Morgunblaðið - 23.02.1967, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.02.1967, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1967. Sögulegt sumarfrí eftir Stephen Ransome Settu ruliuna upp á milli. 13. kafli. Hún hafði „haft með sér ‘ tvær ferðatöskur. Ég leitaði fyr ir mér með skóflunni og fann hina töskuna, sem lá við hliðina á þéirri fyrri. Svo gróf ég enn dýpra, var- lega og hræddur. Nei, þarna var ekki meira að finna — engin Evvie. Og í töskunum voru einmitt þær flíkur, sem Dick var nýbú- inn að segja akkur frá. Við störðum hver á annan, dol fallnir. Kerry gaf frá sér ein- hver köfnunarhljóð og hélt dauðahaldi í handlegginn á Biad. í*á tautaði Dick: — Ég.. .. ég verð að hringja til hans Walkers og segja honum frá þessu...... Og við horfðum á eftir honum, er hann gekk, stí-ð lega, aftur inn í vinnustofuna og að símanum. 12. kafli. Kl. 6.30. Stutt innskot. Brad hafði ekki verið hand- tekinn. Og það var þvi að þakka sagði hann mór, að Walker hafði bent Cooley lögreglustjóra, á, að enn væri ekiki neinn lagalégur grundvöllur til að taka einn eða neinn fastan. í jafn mikilvægu máli og þessu, sagði Walker við Cooley, varð fyrst og fremst að fara að öllu með gát. Næsta spor ið yrði að rannsaka nánar öll atvik að hvarfi Evvie og leggja allt kapp á að finna líkið. Cooley lögreglustjóri, maldaði ekkert í móinn. >að ery víst orð in mörg ár síðan hann hefur rnót mælt nokkru, sem yfirmaðar hans hefur sagt. Hann lagði nokkrar meinlausar spurningar fyrir Glendu og Hawley, og för síðan þegjandi burt með aðstoð- armönnum sínum og ríkislög- reglumönnunum og með þær upplýsingar, sem hann hafði fengið. Þegar Walker fóir, litlu síðar. áminnti hann Brad, erabættis- lega, um að vera hughraustur, því að enn væri engin ástæða til að vera með neinar á/hyggjur ......En hvað það snertir, kann Brad nú að vita betur. Dagblaðið þarna í Crossgate var þegar komið út er töskurnar fundust. Ken Dirkin, sem var þar einn blaðamaður, og var gamall kunningi okkar, kom þarna rétt á eftir lögreglunni. Brad var svo skynsamur að bíta hann ekki alveg af, svo að Ken fór leiðar sinnar, harðánægður, með yfirlýsingu frá Brad, þar sem ýtarlega var frá því skýrt, að hann hefði engar upplýsingar að gefa um málið........ En ef svo færi, að einhverjir frétta- snatar úr borginni færu að ger- ast nærgöngulir, þá var Haw- ley skipað að verja hliðið og hleypa engum inn. En svo var verstu spurning- unni enn ósvarað: Hvar var lík Evvie? Slæðibáturinn er enn að verki úti á ánni. Líkið getur komið upp hvenær sem vora skal — eða það kemur þá ekki. Ef fiski mönnunum mistekst, liggur næst fyrir að senda leitarhóp út í skógana, og svo annan hóp, vopn aðan skóflum, til að leita á land- areign Brads. Ég var búinn að segja það áð- ur, að sjálfur vildi ég helzt óska, að lík Evvie fyndist aldrei. Og ég endurtek það: Ég held, að það væri bezt fyrir okkur öll, að það haldi áfram að vera týnt. Evvie er þegar búin að gera okk ur nægilega mikla bölvun, og ef hún kemur aftur fram á sjón arsviðið, dauð, gerir það bara ❖❖*>❖❖❖❖❖❖❖ -g /\ ❖❖❖❖❖❖❖❖❖•: :*❖❖❖❖❖ ❖❖❖•:• I U •❖❖❖❖❖❖❖❖❖•{ illt verra fyrir okkur öW...... Nei, ég mundi aldrei hreyfa mig eitt skref til þess að leita að lík- inu, né heldur snerta við skóflu til þess að grafa það upp. En svo neyðarlegt sem það er, þá þykist ég alveg vita, hvar lík Evvie er falið. Ég veit það vegna þess, að þegar ég hugsa mig betur um, þá raan ég hvernig Brad....... Þarna var ég truflaður. Ég er alveg að fara. Kl. 11.10. Þessi snögga brottför mín gerð ist fyrir tilverknað þessa fædda friðspillis, hennar Kerry Race. Meðan ég var að lesa á bandið hafði ég ekki haf1 augun af her- bergishurðinni hennar. Hún hafði lokað sig inni, meðan rétt- vísin var að spyrja bróður henn- ar spjörunum úr. Ég hafði gægzt inn til hennar og séð, að hún lá á grúfu á rúminu, hafði spark- að af sér skónum, en tárin hrundu niður á rúmábreiðuna. Ég var feginn að geta látið hana svona afskiptalausa — hún hafði ekki nema gott af að harma af- leiðingarnar af sinni eigin fram- hleypni. En áður en tuttugu mínúru'- voru liðnar og ég var sem óðast að lesa þessa skýrslu inn á band ið, opnuðust dyrnar hjá henni. Og það var allt önnur Kerry, sem út kom. Hún hafði klætt sig .....ekki í sekk og ösku, held- ur í svarta dragt. Augun voru orðin þurr og öll framkom* hennar hressileg. Ef hún var enn með samvizkubit, sáust þess að minnsta kosti engin merki nú. Allt frá hæláháum skónum og upp í srvotra hattinn leit hún út eins og framagjörn kona, sera ætlar að fara að fremja eitthvert hreystiverk. Ég varð skíthræddur við þetta. Án þésS að líta í áttina til rtiín stikaði hún niður í forsalinn, og ég flýtti mér eins og ég gat að slökkva á segulbandinu og þaut á eftir henni. Winston er bezt eins og af vinsældum sézt Lang-mest seldu filter sígarettur Ameríku Avallt nýjar og ferskar frá U.S.A. Reynið Winston strax í dag Við ráikumst hvorki á Brad né Glendu á leið okkar út úr húsinu. í»au hnipruðu sig senni- lega inni í drykkjustofunni niðrL Við hlupum alla leið út að bíl- skúrnum, þar sem Kerry upp- götvaði, að báðir heimilisbílarn- ir voru lykilslausir. Ég hneigði mig kurteislega, benti á minn bíl og sagði: — Leyfist mér? Hún glápti á mig og sá, að ég var ekkert í þann veginn að láta bíta mig af. Ég rennc^i bílnum út, aftur á bak. Hún settist upp i hann og sat þar stífbein og lag- aði á sér hanzkana. — Hvert á að fara, Pandóra? Vonandi til Washington? — Crossgate, svaraði hún ís- kalt, og þakkaði mér ekki einu sinni fyrir greiðann. Þegar við ókum eftir heimreið inni, þótti mér vænt um, hve mikil kyrrð var þarna yfir öilu. Þarna voru engir lögregluþjónar á ferli. Hawley, sem stóð á verði við hliðið, var farinn að láta sér leiðast þar. >að var eins gott að njóta þessarar kyrrðar meðan kostur væri hugsaði ég. >að yrði, hvort sem er, ekki svo lengi. Ég beygði til vinstri, þegar út á veginn kom. Hingað til hafði Kerry ekki sagt nema eitt ein- asta ólundarlegt orð. — Nú, hvað gaztu búizt við, að ég gerði annað? sagði hún og sneri snöggt til áhlaups. — Um leið og ég Sá þig vera að fást við þessa skóflu, datt mér nokk uð í hug. Mér varð ljóst, að það var þarna, sem það gerðist — bak við vinnustofuna hans Brads, eftir að ég var búin að ganga þrjá fjórðu vegalengdar- innar að hlöðunni. >ú manst, að ég nefndi kjúklingagarðana og ég hefði gengið fyrir eitthvert horn. Það hlaut því að vera gafl hornið á hlöðunni, og dálítinn spöl lengra, þar sem ráðizt var á mig. — Og svo allt í einu mundi ég etfir öðru — það var hljóð, sem ég hafði heyrt, þegar ég var þarna að paufast í myrkrinu. Ég stanzaði þegar ég kom nær. Ég tók nú ekki svo mjög eftir þvi þá og kannaðist ekki við það, af því ég var svo mikið að hugsa um allt annað — en þeg- ar ég sá þig með skófluna i höndunum, Steve, vissi ég það allt i einu. Það var hljóð einc og þegar veiið er að grafa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.