Morgunblaðið - 10.03.1967, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.03.1967, Blaðsíða 3
3 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1967. Tónlistarfélagið efnir til sam- keppni um kammertónverk Allir tónleikar félagsins til vors ákveðnir TÓNUISTARFÉLAGIÐ hefur ákveðiö að efna til samkeppni um kammertónverk fyrir 3 til 7 hljóðfæri. Lengd verks- ins 10 til 20 mínútur. Er hljóð færaskipan frjáls, en þess far ið á leit, að íslenzkir hljóð- færaleikarar geti flutt verkið. íslenzkum tónskáldum yngri en 40 ára er heimilað að taka þátt í samkeppninni. Frestur til að skila verkinu er til 1. apríl 1968. Dómnefnd verður skipuð tveimur íslenzkum tónlistarmönnum og einum viðurkenndura erlendum tón listarmanni. Á fundi hjá framkvæmda stjóra Tónlistarfélat-isins, Birni Jónssyni og Ragnari Jónssyni í Smára, íneð frétta mönnum í gær komu ofan- greindar upplýsingar fram. Ekki kvaðst Ragnar vita, hvort Tónlistarfélagið efndi til fleiri samkeppna á þessu sviði, en með þessu viljum við veita okkar ungu tón- skáldum uppörvun eins og hann komst sjálfur að orði. Enn er ekki ákveðið hverjir skipa munu dómnefndina, en þriðji maðurinn verður út- lendingur. lék Jörg Demus, píanóleik- ari. Ungverski fiðluleikarinn André Granat mun n.k. mánu dags- og þriðjudagskvöld leika með aðstoð Árna Kristj ánssonar. Granat byrjaði fjögra ára að leika á fiðlu hjá föður sínum. 3 ára hóf hann tónlistarnám við háskól ann í Budapest. Hefur hann verið konsertmeistari margra þekktra hljómsveita og er nú á fáum árum kominn í röð fremstu fiðluleikara sem ein- leikari. Hann hefur farið í hljómleikaför víða um heim. Samhljóða einleiknum er hann prófessor í fiðluleik. Þá kemur til landsins síð- ar í mánuðinum frægasta kammerhljómsveit Vínarborg ar „Die Wiener Solisten." í sveitinni eru alls 12 manns, allt valdir einleikarar. Á und anförnum árum hefur sveit- in ferðast um allan heim og hlotið hvarvetna góða dóma og mikið lof. Sagði Ragnar að koma þessa fólks til ts- lands yrði án efa talinn stór- viðburður í ísl. tónlistarlífi. Ungverski píanóleikarinn Andor Folde er væntanlegur til landsins í aprílmánuðL Folde er kunnug jafnt hér- lendis sem annars staðar af fjölmörgum grammófónplöt- um m.a. með mörgum fremstu hljómsveitum Evrópu og Ameríku. Síðar í apríl kemur til landsins norski pí- anistinn Kjeld Bækkelun, sem er kunnur hér síðan hann lék með sinfóníuhljómsveit- inni. Þá kom fram á þessum fundL að tónleikar Tónlistar- félagsins til vors hafa allir verið ákveðnir. Þegar hafa á þessu ári verið haldnir tvenn ir tónleikar. Á þeim fyrri söng norska óperusöngkonan Edith Thallaug, en á þeim síðari Anare oranat. wDie Wiener Solisten“. í maímnáuði hefur félagið boðið til landsins ungum ís- lendingL sem lýkur söngnámi í vor, Eyvind Brems íslandi. Hann er sonur Elsu Brems og Stefáns tslandi. Verða þeir tónleikar fyrstu opin- beru tónleikarnir hans. Síðar í maí er væntanl. kínvenski píanistinn Fou Tsong. Hann er tengdasonur hins fræga fiðluleikara Yehudis Memhu- ins og talinn „afburða virto- us.“ Hertha Töpper, ein fræg- asta söngkona Þýzkalands kemur til landsins í sumar og mun maður hennar Franz Mixa leika undir. „Engar gæSur við sportveiðimenn" VEIÐIMÁLIN tóku mestan fund- artíma Búnaðarþing i gær. „Þetta er veigamesta málið eem liggur fyrir þessu Búnaðar- |>ingi“, sagði Vatnsdælagoðinn Guðmundur í Ási — og þótti «kki ótrúleg rödd úr þeirri sveit. Búfjárræktarnefnd Ihafði fjall- •ð um málið. Hjalti Gestsson hafði framsögu og skýrði álit nefndarinnar S frumvarpi þvi til laxveiðilaga, sem nú liggur fyrir AlþingL Var nefndin samþykk sumum nýmælum frumvarpsins eins og t.d. að fjölga um tvo í veiðimálanefnd og bæta þar við fulltrúum frá Landssamtoandi stangaveiðimanna og Lands- sambandi veiðifélaga. Töldj menn að veiðimálanefnd væri æskilegur vettvangur fyrir við- ræður þessara aðila — annar ekki líklegri tii að gefa betri raun. Aftur á móti var nefndin á móti ýmsum öðrum ákvæðum frumvarpsins eins og t.d. breyt- ingum á skaðatoótagreiðslum, at- kvæðisrétti í veiðifélögum o.fl. Búnaðarmálastjóri taldL að I frumvarpinu gætti nokkuð þeirrar stefnu að draga ráðin yfir veiðinni úr höndum bænda. Það mætti ekki ske. Hér yrði Búnaðarþing að vera vel á verði. „Þetta er landbúnaðarmál. Það þar-f að tryggja það sem bezt, að veiðirétturinn verði ekki skilinn frá jörðunum né hlunnindin tek- in undan þeim. Bændur eiga að taka tillit til heilbrigðrar fræði- mennsku, en allar gælur við sportveiðimenn eru óþarfar", sagði búnaðarmála \ íri um leið og hann lagði til að nefnd yrði sett í málið til að taka alla lax- veiðilöggjöfina til enduxskoðun- ar. Veggblöð í Finnltuidi Helsingfors 9. marz, NTB. VEGGBLÖÐ hafa nú haldið inn- reið sína í Finnlandi eftir að prentarar fóru í verkföll. Prenta dagtolöðin helztu fréttir á stór blöð, sem þau svo hengja upp fyrir utan ritstjórnarskrifstofur sínar. Sumstaðar í Finnlandi er hafin útgáfa á fjölrituðum blöð- um, sem dreift er um borgirnar og er talsvert um auglýsingar í þeim. Husgögnin fáið þér hjá Valbjörk Höfum fengið smekkleg og hentug barnarúm (raðkojur). Seljast tvö saman eða sitt í hvoru lagi, með eða ón Verzlunin # VALBJORK bakpúða. Skoðið þetta þægilega og skemmtilega húsgagn, Reykjavhc103 SÍinÍ16414 og nýja „Eggstólinn", sem er hér á myndinni að ofan. ogGlerárgötu28,Akureyri STAKSTEiMAR Erfitt líf hjá kommum Kommúnistar eiga við ýmsa erfileika að etja um þessar mund ir eins og vænta mí, þar sem kosningar eru framundan og þaS sem erfiðleikunum veldur er fyrst og fremst að koma saman framboðslista í Reykjavík, án þess að til algjörs klofnings komi í Alþýðubandalaginu. Það var raunar búið að samþykkja á fundi í Alþýðubandalagsfélagi Reykjavikur að framboðslisti þess við alþingiskosningarnar f vor skyldi liggja fyrir eigi síð- ar en 10. febrúar. Á honum bóÞ ar þó ekkert enn og eins og mál- in standa nú er hans ekki að vænta í náinni framtíð. Magnus og Jón En baráttan um framboðslista Alþýðubandalagsins í Reykjavík stendur nú um það hvort Magnús Kjartansson skuli skipa fyrsta sætið og Jón Baldvin Hannibalsson annað sætið. Einar Olgeirsson hefui látið í það skína við uppstillingarnefnd Al- þýðubandalagsins, að hann muni láta af þingmennsku, en ef hann fái ekki ráðið eftirmanni sínum muni hann endurskoða þá af- stöðu. Og skoðun Einars og ann arra kommúnista er sú, að Magnús Kjartansson skuli skipa fyrsta sæti á framboðslistanum. Sá maður en hins vegar eitur í beinum samstarfsaðila komm- únista í Alþýðubandalaginu, og vilja þeir gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að koma í veg fyrir að Magnús skipi fremsta sæti framboðslistans i Reykjavík. Fulltrúi þeirra á list anum, Alfreð Gíslason, hefur ákveðið að láta af þingmennsku og hafa Hannibalistar lagt áherzlu á að Jón Baldvin Hannibalsson skipi annað sæti listans. Jón Hannibalsson er hins vegar eitur í beinum kommúnista, sem engan veginn geta hugsað sér að hann skipi þetta sæti listans. Málin standa því þannig að kommúnistar bjóða upp á mann, sem sam- starfsaðilar þeirra geta engan veg inn sætt sig við og Hannibalistar bjóða upp á mann, sem kommún istar geta engan veginn sætt sig við. Það er því engin furða þótt erfiðlega gangi að koma listan- um saman. Fram d elleftu stundu Herbragð kommúnista nú virS- ist vera það að draga það fram á síðustu stund að semja um fram- boðslistann í Reykjavík, þannig að Hannibal Valdimarsson og Björn Jónsson verði búnir að birta sina lista í Norðurlandi eystra og Vestf jarðakjördæmi. Með því ætla þeir að koma í veg fyrir að Hannibal beiti sömu ráð um og hann gerði á páskunum 1963, þegar hann rak Berg Sig- urbjörnsson niður í gegnum kok ið á kommúnistum með þvi að hóta algjörum samstarfsslitum að öðrum kosti Kommúnistar muna enn páskadagana þá, og ætla sér að koma í veg fyrir að Hannibal beiti sömu ráðum nú til þess að koma syni sínum í annað sæti framboðslista Alþýðu bandalagsins í Reykjavík. Það er því ljóst, að veður eru öll vá- lynd í þessum herbúðum og verð ur einkar skemmtilegt að fylgj- ast með þeim átökum, sem fram undan eru í Alþýðubandalaginu. Það er líklega einhver skemmti- legasta framhaldssaga, sem hægt er að birta, ef miða má við reynslu, sem þegar hefur fengiut af framboðsmálum kommúnista.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.