Morgunblaðið - 23.02.1967, Blaðsíða 12
12
/
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1967.
Bjarní Pálsson vélstjóri
Minnfng
f DAG fer fram útför Bjarna
Pálssonar, vélstjóra, sem lézt
mecS voveiflegum hætti 17. Jebr.
þar sem hann var að störfum
í togaranum Júpiter út af Patreks
firði.
Bjarni heitinn var runninn af
sterkum stofnum, sonur hins
kunna athafnamanns Páls Bergs
sonar, sem lagði grúmdvöllinn að
Ólafsfjarðankauptúni og rak síð-
an myndarlega útgerð og verzl-
un í Hrísey, og konu hans Svan-
hildar, dóttur Hákárla-Jörundar.
Hann fæddist 27. júlí 1906 í
Ólafsfirði og ólst upp í foreldra-
húsum þar og í Hríseý fram á
unglingsár. Hann lauk gagnfræða
prófi frá Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar árið 1922 og réðst síðan um
sinn til gæzlustarfa við rafstöð-
ina á Kristneshæli. Eftir það
gerðist hann vörubílstjóri á
Akureyri, og árið 1927 gekk
hann að eiga Guðbjörgu Guð-
mundsdóttur frá Lómatjörn, sem
hann missti af slysförum eftir
árssambúð ásamt ófæddum frum
burði þeirra hjóna.
Þegar hér var komið hélt
Bjarni suður til Reykjavíkur og
settist í Vélstjóraskólann. Að
loknu vélstjóraprófi var hann
um mokkurra ára skeið vélsitjóri
á togaranum Gulltoppi. Haustið
1936 gekk hann að eiga Ástu
Jónasdóttur, Kristjánssonar lækn
is, og varð þeim þriggja bama
auðið. Þau eru Svanhildur, hús-
móðir í Reykjavík; Jónas, sem
er að ljúka doktorsprófi í efna-
verkfræði í Múnchen; og Svavar,
Iðnaðar- og
verzlunarfyrirtæki
óskar eftir að ráða karl eða konu, til að
annast . bókhald ásamt ýmsum öðrum
verzlunar- og skrifstofustörfum. Bílpróf
æskilegt. Vinnutími frá kl. 1—6. Tilboð
sendist Mbl. merkt: „8904“.
Glœsilegar íbúBir
til sölu
Mjög skemmtilegar 2ja, 3ja, 4ra og 6 her-
bergja íbúðir eru til sölu í Árbæjarhverfi.
Seljast tilbúnar undir tréverk og málningu.
Sérþvottahús með hverri íbúð. íbúðirnar
verða fokheldar fyrir 15. marz nk. —
Teikningar til sýnis á skrifstofunni.
0°0Q1SS ®<B M7SWIL0
HARALDUR MAGNÚSSON
Viöskiptafræöingur
Tjarnargötu 16, simi 2 09 25 og 2 00 25
Páskaferðakynning
Skemmtisamkoma verður í Súlnasalnum á Hótel
Sögu í kvöld og hefst kl. 20:30. Verða þar sýndar
litmyndir frá hinum vinsælu páskaferðum okkar
til Mallorca og Kanarieyja og frá Portugal. Öllum
þeim, sem tekið hafa þátt í slíkum ferðum og þeim,
sem eiga sæti nú um páskana er sérstaklega boðið,
aðgangur er annars öllum frjáls og ókeypis.
Spánarkvöld
Næsta sunnudagskvöld verður Spánarkvöld í
Súlnasalnurrt á Hótel Sögu. Þangað er sérstaklega
boðið öllum þeim, sem tekið hafa þátt í hinum
vinsælu Mallorcaferðum SUNNU, en annars er að-
gangur öllum frjáls. Samkoman hefst kl. 20:30.
Frumsýnd verður ný litkvikmynd frá Mallorca,
sem Vigfús Sigurgeirsson tók þar fyrir SUNNU í
september sl. Húsið verður opnað fyrir kvöldverð-
argesti kl. 19:00.
Vinsamlegast pantið borð hjá yfirþjóni.
sem stundar tækninám í Osló.
Vorið 1937 varð Bjarni vél-
stjóri á varðsikipinu Ægi, en í
ágúst 1939 fór hann utan til að
sækja nýju Esju, þar sem hann
var vélstjóri þangað til hann
fluttist til Hríseyjar vorið 1940
og gerðist frystihússtjórL Þar
dvaldist hann um tveggja ára
skeið, en hélt jafnframt á þeim
árum þrjú minni vélstjóranám-
skeið á Akureyri, í Vestmanna-
éyjum og Reykjavík. Eftir það
sneri hann sér að kaupsýslustörf-
um fyrst með Helga Benedikts-
syni í Vestmannaeyjum, þvi næst
með Oddi Helgasyni í Reykjavík,
og loks upp á eigin spýtur. Hafði
hann íslenzk umboð fyrir ýmsar
amerískar, brezkar og sænskar
bátavélar. BjaTni fékkst meira og
minna við kaupsýslustörf, unz
hann fór aftur á sjóinn fyrir
tveimur árum.
Árið 1946 slitu þau hjón, Bjarni
og Ásta, samvistir, og gekk hann
síðar að eiga Matthildi Þórðar-
dóttur frá Hafnarfirði, sem lifir
mann sinn. Voru þau hjón barn-
laus.
Ég kynntist Bjarna Pálssyni
fyrst árið 1962, og urðu kynni
okkar því skemmri en ég hefði
lega hjartfólgin, því hann var
mikill mannkostamaður og hvers
manns hugljúfi, hreinskiptinn,
ótyrrinn, Ijúflyndur og skilnings
ríkur. Lífið hafði á ýmsan hátt
leikið hann grátt, bæði í einka-
málum og einnig í viðskiptamál-
um, enda átti hann oft við
óprúttna keppinauta og viðskipta
menn að etja, en var sjálfur
hafinn yfir þau bellibrögð sem
bezt virðast gefast í íslenzkum
viðskiptum. En hann bar jafn-
an höfuðið hátt, var höfðingi
í sjón og raun, hvað sem í
skarst. Slíkum mönnum er hollt
að kynnast, því þeir leiða gjarna
hugann að því, að í mannlífinu
eru önnur verðmæti eftirsóknar-
verðari og haldbetri en fjár-
munir og metorð.
Mörg síðustu árin gekk Bjarni
ekki heill til skógar og varð
fyrir ýmsum líkamlegum áföll-
um, sem riðið hefðu veikari
mönnum að fullu, en slíkt var
andlegt þrek hans og lí'kams-
þróttur, að enginn krankleikur
virtist mundu á honum vinna, og
naut hann þar einnig umhyggju
og ástríkis eiginkonu sinnar, sem
stóð við hlið hans í blíðu og
stríðu, enda ríkti fágæt ein-
drægni milli þeirra hjóna.
Það var ávallt hlýtt og bjart
í návist Bjarna. Frá honum
stafaði rósemd, hjartahlýju og
mann'Skilningi sem gerði sam-
neyti við hann þægilegt og
heilsubætandi. Við áttum fáa
samfundi tvö síðustu árin, þar
eð hann var langdvölum á hafi
[ úti, en mér eru kærar minning-
ar um nokkur stutt ferðalög út
á land. Þægilegri og nærgætnari
ferðafélaga er vart hægt að hugsa
sér, og milkil var jafnan tilhlökk-
un dóttursonanna þegar von var
á foíltúr með afa.
Þegar ég nú kveð tengdaföður
minn eftir hryggilega stutta við-
kynningu, er mér efst í huga
þakkiæti fyrir samfylgdina og
það lán að hafa ' kynnzt svo
góðum dreng. Konu hans, börn-
i um, barnabörnum og systkinum
i votta ég dýpstu samúð, sem m.a.
er sprottin af þeirri tilfinningu,
að hann hafi verið mér sem bezti
faðir.
Sigurður A. Magnússon.
Elinborg Aðalbjarn
ardóttir — Minning
SUNNA
FERÐASKRIFSTOFAN
Bankastræti 7, símar 16400 og 12070.
ELÍNBORG Aðalbjarnardóttir
fæddist 9. ágúst 1912 á Hvaleyri
við Hafnarfjörð og lézt 16. þessa
mánaðar. Hún lauk gagnfræða-
prófi við gagnfræðaskólann í
Flensborg 1928 og kennaraprófi
vorið 1934 með mjög bárri ein-
kunn, 131 stigi, og hefur aðeins
einn maður, Björn Sigfússon,
síðar háskólabókavörður, lokið
kennaraprófi með jafnfoárri ein-
kunn eða hærri, en hann hlaut
132 stig. Er hér miðað við próf
skipan í Kennaraskólanum á ár-
unum 1927—34, að báðum árum
meðtöldum.
Kennaraferil sinn hóf hún í
Mosvallaforeppi í Norður-ísa-
fjarðarsýslu árið 1931, og frá
þeim tíma að telja var líf henn-
ar allt helgað kennslu og námi.
Á árunum 1934—'1947 kenndi
hún við barnaskólann á Akra-
nesi, en réðst að Handíðaskólan-
um í Reykjavík 1948 og handa-
vinnudeild Kennaraskólans, þeg
ar hún var stofnuð 1951. Kenndi
hún þar, meðan heilsa entist, og
leiðbeindi auk þess á fjölmörg-
um námskeiðum. Elínborg fór
margar námsferðir til annarra
landa, hina fyrstu sumarið 1936,
þá dvaldist foún erlendis um
þriggja mánaða skeið, sótti nám
skeið í teikningu og föndri á
Naás í Svíþjóð og kynnti sér
skóla í Stokklhólmi og Kaup-
mannafoöfn. Sumarið 1946 fór
hún enn utan og lagði þá eink-
um stund á handavinnukennslu
stúlkna, dvaldist hún þá enn er-
lendis í þrjá mánuði, sótti nám-
skeið á Náás í Svíþjóð og heim-
sótti sænska og danska skóla.
Árið 1947—>1948 stundaði foún
nám í handavinnukennaraskólan
um Haandarbejdets Fremme i
Kaupmannáhöfn um 10 mánaða
skeið og lauk þaðan fullnaðar-
prófi um vorið 1948. Um sumarið
sótti hún námskeið í foandavinnu
skólanum á Engelsiholm á Jót-
landi. Enn fór, hún utan sumarið
1950 og var á námskeiði í Stene-
by skolor för yrkesundervisning
í Svíþjóð, og enn heimsótti hún
skóla í Noregi og Svilþjóð. Sum-
arið 1953 fór hún utan í fimmta
sinn og sótti námskeið í handa-
vinnu í Engelsfoolm og norrænt
kennaraþing í Osió. Þá var hún
enn á námskeiði í Steneby skol-
or för yrkesundervisning í Sví-
þjóð 1953, og síðari hluta sum-
arsins sótti hún tíma í Tegne-
og Kunstindustriskolen for
Kvinder í Kaupmannahöfn. Sum
arið 1958 dvaldist hún í Bret-
landi, og sótti hún þá námskeið
í leður- og tágavinnu í Glamorg-
an Summer School í Wales. Þá
sótti hún norræna kennaraþing-
ið í Kaupmannahöfn sumarið
1961 og kynnti sér nýjungar í
kennslugreinum sínum í dönsk-
um og sænskum skólum.
Námsferill Elínborgar er ljóst
dæmi um sívakandi álhugá henn-
ar, og fór annað þar eftir. Af
sömu kostgæfni fylgdist hún
með nýjungum í kennslugrein-
um sínum af tímaritum og bók-
um, eftir því sem föng voru til,
og þó hefur atorka hennar, vand
virkni og hugkvæmni trúlega
hvergi notið sín betur en í und-
irbúningi og viðbúnaði hennar
fyrir hvert skólaár og hvern
skóladag.
Elínborg var eigi aðeins góð-
RÁÐNINGASTOFA HLJÓMLISTARMANNA
Óðinsgötu 7 — Sími 20255
■ Opið mónud.-fimmtud. 2-7, föstud.-laugard. 2-5
Hárskerasveínn og nemi
óskast. — Dömu- og herraklippingar.
Haukur Óskarsson, Kirkjutorgi 6.
um gáfum gædd, heldur einnig
dæmafáu starfsþreki, enda varð
henni mikil raun, þegar heilsan
bilaði, að una því hlutskipti að
geta ekki lengur skilað fullu
dagsverki eða betur.
Kennaraskóli fslands þakkar
Elínborgu Aðalbjarnardóttur frá
bær störf, dæmafáa trúmennsku,
atorku og skyldurækni. Hún var
mikilhæfur kennari og góð
manneskja.
Broddi Jóhannesstm.
ELÍNBORG Aðalbjarnardóttir
andaðist fimmtudaginn 16. febrú
ar, en þá hafði hún átt við lang-
varandi vanheilsu að striða.
Elíniborg var fæddur kannati,
og stanfinu helgaði hún ailt sitt
líf.
Ég hafði mjög náið samstarí
við hana um átján ára skaið, og
samvizkusamari kennara var
ekki hægt að hugsa sér. Ég held,
að mér sé óhætt að sagja, að
aldrei hafi fallið niður einn ein-
asti vinnudagur hjá henni öll
þassi ár, þar til heilsan bilaði
fyrir röskum tveimur árum. Og
hún lét ekki þar við sitja. Nær
öllum frístundum sínum varði
hún til þess að búa sig sem bezt
undir starfið. Hún fór oft utan
í sumarleyfum sínum ,en þær
ferðir voru ævinlega í sambandi
við skólastarfið. Hún var alltaf
að bæta við þekkingu sína,
stefndi alltaf að því að verða
sem fullkomnastur kennari.
Elínborg • starfaði við handa-
vinnukennaradeildina nærfeilt
frá byrjun, fyrst við Handiða-
skólann, síðar við Kennaraskól-
ann, og hún átti sinn stóra þátt
í því að móta deildina í það
form, sem hún hefur nú. Þar
nutu starfskraftar hennar sín til
fulls.
Hennar er saknað úr þeim
hópL Kennaraskólinn hefur
misst góðan og traustan starfa-
kraft.
Sigríður Amlaugsdóttir.