Morgunblaðið - 23.06.1967, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1967.
Jakob V. Hafstein, lögfræðingur:
Annað opið bréf
til veiðimálastiéra
— Frá Klaustri
Framhald af blls. 10
Fossála og fram með hraun-
röndinni. En nú hafa álarnir
löngu verið brúaðir og vegur
lagðúr beint austur yfir hraun-
ið. Skammt frá veginum er Or-
Ustuhóll, 90 metra hár móbergs-
klettur, sem stendur eins og sker
upp úr úfnu hraunhafinu. Af
honum sést vel frarrt yfir Bruna-
sand og til austasta bæjarins á
Síffu, sem nú er í byggð. Það
er Þverá. Hann stóð áður undir
fjallinu en hefur nú verið flutt-
ur austur yfir ána, sem þar dreg-
ur nafn af bænum og heitir
Þverárvatn. Langt fyrir innan
Þverá er eyðibýlið Brattland.
Þar bjó Mála-Davíð (dó þar 5.
jan. 1839), hinn fróði málfylgju-
maður, sem varð að láta sitt
mikla handrita- og bókasafn upp
I sektir og málskostnað. Þótti
honum dauf vistin í elli sinni,
bókarlaus í forsælunni á Bratt-
landi.
Þá segjum við skilið við Síð-
una og höldum í Fljótshverfið
— austustu sveitina í Vestur-
Skaftafellssýslu. í stóru viki upp
1 Eldhraunið stendur efsti bær-
inn á Brunasandi, Teyginga-
lækur. Austan við hann kemur
^Eldvatnið fram á sandinn og af
því dregur austur-álman á
hrauninu nafn og kölluð Eld-
vatnstangi. Þar er hraunið slétt-
ara en annarsstaðar. Hraunþök-
in eru breið og bungumynduð en
milli þeirra eru djúpar gjár og
gjótur. Hraunið er allvel gróið
og í því hin bezta sauðfjárbeit,
hættur miklar og þar hefur
mörg kindin borið beinin.
Fremst í Eeldvatnstanga stóð
fyrir eina tíð lítil og lágreist
varða, sem nú er löngu horfin.
Um það frumstæða mannaverk
segir sr. Jón Steingrímsson í
Eldriti sínu: „Það er ósannindi,
að nokkur hafi hér grafinn verið
í bæjum eða víðavangi eins og
hingað hefir borizt annarsstaðar
hafi sagt verið, fyrir utan einn
mann, sem hét Vigfús Valdason.
Hann var illur í skapi, blótaði
nálega öllu, þá réð svo við að
horfa. (Guð lætur ei að sér
hæða). Hann varð úti á sandi
fyrir austan Eldvatnið. Er hann
dysjaður uppi í hrauninu að
" vestanverðu og hlaðin varða
yfir“.
Af hraunbungunni í Eldvatns-
tanga er hið bezta útsýni austur
yfir Fljótshverfið — landnám
Gnúpa-Bárðar. Frá honum seg-
ir í Landnámu, að hann nam
Bárðardal og bjó að Lundar-
brekku um hríð. Þá markaði
hann af veðrum að landviðri
voru betri en hafviðri og ætlaði
af því betri lönd fyrir sunnan
heiði. Því næst sendi hann syni
sína suður á góunni og fundu
þeir góubeitla og annan gróður.
Annað vor eftir gerði Bárður
kjálka (sleða) hverju kvikindi
því er gengt var, og „lét hvat
draga sitt fóður og fjárhlut“.
Hann fór Vonarskarð, þar' sem
síðan heitir Bárðargata. Hann
"ham síðan Fljótshverfi og bjó að
Gnúpum. Þá var hann kallaður
Gnúpa-Bárður.
Svona er náttúran sterk í
Skaftafellssýslu. Fyrir norðan
dró dalurinn nafn af þeim, sem
nam hann, en þegar suður kem-
ur verður hann að beygja sig
fyrir landslaginu og er kenndur
við það.
Núpafjall er mjög sérkenni-
legt, þverhnípt og brúnahvasst
og mundi mjög setja svip á
Hverfið ef.........
Ja, hvaða fjall fær notið sín
í nálægð Lómagnúps? Eða þeg-
ar maður hefur Öræfajökul fyrir
augum. Óvíða njóta þessir tveir
risar sín betur heldur en héðan
af Eldvatnstanganum ef gott
sýni gefst til austurs. Blásvart
þverhttípi núpsins og breiðar,
hvítar bungur jökulsins. — Það
er erfitt að slíta sig frá slíkri
sjón. Það verður varla nokkur
samur maður er hann hefur not-
ið hennar. Hann verður auðugri
eftir en áður vegna þess að
landið — landið hans — er
fegurra og stærra og tignarlegra
heldur en hann vissi að það
væri.
Fljótshverfið er — landfræði-
lega skoðað — framhald af Síð-
unni — enda til forna talið hluti
af henni — (þá hét Síðan Skóga-
hverfi). Hér er hálendisbrúnin
nær jöklinum og heiðarnar því
ekki eins vel grónar. Undirlend-
ið er líka minna og hrjóstrugra
— hraun og aurar — grjót og
sandar. En hér er mörg matar-
holan og víða gras og gróður
þegar nánar er að gáð, enda
hefur ávallt verið vel búið í
Fljótshverfi. Bæirnir standa
meðfram fjallinu, allir nema
Maríubakki og Hvoll, sem eru
í hinum svonefnda Bakkavelli
sunnarlega í miðri sveit. — Uppi
undir fjallinu eru útbæirnir
vestast, Dalshöfði og Seljaland,
þar sem skorpa Eldhraunsins
verpist s.a.s. upp • að túngarð-
inum og Hverfisfljót byltir sér
yfir úfið hraunið. Þaðan er löng
bæjarleið að bæ Gnúpa-Bárðar,
og er hans áður getið. Allmiklu
austar er kirkjustaðurinn Kálfa-
fell, tvíbýli og hinar gömlu hjá-
leigur hans, Kálfafellskot, nú í
eyði og Blómsturvellir fyrir ofan
heiðarbrúnina. Austast eru svo
bæirnir Rauðaberg og Núpsstað-
ur. — Þá eru upptalin heimilin
í Fljótshverfi. Þau eru nú sam-
tals 10 og heimilisfastir rúml.
40 manns.
Nú skal lokið þessum hugleið-
ingum á Eldvatnstanga og haldið
í Hverfið — austur bugðóttan
veginn yfir hina fornu brú á
Hverfisfljóti. Margir ganga yfir
brúna, bæði vegna þess hve hún
er veik og þó ekki síður vegna
hins' að njóta þess að horfa á
fljótið fossa í flugst'reng eftir
hraunklöppunum niður í lygn-
una framan við brúna. Það er
stórfengleg sjón þegar fljótið er
í vexti eins og venjulega í sum-
arhitum.
Skammt austan Hverfisfljóts
er Brunná, en því næst er ekið
rakleitt eftir nýjum vegi um
Núpahraun, Bakkavöll og yfir
Brúará og Laxá. Freistandi væri
að koma við á Kálfafelli, en lík-
lega verðum við að sleppa því
í þetta sinn og láta frásögn af
þessu gamla prestssetri bíða betri
tíma.
Skammt fyrir austan Kálfa-
fell er Djúpá, hinn versti farar-
tálmi áður en hún var brúuð.
Þar suður á áurunum var fyrir
eina tíð heil kirkjusókn, sem
nú sér hvergi stingandi strá.
Svo hreinlega hefur Djúpá geng-
ið hér að verki.
Um örlög Lundarkirkju — og
sóknar er þessi vísa:
Lundarkirkja og bezta bú
berst í vatnaróti.
Hvar er.sóknin hennar nú?
Hulin aur og grjóti.
Já, mikið hafa vötnin og jök-
ulhlaupin að gert í Skaftárþingi
á liðnum öldum og fram á þenn-
an dag.
Rauðaberg stendur í fögrum
hvammi austan Rauðabergsmúla
— og áður en komið er að Núp-
stað er farið yfir eina óbrúuðu
ána á þessari miklu vatnaleið
— Krossá — litla og sakleysis-
lega bergvatnsá, sem oftast er
alveg niðri í aur og því auð-
veld yfirferðar. Nú sést heim að
Núpstað — austasta bænum í
Vestur-Skaftafellssýslu, þar sem
Hannes, hinn aldni og hægláti
ferðagarpur hefur gert garðinn
frægan, Hann er heima að venju,
situr máske á fiskasteinimim
frammi á hlaðvarpanum og við
heilsum upp á hann um leið og
við biðjum leyfis að mega líta
inn í bænhúsið, sem stendur í
sínu þjóðlega látleysi í grafreitn-
um austan við bæinn. Það á sér
sína sögu, langa sögu, sem ekki.
er tími til að rekja hér. Geta
skal aðeins þess að það var tekið
úr tölu opinberra guðshúsa fyrir
meira en 200 árum. Stjórnar-
völdin ætluðu að láta jafna veggi
þess við jörðu og koma viðunum
í peninga. Prófasturinn á Kálfa-
felli, sr. Jón Bergsson, segir hafa
„í áformi nær klakann upp leys-
ir að láta rífa kirkjuna (á Núp-
stað) og selja svo viðinn eftir
sinni virðingu". En líklega hef-
ur klaki farið seint úr jörð í
Fljótshverfi þetta vor. Svo mikið
er víst að ekkert varð úr þessu
áformi. Bjargaði það þessu nið-
urlagða húsi Guðs og síðan hefur
hann haldið yfir því sinni vernd-
arhendi. — Nú er það í umsjá
þjóðminjavarðar.
Þegar búið er að skoða sig um
heima á Núpstað er sjálfsagt að
aka áfram austur fyrir Núpinn.
Honum lýsa engin orð. Hér segja
Núpsvötnin: Hingað og ekki
lengra. — Þá er að ganga upp
í hlíðina. Þaðan má, í góðu
skyggni, virða fyrir sér auðn
Skeiðarársands og svalan heím
jöklanna, en austur yfir kom-
umst við ekki fyrr en vötnin
milli Fljótshverfis og Öræfa hafa
verið brúuð og þarmeð kominn
hringvegur um landið.
Gísli Brynjólfsson.
------♦♦♦--------
- UNGIR
Framhald af bls. 5.
orðuim mínum er auðsætt, að
mér finnst þessi tilraun um sýn
inigu á verkum ungra listamanna
hafa tekizt ágætlega, og ekki má
gleyma því, að auðvitað á sýn-
ingarnefndin sinn þátt í því,
hve árangur heÆur náðst. Þótt ým
islegt sé dálítið framandi á þess
ari sýningu, verður ekiki annað
sagt en að það séu þó nokfkur
tengsl milli þessara verka og
fyrri hefðar í myndlist
það er að segja, þetta
fólk vinnur auðsjáanlega að
miklu leyti nýstárlega úr fyrri
reynslu á sviði myndlistar, og
er það auðvitað því til hróss.
Þannig verður öll nýstárleg list
til, og aðeins þannig getur list
endurnýjazt. Þekking er undir-
staða, sem eikki verður sniðgeng
in, ef hlutirnir eiga að vera ein
hvers virði. Þetta atriði er því
vissulega gleðilegt að finna hjá
Hæstvirtur veiðimálastjóri.
Mér þótti vænt um það að
Morgunblaðið skyldi gefa þér
tækifæri til að sjá og lesa fyrsta
opna bréfið mitt til þín og bjóða
þér að gera við það athugasemd-
ir og leiðréttingar, ef þú vildir
og teldir nauðsynliegt, um leið
og það var birt í blaðinu. En
mér þótti leiðinlegt — þín vegna
— hve heimskulega þú brást við
hinu góða boði blaðsins og ég
fullvissa þig um, að enginn trúir
því að þú hvorki lesir né viljir
sjá það, sem ég skrifa og hefi
skrifað um fiskræktunarmálin.
Þú ert nú, þrátt fyrir ailt, ekki
það stór í sniðum að þú getir
hundsað slík skrif, jafnvel þó að
þau komi úr mínum penna. Auk
þess ertu opinber embættismað-
ur, sem gagmvart þínum yfirboð-
urum, getur ekki látið til lengd-
ar urnmæli mín og margra ann-
arra, þegjandi fram hjá þér fara.
Um það hlýtur að lokum land-
búnaðarráðuneytið að sjá.
Það. er augljóst að þú ætlar
ungum myndlistarmönnum á fs
landi í dag.
Ef við ldtxim svolítið á verk
einstakra listamanna, sjáum við,
að EINAR HÁKONARSON á
þarna fimm verk, sem skera sig
nokikuð úr, og eru ef til vill það
bezfa, er þarna er á ferð. Einar
hefur mikla kunnáttu, og hann
kann að beita henni á persónu-
legan hátt. Verk Einars eru það
áhrifamikil og sannfærandi, að
enginn efi er á að þar er óvenju
lega efnilegur listamaður á ferð.
HAUKUR ÞÓR STURLUSON er
ekki eins sjálfstæðúr og hefur
heldxir ékki sama vald yfir lit og
formi og sá fyrnefndi, og við nán
ari kynningu standa þessi verk
Haulks ekki eirns vel og við
fyrstu sýn. HREINN FRIÐ-
FINNSSON notar alls konar
hluti í málverk sín og leitar fyr
ir sér meira í efnismeðtferð en
sjálfri myndbyggingunni, en
hann virðiist í mótun sem lista-
maður, og það er ekki gott að
gera sér grein fyrir, hvað tekur
við hjá Hreini. EYSTEINN JÓNS
SON á þarna fimm verk, sem eru
dálítið misjöfn að gæðum, en
hann hefur vandaða tækni og
nostrar við verk sín, ef til vill oif
mikið. Það er eins og hann færist
stundum of mikið í fang í hverri
mynd og eigi í erfiðleitoixm með
að hemja hug sinn við kjarna
málsins, en það er skemmtilegt
að sjá, hve alvarlega hann tekur
á viðfangsefninu, og það eitt gef
ur þessum verkum Eysteins gildi.
GUÐMUNDUR ÁRMAN á bæði
málverk og höggmyndir á þessari
sýningu. Málverk hans eru sér-
lega aðlaðandi og sýna næma til-
finningu fyrir lit og teikningu, en
þau eru ekki sérlega sterk í eðli
sínu. Sama er að segja um högg
myndir Guðmundar, þær eru fín-
legar en ekki mjög sláandi. JENS
KRISTLEIFSSON sýnir dúk-
skurðarmyndir, sem eru mjög
þokkaleg verk, og hæfileikar
hans leyna sér ekki. Sama er að
segja um málverk GUNNSTEINS
GISLASONAR, en þar er það
litameðferðin, sem vekur eftir-
tefct, en formið er ekki eins
merkilegt. RÓSKA (Ragnhildur
Óskarsdóttir) sýnir sjö myndir,
sem allar eru athyglisverðar.
Hún teiknar á einkennilega
skemmtilegan hátt, og það er
einhver lífs þjáning í öllum
hennar verkum. Ragnhildur
kemur skemmtilega á óvart með
tilfinningasemi sinni, og list
hennar er dálítið sérstæð á þess
ari sýningu. SIGURJÓN JÓ-
HANNSSON hefur ekki áður
sýnt eins góð verk og þær vatns-
litamyndir, er hann á þarna. Nú
virðist hann hafa fundið sér
heim, sem hann getur tjáð á
viðkvæmann og sannfærandi
hátt í verkum sínum. Þessi verk
þér að láta fara um þessi bréf
mín, eins og svo fjöldamörg er-
indi önnur, sem þér hafa borizt
frá veiðiréttarei.gsndum og leig.u
tökum veiðiréttinda á undan-
förnum árum, ýmist að draga
það óhæfilega iengi að svara
þeim eða jafnvel alls ekki . að
svara þeim. Um þetta geta marg
ir borið og eru fúsir til þess, ef
þörf krefur. Þú vonar það, að
þögnin vinni fyrir þig og sé þitt
bezta vopn. Má vel vera að svo
sé. Þú hefur valið þann kostkm
og þá aðferð að senda frá þér
ýmsar fréttatilkynningar, alla-
•vega litaðar og ekki mema hálf-
ur sannleikur sagður í þeirn, þér
í hag, sem eiga að þjóna þér sem
nokkursikonar óbein svör til mín
og amnarra. Þetta getur verið
gott og jafnvel friðað samvizku
þína um stunda'rsakir. En það
verður ekki til lengdar, hæst-
virtur veiðimálastjórL
Nú get ég hinsivegar sagt þér
það í hreinskilni, að mér og
Framhald á bls. 18.
Sigurjóns eru miklu fremri því,
er hann átti á sýningu ungra lista
manna í Louisiana safninu í
Danmörk á síðasta vetri. Hann
hefur nú skipað sér í fremstu
röð ungra listamanna með þess-
um verkum. FINNBOGI
MAGNÚSSON á þarna aðeins
þrjú verk, sem eru mjög þokka-
leg, en ekki átakamikiL
MARGRÉT JÓELSDÓTTIR sýn-
ir eina höggmynd, sem er sér-
lega lagleg, og málverk hennar
eru einkennilega upprxmaleg og
sönn. Margrét er mjög eftirtekt
aiverð í list sinni, og verk hemn
ar virðast búa yfir meiru en séð
verður'í fljótu bragði. Þarna eru
að mínu áliti eimkennilega magn
aðir hæfileikar á ferð. ÞÓRÐ-
UR BEN SVEINSSON og
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON,
eiga þarna eitt sérstakasta verk
sýningarinnar í sameiningu, sem
þeir nefna Royal system (mál-
verk í þrem víddum). Ég er
hræddur um, að ég skilji ekki
þetta verk fullkomlega, en engu
að síður hef ég mjög gaman að
því. En hugdetta og áræði þess-
ara ungu manna fimnst mér
skemmtilegt og sérstætt þetta er
auðvitað POP-list og ætti að
vekja verulega athygli. Kristján
á þarna tvö verk önnur sem eru
hreinrætotuð POP-fyrirbæri, en
ég hef minna gaman að þeim en
hinu fyrirferðarmikla Royal
system. Óg að lokum kemur svo
sjalfur ALFRED FLÓKI, sá ver
aldarvani surrealisti, með nokkr
ar skemmtilegar teikningar, sem
eru ágætlega valdar á þessa sýn-
ingu. Flóki er eiginlega „The
grand old man“ á þessari sýn-
ingu og fer hlutverkið prýðilega
úr hendi.
Það er margt gott við þessa
sýningu, og það er líka ýmsu á-
bótavant, en heillarútkoman er
þessu unga fólki mjög til sóma,
og það er því sjálfsagt að hvetja
það til meiri átaka. Það væri
ekki sanngjarnt vegna þessa
unga fólks að aðeins hæla því og
gefa undir fótinn.
Að lokum vil ég óska þessu
unga fólki til hamimgju með
þessa fjörugu og skemmtiiegu
sýningu og vona, að það eigi eft-
ir að standa sig eins vel og það
nú gerir, þegar dagar líða. Það
er enginn svikinn á því að kynn
ast þeirri list, sem hér er á ferð.
Valtýr Pétursson.
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA-SKRIFSTOFA
SÍMI 10-1D0
MURBROT
L
SPRENGINGAR
1
GROFTUR
VANIRMENN
NÝ TÆKI
7RAKTORSGRÖFUR
TRAKTORSPRESSUR
LOFTPRESSUR
ÁMOKSTUR JÖFNUN LÓÐA
VÉLALEIGA
simon simonar
SÍMI 33544