Morgunblaðið - 14.04.1967, Side 1
28 SfKHJR OG MEÐ UNGU
54. árg. — 84. tbl.
FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsina i
Jóhann Hafstein: Göngum gunnreif til kosninga:
Unga kynsldöin erfir betra Island en
nokkur önnur kynsldð
— Viðreisnartímabilið mesta blómaskeið
íslenzkrar þjóðfélagsþróunar
1 LOK ræðu sinnar í útvarpsumræðunum í gærkvöldi
sagði Jóhann Hafstein, dómsmálaráðherra:
„Við Sjálfstæðisfólk vil ég segja: Göngum gunnreif til
kosninganna í júní. Viðreisnartímabilið er mesta blóma-
skeið íslenzkrar þjóðfélagsþróunar. Viðreisnarstefnan hefur
lagt öruggan grundvöll að framtíðinni. Okkar litla þjóð býr
yfir miklum möguleikum. Unga kynslóðin, sem nú horfir
vonglöð fram á veginn, erfir betra ísland en nokkur önn-
ur ung kynslóð á undan henni. Látum ekkert tækifæri
ónotað í kosningabaráttunni. Tökum höndum saman og
göngum fram til sigurs.“
í ræðu sinni sagði Magnús
Jónsson, fjármálaráðherra:
„Svartsýnismenn biðja nú
þjóðina að velja sig til for-
ustu. Frelsið er þeim þyrnir
í augum. Allt hlýtur að ganga
á tréfótum nema pólitískir
eftirlitsmenn ráði fram-
kvæmdum og úthluti leyfum
til þeirra, sem þóknanlegir
eru taldir. Sjálfstæðisflokk-
uriinn boðar þjóðinni áfram-
Johann Hafstein
hald þeirrar frjálslyndu
efnahagsstefnu, sem á fáum
árum hefur gerbreytt til
batnaðar hinu íslenzka þjóð-
félagi. Hann biður um það
eitt að verða dæmdur af
verkum sínum og varar þjóð-
ina alvarlega við afleiðingum
þess, ef ríkjandi stjórnar-
stefnu verður hafnað og
stöðnun og spilling haftakerf-
isins heldur á nýjan leik inn-
reið sína.“
Aðrir ræðumenn Sjálf-
stæðisflokksins voru Jónas
Pétursson og Sverrir Júlíus-
son.
Hér fer á eftir frásögn af
útvarpsumræðunum í gær-
kvöldi:
Framhald á bls. 13.
Öttazt um líf
Adenauers
Bonn, 13. apríl (AP—NTB).
KONRAD Adenauer, fyrrum
kanzlari Vestur Þýzkalands,
liggur enn þungt haldinn á
heimili sínu í Rhöndorf á
bökkum Rínar. Hrakaði hon-
um mjög í dag, og óttuðust
læknarnir um líf hans. Allir
nánustu ættingjar Aden-
auers eru nú komnir til Rhön
dorfs.
Sumir af kunnustu læfenum
Vestur Þýzkalands stunduðu
li Thant í Nepal
Katmundu, Nepal, 13. apríl
U THANT, aðalritari Sameinuðu
þjóðanna kom í dag til Kat-
mundu í skamma heimsókn til
viðræðna við Bista, forsætisráð-
herra Nepal um Vietnam-málið
og um aðsteð S. þ. við Nepal.
Á laugardag heldur U Thant
aftur til Indlands en á föstudag
mun hann fara í pílagrímsferð
til Lumbini í suðurhluta Nepal,
sem Búddatrúarmenn hafa á
mikla helgi. Frá Indlanidi mun
U Thant svo halda til Afgan-
istan og Pakistan áður en hann
snýr aftur til New York úr þessu
ferðalagi sínu.
Við komuna til Nepal, sagði
U Thant, að mönnum væri mik-
Framhald á bls. 27.
Efnahagsbandalag Ameríku-
ríkja rætt í Punta del Este
— Johnson forseti heitir víðtœkri aðstoð Bandaríkjanna
Punta del Este, Uruiguay,
13. apríl (AP-NTB)
LYNDON B. Johnson, Banda
ríkjaforseti flutti í dag ávarp
á ráðstefnu leiðtoga Ameríku
ríkja í Punta del Este
Hét hann fundarmönnum að-
stoð Bandaríkjanna við að
stofna einhvers konar efna-
hagsbandaiag ríkja Suður-
og Mið-Ameríku.
Káðstefna þessi er haldin í við
hafnarsal San Rafael hótelsins,
og hefur verið gripið til víðtækra
varúðarráðstafana til að tryggja
öryggi leiðtoganna. En,gu að síð-
ur fengu leiðtogarnir í dag að
Frá opnun ráðstefnu leiðtoga Ameríkuríkja í Punt del Este. J ohnson Bandaríkjaforseti er fre
mst á myndinni.
horfa á fána Víetcong skæruliða
blakta á skipstflaki um 30 mefr-
um frá ströndinni. Hafði ein-
hverjum framtakssömum vinstri
sinna tekizt að koma flánanum
fyrir, ásamt fána Uruguay, á
flaki argentínska skipsins Santa
Maria de Lujan, sem strandaði
þanna árið 1965. Sést flakið
greinilega frá veginum til hótels-
Framhald á bls. 27
íholdsmcnn
vinna á
KLUKKAN eitt í nótt skýrði
brezka útvarpið, BBC, frá því
að talningu atkvæða væri lokið
í 17 af 36 kjördæmum í Lon-
don. Höfðu íhaldsmenn þá unn-
ið 20 borgarfulltrúasæti af
Verkamannaflokknum.
Alls eru kjörnir 100 fulltrú-
ar, og í kosningunum 1964 hlaut
Verkamannaflokkurinn 64 menn
kjörna, en íhaldsflokkurinn 36.
Virðist samkvæmt þessu
Ihaldsflokkurinn ætla að yfir-
taka stjórn borgarinnar, sem
hefur verið í höndum Verka-
mannaflokksins í 33 ár.
Einnig fara fram sveltarstjórn
arkosningar víða í Englandi
um þessar mundir, og hafði
íhaldsflokkurinn víðast unnið
verulega á þegar síðast frétt-
ist.
''aenauer
Adenauer á heimili hans í Rhön-
dorf í dag, og sáu fréttamenn,
sem safnazt höfðu saman við
húsið, að komið var með súr-
efnisgeyma þangað. Er talið að
Adenauer hafi að mestu legið
í súrefnistjaldi til að auðvelda
honum andardrátt.
Klukkan fjögur síðdegis gáfu
læknarnir skýrslu um heilsufar
sjúklingsins, og segja þar m.a.:
„Líkamsþrek hans er að fjara
út. Hjatað er veikara.** Fjórum
klukkustundum seinna skýrði
talsmaður Kristilega demókrata-
flokksins frá því að engu væri
við skýrslu læknanna að bæta.
Margir erlendir þjóðhöfðingj-
ar og leiðtogar hafa sent Aden-
auer kveðjur í dag með óskum
um bata, þeirra á meðal Páll
páfi VI., Charles de Gaulle og
Franciseo Fanco. De Gaulle,
sem um margra ára skeið hefur
verið bundinn Adenauer vin-
áttuböndum, bað einnig um að
fá að fylgjast með líðan hans
og öllum breytingum.
Meðal almennings í Vestur
Þýzkalandi er líkamsþrek Aden-
auers talið óþrjótandi. Segja
fréttamenn í Bonn að íbúar borg
arinnar, sem teknir voru tali á
götum úti í dag, hafi verið þess
fullvissir að „der Alte“, eða sá
gamli, eins og Adenauer var oft
kallaður mundi einnig nú vinna
bug á sjúkdómi sínum.
Adenauer veiktist snemma í
Framhald á bls. 16.
PARÍS 13. apríl, AP — Ngo
Dinh Le Thui, 22 ára gömul dótt-
ir Madame Nhu, þeirra er fyrr-
um var valdamest kona í Si.fiur
Vietnam og mágkona Ngo Dinh
Diem forseta, særðist til ólífis í
bílslysi í París í dag. Stúlkan
var við laganám i París en móð-
ir hennar er sögð dveljast á
Ítalíu