Morgunblaðið - 23.02.1967, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.02.1967, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1967. Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónssoru Ritstjórnarfulltrúi> Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. í lausasölu kr. á mánuði innanlands. Áskriftargjald kr. 105.00 7.00 eintakið. FULBRIGHTSTOFN- UNIN 1 Tm þessar mundir eru 10 ár ^ liðin frá því að Mennta- stofnun Bandaríkjanna á ís- landi, Fulbrigihtstofnunin, var sett á stofn. Þessi stofn- un hefur á þessu tímabili veitt 169 Íslendingum styrki til ýmislconar náms og vís- indastarfsemi í Bandaríkj- unum og 40 Bandarfkjamenn ' hafa komið til íslands á henn ar vegum í sama skyni. Með starfsemi Mennta- stofnunarinnar hafa tengsl íslands og Bandaríkjanna á sviði mennta og vísinda ver- ið efld að miklum mun. ís- lenzkir vísindamenn hafa farið til Bandaríkjanna og stundað þar rannsóknir á sér sviðum sínum, kandádatar hafa átt þess kost að stunda frarahaldsnám í sérgreinum sínum í Bandaríkjunum, starfandi kennarar hafa hlot- ið styrki til námsdvalar vest- an hafs, íslenzkir námsmenn hafa hlotið ferðastyrki og starfandi fólk á sviði æsku- lýðs- og félagsmála hefur notið styrkja tiil frekara náms í sínum greinum. Menntastofnimin hefur einnig greitt kostnað við dvöl bandarískra sendikennara við Háskóla íslands, bandarískir vísindamenn, háskólakandií- datar og kennarar hafa kom- ið hingað til lands. Þessi starfsemi hefur reynzt íslendingum mjög mikilvæg. í Bandaríkjunum er að finna flest það bezta, sem til er í heiminum á sviði ýmissa mennta og vísinda, og það er þýðingarmikið fyrir íslendinga að eiga þess kost að komast í tengsíl við fram- þróunina á þessum sviðum í - Bandaríkjunum. Þessi sam- vinna hefur og stuðlað að nénum menningartengslum milli íslands og Bandaríkj- anna og íslendingar kunna vel að meta það, því að fátt er mikilvægara fámennri ey- þjóð en að fylgjast með straumum tímans úti í hin- um stóra heimi. í tilefni 10 ára afmælis Menntastofnunarinnar er staddur hér á landi upphafs- maður þessarar starfsemi, sem fram fer víða um lönd, hinn virti og velmetni banda- ‘ríski öldungadeildarþing- maður, Wiliiam Ful'bright, sem beitti sér einkum fyrir 'þeirri lagasetningu, sem er grundvöllur þessarar starf- semi. íslendingar fagna sMkri heimsókn háttsetts og heims- þekkts bandarísks stjórn- málamanns. William Ful- bright hefur vakið sérstaka athygli vegna þess, að hann hefur í mörgum grundvallar- atriðum verið andvígur utan- ríkisstefnu Bandaríkjanna nú um langt skeið, bvort sem repúblikanar eða demókrat- ar hafa verið við völd þar í landi. Á síðustu árum hefur andstaða hans við stefnu Bandaríkjanna í Víetnam vakið mesta athygli, en af- staða hans í Víetnammálinu er mjög umdeild, ekki aðeins í Bandaríkjunum, þar sem meirihluti þjóðarinnar virðist fylgja Johnson forseta, held- ur og einnig í öðrum heims- hlutum, þar á meðal í Asíu, þar sem barist er um M og dauða, það er lýðræði eða kommúnisma. En einmitt vegna þess hlut- versk, sem Fulbright hefur gegnt í bandarískum stjórn- málum er hann tákn styrk- leika hins bandaríska lýð- ræðis. NYIR SKOGAR IT'orystumenn skógræktar- 1 mála skýrðu nýlega frá ástandi og horfum í þeim málum. Samtals voru um 900 þúsund trjáplöntur gróður- settar hér á landi árið 1966, en gert er ráð fyrir að 1,3 milljónir plantna verði gróð- ursettar á þessu ári. Um 60% af gróðursettum trjáplöntum eru gróðursettar á vegum skógræktarfélaganna. Skógræktin á íslandi er nú komin á nýtt stig. Vantrúin á möguleika hennar er að þverra. Þjóðin veit nú að hægt er að rækta nytjaskóga í þessu landl Hin hagnýtu vísindi hafa verið tekin í þjónustu skógræktarínnar. — Rannsóknarstöðin á Mógilsá mun verða að ómetanlegu gagni fyrir íslenzka skógrækt í framtíðinni. En hún hefur, eins og kunnugt er, verið byggð fyrir gjafafé frá frænd um okkar, Norðmönnum, og hefur þegar verið varið 4 milljónum króna til bygging- ar hennar. En gert er ráð fyr- ir að hún muni kosta um 5 miill'jónir króna fullgerð. Enda þótt skógræktin sé mikið og merkilegt málefni, eru þó enmþá ti'l menn á ís- landi, sem gera sér Lítt eða ekki Ijóst gildi hennar. En þessum mönnum fer ört fækk andi. Yfirgnæfandi meiri- hluti íslendinga viM efla skóg ræktina til þess að gera land- ið arðgæfara, betra og feg- urra. Varla nokkurt hús er nú byggt svo að ekki sé ræktað- ur kringum það trjágarður. En það er ekki nóg að rækta •M t y y y X I I I t | Nokkrir þeirra 800 brezku lækna, sem gengust undir bandarískt embættispróf á dögunum Brezkir lœknar leita til Bandaríkjanna ♦ T I X y % MIKIÐ hefur verið um það ritað og rætt hérlendis að of margir íslonzkir menntamenn leiti sér atvinnu erlendis að námi loknu. Þetta er ekkert íslenzkt fyrirbrigði eins og sjá má á eftirfarandi frásögn bandariska blaðsins „The New York Herald Tribune, sem gefið er út í París. Frá- sögnin er hér stytt og endur- sögð: Fyrir skömmu gengust um 800 læknar undir próf í Bret- landi til að öðlast réttindi til að stunda atvinnu sína í Bandaríkjunum. Það ná ekki allir þessu prófi, sem reyna, það fara ekki allir sem ná því, það setjast ekki allir þar að sem fara. En búast má við að þessi mikli fjöldi vekji nýjar kvartanir og gagnrýni á það að verðmætir brezkir hugsuðir skuli lenda í klóm dollarsins. Síðast þegar próf voru hald in í september, voru það nærri 600 læknar sem reyndu við það. Gagnrýndi þá heil- brigðismálaráðuneytið lækn- ana harðlega, og sagði að þeir væru blygðunarlausir og eig- ingjarnir að hlaupast á brott þótt hærri laun væru í boði, því það kostaði brezka skatt- greiðendur 21 þúsund sterl- ingspund að mennta hvern lækni. Það kemur ekki alltaf fram í þessum deilum, að það eru ekki allt Bretar, sem prófin taka. Rúmur helmingur þeirra er Indverjar og Pa- kistanbúar, sem sjálfir streyma til Bretlands af sömu ástæðum og 300—400 læknar í Bretlandi hverfa þaðan ár- lega, m. a. til Bandaríkjanna. Þetta eru um 15—20% þeirra, sem ljúka læknisprófi. Um 60 þúsund læknar eru starfandi í Bretlandi, og læknar sem flytjast til Bretlands frá Ind- landi og Pakistan vega nærri því upp á móti þessu árlega tapi. En útflytjendurnir eru ný-útskrifaðir og vel mennt- aðir læknar, og innflytjend- urnir frá Samveldisríkjunum oft ver menntaðir og tala margir lélega ensku. Sumir þeirra lækna, sem hverfa úr landi eru frá- hverfir heilbrigðismálakerf- inu brezka, en flestir þeirra, á sama hátt og verkfræðing- ar og vísindamenn, gerast út- flytjendur vegna hærri launa og betri starfsskilyrða. Áætl- að er að hærri laun og lægri skattar í Bandaríkjunum tvö faldi í raun og veru kjör þeirra þrátt fyrir dýrtíð þar. Venjulega eru það læknar, sem mest er um rætt í sam- * i bandi við brottflutning, en ný- lega var málið í heild tekið til umræðu í brezka þinginu eftir að í ljós kom að um 1.300 loftferðasérfræðingar hefðu flutzt úr landi á síðasta ári (500 þeirra til Bandaríkj- anna), og að fyrir árið 1970 .. yrðu Bandaríkin að „kaupa" ý erlendis 20 þúsund eðlisfræð | inga. Aðallega var veizt að *t* Bandaríkjunum í umræðun- | um, því áætlað er að þau hafi sparað einn milljarð X dollara í námskostnað við að •> kaupa brezka sérfræðinga. Þrátt fyrir alla þessa út- X flytjendur, er þó útlitið ekki y eins slæmt og búast hefði J. mátt við. Anthony Wedg- X wood Benn tæknimálaráð- y herra skýrði þinginu frá því að lokatölur væru ekki til fyrir síðustu árin, en á tíma- •{• bilinu 1958—1962 hefðu 19 !> þúsund sérfræðingar með há- X skólamenntun frá Bretlandi og Samveldisríkjunum flutzt !♦. úr landi. Á sama tíma hefðu X hinsvegár 15 þúsund sérfræð- ingar flutzt til landsins, og af þeim 4.000, sem þar munar, hefðu 1.900 flutzt til Banda- ríkjanna. f dag eru 343 þús- und verkfræðingar og vísinda menn í Bretlandi, sagði ráð- herrann, en fyrir tíu árum voru þeir 207 þúsund. t fagra trjálundi við hfbýli fólksins. Það verður að taka stór. landssvæði undir skóg- rækt eins og raunar hefur verið gert undir forustu Skóg ræktarfélags íslands og Skóg ræktar ríkisins á undanförn- um árum. Hinir nýju skógar rísa í þágu framtíðarinnar og 'komandi kynslóða. Að því mikilvæga starfi verða allir íslendingar að leggja hönd og huga. KOMMÚNISTAR OG VARNAR- MÁUN |7"ommúnistar hér á landi hafa lengi haldið uppi 'hatrömmum áróðri gegn þátt töku Íslands í varnarsam- starfi Atlantshafsbandalags- ríkjanna og dvöl varnarliðs- ins á íslandi. Þegar þeir hafa komizt í stjórnaraðstöðu hef- ur þó farið minna fyrir þess- ari baráttu, og eins og Bjarni Benediktsson, forsætisráð- herra, benti á í þinginu á dög unum, hafa kommúnistar rauniverulega um tveggja og hálifs árs skeið tekið ábyrgð á dvöl varnarliðsins og þátt- töku íslands í Atlantshafs- bandalaginu, það er á vinstri stjórnar tímanum, þegar þeir sátu sem fastast í ríkisstjórn, þótt vinstri stjórnin fóMi frá þeirri stefnu sinni að segja varnarsamningnum við Bandaríikin upp. Þetta ,bendir ótvírætt til þess að brottför varnarHðs- ins sé kommúnistum ekki sMkt áhugamál, sem þeir hafa lengi viljað vera láta, og nú hefur einn þingmanna þeirra lýst því yfir að þeir muni ekki gera brottför hersins að úrslitaskilyrði fyrir hugsan- legri þátttöku þeirra í ríkis- stjórn. Hann segir að vísu, að þeir muni „leggja þunga á- herzlu á brottför hersins“, en í þeim orðum liggur að þeir muni ekki gera það að úr- slitaskiilyrði. Þar með hafa kommúnistar ótvírætt lýst yfir því að þeir geti fel'lt sig við dvöl varnar- liðsins hér á landi, aðeins ef þeir komast í ríkisstjórn, og er þá Mtið eftir af heilsteyptri „utanríkisstefo u.“ þessa flokt p.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.