðanir fólks almennt. Þetta kom enn fram í ræðu Einars Olgeirssonar á Alþingi á dögunum, sem „Þjóð- viljinn" vitnaði síðan til í rit- stjómargrein. Þar var marx- isminn talinn eitt hið helzta, sen» vestræn menning hefði lagt - heimsmenningunni til! í lok sömu ristjórnargrein- ar, þar sem annars var safnað saman fjálglegum lýsingum á nauðsyn þess, að ísland yrði gert vamarlaust, sagði síðan um ræðu Einars: „Og Einar krafðist skýrra svara af hálfu stjómmála- flokkanna, um hernámsmálin einmitt fyrir kosningar, svo fólk gæti áttað sig á, hvar þeir sjálfir vilja standa í þvi máli“. Allir vita hver afstaða núver- andi stjórnarflokka er til varna íslands. En framangreind spurn- ing gefur tilefni til að rifja upp að ekki eru fullar tvær vikur liðnar siðan einn af þingmönn- um þess flokks, sem bæði Einar ^ og „Þjóðviljinn“ reyna að styðja, lýsti því yfir, að hann mundi ekki gera brottför varnar- liðsins að skilyrði fyrir stuðningi við ríkisstjórn í landinu. Á sama tíma liggur fyrir þingi tillaga um brottför varnarliðsins, sem þessi sami þingmaður er meðal flutningsmanna að. Slíkur er tvískinnungur þeirra. Það er svo sem von, að þeir telji sig hafa efni á að heimta af öðrum „skýr svör"! Samir við sig Það vakti mikla athygli á borgarstjórnarfundi á dögunum að kommúnistar og Framsóknar- menn settu fram eindregna kröfu um það að byggingar ein- býlishúsa af ákveðinni stærð yrðu bannaðar, eða gerðar háðar leyfisveitingum, eins og var á haftatímum fjárhagsráðs, og nú hefur kommúnistablaðið ítrekað þessa kröfu enn í forustugrein i gær. Það má því með sanni v segja að Framsóknarmenn og kommúnistar eru enn samir við sig, þeir hafa ekkert lært á síð- ustu árum frelsis og framfara, þegar hinum gömlu og ill- ræmdu höftum hefur verið svift af, framtak fólksins og dugn- aður þess leystur úr læðingi með ótrúlegum árangri. Þeir, sem byggt hafa stór og myndarleg einbýlishús, hafa fyrst og fremst gert það fyrir eigið fé, því að hið opinbera lánakerfi veitir ekki fyrirgreiðslu að ráði til bygg- ingar stórra einDýlishúsa. Miklu meira hefur verið um byggingu myndarlegra einbýlishúsa annars staðar á landinu og viða tiðkast þar ekki að fjölbýlishús séu byggð, heldur býr fólk þar yfir- leitt í einbýlishúsum. En komm- únistar og Framsóknarmenn hafa jafnan haft það meginsjónarmið að fólk skuli ekki fá að ráða mál- um sínum sjálft. Þess vegna sjá þeir nú ofsjónum yfir þvi að dugnaðarfólk hefur haft nægi- leg fjárráð til þess að byggja mjög myndarleg einbýlishús. Höft og bönn skulu sett við slíkri byggingarstarfsemi, ekki þola að einhverjir skari fram úr i þjóðfélaginu, allir skulu steyptir í sama mót, hið al- sjáandi auga ríkisvaldsins skal ákveða hversu stór hús fólk megi byggja. Þetta er megin- munurinn á stefnu vinstri flokk- anna annars vegar og Sjálf- stæðismanna hins vegar. Sjálf-,* stæðismenn hafa lagt áherzlu á að veita bæði einstaklingum og félagssamtökum þeirra frelsi til athafna með þeirn árangri, að i stjórnartíð núverandi rikisstjórn ar hafa einstaklingar og fjöl- skyldur reist myndarleg híbýli, og félagssamtök einstaklinga hafa komið á fót öflugum og blóm- legum atvinnufyrirtækjum. Yfic þcjsari þróun er nú öfundast. Kleppsvegur fjölmenn asta gata borgarinnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.