Morgunblaðið - 14.03.1967, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1067.
Skemmtileg keppni o;
tilþrif í Unglingalandsmóti
Akureyringar stsgahœstir en Siglfirð-
ingar unnu norrœna bikarinn
LANDSMÓT unglinga á skíðum
var háð*við skála Reykjavíkur-
félaganna um helgina og tókst
hið bezta. Margt manna fylgdist
með keppninni og mun um 1503
manns hafa verið í Hveradöium
á sunnudaginn. Margt mjög
efnilegra skíðamanna og kvenna
kom fram á mótinu, en kepp-
endur voru 21 frá Akureyri.
8 frá ísafirði, 10 frá Húsavík,
9 frá Siglufirði og 10 frá Reykja
vík. Móísstjóm og mótshald
tókst með þeim ágætum að
langt er síðan hliðstæðu er að
finna. Ruldi háði nokkuð og
biautir voru misjafnar og því
erfiðar.
Mótið fór í alla staði vel fram,
en kuldi háði keppendum. Marg-
áhorfendur komu til að horfa á
þessa keppni og sérlega á sunnu-
dag en þá voru um 1500 manns
í Hveradölum. Verðlaunaafhend
ing fór fram í Skíðaskálanum
í Hveradölum að lokinni keppni.
Sigurður Einarsson form. mót-
stjórnar afhenti sigurvegurun-
um verðlaunin.
Stefán Kristjánsson form.
S.K.Í. afhenti sigurvegurum í
•tigakeppni Héraða á mótinu
svonefndan Alpahikar. Akur-
eyri hlaut þennan bikar með 63
stig.
í norrænni keppni varð Siglu-
fjörður hlutskarpastur með 26
stig.
Að lokum þakkaði Þórir Lár-
usson form. Skíðaráðs Reykja-
víkur starfsfólki fyrir vel unnin
störf og keppendum fyrir kom-
una og sagði ánægjulegu Ungl-
ingamóti slitið.
Stórsvig
Stórsvigsmótið fór fram á
laugardag í Suðurgili í Jóseps-
dal. Herbert Mark austurrískur
skíðaþjálfari sem hér er staddur
lagði brautina sem var mjög
skemmtileg. Rásmark var í 600
m. hæð.
Norðan kuldi og snjúófjúk
háði keppendum í keppninni.
Færið var erfitt, hart uppi en
brotaskari fyrir neðan miðja
braut. Leikstjóri var Ásgeir
Eyjólfsson.
Ganga
kl. 4 við Flengingabrekku.
Rásmark skíðagöngunnar var
á sléttunni fyrir ofan Flenginga-
brekku, gengið var 7,5 km. og
endamark var á flötinni Fleng-
ingabrekku. Færi var erfitt,
skari var mikill í allri braut-
inni. Mikið rok og kuldi háði
keppendum og varð einn kepp-
andinn að hætta keppni vegna
kulda. Göngustjóri var Gísli
Kristjánsson.
Sigþrúður Sigurlaugsdóttir ÍBA
Köríuknottleibur
MIKIÐ var um að vera hjá
Körfuknattleiksmönnum um helg
ina. Tveir leikir fóru fram í 1.
deild. KR vann ÍKF með 86 gegn
54 stigum og Ármann vann lið
stúdenta með 80 gegn 39 stigum.
Þá var á föstudagskvöld leik-
inn annar leikurinn í 5 leikja bik
arkeppni Reykvíkinga og varnar
liðsmanna. Varnarliðsmenn sigr-
uðu með 66 gegn 65 stigum. —
Reykvíkingar unnu fyrsta leik-
inn.
Svig
Svigkeppnin hófst kl. 11 f.h.
á sunnudag í Hamragili. Braut-
ina lagði Herbert Mark, en ieik-
stjóri var Þórarinn Gunnarsson.
Veður var heiðskírt en dálítið
hvasst.
Brautin var sérlega skernmti-
leg en grófst illa sumstaðar.
Mikil og hörð barátta var á
milli keppenda í þessari braut
og er auðséð að mikið er til af
efnilegu skíðafólki sem er
framfarabraut.
Stökk
Langt er nú siðan að stökk-
keppni hefur verið haldin hér
sunnan lands. Stökkkeppnin
hófst kl. 4 á sunnudag í Fleng-
ingabrekku við Hveradali.
Mikill og erfiður undirbún-
ingar liggur á bak við þessa
keppni og má aðallega þakka
gömlum áhugamönnum skíðá-
stökkíþróttarinnar fyrir vel unn-
in störf. Stökkpallurinn byggð-
ur úr snjó og haft fyrir augum
að keppendur væru á aldrinum
13 — 16 ára, pallurinn var lYz
m á hæð og leyfði 28—30 m
stökk. Stökkstjóri var Páll Jör-
undsson og stökkpallsstjóri
Ragnar Thorvaldsson.
Stórsvig drengja 13—14 ára
Unglingameistari: sek.
Tómas Jónsson R. 36.6
2. Guðm. Frímannsson A. 36.9
3. Þorst. Baldvinsson A. 38.1
4. Albert Guðmundsson í. 39.1
Stórsvig stúlkna 13—15 ára
Unglingameistari: sek.
Barbara Geirsdóttir A. 42.7
2. Sigrún Þórhallsd. HSÞ. 48.3
3. Áslaug Sigurðardóttir R. 48.7
4. Guðríður Sigurðard. í. 68.8
Stórsvig drengja 15—16 ára
Unglingameistari: sek.
Bjarni Jensson A. 57.3
Tomas Jónsson Rvík
2. Eyþór Haraldsson R. 59.8
3. Jónas Sigurbjörnss. HSÞ 60.6
4. Björn Haraldsson HSÞ. 61.8
7.5 km .ganga drengja 14—16 ára
Unglingameistari: min.
Sig. Steingrímsson S. 34.u0.0
2. Ingólfur Jónsson S. 34.40.4
3. Ólafur Baldursson S. 35.27.5
4. Magnús Eiríksson F. 35.34.2
Svig drengja 13—14 ára
Unglingameistari: sek.
Tómas Jónsson R. 57.3
2. Þorsteinn Baldvinsson A. 59.1
3. Guðm. Frímansson R. 59.7
4. Haraldur Haraldsson R. 60.5
Svig stúlkna 13—15 ára
Unglingameistari: sek.
Sigþrúður Siglaugsd. A. 68.3
2. Áslaug Sigurðardóttir R. 81.7
3. Sigrún Þórhallsdóttir V. 87.7
4. Auður Harðardóttir R. 88.7
Svig drengja 15—16 ára
Unglingameistari: sek.
Ingvi ÓðinssonA. 77.9
2. Jónas Sigurbjörnss. A. 83.1
3. Bergur Finnsson A. 83.4
4. Bjarni Jensson A. 83.5
Stökk drengja 14—16 ára
Unglingameistari: |
Haukur Snorrason Sigl.
23.5m. 24.5 m. 209.0 stig
2. Ingólfur Jónsson Sgl.
10.0 m. 19.5 m. 167.5stig
Norræn tvíkeppni
Unglingameistari
Haukur Snorrason Sigl.
189.5 — 216.0 samt. 405.5 stig
2. Ingólfur Jónsson SigL
240.0 — 162.5 samt. 402.5 stig
Ganga Stökk
Alpatvíkeppnl
stúlkna 13—15 ára
Unglingameistari:
Áslaug Sigurðard. R. 135.58
2. Sigrún Þórhallsd. HSÞ. 167.34
3. Auður Haraðard. R. 320.44
Alpatvíkeppni
drengja 13—14 ára
Unglingameistari:
Framh. á bls. 31
Haukar unnu Val 24:22
og eru nú í þriðja sæti
Ármann í
Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ var
endanlega úr því skorið að það
verður Ármann er leikur í 2.
deild í handknattleik á vetri
komanda. Töpuðu þá Ármenn-
ingar fyrir Víking með 20:13, og
hafa þvi enn ekkert stig hlotið
í deildinni.
Leikur Ármanns og Víkings
var heldur daufur og tilþrifalít-
ill og var ekki að sjá að hann
væri baráttan um fallsætið. í
upphafi leiksins virtist þó svo að
Ármenningar ætluðu að spjara
sig, því þeir höfðu undirtökin í
leiknum, 5:4 á tímabili. Víkingar
jöfnuðu síðan og hélzt leikurinn
jafn til loka hálfleiksins, en þá
stóð 9:7 fyrir Viking.
f síðari hálfleik var leikurirm
að mun ójafnarg enda fór pá
stórskytta Víkinga, Einar Magn-
ússon, að njóta sín og skoraði
hann hvert markið á fætur
öðru, sum hver mjög falleg. Þaá
aðra deiid
var ekki fyrr en eftir 15 min
leik sem Ámenningum tókst loks
að skora, en Vikingar hélda
áfram að auka forskot sitt, enda
virtist svo að baráttuvilji Ár-
menninga væri næsta lítill beg-
ar markamunurinn var kxanma
tiL
í liði Víkinga bar Einar Magn
ússon af öðrum leikmönnum og
skoraði hann 7 mörk. Mörg
þeirra voru föst skot af lönga
færi.
f liði Ármanns bar ekki sér-
staklega á neinum einum leik-
manni, nema þá helzt Olfert
Naaby, sem er leikinn handknatt
leiksmaður.
Dómari í leiknum var Hanm-s
Þ. Sigurðsson og var oft allt of
fljótur á sér að flauta, þannig
að brotlega liðið hagnaðist á
dómunum. Gerði hann ennfram-
ur of mikið að því að gefa leik-
mönnum áminningu fyrir væg
brot.
ÞAÐ var greinilegt að flestir
þeir áhorfendur er í Laugardals-
höllinni voru á sunnudagskvöld-
ið höfðu komið til að sjá leik
Hauka og Vals, og hafa senni-
lega flestir reiknað með jöfnum
Ieik fyrirfram, enda varð líka
sú raunin á. Úrslit leiksins urðu
þau, að Haukar Bigruðu með
24:22, og var þetta fimmti leik-
urinn í röð sem liðið vinnur, en
hafði áður tapað þrem fyrstu
leikjum sínum í deildinni.
Haukar skoruðu tvö fyrstu
mörk leiksins og höfðu frum-
kvæðið fram í miðjan hálfleik-
inn, en þá jafna Valsmenn og
taka forystuna. Munurinn varð
þó aldrei nema eitt mark og
undir lok hálfleiksins ’ jöfnuðu
Hau'kar aftur og var staðan 13:13
í hálfleik. Með betri varnarleik
hefðu Haukar auðveldlega átt
að geta komið í veg fyrir að
Valsmenn skoruðu svo mörg
mörk, en þau gerðu þeir flest á
sama hátt, eða úr hornunum,
enda voru þeir þar oftast fríir
og fengu að athafna sig að vild.
í byrjun síðari hálfleiks tóku
Haukar svo aftur frumkvæðið,
en Valsmenn jafna og komast
einu marki yfir, en Haukar
jafna fljótlega. Síðan skorar
Matthías 16:15 fyrir Hauka með
fallegu skoti og Sigurður Jóa-
kimsson eykur forskot Hauka
með margi af línu, eftir fallega
sendingu Viðars. Spiluðu Haukar
síðan mjög „taktiskan“ leik, og
skutu ekki nema svo til öruggt
væri að þeir skoruðu. Um miðj-
an hálfleikinn voru þeir búnir
að ná þriggja marka forskoti, en
þá tóku Valsmenn nokkurn kipp
og tókst að skora næstu tvö
mörk 19:18, og allt gat gerst. En
þá gerðu Haukar út um leikinn
með því að skora þrjú mörk í
röð og var þá staðan orðin 22:18,
Síðustu mínúturnar léku bæði
liðin meir af kappi en forsjá og
veitti Valsmönnum betur í þe.m
dansi og tókst að minnka marka
muninn niður í tvö mök áður
en tímalúðurinn lét til sín heyra.
Haukar hafa vaxið með hverj-
um leik nú undanfarið og er r.ú
svo komið að fyllsta ástæða er
til að ætla að leikur þeirra við
Fram á miðvikudagskvöldið
verði jafn og tvísýnn. Hefur
ekkert lið tekið eins miklum
framförum í vetur og lið Hauk-
anna, enda hafa þeir breytt tölu
vert um leikaðferð. Liggur aðal-
styrkur liðsins í þvi hversu jöfn-
um leikmönnum það er skipaS
og hversu línumennirnir eru
hreyfanlegir.
1 liði Hauka átti Viðar Símon-
arson einna beztan leik. Skoraði
hann 7 mörk og átti margar línu
sendingar sem urðu að mörkum.
Þá átti Mattlhías Ásgeirsson góð-
an leik að vanda og í raun og
v.eru má segja að allir Haukarn-
ir hafi leikið prýðisvel, ef frá
er skilin varnarleikur þeirra 1
fyrri hálfleik. Logi Kristjáns-
son stóð sig einnig með ágætuna
í markinu og má mikið vera er
hann hefúr ekki „varið sig inn
í landsliðið“ í tveimur síðustu
leikjunum.
Valsmenn léku einnig ágæt-
lega í þessum leik, og komu línu
menn þeirra, Ágúst og Stefán
vel frá honum, svo og Hermann
Gunnarsson sem sjaldan á lélega
leiki. Vörn Vals var þó helzt tfl
götótt, en slíkt ætti að vera hægt
að laga án mikillar fyrirhafna*.
Dómari í leiknum var Reynir
Ólafsson og dæmdi hann með
miklum ágætuan.