Morgunblaðið - 03.06.1967, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.06.1967, Blaðsíða 15
7. tbl. 3. júní 1967 Við viljum heimsmenningu á Islandi og íslenzka menningu í heiminum 9 Rabbab v/ð prófessor Þór Vilhjálmsson um nytsemi stjórnmála og islenzka menningu I»ór Vilhjálmsson prófessor, sem skipar 12. sætið á lista Sjálfstæðismanna í Reykjavik við Alþingiskosningarnar annan Bunnudag, er fæddur 9. júní 1930, sonur Ingu Árnadóttur og Vilhjálms Þ. Gíslasonar útvarps- Btjóra. Þór varð stúdent 1949 og lögfræðingur 1957. Hann tók við prófessorsembætti við laga- deild háskólans 1. febrúar s.I. en var áður borgardómari í Reykjavík og jafnframt lektor við háskólann. Kona Þórs er Ragnhildur Helgadóttir héraðs- dómslögmaður, og eiga þau hjón þrjú börn, son og tvær dætur. Fréttamaður æskulýðsblaðsins átti nýlega tal við Þór í því skyni að fá hann til að segja lesendum blaðsins nokkuð frá áhugamálum sínum, og segir frá þessu spjalli hér á eftir: „>ú ert búinn að starfa nokk- uð lengi í Sj álfstæð isf 1 okknum.“ „Það byrjaði, þegar við nokkr- ir félagar í menntaskólanum gengum í Heimdall 1946. Þá var mikið um að vera, og stjórn- málabakterían komst svo djúpt í sálina, að hún hefur ekki farið þaðan síðan.“ „Þú varst formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna?" „Mikilvægasta verkefni mitt í Sjálfstæðisflokknum hefur ver- ið að vera formaður sambands- ins 1959—1964. í sfjórn þess kom ég raunar 1955. Varla minn- ist ég að þessa starfs án þess ég fái svolítinn hjartasting.“ „Hvers vegna það?“ „Vegna þess, að þar gafst tækifæri, sem ekki kemur aftur, til að vinna að stjórnmálum fyr- ir æskuna í landinu. Ég held, að árangurinn hafi ekki verið verri en gerist og gengur, en hann varð ekki eins mikill og ég vildi og vonaði. Mér var að vísu ljóst, að almennt útbreiðslu — og kynniagarstarf meðal ungs fólks væri aðalverkefnið, og að því var unnið með margvíslegu móti. En ég vonaði líka, að okkur, sem á þeissum tíma vorum í etjóm Sambands ungra Sjálf- stæðismanna, tækist að stórefla stjórnmálaáhuga, stjórnmálavit- und, ungu kynslóðarinnar. Von- andi hefur einhver árangur orð- ið, en hann varð tæpast nægur. Okkur skortir skilning á gildi stjórnmálanna. Of oft er talað um, að pólitíkin sé heldur grugg- ugt fyrirbæri og smjúgi alls stað- ar inn, þó að hún eigi ekkert erindd, næstum eins og sjúk- dómur. Sannleikurinn er þó sá, að stjórnmálin erif ekki hindrun í vegi framfaranna heldur tæki okkar allra, almennings í land- inu, til að ráða okkar eigin málum. Það fer mikið starf fram á vegum stjórnmálaisamtaka æskumanna I öllum flokkum, en það ætti að mínu éliti að vera mun meira og með þeim hætti, að unga fólkið fyndi og skildi, að það er í flokkunum að taka þátt í því, sem ræð-ur framvindu þjóðmálanna. Stjórnmálaistarf- semin þarf að keppa um tíma æskunnar við annað félagsstarf, skemmtanir, kvikmyndir, sjón- varp, tónlistariðkun og hver veit hvað. Sem betur fer er ekki hætta á, að stjómmálastarfið verði undir í þessari keppni, en ég hefði þó viljað vita af því magnaðra en nú er. Ég trúi því, að með sem almennaistri þátt töku í stjórnmálaistarfseminni muni pólitíkin batna og lýðræð- ið eflast.“ „Það er heldur sjaldgæft, að því sé haldið fram eins og þú gerir, að pólitíkin sé of lítil. Br þessi skoðun sprottin af því, að þú telur sénstakar hættur blasa við í þjóðfélaginu, eða er hér e.t.v. um einhvers konar lög- fræðilegt viðhorf að ræða? „Má ég segja það fyrst, að játa verður, að benda má á ýmis at- vik, þar sem pólitíkki, blessuð, hefur ekki verið til þurftar. Hins veger tel ég vafalaust, að þörf sé á stjórnmálavakningu meðal almennings og ekki sízt æskunnar. En vegna spurningar þinnar er þess að geta, að við framhaldsnám mitt í ríkisrétti svokölluðum fyrir nokkrum ár- um kynntist ég þvi vel, að í ná- grannalöndum okkar hafa hinir beztu menn áhyggjur af því, að sívaxandi starfsemi ríkisins rýri frelsi og sjálfstæði þegn- anna. Nokkuð hefur sums stað- ar verið gert til að sporna við þessu. í ýmsum löndum eru til dæmis til sérstakir stjórn- sýsludómstólar, þar sem menn eiga að geta fengið á fremur ein- faldan hátt úrskurði um marg- víslegan ágreining við hið opin- bera. Á öllum Norðurlöndum nema fslandi og einnig í Bret- landi og á Nýja Sjálandi eru til sérstakir umboðsmenn þjóð- þinga eða lögsögumenn, og er ætlazt til, að þeir athugi kvart- anir vegna skipta borgaranna við opinbera aðila. Persónulega er ég þeirrar skoðunar, að ýms- ar aðgerðir séu tímabærar hér á landi til að tryggja réttarör- yggi í opinberri sýslan, en meg- inniðurstaðan af hugleiðingum mínum um þessi efni hefur þó verið sú, að bezta tryggingin fyrir því. að lýðræði og réttlæti sé í heiðri haft í landinu, sé sú, að fólkið sjálft sé sívakandi í stjórnmálum og að sem flestir séu beinir þátttakendur í þeim, m. a. með því að starfa í stjórn- málaflokkum.“ „Þú hefur fylgzt með íslenzk- um stjórnmálum lengur en flest- ir lesendur þessa æskulýðsblaðs. Hvað finnst þér eftirminnilegast af þeim atbuxðum, sem þú manst eftir?“ „Þær eru nú heldur slitróttar minningarnar um stjórnmála- .atburðina lengi vel. Þó man ég, að við fórum tveir skólabræður að horfa á þingmennina, þegar deilt var um breytinguna á kjör- dæmaskipuninni 1942. En svo kom lýðveldisstofnunin. Ég man, að ég var á þingpöllunum, þegar atkvæði voru greidd um nýju stjórnarskrána. Þá voru borð- fánar fyrir framan hvern þing- maryi, og mér er minnisistætt, að ég sá Bernharð Stefánsson koma út úr þinghúsinu að fundi loknum og halda á sínum borð- fána eins og fánaberi í skrúð- göngu. Svo stóð ég í rigningunni á Þingvöllum 17. júní og á ekki von á að lifa stærri dag í ís- lenzkri stjórnmálasögu." „Og hvað um það, sem síðan hefur gerzt?“ „Síðan höfum 'við lifað sem sjálfstæð, örsmá þjóð í stórum heimi. Atvinnustarfsemin hefur ekki verr tekizt en svo, að talnameistarar, sem bera saman tekjur á Vesturlöndum, telja okkur hafa þriðju hæstu tekjur á nef. Ég dáist mest að hinni geysilegu framleiðni í sjávarút- veginum, en einnig að því, að hér hefur myndazt stór hópur vel bjargálna fólks. Þetta hefur aðallega orðið þannig, að menn hafa eignazt sínar eigin íbúðir og smærri atvinnutæki. Sjálf- sagt væri æskilegt, að meira væri um eignamyndun í spari- fé, hlutabréfum og skuldabréf- um, en að því kemur. Varla verður um það deilt, að það er Sjálfstæðisflokkurinn, sem beitt hefur sér fyrir eign handa öll- um. Með þessu er þó auðvitað ekki allt sagt. Fáir gera sér held ég grein fyrir því, að greiðslur úr almannatrygginga- kerfinu verða á þessu ári hvorki meira né minna en 1.575 milljón- ^ir króna eða um 8,5% af nettó- þjóðartekjum okkar. Hefur mik- ið áunnizt í félagsmálum og raunar á fjöldamörgum sviðum, en jafnframt ber okkur að minn- ast þess, að betur má, ef duga skal, í ýmsum efnum.“ „Og svo eru það menningar- málin.“ „í menningarmálum okkar þarf sífelld endurnýjun að verða, og vel má segja, að við þurfum að horfa bæði inn á við og út á við. Við horfum inn á við, þegar við virðum og metum, hvað við eigum sjálfir að skapa á þessu sviði. Með skólunum reynum við að byggja breiðan og traustan grunn, en þar á of- an kemur svo t. d. blaða- og bókaútgáfan, útvarpið, leikhús- in, tónlistarstarfsemin og vís- indastörfin. Út á við horfum við, þegar við metum, hvað við eig- um að nýta af því, sem býðst meðal erlendra þjóða. Mér finnst, að við hljótum alltaf að hafa þennan þátt ríkt í huga, því að lítil þjóð þarf að vera vel á verði. Að þessu leyti hafa þeir að mínu viti rétt fyrir sér, sem varað hafa við erlendum áhrifum á islenzka menningu. Hins vegar tel ég, að þeim, sem hæst hafa látið í sér heyra um þessi efni, hafi algjörlega mis- sýnzt um það, hvar hættan er mest. Mikill hluti þess, sem sagt hefur verið um „amerikaniser- ingu“ og uppgjöf íslenzkrar menningar andspænis erlendum áhrifum, hefur verið út í bláinn, forsendurnar, sem þessar 'hugleið íngar hafa byggzt á, hafa ekki verið í samræmi við veruleik- ann. Við erum miklu minna undir erlendúm áhrifum af þessu tagi en sumir vilja vera láta. Þá er slæmt, að vel meintar at- hugasemdir hafa verið notaðar í pólitískum tilgangi af miður vel meinandi mönnum. Ef til vill má ég nefna lítið dæmi, sem alþjóð kannast við, er bendir til, að erlend áhrif hérlendis séu ekki þau, sem stundum er sagt. Hér á ég við sjónvarps- Þór Vilhjálmsson proíessor dagskrána á gamlárskvöld, þar sem íslendingar lögðu af mörk- um hresisilegan gamanþáttý en hin Norðurlöndin einkum ónor- rænan vellusöng. Ég er ekki þeirrar skoðunar, að erlend múgmenning sé að gera út af við okkur, — tel athuganir á þjóðlífinu ekki sýna það. Hættan er hins vegar meiri í hámenning- unni. Þar held ég, að fólksfæð- in sé það versta. Það eru svo sárafáir, sem stunda t. d. vísinda- störf á íslandi, að erfitt er að skapa þeim rannsóknaumhverfí. við hæfi. f listunum virðist vandinn ekki sízt vera sá, hvern- ig fella á þær fáu hámenning- arstofnanir, sem við eigum, eink- um sinfóníuhljómsveitina og leikhúsin, inn í víðari ramma, sem blöðin, hljóðvarpið og sjón- varpið hljóta að smíða. Annað erfitt vandamál er, hvernig við eigum að halda bókinni uppi á íslandi. íslenzkir rithöfundar þurfa að komast í meira sam- band við almenning, og svo er það sá alvarlegi vandi, að við fáum alltof lítið af góðum þýð- ingum. Ég hef aldrei getað lært erlent tungumál svo vel, að ég sé bókmenntalæs á það, ef svo má segja. Ég veit, að margt feir annaðhvort ofan garðs eða neð- an hjá mér, þegar ég les list- rænt skrifaða ensku eða dönsku, hvað þá önnur tunsumál. En þó er maður að lesa á þessum mál- um, bæði af því að þýðingar eru ekki til. en Þ'ka oft af því, að raun er að þeim þýðingum, sem bjóðast. Og þar við bætist svo, að erlend vasabók er miklu ódýrairi en íslenzk útgáfa sama verks. — Þetta eru einstök dæmi um atriði, sem ég tel skipta miklu máli um sjálfstæða til- veru íslendinga sem menningar- þjóðar. Hám°nning okkar hefur sjaldnar verið til umræðu í þessu sambandi en svonefnd múgmenning, e.t.v. vegna þess, að menn hafa haft stjórnmála- áróður bak við eyrað stundum. Ég þekki engan, sem segist vilja leggja íislenzka menningu niður. Við skulum því láta nægja að spyrja, hvernig bezt sé að varð- veita hana og efla. Mér sýnisí, að á þeim rúmleea 20 árum, sem ég þykist hafa fylezt sæmilega með, hatfi verið uppi tvenns kon- ar viðhorf á þessu sviði, það mætti kalla þau einangrunar- stefnuna og aðlögunarstefnuna. Þeir, sem aðhvllast einangrun- arstefnuna vilja loka erlend áhrif úti, — háfa að ég held innst inni ekki trú á, að við höf- um mótstöðuafl og dug til að taka við erlendum menningar- straumum án þess að fara sjáltf- ir í hundana. Þeir, sem trúa á það, sem kalla má aðlögunar- stefnuna, vilja, að við tökum þátt í þeirri menningarþróun, sem verður úti í heimi, en að við notum erlendax hugmyndir til að efla það, sem íslenzkt er. Auðvitað er málið ekki svona Eramhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.