Morgunblaðið - 23.06.1967, Blaðsíða 28
AUGLÝSINGAR
SÍMI 22*4*80
RITSTJORN • PRENTSMIÐJA
AFG R EIÐSLA • SKRIFSTO FA
SÍMI 10*100
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1967
TVÖ UNG BÖRN LÖGÐISJÚKRA-
HÚS MEÐ EITRUN FRÁ TRJÁÚÐUN
TVÖ «ng böm hafa verið lögð
inn á bamadeild Landakots-
spítala tvo siðustu daga vegna
eitrunar, sem þau urðu fyrir er
trjágarðar voru úðaðir með skor
dýraeitri.
Morgunblaðið átti í gær tal
við einn af læknum barnadeild-
arinnar og sagði hann, að sl.
miðvikudag hefði verið komið
í Slysavarðstofuna með tveggja
ára barn sökum þess að foreldr-
unum hefði þótt óeðlilegt,
hversu mikið það svaf.
Læknirinn kvað barnið þegar
hafa verið s ent í barnadeild
Landakotsspítala, en þar hefði
komið í ljós að það þjáðist af
bráðri eitrun.
Hann sagði, að í gær hefði
svo verið kornið með nokkurra
mánaða barn, sem einnig hefði
fengið eitrun frá trjáúðun.
Hefði barnið sofið í vagni sín-
um úti í garði á meðan úðað
hefði verið. Hefði það verið með
greinileg einkenni eitrunar og
þarfnazt sjúkrahúsvistar. Kvað
hann liðan barnanna nú eftir at
vikum.
Hann sagði, að ekki lægi ör-
ugglega fyrir, hvaða tegund
skordýraeiturs væri um að ræða
í þessum tilfellum. Móteitur sé til
við ákveðnum tegundum úðunar
eiturs og heiti það atropin.
Læknirinn sagði, að ekki
hefðu komið fleiri börn með
eitrun frá trjáúðun í barnadeild
Landakotsspítala, en vel kynni
að vera að fleiri börn hefðu
fengíð slíka eitrun, því fólk átti
sig ekki ætið á því hvað um sé
að ræða.
Læknirinn sagði, að full á-
stæða sé að vara fólk við þvi
að láta börn koma þar nærri,
sem verið er að úða garða.
I>á má benda á það, að í
Morgunblaðinu þann 17. júní sl.
var birt fréttatilkynning frá
Fuglaverndunarfélagi íslands
um úðun garða með skordýra-
eitri. f>ar segir meðal annars:
„Húseigendur einkum þeir
sem eiga börn vérða fyrir bein-
um óþægindum af úðuninni,
þarf að gæta varúðar í um-
gengni um garða sem úðaðir
hafa verið og börn eiga helzt
ekki að boma þangað í nokkurn
tíma. Þessi óþægindi gætu menn
otft losnað við með því að láta
ekki úða garða sína að ástæðu-
lausu".
Góðar sölur
TOGARINN Karlsefni seldi afla
sinn í Grimsby sl. mánudag og
þriðjudag, en hann var með
215 tonn. Fékkst gott verð fyr-
lr aflann, eða 18.206 sterlings-
pund.
f»á seldi Júpíter afla sinn í
Hull sl. þriðjudaig og miðvihu-
dag, alls 178 tonn fyrir 17.811
sterlingspund. Er það einnig
ágætt verð.
Nýstárlegt sumarnámskeið fyrir börn á Seltjamarnesi stendur nú yfir í Mýrarhúsaskóla. Er
námskeið þetta haldið á vegum Bamavemdunarneftndar Seltj amesshrepps og er styrkt af
hreppnum. Una börnin sér þama við leik og störf frá kl. 10—4 dag hvem, og þegar þessi
mynd var tekin voru bömin nýkomin úr söfnunarferð í fjörunni og líma kuðunga, skeljar og
þörunga snyrtilega á blað.
UNGUR MAÐUR JATAR A
SIGINNBROTIDIEIMSKIP
Fór til útlanda strax eftir innbrotið
UNGUR maður hefur nú
játað á sig innbrotið í skrif-
stofur Eimskipafélags íslands
hinn 21. apríl sl., en þaðan
var þá stolið 213.700.00 kr.
Rannsóknarlögreglan hefur
lengi haft mann þennan grun-
aðan um innbrotið, þar sem það
vitnaðist fljótlega við rannsókn
málsins, að hann hafði tekið sér
flugfar til Kaupmannahafnar
tveimur dögum eftir innbrotið,
að því er virtist fyrirvaralaust,
og án þesis að vitað væri að
Kokkurinn var drýgstur
og dró 2.160 ufsa
Stykkishólmsbátur með tœp 50 tonn af
ufsa, sem fékkst á handfœri á 52 tímum
VÉLBÁTURINN Hafnaberg
kom inn í gærmorgun til
Stykkishólms með tæp 50
tonn af ufsa, sem skipverjlar
höfðu dregið á handfæri á
rúmum tveim skólarhringum.
Blaðamaður frá Morgun-
blaðinu átti í gær viðtal við
skipstjórann, Pétur Ágústs-
son, sem er aðeins 21 árs að
aldri. Pétur sagði:
— Við fómm sl. þriðjudag
héðan frá Stykkishólmi og
komum aftur á fimmtudags-
morgun með tæp 50 tonn af
milliufsa.
— Við erum 11 um borð og
renndu allir fyrir ufsann með
handfæri. Við vomm hálfan
dag að leita að honum og
komumst svo í hann út aí
Eldeyjarboða.
— Á 52 timum drógum við
svo þessi tæp 50 tonn. Kokk-
urinn var drýgstur okkar
allra og dró 2160 stykki.
Hann heitir Sverrir Kristjáns
son og er 24 ára.
— I þessari ferð var há-
setahluturinn frá 15 þúsund-
um kr. og upp í 30 þús. kr.
— Við erum búnir að vera
um mánuð á þessum veiðum
og höfum fengið um 150 tonn
með þvi sem fékkst í síðustu
ferð.
Á meðan ufsinn er við
er ætlunin að halda þessu
áfram, og líklegast skreppum
við á sama stað aftur, þarna
við Eldeyjarboða.
— Ufsinn er lagður inn í
frystihús hér í Stykkishólmi,
þar sem han er flakaður. Er
unnið fram á miðnætti við
vinnslu flans.
— Hafnaberg er 70 tonn að
stærð og er eign Björgvins
h.f. í Stykkishólmi. Tveir aðr
ir bátar héðan, Svanur og
Gullþórir, voru einnig fyrir
sunnan á ufsaveiðum, en mér
er ekki kunnugt um afla
þeirra.
— Það er óhætt að segja,
að við séum ánægðir með
þessa síðustu ferð og von-
umst til að heppnin verði
með okkur áfram.
hann hefði peninga til þess.
Maðurinn hefur síðan dvalizt
erlendis, og lítið til hans spurtzt
þar til hann kom aftur til lands-
ins fyrir tveimur dögum. Var
hann þá tekinn til yfirheyrzlu
og athugunar, málið tekið upp
aftur til rannsóknar og hefur
maðurinn nú játað á sig inn-
brotið, sem fyrr segir.
Rannsóknarlögreglan hefur
ekkert haft með mann þennan
að gera ður. Unnlð er að rann-
sókn málsins áfram.
------♦♦♦-------
ROY Jenkins, innanríkis-
ráðherra Bnetlandis skýrði
frá því í dag, að 18. febrúar
nk. muni Bretar taka upp mið
evrópskan tíma, sem verður
óbreyttur allt árið. V irður kl.
í Bretlandi þá einni klst, á
undan Greenwich-tkna.
86 hvalir
hafa veiðst
ÁLLS höfðu 86 hvalir veiðzt
klukkan 5 síðdegis í gær, að
því er Loftur Bjarnason, fram
kvæmdastjóri Hvals h.f. tjáði
Morgunblaðinu.
Sagði Loftur að á sama
tima í fyrra hefðu 105 hval-
ir veirið veiddir, en 88 miðað
við úthaldstíma hvalveiðibát
anna, því veiðamar hófust nú
viku sáðar.
Loftur sagði, að ótið hefði
spillt fyrir veiðunum til að
byrja með, eu veiðin hetfði
verið góð eftir að veður batn
aði.
Eandhelgi
Neskaupstað, 22. júní.
TOGARINN Marz, RE 261, var
tekinn að meintum ólöglegum
togveiðum 1.8 sjómílu innan fisk
veiðitakmarkanna austur af
Hvalnesi um 9 leytið í morgun.
Varðskipið Óðinn, sem tók togar
ann, færði hann hingað og var
mál skipstjórans, Ásgeirs Gísla-
sonar, tekið fyrir hjá bæjarfó-
geta kl. 19.30.
Skipstjórinn á Marz hefur
ekki viðurkennt landhelgisbrot,
en segir ratsjá togarans fhafa ver
ið í ólagi.
Búizt er við því að réttarhöld
in standi fram eftir nóttu.
Togarinn hafði verið 10 daga
að veiðum og var búinn að fá
170 tonn. Var áformað, að tog-
arinn færi síðdegis í dag til Eng
lands, þar sem hann átti að selja
í Hull n.k. mánudag.
Reynt verður að flýta réttar-
höldunum, svo togarinn geti
siglt til Englands sem allra fyrst
til að koma fiskinum á markað.
— Ásgeir.
-----♦♦♦--------
Votnavextir
í Logoríljóti
Egilsstöðum, 22. júni.
VEÐUR hefur verið gott hér um
slóðir undanfarið, en hefur nú
kólnað aftur. Spretta er með lé-
legra móti á túnum og sem dæmi
um það má nefna, að Egilsstaða-
bændur eru ekki enn farnir að
hugsa um að slá.
Miklir vatnavextir hatfa verið
í fljótinu, en þó hafa ekki orðið
skemmdir á vegum nema hvað
kantar skemmdust við Lagar-
fljótsbrúna að austanverðu og i
Hallormsstaðaskógi.
Hér snjóaði í fjöll sl. nótt, en
snjóinn hefur tekið upp að
mestu. — Fróttaritari.
Kosningaskemmtun
starfsfólks D-listans
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN efnir til tveggja kosninga-
skemmtana fyrir þá fjölmörgu sem störfuðu fyrir D-listann
fyrir og á kjördag í Reykjavík.
Kosningaskemmtanirnar verða í Lídó og Hótel Borg
í kvöld kl. 8,30 og stendur til kl. 2.00.
Ómar Ragnarsson skemmtir og Finninn Manu sýnir
akrobatik.
Miðar eru afhentir á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í
Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll (2. hæð) milli kl. 9—6.
Sjálfstæðisflokkurinn.
i