Morgunblaðið - 23.06.1967, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1967.
alla. — Kanske eruð þið ekki
frá þeim komnir?“
Danó hristi höfuðið. „Nei,“
sagði han hátíðlegur í bragði.
„Við erum sendiboðar guðanna
I hinu mlkla ljóshjóli, er þið
sjáið héðan. Og við getum hugg
að ykkur með því, að óvinir ykk
ar á hinum plánetunum eru und
ir lok liðnir, þið þurfið ekki
framar að óttast þá. En hvers-
konar menn eruð þið, og hvernig
er ykkar þjóðskipulag? Við er-
um hingað sendir til þess að
rannsaka hvernig þið farið með
gjafir lífsins og hagið ykkar
málum.“
„Það varðar ykkur ekkert
um!“ svaraði skikkjumaðurinn
þóttalega, „En gerið þið sjálfir
grein fyrir ykkur, og segið sann-
leikann. í>að þýðir ekki að fóðra
okkur hér á neinu kjaftæði um
guði, slíku trúir enginn — eða
getið þið kannski sýnt okkur
þá.“ Seyrðu glotti brá fyrir á
vörum mannsins, og hann leit
ögrandi í augu árásasveitarfor-
ingjans.
Danó brosti góðlátlega, þegar
Lolla hafði lokið túlkun sinni.
„Það er velkomið," anzaði hann
„En fyrst ætla ég að sýna þér
einn af djöflunum. Þú nefndir
myrkurgyðjuna áðan — kannski
þig langi til að kynnast henni
nánar?“
Var nú ka'llað á Spú. Er hún
stökk niður úr diskinum, og fór
nokkra hringi kringum sjálfa
sig á leiðinni, heyrðist undrunar
kliður hvaðanæva af torginu.
Hún hafði fjóra fætur og fjórar
hendur, og var ákaflega liðug í
hreyfingum. Var hún á stærð
við meðalhund, en andlit henn-
ar var svo ófrýnilegt, að fleistum
brá mjög í brún, er þeir sáu
hana í fyrsta sinn. Vafálaust
hafði hún þróazt frá ein'hvers
konar skordýri, og bar höfuð
hennar þes vott.
Skikkjumanninum varð aug-
Ijóslega mikið um, er skepna
þessi staðnæmdist fyrir framan
hann og góndi á hann fjórum
eldrauðum glyrnum. Hann veik
lítið eitt aftur á bak, en reyndi
þó að halda virðuleik sínum.
„Þetta er viðbjóðslegur karl!“
mælti Spú fyrirlitlega á tindra-
máli. „Ég finn í maga mínum
að hann verður aldrei trúr okk-
ur á nokkurn hátt, heldur mun
hann sitja á svikráðum og jafn-
vel reyna að drepa okkur. Vopn
hans eru svartar hugsanir.*1
„Hefur kvikindi þetta mál?“
spurði skikkjumaður forviða.
„Heyra máttu það,“ svaraði
Danó. ,,Spú er einn af foringjum
djöflanna, og getur kallað á
fjölda þjóna sinna, hvenær sem
hún vill.“ Hann sneri sér að
Tamas frá Belíó og gaf honum
merki. Andartaki síðar úði og
grúði af litlum dýrum, í mynd
og líkingu Spú, allt í kringura
skikkjumanninn. En hann æpti
upp yfir sig og bað hástöfum að
þessi stefnrvargur væri frá hon-
um rekinn. Lét Tamas þá litlu
dýrin hverfa, en Danó minnii
foringja Hnattbúanna á að enn
hefði hann ekki svarað spurn-
ingu hans, viðvíkjandi þjóðskipu
lagi þeirra.
Skikkjumaður gaut hornauga
ti'l Spú, en horfði síðan rann-
sakandi á Danó. „Við erum eng-
ir fábjánar,“ sagði hann slótt-
uglega. „Okkur er vel kunnugt
um að hið bjarta hjól saman-
stendur af sólum og jarðistjörn-
um. Vitringar okkar hafa líka
haldið því fram, að á þeim hött-
um myndu búa lífverur. En ekki
þykir mér trúlegt að þið séuð
þaðan komnir, því að svo mikil
er fjarlægðin frá einni sól til
annarrar, að líf manns myndi
ekki endast til að fara slíkar
ferðir.“
„Eigi að síður hef ég farið um
allt þetta sólnahvel," mælti
Danó.
Skikkjumaður leit til disksins,
en hristi síðan höfuðið. „Tæp-
lega trúi ég því,“ sagði hann.
,,Og ekki ertiu enn búinn að
sýna mér guði þína.“
Danó gaf þá Tamas merki að
nýju. Sjónhverfingamaðurinn
fórnaði höndum, leit til himins
og hrópaði með lotningarfullum
rómi: „Kóró tava! Kóró tava!“
Birtist þá, skammt fyrir ofan
diskinn, vera ein, gríðarstór, og
hrutu eldglæringar af henni í
allar áttir. Var hún mjög tign-
arleg á að sjá, og úr glóandi
augum hennar teygðust eldslog-
ar í átt til foringja Hnattbú-
anna.
Það mátti sjá að skikkjumanni
brá mjög við þessa sýn, svo og
fólksmergðinni á torginu. Heyrð
ust hvetjandi raddir hrópa til
hans, og túlkaði Lolla þær í þá
átt að hann skyldi semja við
geimfarana, í stað þess að kalla
yfir sig reiði þeirra.
Brosti hann þá undirfurðu-
lega, og hneigði sig fyrir Danó.
„Ég þykist sjá að þú hafir sann-
leik að mæla,“ sagði hann og
var nú næsta hógvær. „Þeir guð
ir, sem forfeður okkar dýrkuðu.
Sumarleyfin eru byrjuð
Stólvindsængur frá kr. 470.—
Tjöld frá kr. 1.396.—
tjöldin með bláu aukaþekjunni eru gerð
fyrir íslenzka veðráttu.
HÚSTJÖLDIN
svefntjald og stofu-
tjald, eru væntan-
leg um lielgina.
Kosta aðeins
um kr. 5.850.—
Nestistöskur
Pottasett
Gasprímusar.
Kynnið ykkur verðið á viðleguútbúnaðinum.
Verzlið þar sem hagkvæmast er.
Verzlið þar sem úrvalið er.
PÓSTSENDUM
Laugavegi 13.
Sími 13508.
Hann var kyndari á einum af gömlu togurunum.
hér endur fyrir löngu, voru líkir
þessum, sem þú hefur nú sýnt
okkur. Okkar á milli sagt hef ég
aldrei trúað því, að þeir væru
annað en ímyndun. En úr því
að svo er ekki, þá beygi ég mig
fyrir staðreyndunum og hlýði
kröfu þinni. — Þjóðfélag okkar
er byggt á heilbrigðum grund-
'velli. Þeir, sem þess eru um-
komnir, ráða fyrir hinum, sem
minnimáttar eru. Og þek sem
hafa greind og hugvit til að
stjórna, fá að sjálfsögðu allt sem
þeir óska sér; hinir hljóta auð-
vitað að láta sér nægja það sem
afgangs verður. En allir hafa
nóg fyrir sig að leggja — nema
náttúrlega þrælarnir, sem gera
skítverkin, en þeim er einnig
skammtað nægilegt til þess að
þeir geti rækt störf sín.“
„Hverjir eru þrælar ykkar?“
spurði Danó hvasst.
„Þeir eru afkomendur djöfl-
anna, sem komu hingað á eld-
skipum, endur fyrir löngu, frá
plánetunum þarna úti í myrkr-
inu.“
„Sækið nokkra þeirra, og lof-
ið mér að tala við þá!“ skipaði
Danó.
Foringi Hnatt'búanna hrópaði
einhverja skipun út til mann-
fjöldans. En þar eð svipur hans
var allseiyrinn, gaf Danó aðstoð-
armanni sínum í diskinum merki
um að vera við öllu búinn. Tor-
tryggni hans reyndist líka rétt-
mæt, því að andartaki síðar brá
fyrir samskonar eldblossa og áð
ur, en þó nokkru minni, og 1
þetta sinn kenndu geimfaranir
lítilsháttar svima, en féllu ekki
til jarðar. Lömunarbyssurnar
þrumuðu í sama bili, og mann-
söfnuðurinn á torginu lagðist til
hvíldar um stund. Skikkjumann
inn sakaði ekki, þar eð hann var
innan varnarmúrsins, en ljótur
AUKIN ÞÆGINDI - AUKIN HÍBÝLAPRÝDI
nwoodOhef
Engin önnur hrærivél býður upp á jafn-
mikið úrval ýmissa hjálpartækja, sem
létta störf húsmóðurinnar. En auk þess
er Kenwood Chef þægileg og auðveld í
notkun og prýði hvers eldhúss.
KENWOOD CHEF fylgir;
Skáli, þeytari, hnoðari, hrærari, sleikjari
og myndskreytt uppskrifta- og leiðbein-
ingabók.
— Verð kr. 5.900.00.
Viðgerða- og varahlutaþjónusta.
Símí
11687
21240
Laugavegi
/70-/72