Morgunblaðið - 14.04.1967, Side 14

Morgunblaðið - 14.04.1967, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1967. L Útgefandi: Framkvæmdast j óri: Ritstjórar: Ritstj órnarfulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: í lausasölu kr. Áskriftargjald kr. 105.00 Hf. Árvakur, Reykjavík. .Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. 7.00 eintakið. á mánuði innanlands. ) 1 ) s í s ) ) \ V \ s s $ ■J VERZLUN OG VERÐLAG mYMm Menn, sem ekki eru í fréttum Efftir R. Lewelí WASHINGTON — Svarið við spurningunni: „Hvers vegna ríkir svo mikil ring- ulreið í veröldinni?“. er al- veg við nefið á okkur í teiknimyndunum a£ „fram ámönnum" veraldarinnar, sem blöð og tímarit hafa svo gaman af að birta. Ef trúa má teiknimyndun- um eru allir þessir menn óþægilega líkir. Þeir eru allir undantekningarlaust „frábærir gáfu- og elju- menn.“ Þeir vinna allir 16 tíma á sólarhring og hafa að- dáunarverða kímnigáfu (að sögn einkaritara þeirra). Þótt þeir reki starfsfólk áfram miskunnarlaust, krefj- ast þeir helmingi meiri vinna af sjálfum sér. Þeir reyta at sér hugmyndirnar svo auð- veidlega, að starfsbræður þeirra verða furðu lostnir. Þeir fara sjaldan út að skemmta sér- og við þau fá- tiðu tækifæri fá þeir sér aldrei meira en einn einfald- an. Þrátt fyrir alla þessa atorkusemi gefa þeir sér samt tíma til að hjálpa börn- unum sínum með algebruna, lesa Immanúel Kant á nýjan leik og halda sér ' góðu formi með taumlausu gosdrykkja- svalli og golfleik. Ný aðferð reynd. Það er augljóst, að ringul- reiðin mun ríkja áfram í heiminum, ef við upgötvum ekki á prenti teiknimyndir af mönnum-í-fréttunum eins og þessum: Jackson Tully Elmsworth er ungur maður og ekkert að flýta sér. Uppáhaldsmáltæið hans er: „Hvað liggur á?“ Það hefur verið leiðarstjarna hans upp efriþrep ríkisstjórn- arinnar og þeir, sem kunn- ugir eru leiðinni til valda í Washington urðu ekkert undrandi, þegar hann var skipaður Innsiglisvörður Bandaríkjanna. Á þann þumbaralega hátt, sem honum er eiginlegur, sagði hann við blaðamenn, þegar hann yfirgaf Hvíta húsið: „Ég vildi frekar gæta innsiglis en illfyglis." „Dæmigert fyrir hann,“ segir einkaritari hans. „Kímni gáfa hans er jafnvel drumbs- legri en hann sjálfur." Innanbúðarmenn í Hvíta húsinu segja, að það sem for- ril *?■*■*? ■ ■ ' '**** j , YH & Myndin sýnir unga vietnamska stúlku, sem heldur á barn- ungri systur sinni í fanginu, mikið særðri eftir árásir skæruliða Viet Cong á þorp þeirra. Systurnar bíða báðar eftir bandarískum lyfjum og læknisaðstoð. (UPI-mynd). setinn hafi orðið hugfagnast- ur af í fari Elmsworth, væri algjör skortur hans á gáfum og eljusemi. Þau tvö ár, sem hann hefur verið einn valda- mesti embættismaður ríkis- ins, hefur hann losað forset- ann við ótal örvæntingar- stundir, hindrað ameriska hernaðaríhlutun í ótal þróun- arlöndum og va’díð skatta- lækkun, sem nema milljörd- um, með því einu að reyta af sér hugmyndir. Kona hans heldur, að þetta stafi af því, að hann ákvað að fara ekki í Harvard og koma Cambridge ekki á óvart með snilli, og hvíldalausum, árvökulum huga. „Það, sem mótað hefur alla lífsskoðun Jacksons, var sú ákvörðun hans, að hann gæti í staðinn tekið próf frá háskólanum í Virginíu með heiðarlegu „C“ og þyrfti ekki að vera allt lífið í gegn að koma fólki á óvart með gáfum, sem það á ekki að venjast,“ segir hún. Fólk, sem unnið hefur hjá honum, segir, að hann sé undantekningarlaust síðasti maðurinn, sem mætir á skrif- stunni og sá fyrsti sem yfir- gefur hana. „Það, sem einkum ein- kennir mr. Elmsworth,“ seg- ir fyrrverandi starfsbróðir hans, „er að hann krefst einskis af starfsfólki sinu og þeim mun minna af sjálfum sér.“ „Þetta eru ýkjur,“ segir Elmsworth. „Til dæmis krefst ég sumarleyfis af sjálfum mér og ég vil fá frí um helg- ar. Svo mikið á ríkisstjórnin þó hjá mér. Maður, sem vinn- ur 16 tíma á sólarhring sjö daga vikunnar verður að lok um háður því og hið fyrsrta ’ sem gerist, ef hann gætir ekki að sér, er að hann fer að reyta af sér hugmyndir svo auðveldlega, að starfs- bræður hans verða furðu lostnir. Þá skeður það, að forsetinn situr uppi með fangið fullt af hugmyndum og enginn veit lengur sitt rjúkandi ráð.“ Þrátt fyrir létta vinnu þarfnast Elmsworth átta tíma svefns á sólarhring. Það er vegna þess að hann fer Framhald á 27. ¥ ræðu sinni í útvarpsum- ræðunum sl. þriðjudags- ifcvöld gerði Bjarni Benedikts- son m.a. að umtalsefni þann áróður stjórnarandstæðinga, að hátt verðlag hér á landi stafi af óhóflegum verzlunar- gróða. Um þetta sagði for- sætisráðherra: „Sumir segja, að hið háa verðlag stafi af óhóflegum verzlunargróða og vilja þó þeir stjórnarandstæðingar, sem sjálfir fást við verzlun, hvort heldur félagsverzlun eða einkaverzlun, sízt af öllu viðurkenna að álagning sé of há í þeim verzlunargreinum sem þeir þekkja af eigin raun. Þaðan heyrast stöðugir fcveinstafir um að óhóflega sé þjarmað að verzluninni. En félagar þeirra benda á verzl- unarhallir sem upp hafa risið og sívaxandi fjölda verzlun- armanna. Sá tölulestur er villandi, því að oft er ruglað saman ýmiskonar þjónustu- störfum í þrengri merkingu. En eðliiegt er, að þeim hafi einnig fjölgað á seinni árum, þegar litið er til hinna stór- kostlegu aukningar kaupmátt ar og bata á lífskjörum yfir- leitt hjá ölium almenningi. Sem betur fer höfðu menn almennt til hnífs og skeiðar á íslandi einnig á vinstri stjórn arárunum. Síðan hefur bati Ilífskjara orðið allt að 50%, en þessi gerbylting lýsir sér einkum í aukinni eftirspurn margháttaðrar vöru, sem menn áður gátu ekki veitt sér, en þeir telja nú sjálf- sagða eða ekki beina nauð- syn. Útvegun hennar hlýtur að krefjast mjög aukins mann afla. Hin auknu viðskipti krefjast og aukins húsrýmis, ekki sízt hér í Reýkjavífc, þar sem ár- um saman var bannað að byggja venjuleg starfshýsi, samtímis því, sem kaupfélags hallir risu upp um allt land. Vafalaust má gera verzlun- arrekstur á íslandi hagkvæm ari eins og flest annað, sem hér er að unnið, en skýring- in á hinu háa verðlagi hér- lendis liggur ekki fyrst og fremst í þe9su, heldur marg- háttuðum kostnaði, sem staf- ar af jöfnun lífskjara í svo sveiflukenndu og misbrigða- sömu þjóðfélagi og við bú- um í. Menn fást ekki til að stunda þorskveiðar, ef af- fcomumöguleikar þar eru allt of frábrugðnir því, sem er við síidveiðar. Þess vegna verður að jafna þarna á miili. Bændum eru með gamalli löggjöf og allsherjar sam- þykki ætluð sambærileg kjör við aðrar ti'lteknar stéttir og fékkst þó ekki sæmilegt ör- yggi fyrir því í framkvæmd fyrr en með viðbótariöggjöf, sem núverandi hæstvirtur landbúnaðarráðherra beitti sér fyrir 1959. Þessu verður ekki náð nema mikið fé sé flutt á miili. Ýmiskonar iðn- rekstur er hér tollverndaður, það er að segja nýtur hærra verðlags en ef hann þyrfti að keppa verndarlaust við innflutning á sambærilegum vörum ■ utanlands frá. Til þess að halda uppi sjálfstæðu ríki með menn.tun, samgöng- um og öllu sem til þess heyr- ir nú á dögum, verður hver einstaklingur að leggja meira á sig en þegnar í f jölmennari ríkjum þurfa að gera til þess að standa undir sambærileg- um kostnaði“. STÓRFÉLLDAR FRAMFARIR / SAMGÖNGUM Ohætt er að fullyrða, að á síðustu árum hefur verið ráðizt í stórfelidari vegafram kvæmdir en nokkru sinni áð- ur á jafn skömmu tímabili, framkvæmdir, sem hafa þeg- ar eða eru í þann veginn að gjörbreyta samgöngumálum fjölmennra byggðarlaga. í þessu sambandi koma sérstak lega upp í hugann fram- kvæmdir á borð við Reykja- nesbrautina, sem hafa gjör- breytt samgöngum milli Reykjavíkursvæðisins og Reykjanesskagans og hinna þýðingarmiklu verstöðva þar, Múlaveginn, sem hefur gjör- breytt aðstöðu Ólafsfirðinga, Strákaveg, sem brátt verður fullgerður og mun vaida bylt ingu í samgöngumálum Sigl- firðinga og veginn fyrir Ól- afsvíkurenni, sem hefur tengt saman útgerðarstaðina á Snæfellsnesi. í ræðu, sem Ingólfur Jóns- 9on, samgöngumálaráðherra, hélt á Alþingi um vegaáætl- unina sl. miðvikudag skýrði hann m.a. frá því, að á þessu ári mundi verða til ráðstöfun ar í vegagerð um 480 milljón- ir króna. Ráðherrann skýrði ennfremur frá því, að unnið yrði við Mývatnssveitarveg á þessu ári og mundi sá vegur kosta samkv. áætlun rúmlega 52 millj. króna, en á þessu ári yxði unnið fyrir 30 millj. kr. og mundi þessi vegur verða sveitunum í Þingeyjarsýslum ti'l mikils hagræðis. Þá gerði Ingólfur Jónsson ennfremur að umtalsefni gerð varanlegra vega og sagði, að augljóst væri, að hefja þyrfti undirbúning af fullum krafti sem fyrst og að því stefnt að byrja fram- kvæmdir fyrir alvöru sumar- ið 1969. Engiinn vafi er á því, að það er nú orðið mjög brýnt verkefni að hefja varan'lega vegagerð á hinum fjöLfarn- ustu umferðarleiðum, þar sem umferðin er nú orðin svo mikil á þeim, að nær ógern- ingur er að halda malarveg- unum við. Núverandi rfkis- stjórn beitti sér fyxir stór- felldu átaki í þessum efnum með gerð Reykjanesbrautar- innar og sú reynsla, sem fékkst af lagningu hennar mun vafalaust verða dýrmæt, þegar lagt verður út í enn stórfellldari framkvæmdir á þessu sviði. HEIMSÖKN SOVÉZKA RÁÐHERRANS ITm þessar mundir er stadd- ur hér á landi sjávarút- vegsmálaráðherra Sovétrfkj- anna í boði íslenziku ríkis- stjórnarinnar og mun hann eiga viðræður hér við ýmsa forustumenn á sviði sjávar- útvegs og skoða fiskiðjuver hér á landi. íslendingar hafa um margra ára skeið átt ágæt viðskipti við Sovétríkin og selt þang- að mikið af framleiðsluafurð um sjávarútvegsins, og vilja gjarnan selja þangað meira af sumum framleiðsluvörun- um. Heimsókn hins sovézka sjávarútvegsmálaráðherra er því Íslendingum fagnaðarefni og vonandi verður heimsókn hans hingað til þess að styrkja enn og auka viðskiptl landanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.