Morgunblaðið - 14.04.1967, Page 28

Morgunblaðið - 14.04.1967, Page 28
-lír Hermann Jónsson úrsmiður Lækjargötu 2. FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1967 Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Réðust að peningaskáp um með logsuðutæki INNBROT var framið í húsakynn um Vátryggingarfélagsins hf. í fyrrinótt. Það misheppnaðist vegna þess, að þjófunum tókst ekki að opna tvo peningaskápa fyirtækisins, þótt þeir hefðu með sér logsuðutæki. Leifur Jónsson hjá rannsóknar lögreglunni, sagði Morgunblað- inu, að fyrst hefði verið tilkynnt um innbrot hjá Vátryggingarfé- laginu. En þegar á staðinn kom varð ljóst að fyrst hafði verið brot- ist inn hjá Vegagerð ríkisins og ' stolið þaðan vagni með logsuðu- tækjum. Þjófarnir höfðu svo brotið glugga á Dósaverksmiðj- unni, ekið vagninum þar inn og borið tækin upp á aðra hæð þar sem tryggingarfélagið er til húsa. Lítill færanlegur peninga- skápur hafði verdð keyrður inn ,1 kaffistofuna og þar ráðist til atlögu við hann með logsuðu- tækjum. Einig var ráðizt að stór um innbyggðum peningaskáp. Hvorugan skápinn tókst þjófun- um að opna, en stórskemmdu báða. Málið er í rannsókn. Lóðaúthlutun í Breióholtshverfi Viðgerð á ræsi. Nýtt ræsi sett í Laugalandsveg hjá Gröf. (Ljósm. Sv. P.) LÓÐANEFND Reykjavíkur- borgar hefur nýlega úthlutað lóðum undir átta fjölbýlishús. f þessum húsum munu verða 392 íbúðir. Áður hafði lóða- nefnd úthlutað sex fjölbýlis- húsalóðum til framkvæmda- nefndar byggingaáætlunar rikis, borgar og verkalýðsfélaga. Er þar um að ræða 284 íbúðir og munu framkvæmdir hefjast um 1. júií. Lóðanefnd lagði til, að eftir- töldum aðilum verði gefinn kostur á fjölbýlishúsalóðum í Breiðliolti. Þar sem mælt var með úthlut- Ishkov fór með Gullfossi til Eyja RÚSSNESKI sjávarútvegsmála- ráðherrann Ishkov, sem hér er í boði ríkisstjórnarinnar, skoð- aði í gær m.a. fiskiðjuver og heimsótti rannsóknarstofnanir sjávarútvegsins. Kvöldverður var snæddur i boði Síldarút- vegsnefndar. Kl. 22 í gærkvöldi fór Ishkov ásamt fylgdarliði með Gullfossi frá Reykjavík til Vestmanna- eyja. í dag mun ráðherrann skoða fiskiðjuver í Eyjum, sitja há- degisverð bæjarstjórnar. Þá mun hann einnig sigla í grennd við Surtsey. Ráðgert er, að Gullfoss komi með Ishkov og föruneyti hans til Reykjavíkur á morgun, laugar- dag. un ti' fleiri en eins aðila að sómu ióð, voru viðkomandi aðil- ar sameiginlegir lóðarhafar að allri lóðinni og bera ébjrrgð á henni allir fyrir einn, einn fyrir alla. Eyjabakki 2 — 16: Haukur Pétursson h.f., Aust- urbrún 39 og Sigurður Guð- mundsson, Laugarnesvegi 67. Árni Vigfússon, Silfurteigi 1. Eyjabakki 1 til 15: Valdimar Magnússon, Heiðar- gerði 63, og Óskar og Bragi s.f., Rauðalæk 21. Dvergahakki 2 til 16: Bústaður s.f., Safamýri 44. Dvergahakki 18 til 32: Atli Eiriksson, Hjálmholti 10, og Steinverk h.f., Skólavörðu- stíg 4 C. írabakki 18 til 32: Jón Hannesson, Rauðagerði 8, og Sólgarðar s.f., Rauðalæk 21. Framhald á bls. 27. Þjófur handtekinn LÖGREGLAN handtók í gær- kvöldi mann sem stal peninga- veski með 32 þúsund krónum i af gesti í Háhæ síðasttiðiö laugardagskvöld. Hann hefur áður komist undir manna hend- ur fyrir afbrot, og var búinn að eyða þýfinu eins og það lagði sig. Færð botnor í Eyjafirði - óframhaldandi Ieysingar Akureyri, 13. apríl. STARFSMÖNNUM Vegagerð- arinnar hefur nú tekizt að gera til bráðabirgða við þær vega- skemmdir, sem urðu af völdum leysinga og vatnsaga viðs vegar um héraðið í gær. Má telja að nú séu allir vegir orðnir sæmi- lega færir. Aurbleyta fer ört vaxandi í vegum og má búast við, að hún nái brátt hámarki ef sömu hlý- indi haldast áfram. Mikill vöxtur er í Eyjafjarð- ará og flóir hún nú að kalla má yfir alla Hólmana, landa miili, líkt og hún gerir stundum í maí- lok eða í júníbyrjun. Nokkur mórilla er í Akureyrarpolli og út eftir Eyjafirði innanverðum, bæði úr Eyjafjarðará og öðrum ám, sem í fjörðinn falla. — Sv. P. Fá hvorki blað né bréf Vopnafirði, 13. apríl. FLUGVÖLLURINN hér hef- ur verið lokaður vegna leys- inga í tæpa viku og póstur hefur ekki komið hingað í meira en hálfan mánuð. Herðubreið kom hingað fyrir tveim dögum frá Reykja vík og hélt norður fyrir land, en hafði hvorki bla<ð né bréf meðferðis til Vopnfirðinga. AHur okkar póstur liggur á Akureyri. — Fréttaritari. Ashkenazy heldur hér tónleika HINN víðkunni píanósnillingur, Vladimir Ashkenazy er væntan- legur til Islands hinn 28. apríl næstkomandi, samkvæmt upp- lýsingum Péturs Péturssonar. Mun hann halda tónleika í Þjóð leikhúsinu hinn 2. maí, en halda að því búnu til Englands. Á tónleikunum hér mun Ashk- enazy leika Sónötu í D-dúr K 576 eftir Mozart, Sónötu nr. 8, op 84 eftir Prokofieff og fjögur Scherzi eftir Chopin. Eiginkona píanóleikarans, Þór unn mun koma með honum hing að, svo og börn þeirra tvö. Þau hjón hafa að undanförnu verið í Bandaríkjunum, þar sem Ashk enazy hefur verið í hljómleika- för. Enginn sáitafundur AI.LT er við það sama í deilu lyfjafræðinga og apótekara, og hefur fundur ekki verið boðað- ur hjá sáttasemjara. Apótekar- ar halda áfram að afgreiða lyf eins og áður hefur verið sagt frá. 5 manns slasast í umferðinni í gær FIMM manns slösuðust í umferð inni í gærmorgun á röskum hálf- um öðrum tíma, þar af voru þrjú böm. Fyrsta slysið varð um kl. 10,30 á Ægissíðu. Var það með þeim hætti, að lítill drengur hljóp af gangstétt, fram með kyrrstæðri steypubifreið og út á götuna. 1 sömu svifum bar að bifreið, sem var á leið austur Ægissíðu, og varð drengurinn fyrir henni. Hann var fluttur í Slysavarð- stofuna, en meiðsli hans ekki tal in alvarslegs eðlis. Óánægðir Alþýðubandalagsmenn boða til fundar: Stefna að félagsstofnun og framboði HINIR fyrrverandi samstarfs menn kommúnista í Alþýðu- bandalaginu, sem kommúnist- ar ráku á dyr sl. mánudags- kvöld hafa nú ákveðið aðefna til fundar í Lindarbæ n.k. sunnudagskvöld, til þess að ræða sameiginleg viðbrögð við aðgerðum kommúnista gegn þeim. Málgagn þeirra, „Frjáls þjóð“, birtir auglýsingu um fund þennan í gær og meðal fundarboðenda eru Alfreð Gíslason alþm., tveir synir Hannibals Valdemarssonar, fyrrverandi flokksmenn Sósía listaflokksins, trúnaðarmaður Dagsbrúnar og ýmsir „þjóð- varnarmenn." Til fundarins eru boðaðir allir Alþbl.-menn sem utan Sósíalistaflokksins standa, svo væntanlega verð- ur flokksbundnum sósíalist- um vísað á dyr, ef þeir sýna sig þar. Þegar síðari hluta miðviku- dags fóru að berast fregnir um hina fyrirhuguðu fundarboðun og fór flokkskerfi kommúnista þá þegar í gang til þess að þjarma að ýmsu fólki, sem verið hefur á báðum áttum. Það mun vafalaust fara mjög eftir fjölda fundarmanna og öðr- um viðbrögðum þeirra, hvort tekin verður ákvörðun um stofn- un nýs stjórnmálafélags vinstri manna á þessum fundi, en greini lega er að því stefnt. Takist sú félagsstofnun, má einnig telja víst, að hið nýja félag hyggi á Framhald á bls. 27 Hálftíma síðar varð annað slys á Langholtsvegi. Samkvæmt frásögn ökumannsins, sá hann tvær telpur á gangi vinstra meg- in við akbrautina, og er hann var rétt kominn að þeim, hljóp önnur telpan skyndilega út á götuna, og skipti engum togum, að hún varð fyrir bifreiðinni. Telpan mun hafa lent á vinstra framhorni bifreiðarinnar, kast- ast síðan, að einhverju leyti, upp á vélarhúsið, en féll svo í göt- una. Var telpan, sem heitir Björg Haraldsdóttir, Sæviðar- sundi 86, 11 ára að aldri, þegar flutt á Landspítalann og við rann sókn þar kom í Ijós, að hún var handleggs- og lærbrotin. Þriðja slysið varð um kl. 11,30 á Snorrabaut á móts við hús nr. 75. Stafaði slysið af því, að Fram'hald á bls. 27.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.