Morgunblaðið - 23.02.1967, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.02.1967, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1967. 11 , Að vera spenntur fyrir stríðs- vagn kommúnismans KOMMÚNISTAR hafa aldrei farið dult með það, að þeir not- færi sér athafnafrelsi lýosræðis- ins til að koma því sjálfu fyrir kattarnef. Eitt hið fyrsta, sem sérhverjum kommúnista er kennt, er að færa sér andvara- leysi samborgaranna í nyt. í niðurrifsstarfsemi sinni í lýð- ræðisríkjunum hafa kommúnist- ar því lagt höfuðáherzlu á að koma útsendurum sínum fyrir í hvers konar félagasamtökum, við þær stofnanir, sem hafa úr- slitaþýðingu fyrir stjórn þjóðfé- lagsins, og við þær, sem hafa BRIDGE ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ í bridge fyrir árið 1967 fer að þessu sinni fram í Reykjavík. Mótið verður eins og áður í tveimur hlutum og fer tvímenn- ingskeppnin (Barometerkeppni) fram dagana 11. og 12. marz og verður spilað í Læknahúsinu að Egilsgötu 3. Keppnin hefst laug- ardaginn 11. marz, kL 13,30 og verða þá spilaðar tvær umferðir, en sunnudaginn 12. marz hefst keppnin kL 14 og fer þá fram þriðja og síðast umferð keppn- innar. Keppt verður í tveimur flokkum, meistaraflokki og I. flokki. í meistaraflokki keppa 18 efstu pörin frá íslandsmótinu 1966 og tíu efstu pörin úr I. flokki frá sama móti. í I. flokki keppa einnig 28 pör og þar hafa öll félög innan Bridgesambands íslands þátttökurétt í hlutfalli við félagsmannatölu. Sveitakeppnin fer fram dag- ana 10. — 26. marz og verður spilað í Sigtúni. Rétt til þátttöku í meistaraflokki hafa fjórar efstu sveitir úr meistaraflokks- keppninni s.l. ár, tvær efstu sveitirnar úr I. flokki úr sama móti og tvær efstu sveitir í svæð- ismótum Norðurlands og Suð- Vesturlands (után Reykjavíkur), eða alls 10 sveitir, sem spila níu umferðir. í I. flokki hafa allar aðrar sveitir inn Bridgesam- bands íslands þátttökurétt, en um fyrirkomulag keppninnar í I. flokki er ekki hægt að segja fyrr en þátttökutilkynningar hafa borizt. Nauðsynlegt er, að allar þátttökutilkynningar hafi borizt mótstjórn fyrir 1. marz, en 1 mótsstjórn eru: Óskar Jónsson, Selfossi sími 1292, Magnús Odds son verzlunarm. Kárastíg 8, sími 24500, Tyrfingur Þórarinsson húsasm. Ásvegi 10, sími 373339, Unnur Jónsdóttir kennari, simi 3-1140, Háaleitisbraut 121 og Guðm. Kr. Sigurðsson, Hátúni 8, sími 2-1051. Verðlaunaafhending fer fram í Sigtúni 2. páskadag, 27. marz í hófi, sem hefst með borðhaldi kl. 19. áhrif á skoðanamyndun almenn- ings, eins og t. d. útvarp. Útsendarar þessir hafa oft á sér yfirbragð hins þjóðholla borgara eða þeir sveipa um sig dulu lista og menningar. Verk- efnið er meðal annars að ávinna sér trúnað og traust góðviljaðra en andvaralausra borgara og beita þeim fyrir stríðsvagn kommúnismans. Fólk þetta verð- ur oft viljalaust verkfæri í hönd- um kommúnista, stundum án þess að það geri sér nokkra grein fyrir því sjálft. Fólk þetta er oft fengið til að skrifa undir yfirlýsingar, sem á yfirborðinu líta sakleysislega út. En yfirleitt eru þetta mótmæla- yfirlýsingar, allt eftir því hvað kommúnistum hentar hverju sinni. Eða þá fólk er fengið til að gerast aðilar að samtökum, sem hafa háleitar hugsjónir á stefnuskrá sinni, en eru í raun útibú kommúnismans. Nú skulum við taka dæmi um, hvernig þessi moldvörpustarf- semi kommúnista fer fram og hvernig þeir flækja hina nyt- sömu sakleysingja í vefinn. Eitthvert menningarfélag eða friðarsamtök, sem kommúnistar hafa tögl og hagldir í, hefja und- irskriftasöfnun meðal þeirra, sem eru andvígir stríði eða kjarn orkuvopnatilraunum. Hver er ekki á móti stríði? Fjöldi manna skrifar undir yfirlýsingu eða ávarp þess efnis. Fyrsta þætti er lokið. Kommúnistar hafa nú nöfn, sem þeir geta gripið til, þegar á þarf að halda. Annar þáttur hefst. Nú hefja kommúnistar undirskriftasöfnun um allan heim um eitthvert tak- markaðra málefnL t. d. Vietnam. Tilgangurinn er að afla sjálfum sér samúðar og fá menn til að gleyma því, að þeir eru árásaraðilarnir, þeir, sem hófu styrjöldina í Víetnam. En nú er leitað undirskrifta um viðkvæmt deilumál liðandi stundar. Þess vegna þarf klók- inda við til að fá sem flesta þeirra, sem skrifuðu undir yfir- lýsingum um, að þeir séu á móti stríði, til að skrifa undir Víet- namyfirlýsinguna. Þess vegna hljóðar nýja yfir- lýsingin eitthvað á þessa leið: „Aðalréttlætiskrafa vietnam- önsku þjóðarinnar og þeirra, er vilja tryggja frið og frelsi lands- ins er, að Víetnamar fái að ráða málum sínum einir og án er- lendra afskipta. Til þess að svo geti orðið verður allt erlent her- lið að hverfa á brott frá Víetnam Fyrsta skrefið að því marki er að ófriði linni í Víetnam.“ Færri verða tii að skrifa undir í þetta skiptið. Þeir hafa áttað sig. En allstór hópur lætur ánetj- ast. Því hver er á móti því, að Víetnamar fái að ráða málum sínum sjálfir einir og án er- lendra afskipta? Hver er á móti því, að allt herlið hverfi á brott frá Víetnam? Hver er á móti aðalréttlætiskröfu víetnamönsku þjóðarinnar um frið og frelsi? En hér er slegið ryki í augu hinna nytsömu sakleysingja, sem nú er verið að beita fyrir stríðsvagn kommúnismans. í yfirlýsingunni er ekki minnst einu orði á það, að um tvö ríki er að ræða, Suður- og Norður- Víetnam. Allt erlent herlið á að hverfa á brott frá Víetnam. Svo segir í yfirlýsingunni. En kommúnist- ar líta á málið öðrum augum en sakleysingjarnir, sem undir hana skrifuðu. Jú, erlenda herliðið er það, sem Bandaríkin og banda- menn þess kafa sent til „Viet- nam.“ Þeir, sem skrifuðu undir yfir- Iýsinguna eru búnir að viður- kenna, að aðeins sé til eitt Víet- namríki. Herinn, sem gerði inn- rásina frá Norður-Víetnam inn í Suður-Víetnam, er því ekki er- lendur. Með öðrum orðum: Innrásar- her Norður-Víetnam er að reyna að tryggja frið og frelsi í land- inu. Það á að gefa kommúnistum frjálsar hendur og leyfa þeim að komast til valda í Suður Víet- nam með morðum og hryðjuverk um. Það var einmitt það sem var að gerast í landinu, þegar óskað var eftir aðstoð Bandaríkjanna og annarra lýðræðisríkja til að hindra slíka valdatöku með of- beldL Sem sagt, hópurinn, sem skrif- aði undir Víetnamyfirlýsinguna, hefur verið spenntur fyrir stríðs vagn kommúnismans. Það þarf dug og þor til að slíta sig lausan. Næst þegar kommúnistar hef ja undirskriftasöfnun, t. d. gegn er- lendum her á íslandi, þá geta þeir fært sér í nyt nöfn og orð- stír þeirra, sem lýstu því yfir, að þeir séu andvígir styrjöldum Björn Jóhannsson. HILLUBÚNAÐUR VASKABOBÐ BLÖNDUNARTÆKI HABÐPLASTPLÖTUR PLASTSKÚFFUR RAUFAFYLLIR FLÍSALÍM POTTAR — PÖNNUR SKÁLAR — KÖNNUR VIFTU — OFNAR HREYFILHITARAR ÞVEGILLINN og margt fleira Smiðjubúðín HÁTEIGSVEGI StMI 21229 írski gamanleikurinn, Lukku-1 arnir Bessi Bjarnason og Krist- riddarinn, hefur nú veriS sýndur björg Kjeld. Leikstjóri er Kev- 16 sinnum í Þjóðleikhúsinu við in Palmer. Myndin er af leik- góða aðsókn. Með aðalhlutverk- urunum Bessa og Kristbjörgu í in fara sem kunnugt er leikar- ‘ hlutverkum sínum. frá Mjólkurbúi Flóamanna Selfossl Fyrs! um siun verður þessi osturaieios fáanlegor I Bstaoismjörbúiinni Snnrrabraut 54 Osta-ng smjörsaian s.L Axminster auglýsir Erum með teppi og renninga á útsölu að Grensásvegi 8 Axminster

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.