Morgunblaðið - 14.03.1967, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1967.
BÍLALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
Bensín innifalið í leigugjaidi.
SENDUM
MAGMÚSAR
SKfPHOLTI 21 sImar 21190
eftir.tokun simi 40331
sím' V44-44
mm/n
Hverfisgötu 103.
Súni eftir lokun 31160.
LITL A
bilaleigon
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigug.iald.
Bensín innifalið i leigugjaldi.
Sími 14970
BÍLALEIGAIM
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir íokun 34936 og 36217.
/PÆÆMÆy
RAUOARÁRSTIG 31 SiMI 22022
MORGUNBLAOIO
■jc Bakkus ekki dauður
Vestmannaeyingar hafa
ekki haft orS á sér fyrir að
vera bindindissamari en aðrir
íslendingar. Enginn mun hafa
„óttazt“ að hin nýja áfengisút-
sala í Eyjum yrði beinlinis sett
1 viðskiptabann hjá heimamönn
um, enda var útsalan opnuð
vegna óska þeirra sjálfra.
Fyrsti dagur hinnar nýju út-
sölu virðist lofa góðu fyrir ríkis
kassann og þjóðarbúið í heild,
þótt rétt sé að færa til frádrátt-
ar líklegan afla þeirra báta,
sem ekki komust á sjó daginn
eftir.
Bakkus gefur ekki sinn hlut.
Menn þurfa ekki að fara til
Vestmannaeyja til þess að kom
ast að raun um það.
Svetlana Stalínsdóttlr
Og þá er Svetlana Stalíns-
dóttir flúin land. Einhvern
tíma hefði það þótt saga til
næsta bæjar- og reyndar vekur
þetta enn athygli. En slíkir
hlutir koma fólki ekki lengur
úr jafnvægi, menn eru farnir
að gera ráð fyrir öllu í austri.
Þið hafið sjálfsagt veitt því at-
hygli oftar en einu sinni, að
menn yppta aðeins öxlum og
telja ekki ástæðu til að fárast
yfir ýmsu af því, sem gerist í
austrL En gerist hliðstæður at-
burður í vestri ætlar allt af
göflunum að ganga. Blöðin
fara af stað, efnt er til mann-
funda og menn gefa yfirlýsing-
ar. Sannleikurinn er nefnilega
sá, að fólk gerir margfalt meiri
kröfur til stjórna og ábyrgra
aðila í lýðræðisríkjunum, þótt
það geri sér ekki grein fyrir
því í daglega lifinu. Af ein-
ræðisríkjunum hafa menn
aldrei getað vænzt neins. Það
neikvæða er tekið sem sjálf-
sagður hlutur — og berist frétt
ir um eitthvað, sem jákvætt
getur talizt, fyllast menn barns
legri hrifningu.
Mikið veður er t.d. gert út af
því að bandaríska leyniþjónust
an hafi notað fé til þess að fá
bandaríska stúdenta tU þess að
veita upplýsingar um eitt og
annað í austrL sem þeir hafa
komizt að eða séð. Engum þyk-
ir hins vegar athugavert þótt
kommúnískir stúdentar veiti
sínum löndum slíkar upplýs-
ingar kauplaust og ekki væri
talið óeðlilegt þótt aðstandend-
ur stúdentanna kæmust í mikla
„hættu“, ef stúdentarnir reynd-
ust ekki samvinnuþýðir. Þar
sem menn lenda í þrælabúðum
fyrir að skrifa bækur, sem
valdhöfunum geðjast ekki að,
eru ekki gerðar háar kröfur
um siðferðisþroska og réttlæti
— eða öllu heldur! Þessi hug-
tök hafa alit aðra merkingu í
þeim löndum. Enda verða þessi
lönd að girða sig með múrum,
gaddavír, jarðsprengjum, blóð-
hundum — bæði þessum fjór-
fættu og hinum, sem ganga á
tveimur fótum og halda á vél-
byssu í höndunum, til þess að
þegnamir hlaupist ekki á brott
úr „sælunni". Okkur skilst, að
Svetlana dóttir Stalíns sé ekki
beinlínis í þeim erindum hing-
að vestur fyrir tjald að örva
ferðamannastrauminn þangað
austur. Ríki Stalins helzt ekki
einu sinni á bömum hans.
+ Togarar
Nú er togarinn Maí kom-
inn aftur að landi og með 300
tonn eftir skamma útiveru. Seg
ið þið svo að togaraútgerðin sé
dauðadæmd. Ég er ekki þar
með að draga úr þeim erfið-
leikum, sem þessi útgerð hefur
átt L Jafnvel þótt vel hafi
veiðzt á stundum, hefur tekju-
afgangurinn ekki orðið mikill
nema síður sé. Ljóst er að gera
þarf ráðstafanir til þess að
endurskipuleggja togaraútgerð-
ina og mynda nýjan grundvöll
fyrir hana. Vonandi verða skut
togaramir, sem nú er talað um,
upphaf nýrra tíma fýrir þessa
grein útgerðarinnar. Vonandi
tekst að stöðva margnefnda ó-
heillaþróun áður en sjómenn-
imir okkar hafa „gleymt“ fag-
inu. En við eigum enn aflaklær
og vonandi missum við þær
ekki til Bretanna.
Unglingamót
Skíðalandsmóti unglinga er
lokið og mun það hafa heppn-
azt vel. Piltar og stúlkur frá
Siglufirði, Akureyri og Reykja-
vík stóðu sig vel, en ísfirðing-
anna var lítið getið — og hafa
þeir þó jafnan átt frækna skíða
menn. Þar vestra hefur skíða-
iþróttin jafnan verið hálfgerð
„þjóðariþrótt" og vonandi eru
Vestfirðingamir ékki að syngja
sitt síðasta á því sviði.
í rauninni er ég alveg hissa
á því hve Reykvíkingar standa
sig oft vel á skíðum miðað við
keppinautana fyrir vestan og
norðan, þvi hér syðra er að-
staðan til skíðaiðkana langtum
óhagstæðari en á ísafirði, Siglu
firðL og á Akureyri. Þar geta
menn í rauninni spennt skíðin
á sig við eldhúsgluggann og
snjór er þar yfirleitt langtum
meiri og lengur ár hvert en híc
syðra.
-^- Líkamsrækt
í fyrri viku var þess getið 1
iþróttafréttum sér í blaðinu, að
kúluvarpari kominn á fimm-
tugsaldur hefði sett íslandsmet
á innanhússmótL slegið gamalt
met Husebys.
Það er óvenjulegt að íþrótta-
menn haldi keppni áfram jafn-
lengi og sá, sem setti metið —
og enn óvenjulegra, að þeir
vinni góð afrek komnir á þenn-
an aldur. En þetta sýnir, að
iþróttirnar geta haldið mönn-
um ungum, ef þær eru stund-
aðar af áhuga. Okkur — þess-
um fjölmörgu, sem sitja dag-
inn út og daginn inn við vinn-
una — og flýta sér svo heim til
þess að halda áfram að sitja —•
ætti þetta dæmi að vera tölu-
verður lærdómur. Við gerura
ekki nóg af því að halda líkam-
anum vel við. Fólk þarf að gefa
sér meiri tíma til að rækta
heilsuna með því að stunda
líkamsæfingar í einhverri
mynd Heilbrigt lifemi sakar
auk þess engan. í því sambandi
væri freistandi að minnast öga
é hina nýju endurhæfingarstöð
Bakkusar í Vestmannaeyjum
svo og menningarlega viðleitni
hans annars staðar á landinu.
en látum þetta nægja að sinnL
Hver og einn verður sjálfur að
finna það, sem honum hæfir
bezt í lífinu.
^fíido'
nýkomið úrval af
þessum viðurkenndu
úrum
*
Magnús Asmunasson
úra- og skartgripaverzL
INGÓLFSSTRÆTI 3.
NAGLABYSSUR
Skot og
naglar
fyrirliggjandi
í BAUER, HILTI
og RAMSET.
Tryggvagötu 10 - Sími 15815.
verkfceri & jórnvörur h.f.
HLJOIVIPLOTUR
Ný sending af hinum vinsælu London 4 rása stereo plötum tekin upp í dag —
mjög fjölbreytt úrvaL
Ennfremur mikið úrval af hljómplötum Sven Ingvars sem nú eru staddir hér á landL
Góðir gítarar á kr. 750.—
Einnig margar tegundir af Framus ragmagnsgíturum. Póstsendum um land allt.
Hljóðfœraverzlun Sigríðar Helgadóttur, Vesturveri
Sími 11315. — Box 562.