Morgunblaðið - 10.03.1967, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1967.
í leit að
EFTER fimm ára hlé kveður
>orvaldur Skúlason sér hljóðs
í Bogaisal Þjóðminj asafnsins. Það
er ekki einasta ánægjulegt, held
ur listviðburður, sem verðskuld-
ar alla athygH. iÞorvaldur sýnir
okkur að þessu sinni 21 mynd,
allt málrverk, sem aldrei hafa
komið fyrir sjónir manna áður
og er því enn trúr þeirri reglu
sinni að sýna aldrei annað en
hið nýjasta.
Þetta eru myndir, sem f>or-
valdur hefur lokið við eftir
margra ára baráttu við Ht, form
og efni, og Hstamaðurinn kemur
fram á sinn eigin hátt sem slík-
ur — leitandi sál, sem vill finna
til með málverkum sinum — eins
og allt, sem er skapandi' verður
að þjást, áður en það finnur
fullkomnun sína. Forrn, leikux
forma, hlutföll, litir, sem gæða
fletina lifi og magna þá, atriði,
sem skapa dramatískt Hf á milH
eiginda málverksins — þar
stendur Þorvaldur sem éinn aí
brimbrjótum í óhlutlaegri mynd-
sköpun seinni tíma hérlendis —
í viðleitni manna til að búa
til það, sem við nefmuim mál-
verk, hið hreina málverk, sem
uppruna sinn, líf og tilveru 1
aiédfum eiginleikum myndflat-
arins. Flestir myndlistarmenn,
sem eru yngri en Þorvaldur
hugsa líkt og þeir mörgu ungu
Estnemax sem ég hefi verið svo
gæfusamur að fá að umgangast,
sem kennari undaniarin 10 ár:
Að það sé ekki hægt annað en
að virða og meta starf hans.
Hvort sem þessum ungu drengj-
tun eða stúlkum hefur fundist
hann góður eða slæmur málari,
þá hefur það sjaldnast farið
hjá þeim, hvilíkur brautryðjandi
hann er í hreina myndlist hér
á landi og hversu víðtæka tján-
bigarmöguleika hann þar með
opnaði fyrir málverkið. Lista-
maður með hæfileika, sem hlutu
sð færa honum þægilega til-
veru og ríkidæmi, ef hann
vildi nota þá til að þjóna vana-
bundnum smekk almennings,
hann fómaði öllu slíku fyrir
sannfæringu sína í óeigingjamri
leit að hinu hreina málverki.
Hver sá áhugamaður um mynd-
list, sem ekki skilur þetta, hlýt-
irr að vera afkvæmi annarlegra
vanabundinna hugmynda, sem
ekki eiga heima þar, sem þrosk-
andi, skapandi myndlist er ann-
ars vegar. Að lesa í myndlist er
Mutur, sem hefur því miður
hefur farið algjörlega framhjá
meirihluta þjóðar vorrar. Lands-
lag í öllum sínum margbreyti-
leika er ekki nema eitt af mörg-
trm viðfangsefnum málverksins,
•n hér á landi virðist það vera
grundvöUur allrar listsköpunnar
I málverki, sem almenningur vill
málverki
viðurkenna. En ég er þar með
ekki að áfellæt fólkið sjálft, því
einangrun og áhugaleysi um
listkynningu á hér stóran hlut
í 'máli. Einn smásteinn í fjöru
getur örfað myndlistarmann til
jafn stórra afreka og hin stærstu
og þjóðlegustu fjölL Því móti-
við getur aldrei orðið í hugar-
heimi skapandi málara ánnað en
uppörfun til átaka, hvort sem
í hlut á víðfrægt fjaU eða smá-
hlutur á förnum vegi. Þorvaldur
fór fyrstu manna hérlendis að
fást við hreina geometríu, og
hann hefur ekki farið varhluta
af þeim hættum, sem þessu Hst-
formi fylgja, þó að hann hrfi í
flestum tilvikum sloppið vel frá
þeim. Aðrir hafa sloppið sýniu
verr, þótt vafalítið hafi þessi
glíma við hin ströngu form geo-
metríunnar verið þeim lærdóms-
rikur skóli. Trúarlega hugsa þeir
henni nú þegjandi þörfina, enda
höfðu þeir ekki erindi sem erf-
iði. Hjá öðrum var geometrían
kannski merkilegur liður í þró-
un þeirra, en allt mun þetta
koma skýrar í ljós ,er fram
Hða stundir.
En Þorvaldur hefur ekki
hvikað frá sannfæringu sinni,
hann er enn sem fyrr óskiptur í
vandamálum geometríunnar,
þótt segja megi, að myndir hans
núna séu orðnar mýkri og fyllri
en áður, þróun hans hægari og
markvissari.
Þegar maður lítur yfir sýning-
una er það áberandi, að ómögu-
legt er að koma auga á lélegt
verk, þótt' myndirnar séu sjálf-
sagt ekki allar í sama gæða-
flokki — það ber vott um aga,
yfirvegun, strangar kröfur ag
heilbrigt mat á hhibunum.
Að nefna nöfn mynda, sem
hriifu mig einna mest, er dáHtið
gloppótt, því að sl&ar myndir
breytast við nénari kynningu, og
eru sumar seinteknari en aðrar.
Þó vil ég nefna nokkrar af
handabófi: Mynd nr. 3 .jSveifl-
ur“ í rólegum litatónum, vinnur
mikið á við nánari kynni, þó svo
að manni finnist hún góð strax.
Nr. 20 „Bj art rými“, er svo
fersklega máluð að hún verk-
aði á mig líkt og nýir ávextir.
Mynd nr. 9, „Hvít birta“, er
byggð upp af andstæðum sveifl-
um forma og lifandi Ijóss og er
svo vel máluð og heií, að hún
ber af systurmynd sinni, þrátt
fyrir færri litatóna. Hún er öll
svo miklu heilli. „Blár hljómur"
(12) og „óskýrð mynd“ (16). eru
einnig myndir, sem fekið er
eftir.
Stórar myndir njóta sín ekki
til fuUs í litlum sölum, en Boga-
salurinn er þannig að svo er
sem minni myndir taíki sig betur
út, ef nokkrar stórar fylgja með.
og réttlætir það návist þeirra
varðandi heildarsvip sýningar-
innar. í heild er þetta fjölbreytt
sýning, sem kemur víða við inn-
an geometríunnar, en þó und-
arlega samstillt. Auðvitað gefur
3Vona sýning ekki yfirlit yfir
margþætt æfistarf málarans,
enda er henni alls ekki ætlað
þaið hlutverk, en Þorvaldur er
merkilega samkvæmur sér á
þessari sýningu.
En meðan almenningur hefur
ekki taekifæri til að sjá sæmi-
legt yfirHt verka íslenzkra Hsta-
manna í viðeigandi umíhverfi,
eru sýninigar þeirra sjálfra eina
leiðin til að fylgjast með þróun
þeirra og yfirleitt því, sem er
að gerast í myndlistinnL
Hvað Þorvald snertir fer að
koma tími til, að almenningi
gefist kostur á að sjá ýtaælega
yfirlitssýningu á verkum hans.
Það á alls ekki að vera skilyrði,
að menn séu annaðhvort dánir
eða komnir á grafarbakkann, að
sMkar sýningar séu réttlætan-
legar.
Þorvaldi hefir tekist með sýn-
ingu þessari að sannfæra áþreif-
anlega um möguleika listar sinn-
ar — einnig sjáum við, að hann
er frjór og skapandi í vinnu
sinni, og að því megi búast við
nýjum landvinningum af hálfu
hans í framtíðinni engu síður en
af mun yngri myndlistarmönn-
um. Því er ný sýning af list
hans okkur yngri málurum jafn-
an mikið tilhlökkunarefni.
Sýningin er opin fram á ann-
an sunnudag 19. þm., og er al-
menningi bent á að láta ekki
jafn gott tækifæri til að kynn-
ast list Þorvalds fram hjá sér
fara.
Bragi Ásgeirsson.
Rannsókn á
sprengju-
tilræSnm
holdið áiram
Washington, 9. marz. AP.
BANDARiÍSIKA ríkislögreglan
FBI, neitaði í dag að svara spurn-
ingum blaðamanna um hvort
rétt væri að tekizt ihefði aS hafa
upp á mönnunum, sem stóðu að
baki sprengjutilræðunum í júgó-
slavnesku sendiráðsskrifstofun-
um í Bandarikjunum og Kandada
29. janúar sl. Talsmaður FBI
sagði að rannsóknin stæði enn
yfir og sagði að enginn miaður
hefði verið handtekinn í sam-
bandi við sprengingarnar í Was-
hington, Ottawa, N e-w York,
CJhicago, San Francisco og Tor-
onto.
Sýsiing á Mokka
UM þessar mundir stendur yfir [
sýning á eftirmyndum af Látúns-
plötum úr enskum kirkjum. Eft-
irmyndir þessar eru eftir Donald '
Jesse, bandarískan kennara, sem
dvaldist hér á landi sl. jól.
Kevin Palmer, leikstjóri hélt
fund með blaðamönnum á
Mokka, þar sem hann gaf upp-
lýsingar um myndimar. Palmer
og Jesse eru kunningjar og sagði
Palmer Jesse hafa ætlað að
halda þessa sýningu, þegar hann
var hér á landi, en ekki hafa
þá fengið sýningarpláss, þar sem
víða stóðu yfir sýningar þá.
Kevin Palmer sagði, að eftir-
myndirnar væru gerðar með því
að leggja pappírsörk yfir látúns-
plötu og nudda hana vandlega
með svörtu vaxi. Mestu máH
skiptir að nudda aðeins þann
hluta blaðsins, sem þekur plöt-
una, að öðrum kosti verður eftir-
myndin óskýr. — Myndirnar á
Mokka virtust vel unnar.
Látúnsplötur voru venjulega
settar á grafhvelfingar og kirkju-
gólf. Þær voru yfirleitt á gröfum
aðalfólks eða ríkra kaupsýslu-
manna og gefa dýrmætar upp-
lýsingar um enskan klæðnað frá
1200 til um 1600.
Að sögn Palmers hefur Don-
ald þessi haldið sýningar á eftir-
myndum af látúnsplötum víða,
t. d. í Kanada, Kaliforníu og
New York. Jesse er 25 ára, og
hefur unnið að list sinni sl. 4 ár.
Hann er menntamaður sem kenn-
ari frá Harward háskólanum, en
Til sölu
5 herb. hæð með uppsteypt
um bílskúr, selst fokheld
við HoltagerðL
6 herb. hæð með uppsteypt
um bílskúr, selst fokheld við
Holtagerði.
Einbýlishús nýtt, 140 ferm.,
allt á einni hæð, 4 svefn-
herb., bílskúrsróttur, við
Hjallabrekku Kópavogi.
4ra herb hæð á einni hæð
við Háteigsveg ásamt bíl-
skúrgarður íullræktaður
og skiptur.
PASTEI6NASAI AN
HÚS&EIGNIR
BAMKASTRÆTl é
Sími 40863
FASTEIGNASALAN
GARÐASTRÆTI 17
Símar 24647 og 1522L
7/7 sölu
?ja herb. ný íbúð á 2. hæð
við Hraunbæ, ásamt einu
herb. á jarðhæð. íbúðin er
fullfrágengin, harðviðarinn
réttingar, teppi á stofú, hlut
deild í sjSlfvirkum þvotta-
vélum.
4ra herb. nýieg hæð við Reyni
hvamm, allt sér.
4ra herb. íbúð við Ljósheima
á 8. hæð, sérþvottahús á
hæðinni, greiðsluskilmálar
hagkvæmir.
5 herb. íbúð á 1. hæð við Háa
leitisbraut, vandaðar innrétt
ingar, teppi á stofum, frá-
gengin lóð, útb. má greiða
í áföngum, ef íbúðina þarf
ekki að afhenda fyrr en
næsta haust.
Einbýlishús við Bragagötu,
Sólvallagötu og Snekkjuvog
Árni Guðjónsson, hrl.
Þorsteinn Geirsson, lögfr-
Helgi Ólafsson, sölustj.
Kvöldsími 40647.
kennir nú I London. Á sýning-
unni eru 9 myndir, sem allar eru
til sölu. Verð þeirra er frá kr.
500—2500.
7/7 sölu m.a.
2ja herb. íbúð í Vesturborg
inni.
2ja herb. íbúð í Austurborg
inni.
3ja herb. Sbúð á 4. hæð við
Stóragerði.
3ja herb. íbúð á 8. hæð við
Hátún.
4ra herb. íbúð á 2. hæð við
Háaleitisbraut.
4ra herb. risíbúð við Lang-
holtsveg.
5 herb. einbýlishús við Soga
veg, með bílskúr.
5 herb. embýlishús við
Breiðholtsv. með bílskúr.
5 herb. einbýlisihús við Bald
ursgötu.
Kópavogur
Úrval af íbúðum og einbýl
ishúsum. 40. ferm. verzlun-
arhúsnæði á mjög góðum
stað í KópavogL
Seltjarnarnes
Á Seltjarnarnesi höfum við
til sölu glæsilegar 4, 5 og
6 herb. íbúðir.
Steinn Jónsson hdL
Lögfræðistofa og fasteignasala
Kirkjuhvoli.
Símar 19090 og 14951.
Heimasími sölumanns 16515.
KVOLDSIMI 30587
Til sölu
2JA HERB. ÍBÚÐIR
75. feriru. jardtiæð við Álf- |
heima.
60 ferm. á 9. hœð við Aust-
urbrún.
55 ferm. í nýju húsi við |
Fálkagötu.
60 ferm. á 2. hæð við Ljós- |
heima.
55 ferm. á jarðhæð við |
Unnartoraut.
50 ferm. kjallari við Karfa-
vog.
3JA HERB. ÍBÚÐIR
95 ferm. eftri hæð í tvíbýlis- |
húsi 1 Kópavogi.
98 ferm. á 2 hæð í f jölbýlis |
húsi við KJeppsveg.
85 ferm. á 3ju hæð við
Ljóeheima.
75 ferm. á Jarðhæð við |
Glaðheima
4RA HEKB. ÍBÚÐIR
120 ferm. inndregið ris við
SóLheima.
114 ferm. á 10 hæð viö Sól-
heima.
110 ferm. á 7. hæð við Ljós-
heima.
115 á 4 hæð við Ljósheima.
1 SMÍÐUM
2ja 3 ja «n o* S herb. tbúStr
i Ártiæjarhverli.
250 ferra. i 2 hæð i verzlun-
arttúsi vi8 Sogaiveg.
165 ierm. einbýlishús i Am
arnesi.
3ja herb. íbúð ásaimt bílskúr
tilbúin undir tróverk viö
Arnarhraun 1 HafnariirSi.
Fokhelt tvibylishús í Kópa
FASTEIGIMA-
PJÓNUSTAN
A usturstræti 17 (Silli & Valrii)
RACNAR TOMASSON HDL SIMI 24b4j
SOLUMADUR FASTEICNA
STEFAN J. RICHTER SIMI 16870