Morgunblaðið - 10.03.1967, Síða 16

Morgunblaðið - 10.03.1967, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FöSTUDAGUK 10. MAKZ l«0f. ittoro%iaMaí>iÍ) Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: f lausasölu kr. Áskriftargjald kr. 105.00 Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. 7.00 eintakið. á. mánuði innanlands. 1 \ j VÍÐTÆK UMBOTA STARFSEMI í HEILBRIGÐISMÁL UM ¥jað kom gflögglega í Ijós, í hinmi yfirgripsmiklu ræðu Jóhanns Hafsteins um heil- brigðismál á A'iiþingi í fyrra- dag, að núverandi ríkisstjórn hefur beitt sér fyrir mjög víðtæku umbótastarfi á þessu sviði og á það við um löggjaf- arstarfsemi, stjómsýsiu og framkvæmdir. Talið er að nú standi yfir byggimgar sjúkrahúsa víðs vegar um landið, sem samtals munu kosta 700—800 miiljón- ir króna, þegar þeim er að fullu lokið. Stærstu þættirn- ir í þessum framkvæmdum eru að sjáifsögðu Landsspítala byggingin og Borgarsjúkra- húsið í Reykjavík en þeir áfangar þessara sjúkrahúsa sem nú eru í byggingu munu kosta fullgerðir nokkuð á sjötta hundrað miiljónir kr. Auk þess eru í byggingu sjúkrahús í Vestmannaeyj- um, Akranesi og Húsavík, nýlokið er við spítalabygg- iingar á Siglufirði og Sauðár- króki og í undirbúnimgi er -stórfelld stækkun sjúkrahúss ins á Akureyri og tililögur eru uppi um byggingu sjúkrahúss á Suðurlandi. Ríkið greiðir 60% af byggingarkostnaði þessara sjúkralhúsa. Þá kom það einnig fram í ræðu Jóhanns Hafsteins, heil- brigðismálaráðherra að fjár- veitingar til heilbrigðismála hafa aukizt um ailt að 140% frá árinu 1958—1967 á föstu verðlagi ársins 1965. Á þessu tímabili hafa fjárveitingar til ríkisspítala aukizt um 139,8%, rekstrarkostnaður ríkisspítala hefur aukizt um 133,9%, 1 byggingarstyrkir til sjúkra- húsa og læknisbústaða hafa aukizt um 119,4%, rekstrar- styrkir til einkasjúkrahúsa hafa aukizt um 111,9% og rekstrarstyrkir til heilsu- verndarstöðva um 109,3%. Á undanförmum árum hef- ur ríkisstjórnin einnig beitt sér fyrir víðtækri og blóm- legri lagasetningu á sviði heil brigðismála. Þar má sérstak- lega nefna tímamótaOöggjöf á borð við sjúkrahúslögin frá 1964 og læknaskipumarlögim frá 1965. Sjúkrahúsalögin hafa bætt mjög aðstöðu sveitarfélaga til sjúkrahúsa- bygginga, en þar er lögfest að rí'kið skuli greiða 60% framiag sitt til bygginga á 8 árum, þegar um stærri sjúkrahús er að ræða og á 5 árum þegar um mimni sjúkra- hús og lœknisbústaði er að tefla. L æ knask ipunarlögin eru merk löggjöf, sem sérstaiklega er ætlað að bæta úr lækna- skorti í strjáltoýlinu, m.a. með því að komið verði upp læknamiðstöðvum og marg- víslegri fyrirgreiðslu við þá lækna, sem starfa í strjáltoýl- imu. Ennfremur hafa verið sett ný lyfsölulög, hjúkrunar- lög, ljósmæðralög, lög um Ij ós m æ ðraskó la og frv. um fávitastofnanir liggur fyrir Alþingi. Þá er í undirbúningi frv. um eiturefni og hættu- leg efni og unnið er að iög gjöf um málefni geðveikra. Ríkisstjómin hefur enn- fremur toeitt sér fyrir fjölL þættum öðrum nýjungum á sviði heillbrigðismála og má þar nefna ríkislán til lækna- stúdenta, sem er ætlað að stuðla að því að læknar fáist til starfa í strjáltoýlinu. Á árinu 1966 fengu fjórir lækna nemar sliík lán og í ár hafa 7 læknanemar fengið þessi lán en þau nema 75 þús. kr. hvert. Þá hefur verið komið upp Bifreiðalánasjóði héraðs- lækna, sem hefur sama ti‘lL gang að stuðla að því að læknar fáist til starfa úti á landsbyggðinni og var þrem- ur læknum veitt lán úr þess- um sjóði sl. ár, 100 þús. hverjum. Heiltorigðismálaráðherra hefur lagt áherzlu á að hafa náið samband við lækna samtökin um heiltorigðismálin og ekki sízt hina velmennt- uðu yngri lækna, sem kom- ið hafa fram með margvís- legar nýjar hugmyndir í Iþessum efnum á síðustu ár- um. í framlhaldi af þeim við- ræðum hafa þegar komið til framkvæmda ýmsar tillögur læknanna, en aðrar éru í at- hugun. Þá er og vert að geta þess, að næsta haust mun koma himgað einn fremsti sér fræðingur Svía á sviði al- mennra heiltorigðismála, á vegum ríkis og Reykjavíkur- 'borgar og mun hann vera þessum aðilum ti'l ráðuneytis um ýmis mikilvæg málefni á þessu sviði. Af þessu er Ijóst, að á und- anförnum árum hafa miklar framkvæmdir staðið yfir á sviði heiltorigðismála, mark- verð löggjafarstarfsemi og margvíslegar mýjungar. Hitt er svo annað mál, eins og heil brigðismálaráðherra benti á í þingræðu fyrr í vetur, að gíf- urleg verkefni liggja fyrir. Framfarir á sviði heiltorigðis- mála, 'læknisfræði og sjúkra- húsabygginga hafa verið ÉlA 1US/ J UTAN ÚR HEIMI Fiskveiðiþjóöir S-Ameríku færa sig upp á skaftið Eftir Halldór Sigurðsson LANDAMÆRUM rikja verS- ur ekki brevtt nema íyrir millirikjasamninga eða styrj- aldir þar sem fast land er undir fótum. Öðru máli gegn ir um öll mörk á hafi úti, þar eru óljós skil þess hvar endar yfirráðasvæði rikis og við tek ur opið haf. Þriggja mílna landlhelgin hefur notið almennrar Ihefð- ar allt síðan á 16. öld, en æ fleiri hallast nú að því að hún sé að ganga sér til ihúðar eins og svo margt annað, sem gott þótti og gilt fyrr á tím- um en á ekki iheima á þessari eldflaugnaöld. Það skiptir kannski ekki minnstu máli í þessu sambandi að mörg ríki telja sér nú brýna nauðsyn á að vernda fiskstofninn í haf- inu úti fyrir ströndum þeirra og svo eru líka önnur sem vitja blátt áíram fá að sitja ein að sínu. Ekkert alþjóðlegt sam- komulag Ihefur verið gert um samræmingu á þessu sviði. Nokkur lönd ihalda enn í heiðri þriggja mílna landlhelg ina, önnur hafa fært út land- helgi sína í sex eða tólf míl- ur. Sennilega er 12 mílna landlhelgin sú sem nú orðið nýtur almennastrar hylli og má þar til nefna að Danmörk og löndin tvö á Íberíuskaga, Spánn og Portúgal, Ihafa ný- verið öll tilkynnt að þau muni færa út landhelgi sína í 12 mílur í ár. Nokkur ríki hafa gerzt tölu vert djarftækari til sjávarins við strendur sínar og krefj- ast sum allt að 200 mílna landlhelgi eða sem næst 322 km. Allt eru þetta Suður- eða Mið-Ameríkuríki. Þar er eitt E1 Salvador, annað Guatem- ala, þriðja Nicaragua, fjórða Panama, öll í Ameríku miðri, Costa Méndez, utanríkisráð- herra Argentínu, lýsir yfir því að stjórn hans hafi ákveð iS að færa út landhelgina í 200 mílur. síðan S-Ameríkulöndin sem liggja að Kyrralhafinu, Ecua- dor, Perú og Ghile og loks Argentína, sem ein liggur við Atlantshaf. (Þess má reyndar geta svona í svigum að Costa Rica gerir nú tilkall til alls landgrunnsins úti fyrir strönd um sínum). Argentína varð síðast til þess ofantaldra níu landa að færa út landlhelgi sína í 200 mílur í janúarlok í ár, og kvað stjórnin í Buenos Aires ákvörðun þessa tekna með það fyrir augum að vernda hin auðugu fiskimið úti fyr- ir ströndum landsins. Þessi einhliða ráðstöfun var harðlega mótmælt og einkum voru það þrjú ríki sem mest höfðu á móti Ihenni. Þetta voru Sovétríkin, Kú'ba og Brasilía, sem öll stunda fisk- veiðar að töluverðu marki á Atlantshafinu sunnanverðu. Það er ekki lengra síðan en um nýár að málgagn kúb- önsku stjórnarinnar, Gramma birti miklar lofgreinar um fengsælu miðum úti fyrir ströndum Argentínu af því tilefni að Kúbumenn hyggja á verulega stækkun fiskveiði- flota síns. Mótmælaorðsending Kúbu af ofangreindu tilefni hefur orðið mörgum til nokkurrar skemmtunar og ekki að ófyrir synju. Þar sagði að eins og flestum væri kunnugt skildu ekki nema 100 km. hafs Kúbu og erkifjandann Bandaríkin, og sögðu Kúbumenn þeim vera spurn, hversu færi ef Bandaríkin tækju allt í einu upp á því að stækka land- helgi sína upp í 200 mílur, sem hefði það í för með sér að „töluverður hluti larvds okkar og stranda" félli undir bandaríska lögsögn. Argentínumenn hafa lengi litið á það ólhýru aúga að sífellt fjölgaði erlendum fiskiskipum úti fyrir strönd- um landsins. Austur-Evrópu- lönd sendu þangað togara með nýtízkulegum útbúnaði og verksmiðjuskip og sama ‘ Framhald á bls. 25 miklar og örar og kostnaður toefur vaxið hröðum skrefum. Ríkisvaldið og sveitarfélögin, ekki sízt Reykjavíkurborg, hafa varið miklum og vax- andi fjárupphæðum til þess- ara mála og mestu skiptir að það fé sé notað á sem hag- kvæmastan hátt og að fjár- festingin komist sem fljótast í gagnið. En heiibrigðismálin halfa verið tekin föstum tök- um og að þeim er unnið af sívaxandi krafti. HÁIVÍARK ÚSVIFNI /ksvífni Framsóknarmanna í ^ málflutningi nær há- marki á forsíðu Tímans í gær. Þar er því haHdið fram að Ríkisútvarpinu hafi verið kunnugt um að launaður er- indreki Framsóknarfliökksins, sem fór á vegum og á kostn- að Ríkisútvarpsins til Yest- mannaeyja hafi jafnframt ætlað þanigað á vegum Fram- sóknarfliok'ksins og að ákveð- ið hafi verið þá þegar, að kostnaður við ferðina skiptist að jöfnu mil'li útvarpsins og Framsóknarflókksins. Þetta er rangt Ríkisútvarp ið vissi ekki fyrr en löngu seinna, að umræddur maður ætlaði til Vestmannaeyja fyrst og fremst í erindum Framsóknarflokksins. Þetta kom skýrlega fram á fundi útvarpsráðs fyrir nokkrum dögum, og er ritstjórum Fram sóknarblaðsins því full kunn- ugt um það. Ríkisútvarpið greiddi allan kostnað við ferð 'hins launaða erindreka Fram sóknarfk>kksins, eins og raun ar var viðurkennt í Fram- sóknarmálgagninu sl. mið- vi'kudag. Hins vegar er ljóst af frétt Tímans í gær, að Fraimsóknarlfokkurinn hefur endurgreitt Rí'kisútvarpinu í fyrradag helming ferðakostn- aðar, og breytir það í engu ihinu alvarlega broti erind- reka hans. Framkoma Tímans í þessu máli er ekki síður alvarleg en brot erindreka Framsókn- arflokksins gagnvart Ríkis- útvarpinu, þar sem 'ljóst er að blaðið fer vísvitandi með rangt mál. PENFIELD KVADDUR James K. PemfieLd, sem ver- ið hefur ambassador Bandarikjanna á íslandi um nær sex ára skeið er nú á förum af landi brott. Á þeim tíma, sem hann hefur starfað 'hér á landi hefur hann áunn- ið sér meiri virðingu og vin- sældir íslendinga en -títt er um útlemdinga. Penfield'hjónin hafa gert sér sérsta'kt far um að kynn- ast landi og þjóð með þeim árangri, að þeir íslendingar munu margir, sem ekki hafa 'kynnzt landi sínu jafnvel og Penfieldhjónin hafa gert á þessum tíma. Starf ambassadors Bamda- ríkjanna hér á landi er vissu- 'lega þýðingarmikið og það skiptir miklu máli fyrir ís- lendimga hverjir veljast í íþað starf. Að öðrum ólöstuð- uim er óhætt að fuillyrða, að íslendingar hafa ekki átt jafn ánægjuleg samskipti við nokkurn semdiherra Banda- rí'kjanna hér á larndi, sem James K. Penfield. Þegar bann og kona hans hverfa nú af landi brott imn- an tíðar fylgja þeim hlýjar kveðjur og árnaðaróskir ís- lendimga með von um, að þau temgsl, sem þau hafa skapað 'hér á landl muni haldast og að ísilendingair eigi þess kost að sjá þau afbur hér á landi, þótt síðar verði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.