Morgunblaðið - 23.02.1967, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1967.
■in ............................. i ijji iMlSii
KR-ingar nær öruggir um
sæti í 1. deild að nýju
Þurfa eitt stig í
til að tryggja sigurinn
réttum leik'
TVEIR leikir voru leilknir í 2.
deild handknattMksins á þriðju-
dagsikvöldið og einn s.l. laugar-
dag á Akureyri. ÍR vann IBA
nyrðra með 26 gegn 21. KR vann
Keflavíkinga með 25:20 og
Þróttur vann ÍR flestum á ó-
vænt með 22:19,
Að þessium leikjum loknum er
staðan þannig í 2. deild:
KR 6 4 2 0 150:122 10
ÍR 6 3 1 2 140:129 7
Þróttur 4 2 1 1 80:84 5
105:112
82:126
Bikarmeisfarar
áfram með
Handhafar sigurlaunanna í
ensku bikarkeppninni, Everton
tryggðu sér sæti í 5. umferð
keppninnar nú með því að vinna
Wolverhampton í aukaleik lið-
anna á þriðjudag með 3-1. 62 þús
manns sáu leikinn. Everton
mætir Liverpool í næstu umferð.
I>á vann Birmingham aukaleik
við Rotherham með 2-1 og mæt-
ir Arsenal eða Bolton í 5. um-
ferð.
Keflavik 5 12
ÍBA 5 0 0
KR nægir nú 1 stig í tveim
lei'kjum til að tryggja sér sigur-
inn í 2. deild og þar með sæti í
1. deild að nýju.
Óvæntustu úrslitin urðu sem
fyrrr segir í leik ÍR og Þróttar.
Áttu hinir ungu ÍR-ingar slæm-
an dag, hafa sennilega reiknað
sér sigurinn nokkuð auðsottan
þegar mótlætið sagði til sin,
þá brást þeim flestum bogalistin
miðað við venju og vair það eink-
um í varnarleiknum.
Til orðasennu kom milli dóm
ara og kollega hans er sat á vara
Borgnesingar í körfn*
knaftleik um helglna
— léku þrjá leiki í íslandsmótinu í körfu-
knattleik á sunnudag
A SUNNUDAGINN voru leiknir
fimm leikir í íslandsmótinu í
körfuknattleik í Laugardalshöll-
inni. Skallagrímur frá Borgar-
nesi lék þrjá leiki og setti sterk-
an svip á mótið; léku Borgnes-
ingar gegn KR í 3. flokki karla
og töpuðu mjög naumlega i
skemmtilegum leik 21-18. í
meistaraflokki kvenna töpuðu
þeir að vonum gegn íslandsmeist
urum ÍR, 23-11 og loks urðu
þeir að láta í minni pokann fyrir
n. flokki KR 49-41 eftir mjög
góða og drengilega baráttu.
Voru allir flokkar Skallagríms
mjög frambærilegir og vel leik-
andi og er árangur þeirra góður
miðað við þær aðstæður sem þeir
búa við. Er auðséð að Borgnes-
ingar leggja góða rækt við
körfuknattleiksíþróttina og er
þess er sat. Neitaði hann að verða
við beiðni dómara að hverfa það
an og varð af þessu hin leiðin-
legasta töf á leiknum cng kæru-
mál munu nú hafa risið.
Leikur KR og Keflavíkur var
hinn harðasti, en þó höfðu KR-
ingar lengst af öruggt forskot.
12-6 var staðan í hálfleiik en á
tímabili er leið til loka unnu
Keflvíkingar mjög á og komst
forskot KR niður í 1 mark. En
endasprettfurinn tryggði 5 marka
sigur.
Donir unnu Svíu
tvívegis
DANIR og Svíar léku tvo lands-
leiki í handknattleik á miðviku-
dag og fimmtudag. Danir unnu
báða leikina, þann fyrri með 22
gegn 19 og hinn síðari með
19—14. Staðan í hálfleik í síð-
ari leiknum var 8—8.
það góðs viti að þeirra yngstu
menn ná tiliölulega beztum ár-
angri og spáir það góðu um
framtíðina.
Aðrir leikir þennan dag voru
milli ÍKF og ÍR í II. flokki
karla. Þar sigruðu ÍKF í skemmt'
legum og hröðum leik 42-23, og
er það mjög sanngjarn sigur,
því ÍKF liðið hafði leikinn í
hendi sér frá upþhafi og er þetta
II. flokks lið þeirra mjög
skemmtilegt og ber þar mest á
Æfingin
skapar
meistarann
Heimsmeistarinn franski
Jean-Claude Killy hefur
unnið hvern sigurinn af öðr-
um á stórmótunum í Ölpun-
um að undanförnu. í gær
vann hann létt og auðveldlega
svigkeppnina á alþjóðlegu
móti í Chamonix. Tími hans
var 1:34,79, 2. Mignod Frakkl.
1:36,54. 3. Guy Perillat 1:37,17
Það var rigning og kalt og
slæmar aðstæður.
Til gamans birtum við hér
tvær myndir af Jean Claude
Killy. Sú stærri er af hon-
um nýlega er hann er á fullri
ferð í bruni, þar sem hann
náði 130 km hraða. Sú minni
er af honum er hann var 7
ára byrjaður skíðaiðkanir af
miklum móð.
’eyni, Sigurði og Einari og eiga
,eir framtíðina fyrir sér, sterkir
ljótir og leiknir piltar. í L
ílokki karla sigraði Árrnann ÍS
37-26, eftir að hafa aðeins haft
tveggja stiga forskot í hálfleik-
10-8.
Frœgusfu knattspyrnulið Evrópu 7:
Glasgow Rangers með 70 ára frægðarsögu
í Glasgow, þar sem knatt-
spyrna er nánast sagt eins í
hávegum höfð og trúarbrögð,
er það óskadraumur þeirra
áköfustu að Skotar vinni báða
Evrópubikara og Celtic vinni
bikar meistaraliða. Bæði lið
in eru nú komin í 8 liða úr-
slit hvort í sinni keppni. Lið-
in eru svarnir andstæðingar
og svo hefur verið lengur en
elztu núlifandi stuðnings-
menn liðanna muna.
Rangers, sem orðið hefur
að láta í minni pokann fyr-
ir Celtic að undanförnu, er
nú að ná sér aftur á strik. Ef
þakka má einum leikmanni
það þá er það danski bak-
vörðurinn Kaj Johansson,
sem kjörinn var knattspyrnu-
maður ársins í Skotlandi
(kjörinn af knattspyrnuunn-
endum 1966).
Með Kaj Johansson sem
ásamt John Greig skipa bak
varðastöðurnar í liðinu hefur
Rangers sótt sig mjög upp á
síðkastið og var í ársbyrjun
fáum stigum á eftir Celtic í
1. deildinni skozku. Báðir
bakverðirnir eru þekktir fyrir
að láta sér ekki nægja varn-
arsvæði á vellinum, heldur
sækja fram og skora jafnvel.
Baráttan milli Rangers og
Celtic ristir miklu dýpra en
aðeins á knattspyrnusviðinu.
Rangers er félag þeirra er að
hyllast mótmælendatrú, Celt-
ic heldur fast og ákveðið við
sínar kaþólsku erfðavenjur.
Hver sá drengur í Glas-
gow, sem ekki er kaþolikki
á eina ósk stærsta — að leika
með Rangers á hinum frægi
velli félagsins, Ibrox. Sá leik
vangur rúmar 100 þús. manns
og er næst stærstur leikvanga
í Skotlandi, næst á eftir
Hampen Park sem rúmar um
110 þús. og þar fara lands-
leikir fram.
Trygglyndi stuðnings-
manna Rangers á sér hlíð-
stæður. Fyrir nokkrum árum
mælti einn þeirra svo fyrir
í erfðaskrá sinni, að lík sitt
skyldi brennast og öskunni
stráð yfir Ibroxleikvanginn.
Það var orðið við þessari ósk
— dag einn er enginn leikur
fór fram.
Rangers hafa verið ókrýnd
ir konungar knattspyrnu í
Skotlandi í 70 ár. Félagið hef
ur unnið meistaratignina 34
sinnum og skozka bikarinn 19
sinnum — hvorttveggja met
í Skotlandi. Síðan 1930 hef-
ur liðið verið 14 sinnum í úr-
slitum um skozka bikarinn,
en keppnin er útsláttarkeppni
og margir úlfar á leiðinni til
úrslitaleiksins. En liðið hef-
ur unnið bikarinn jafnoft.
„Pílagrímum" víðvegar frá
Skotlandi — og erlendis frá
einnig — er leyft að skoða
salinn þar sem Rangers
geyma verðlaunagripi félags-
ins á sunnudagsmorgna. í
andagt ganga þeir hljóðir
fram hjá hverri hillunni af
annarri hlaðinni verðlauna-
bikurum, skálum, styttum og
veggjum þöktum oddfánun-
um og medalíum.
Rangers komust í 8 liða úr-
slit Evrópubikara bikarmeist-
ara nú með því að slá út
bikarhafa, lið Borussia Dort-
mund — lið sem m.a. er skip
að stjörnum „silfurliðs"
Þýzkalands frá HM, Siegfri-
ed Held, og Lothar Emmer-
ich í framlínu.
Nú standa liðsmenn Rang-
ers andspænis baráttu við
Real Zaragoza og verða leik-
ir í Glasgow 1. marz og í
Zaragoz 22. marz.
Helztu leikmenn Rangers
eru:
Kaj Johansson, „uppáhalds-
barnið“ í skozkri knattspyrnu
Hann lék 27 landsleiki fyrir
Danmörku. Hefur nú verið 4
ár í Skotlandi og er nú á 2.
ári hjá Rangers.
Dave Provan, 5 sinnum
landsliðsmaður. Þekktur fyr-
ir öruggar vítaspyrnur.
John Greig, fyrirliði Rang
ers og skozka landsliðsins
með 24 landsleiki að baki.
Aðalgaman hans er að sækja
upp kantinn og skora.
Mc Kinnon miðvörður,
sterkur varnarmaður, sem
einnig er sókndjarfur.
Dave Smith, v. framv. einn
leiknasti leikmaður Skotlands
Willy Henderson, h. út-
herji eldsnöggur leikmaður
með mikla knattlækni. Hann
hefur 25 sinnum verið í lands
liði.
Jim Fórest miðherji, aðal-
markskytta liðsins. Skoraði
30 mörk á keppnistímabilinu
64-65 — met eftir strið í Skot
landi. Nýlega skoraði hann 5
mörk í leik.
Annars á Rangers meira úr
val likmanna en nokkurt ann
að félag. Með Rangers hafa
leikið tveir íslendingar, fyrst
Albert Guðmundsson og síð
an Þórólfur Beck.